Morgunblaðið - 27.10.1982, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 1982
19
Matvælahneyksli í Vestur-Þýskalandi:
Nautakjötið reyndist kengúru-
kjöt - svínasteikin hrossakjöt!
Mainz, 25. október. AP.
MIKIÐ hneyksli hefur skotið upp
kollinum í Vestur-I’ýskalandi og
felst m.a. í því að eitt af stærstu
matvælainnflutningsfyrirtækjum
Vestur-I>ýskalands hefur um
tveggja ára skeið flutt inn og selt
kengúru-, asna- og hrossakjöt undir
þvi yfirskyni að um nauta-, svina-
og villibráðarkjöt væri að ræða.
Mál þetta hófst með þeim
hætti, að matvælaeftirlitsmenn
fundu nokkur tonn af afar lélegu
og hálfskemmdu kjöti í pyslugerð
nokkurri og var varningurinn
rakinn til innflutningsfyrirtækis
í Hamborg. Var þetta látið kyrrt
liggja uns fyrirtækið reyndi að
selja vöruna á ný og var þá látið
til skarar skríða. Kom þá í ljos,
að „nautakjötið" voru bestu vöðv-
arnir af hrossum og ösnum. Hafði
það verið keypt og flutt inn frá
ólöglegum sláturhúsum i Mar-
okkó, Brasilíu og Tyrklandi.
Neytendasamtökin vestur-
þýsku, sem þykja með þeim dug-
legustu sem um getur, hófu í kjöl-
farið. á máli þessu rannsókn um
allt Vestur-Þýskaland og voru
matvælainnflytjendur settir und-
ir smásjá. Fljótlega var stórinn-
flytjandi nokkur í borginni Trier
talinn vafasamur, en borgin er
rétt við landamæri Vestur-
Þýskalands og Frakklands. Fyrir-
tæki þetta sá nokkur hundruð
gistihúsum fyrir „úrvalshráefni",
auk fjölda mötuneyta og veit-
ingahúsa. Sjálfur Helmut Kohl,
kanslari Vestur-Þýskalands, hef-
ur líklega einu sinni eða oftar
snætt kengúrukjöt í þeirri góðu
trú að um ljúffengt nautakjöt
væri að ræða, því að mötuneyti
þinghússins í Rínarhéraðinu var
viðskiptavinur Trier-fyrirtæki^
ins. Þar snæddi kanslarinn oft er
hann var þar fylkisstjóri.
Rikjssaksóknarinn í Mainz,
Werner Hempler, tjáði frétta-
mönnum að Trier-málið væri
grófast þeirra mála sem komst
upp um í rannsókn neytenda-
samtakanna. „Fyrirtækið flutti
inn milljónir tonna af kjöti og
kom því ólöglega inn í landið frá
Frakklandi með því að múta
þremur matvælaeftirlits-
mönnum. Að minnsta kosti 1,6
milljón tonn af mjög vondu kjöti
komu frá þessum innflytjanda á
síðustu tveimur árum og fór kjöt-
ið allt ofan í Vestur-Þjóðverja.
Talsvert af því kjöti, sem var
rannsakað hjá fyrirtækinu,
reyndist illilega mengað af Salm-
onella-sýklum og er mesta mildi
að farsóttir geisuðu ekki í kjöl-
farið. Alls vitum við um þúsund
tonn af hrossa- og asnakjöti, sem
fyrirtækíð seldi sem nauta- og
svínakjöt. 250.000 kíló af
kengúrukjöti voru seld sem
nautakjöt og villibráð og 140.000
kíló af antilópukjöti og kínversku
kindakjöti voru seld sem kjöt af
villibráð. Einnig flutti Trier-fyr-
irtækið inn og seldi talsvert
magn af selkjöti.
15 eigendur og starfsmenn
fyrirtækisins hafa verið hnepptir
í varðhald og er þegar ljóst að
gróði þeirra, meðan allt lék í
lyndi, var allt að 400 prósent.
Óvíst er um fjárupphæðirnar sem
um ræðir í þessu sambandi, en
þær skipta þó mörgum milljónum
Bandaríkjadala.
Ariel Sharon, varnarmálariðherra ísraels, hefur síðustu dagana verið spurð-
ur spjörunum úr frammi fyrir nefndinni, sem rannsakar fjöldamorðin í
Beirut-borg. Hér sést hann fara I gegnum málsskjölin ásamt tveimur aðstoð-
armanna sinna en við hinn borðsendann situr kona hans, Lili. AP.
Vígi „ópíumkóngs“
Kanltok, Thailandi, 26. október. AP.
Landamæralögregla og hermenn
hafa náð einu vígi „ópíumkóngsins",
Khun Sa, í nánd við landamæri
Thailands og Burnia og eyðilögöu
þar heróínstöð, samkvæmt heimild-
um frá ríkisútvarpi Thailanda i dag.
Útvarpið hafði eftir yfirhera-
höfðingjanum, Arthit Kamlang-
Ek, að stjórnarhermenn hefðu
verið sendir af stað síðastliðinn
sunnudag gegn hinum vopnuðu
hersveitum Khun Sa og hafi um
1.000 hermenn tekið þátt í árás-
inni að víginu. Enginn stjórnar-
Opnar bílasmiðja
De Loreans á ný?
London, 26. okióber. AP. ^
BANDARÍSKT fyrirtæki Consoli-
dated International Inc., hefur
áhuga á því að kaupa hina gjald-
þrota bifreiðasmiðju Johns Z. De
Lorcan í Belfast, en eigandinn er,
sem kunnugt er, á bak við lás og slá
eftir að hafa verið gripinn með mikið
magn af fíkniefnum. Talsmaður CII,
sem hefur aðsetur í Ohio, sagði
fréttamönnum í gær að viðræður
hefðu farið fram og stæðu yfir. Sagði
hann erfítt að áætla hvað langan
tíma tæki að komast að samkomu-
lagi, en bjóst við því að gefin yrði út
yfirlýsing fljótlega um stöðuna. Síð-
ast er fréttist af De Lorean sjálfum,
var hann enn i varðhaldi þar sem
lögfræðingar hans höfðu ekki náð að
safna saman tilskyldu tryggingarfé.
Fréttaménn höfðu eftir Saul
Schenk, forseta CII, fyrir nokkru,
að fyrirtækið hefði áhuga á því að
halda starfsemi De Loreans
áfram, en ekki í sama stíl og áður.
Hefur CII hug á að framleiða 5
bifreiðir á dag, en þegar mest var
og best gekk hjá De Lorean, voru
framleiddir 80 bílar á dag í Bel-
fast-verksmiðjunni. Þá hefur
komið fram, að all margir aðilar,
bæði í Bretlandi og Bandaríkjun-
um hafa athugað möguleikana á
því að kaupa fyrirtæki De Loreans
að undanförnu.
Átta vinstri menn
dregnir fyrir rétt
San Salvador, El Salvador, 26. október. AP.
HERRÁÐ El Salvador hefur tilkynnt
að 8 kunnir vinstrimenn og verka-
lýðsleiðtogar sem hurfu sporlaust
fyrir nokkrum dögum séu i gæslu og
muni verða dregnir fyrir rétt. Þeim er
borið á brýn að vera „foringjar
hryðjuverkasveita sem með skemmd-
arfíkn sinni og hryðjuverkum hafa
sært El Salvador-fjölskylduna", eins
eyðilagt
hermannanna mun hafa særst.
Heróínstöðin mun hafa eyði-
lagst t eldi er kviknaði af völdum
sprengingar, og það mun einnig
hafa orðið um geymsluhúsnæði á
sama stað.
og segir í tilkynningu ráðsins.
Ekkert hefur hins vegar spurst
til 7 skoðanabræðra fanganna sem
einnig hurfu- um svipað leyti. Vitni
að handtökum þessum sögðu þær
bera öll merki dauðasveita hægri
manna, en sveitir þessar eru taldar
starfa mjög náið með hernum og
lögreglunni.
Handtökurnar koma í kjölfarið á
aukinni sókn skæruliða á hendur
stjórnvalda sem njóta stuðnings
Bandaríkjanna. Þær koma einnig í
kjölfarið á skýrslu sem lögð var
fram á Bandaríkjaþingi þar sem
fram kemur að bandarísk stjórn-
völd hafa lítið eða ekkert rannsakað
sannleiksgildi þeirra fullyrðinga að
stjórn E1 Salvador hafi látið taka
þúsundir óbreyttra borgara af lífi í
borgarastyrjöldinni sem nú hefur
geisað þar í 3 ár.
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
GOOLE:
Amarfell 8/11
Arnarfell 22/11
Arnarfell 6/12
Arnarfell 20/12
ROTTERDAM:
Arnarfell 27/10
Arnarfell 10/11
Arnarfell 24/11
Arnarfell 8/12
Arnarfell 22/12
ANTWERPEN:
Arnarfell 28/10
Arnarfell 11/11
Arnarfell 25/11
Arnarfell 9/12
Arnarfell 23/12
HAMBORG:
Helgafell 15/11
Helgafell 5/12
HELSINKI:
Oísarfell 8/11
Disarfell 14/12
LARVIK:
Hvassafell 1/11
Hvassafell 15/11
Hvassafell 29/11
Hvassafell 13/12
GAUTABORG:
Hvassafell 2/11
Hvassafell 16/11
Hvassafell 30/11
Hvassafell 14/12
KAUPMANNAHÖFN:
Hvassafell 3/11
Hvassafell 17/11
Hvassafell 1/12
Hvassafell 15/12
SVENDBORG:
Helgafell 28/10
Jökulfell 8/11
Dísarfell 11/11
Helgafell 17/11
Hvassafell 2/12
Helgafell 8/12
AARHUS:
Helgafell 29/10
Helgafell 19/11
Helgafell 9/12
GLOUCESTER MASS.:
Skaftafell 1/11
Skaftafell 1/12
HALIFAX, KANADA:
Skaftafell 3/11
Skaftafell 3/12
f SKIPADEILD
SAMBANDSINS
Sambandshúsinu
Pósth. 180 121 Reykjavík
Sími 28200 Telex 2101
Á komandi vetri munu yfir
7.600 bíleigendur
njóta góös af
Lumenition
platínulausu transistorkveikjunni, viö
gagnsetningu og kaldakstur í slyddu
og byl.
Ert þú einn af þeim?
iBíiQi vwS ri
Skeifunni 3e. Simi 8.47.88
Ferðaskrifstofan ISLEIÐIR, Miðbæjarmarkaðinum, 2. hæð. Sími 22100.
Sólskinsparadís — Heillandi heimur náttúrufegurðar, sögustaða, skemmtunar og Ijúfra
baðstranda. Friðsemdarlíf hjá Ijúfri gestaþjóð, glaumur og gleði fyrir þá, sem bregöa vilja
á leik.
15 dagar í 2ja m. herb. + Va fæði. Verð frá kr. 11.700.-
15 dagar 2 í íbúð. Verð frá kr. 11.060.-
Fyrsta brottför 16.11.