Morgunblaðið - 14.10.1982, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 1982
39
félk í
fréttum
Lone Hertz spyr:
„Hef ég náð
til þín?“
+ Kvikmyndin um Lone Hertz og einhverfa son-
inn hennar, Tómas, leiddi aldrei til jafn mikillar
umræðu og hún hafði vonast eftir. Hún hefur nú
skrifað opið bréf til allra landa sinna þar sem
hún lýsir þessum vonbrigðum sínum, sem beinast
helst að stjórnvöldum og deyfð þeirra gagnvart
málefnum þroskaheftra og fatlaðra:
„Titill myndarinnar var á sínum tíma valinn
sem áskorun eða hvatning: Tómas — barn sem
ekki er hægt að ná til. Myndin hefði þess vegna
getað borið nafnið — Barn sem hægt er að ná til
— vegna þess að ég og allir þeir sem viljann hafa,
geta náð til Tómasar. Mér finnst hins vegar að
þeir sem ég hef aldrei náð til eða mun ná til, séu
valdhafar þessa lands. Hef ég náð til þín?,“ spyr
Lone Hertz í lok þessa opna bréfs síns.
Svo mikið er víst, að Lone hefur með mynd
þessari náð til margra sem ekki höfðu leitt hug-
ann að málefnum sem þessum áður, því að henni
hefur borist fjöldi bréfa og símtala, bæði frá fólki
sem þekkir þessi málefni af eigin raun og eins frá
hinum sem eru reiðubúnir að kynnast þeim af
öllum mætti.
Leikkonan Lone Hertz ásamt einhverfa syninum Tóm-
asi.
Hver er
þessi maöur?
+ llenrik prins af Danmörku
er ekki jafn þekktur í Banda-
ríkjunum og vindlingamerki
með sama nafni. IJm þessar
mundir streyma til Norður-
landanna fregnir frá hátíða-
höldum vegna opnunar
Soandinavia Today. Prins
llenrik prýðir margar þeirra,
en því miður er hans oftast
getið sem óþekkts manns í
myndatextum sem fylgja. í
einu blaði gengur hann undir
nafninu Pehr Gyllenhammer
á meðan annað blað lætur
þess getið, að prinsinn sé
„óþekktur Norðmaður" ...
Ákærð fyrir barnaþjófnaði
+ Sorgleg réttarhöld hefjast á
Taiwan í þessari viku yfir konu
nokkurri að nafni Julie Úhiu, sem
er 31 árs gömul, og er ákærð fyrir
að hafa selt stolin börn til Evrópu-
búa, sem óskuðu eftir að taka kjör-
börn. Að minnsta kosti sextiu börn
hafa verið send til Evrópu á þenn-
an hátt og spurningin er nú hvort
hægt sé að flytja þau aftur til sinna
upprunalegu foreldra, eða hvort
hægt verður að leysa þetta mál á
annan hátt.
I>að var 41 sem tóku þátt í þjófn-
uðum þessum ásamt Julie, þar á
meðal læknar og Ijósmæður, en
eftirlit með útflutningi barna til
ættleiðingar erlendis er lítið á
Taiwan...
Frank Zander og
dóttirin Jasmín
+ Frank Zander, sem er kominn á fjölda vinsældalista víða um lönd
með aðra útgáfu af laginu „Da, da, da“ (eftir Trio), nýtur við flutning
þess aðstoðar fimm ára gamallar dóttur sinnar, Jasmín.
Um lagið og flutning þess segir hann: „Mér finnst hugmynd Trio
frábær, en að mínu mati taka þeir sig alltof hátíðlega. Þess vegna
valdi ég að láta húmorinn ráða ferðinni og láta litlu dóttur mína
syngja „Da, da, da“. Það geta fullorðnir ekki gert á trúverðugri hátt.“
Frank Zander er ekki nýtt nafn í skemmtiiðnaði í Þýskalandi.
Hann er fæddur í Berlín 1942 og flutti meðal annars lagið „Dance
Little Bird“, sem seldist í meira en 600.000 eintökum. Árið 1975 hlaut
hann einnig verðlaunin „Golden Europe“ frá útvarpsstöðinni The
Voice of America.
Þau verðlaun hlaut hann fyrir nokkrar barnaplötur: „Börn hafa
mikla þörf fyrir Ijóð og lög, en ég fékk hugmyndina að plötunum frá
sjö ára gömlum syni mínum, Markúsi," segir Frank, sem í rauninni
heitir Fred Sonnenschein og býr í Berlín ásamt eiginkonu sinni og
börnum.
Krank
Zander
ásamt
dóttur
sinni,
Ja-smín,
scm að-
stoðaði
hann við
ílutning
lagsins
„Da, da,
da“.
STJðRNUNARFRfEÐSLA
TÖLVUR OG
NOTKUNARMÖGULEIKAR
ÞEIRRA
Tilgangur námskeiðsins er að gefa stjórnendum fyrir-
tækja yfirlit yfir helstu hugtök á sviði tölvutækni og kerfis-
fræði og yfirfara forsendur fyrir ákvarðanatöku um notk-
un tölva við rekstur.
Gerð veröur grein fyrir grundvallarhug-
tökum í tölvufræðum og lýst helstu tækj-
um og skýrð hugtök tengd þeim. Fjallaö
veröur um hugbúnað tölva og hvernig
byggja má upp tölvukerfi. Aðaláhersla
verður síöan lögð á að kynna hvernig
mæta má upplýsingaþörf stjórnenda og
leysa vandamál innan fyrirtækja með
notkun tölva. í lok námskeiösins veröur
gerð grein fyrir framtíðarþróun á sviði
tölvutækni.
Námskeiöiö er ætlað framkvæmdastjór-
um og öðrum stjórnendum í fyrirtækjum
sem taka þátt í ákvörðunum um tölvur og
notkun þeirra innan fyrirtækja.
Tölvuritvinnsla
Tilgangur námskeiösins er að kynna
tæknina við tölvuritvinnslu og æfa nem-
endur í notkun ritvinnslukerfa.
Efrti:
— Undirstööuatriði um tölvur og tölvu-
póst.
— Kostir tölvuritvinnslu.
— Kynning og æfingar á ýmis rit-
vinnslukerfi sem þegar eru flutt til
landsins (ETC, BSG, RITÞÓR,
SCRIPSIT, WORDSTAR o.fl.).
Námskeiðið er ætlaö þeim sem vilja afla
sér alhliöa þekkingar um hvað ritvinnsla
er og vilja æfa sig og meta mismunandi
valkosti ýmissa ritvinnslukerfa.
Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfélagsins í síma
82930.
Ath.: Fræðslusjóður Verslunarmannafélags Reykjavíkur
greiöir þátttökugjald félagsmanna sinna á þessu nám-
skeiöi og skal sækja um það á skrifstofu VR.
ÁÆTLANAGERÐ
MEÐ SMÁTÖLVUM
Staöur: Ármúli 36, 3. hæð
(gengið inn frá Selmúla).
Tími: 18.—22. október kl.
09.00—13.00.
Leiðbeinendur:
Kolbrún
Þórhallsdóttír
Ragna Siguróar-
dóttir Guójohnsen
Staður: Ármúli 36, 3. hæö
(gengið inn frá Selmúla).
Tími 18.—20. október kl.
14.00—18.00.
Leióbeinendur:
Hjörtur Hjartar,
rekstrarhag-
frasðingur
Dr. Jóhann Malm-
quist, tölvunar-
trssðingur
Vslgeir Hallvarösson,
véltaaknifrsaOingur.
Markmið námskeiðsins er að gefa
stjórnendum og öðrum sem starfa viö
áætlanagerð og flókna útreikninga, inn-
sýn í hvernig nota má tölvur á þessu
sviði.
Á námskeiðinu veröur gerð grein fyrir
undirstöðuatriðum viö áætlanagerö og
kennd notkun forritara VisiCalc og
SuperCalc. Þessi forrit starfa á svipaöan
hátt, en eru gerð fyrir mismunandi tölvu-
kerfi. Nemendur verða þjálfaöir í aö leysa
raunhæf verkefni ásamt eigin verkefnum
á tölvunum.
Námskeiöið er ætlaö stjórnendum og
öðrum sem vilja kynnast forritunum Visi-
Calc og SuperCalc.
Staður: Ármúli 36.
Tími: 25.—27. október kl.
13.30 til 17.30.
Þátttaka tilkynnist til
Stjórnunarfélagsins í síma 82930.
ASTJÚRNUNARFáAfi
ISIANDS SfÐUMÚLA 23
SÍMI 82930