Tíminn - 31.07.1965, Blaðsíða 8

Tíminn - 31.07.1965, Blaðsíða 8
LAUGARDAGUR 31. júlí 1965 TIIVIINN ¥ Engir tveir líta sömu augum á sama fyrirbæri tilverunnar. Það er Því ekki auðvelt að gjöra sér glögga greín fyrir aðstöðu og ástandi stórrar fé- lagsheildar í þjóðlífinu eins og kirkjan hefur verið um alda- raðir. Þar er svo margt, sem taka verður með í reikninginn. að ástand kirkjunnar verður aldrei ljósmyndað svo réft eða sönn mynd fáist frá öUum hlið um. Það væri fremur hægt að líkja þeirri mynd, sem við gjörum okkur hvert um sig við málverk, þar sem málarinn gjörir fyrirmyndina eftir því, sem hún endurspeglast í huga hans. Hálogalandskirkja í Reykjavík. BYLTING I STARFS- HÁTTÖ En einmitt þannig verður að líta á það, sem hér verður sagt um Þjóðkirkju íslands eins og hún lítur út nú frá mínu sjónarmiði. Þar er að- eins um persónulegt álit að ræða en engar vísindalegar nið urstöður. Málið er sem sagt á umræðustigi. En umræður og íhugun um málefni kirkj unnar eru ákaflega þýðingar- mikil atriði fyrir vöxt hennar og áhrif. Fátt er henni verra en tómlæti og afskiptaleysi En þessi persónulega skoðun á stöðu kirkjunnar í dag finnst mér þó vera umhugsunarverð í hæsta lagi. Og er þá einkum tvennt sem verður athyglisverð ast í Þessari mynd þegar frá byrjun. Hið fyrra sérkenni er, hve fáa raunverulega andstæð inga eða svokallaða guðsafneit ara íslenzka kirkjan á við að stríða. Er þar sjálfsagt mest að þakka, hve frjálslynd og umburðarlynd hún er og senni lega rýmri eða víðsýnni flestum öðrum þjóðkirkjum, minnsta kosti hér í Evrópu, kannske í veröld allri. En einmitt þetta finna margir henni til for- áttu, og telja hana naumast eiga skilið að nefnast Evang elisk Lúthersk kirkja. Er hún af sama fólki sérstaklega talin standa of opin fyrir alls konar áhrifum frá guðspeki. spiritísma og öðrum ókirkjuleg um eða utankirkjulegum stefn um, sem traustar og vel skipu lagðar kirkjur gefi naumast nokkurn gaum, enda séu þær hugmyndir þegar og skoðanir orðnar úreltar eins og t. d. ný guðfræðin, sem svo var nefnd fyrir nokkrum áratugum. Ekki væri samt nein fjar stæða að benda á það, að ein- mitt þessi aðstaða sýnir leit og þrá eftir einhverju nýju og fullkomnu, og eru því að vissu leyti tákn um gróanda og gróðurmátt í íslenzku trúar lífi. Áhuginn á spiritistisk um bókmenntum, huglækning um og undarlegum fyrirbærum er af sömu rót og áheitin á Strandarkirkju. Og krafturinn, sem býr að baki happdrættum og merkjasölu, sem hrindír í framkvæmd stærstu mannvirkj um til hagsbóta fyrir bágstatt fólk og má teljast til helztu mej}j^pgarfyrirbæra á. íslandi nútímans er af Þessum trúar- áhiuga og sýnir gróskuna í trú arlífi þjóðarinnar, þótt ekki sé það beint á vegum kirkj unnar af ástæðum, sem síðar verður að vikið. Það sem hér er nefnt vegur að vissu leyti upp á móti auðu sætunum, sem flesta daga helga, sanna tómlæti og ó- kirkjurækni íslendinga sem óhrekjandi staðreynd- þótt skýrslur hermi, að innan vé banda þjóðkirkjunnar séu að minnsta kosti 97 af hundraði fólksíns í landinu. Og þegar skyggnzt er bak við múrana, sem tómlætí, steig urlæti og frekja reisa gagnvart kirkju og kristindómi og allt þetta er íslenzkri skapgerð tamt að hafa að grímu í trúar legum efnum, þá eru það ekki rviavni,- sem aldrei hugsa um Guð. Auðvitað eru það mísjafnar og ófullkomnar hugmyndir, sem einstaklingarnir gjöra sér um guðdóminn, en Þegar á hólminn er komið gagnvart öll um þeim ógnum og allri þeirri spennu, sem glaumur og hraði leggur á mannfólkið, þá grun eldi barna sinna en að þeim sé kennd kvöldbæn, sálmavers og Faðir vor. Nútíma íslend ingur er því ekki óguðlegur í orðsins réttu merkingu og ,. vill ekki vera það. Hitt sem er sérkennilegt við aðstöðu kirkjunnar í nútímaþjóðfélagi er Það, að kirkjan sem stofnun með guðsþjónustum og skipu lagi hefur að því er virðist ekkj tök á því að nálgast fjöld ann, fólkið, sem heild, hvorki með svörum við þess vanda- málum né boðskap sínum yfir leitt, sem snertir hversdagslíf og baráttu einstaklinganna. Samt hefur engin stofnun í þjóðfélaginu sé vel að gætt heppilegri starfsgrundvöll né breiðari væri hann vel nýttur til snertingar og áhrifa. Því ekki má loka augum fyrir því, að kírkjan hefur notið og nýt ur þeirra kosta, að þessi snert ing er einmitt á þeim stundum. sem hugir og hjörtu eru mót tækilegust sé vel að verið. Þar þarf ekki annað en renna huga til kirkjulegra athafna. Við skírn og fermingu, hjóna vígslu og greftrun er vitund og vild áheyrenda og við- staddra yfirleitt opin og næm fyrir orðum og áhrifum. En eru Þau orð þá sögð? Og eru orðin, sem þá eru sögð mótuð með raddblæ og tilfinn ingu til þeirra áhrifa. sem mundi því vart af veita, að prestsefnum væri vel kennt, þótt ekki væri nema heppileg lifandi framsögn og orðalag við slíkar athafnir. Orðalag og radd beiting sem færir allt nær áheyrendum hverju sinni, en sleppír öllum framandi uppgerð ar hátíðleika. Þarna er samt vandgert, Því auðvitaö verða slíkar athafnir einmg að vera hafnar yfir all an hversdagsleika, gæddar heil agri stemmingu og eldmóði anda og kraftar lífsins, eins og sjálfur Drottinn gangi fram hjá í tíýrð kvölds eða kyrrð morguns. Sama eða svipað má segja um bamasamkomur kirkjunnar, skólakennslu presta og æsku- Iýðsstörf kirkjunnar yfirleitt. Þar eru hugir barna og ungl- inga opnir og bljúgir, auðveld ir til mótunar, en líka auð særðir, ef óviturlega er að verki staðið. Oft er þar svo, að boðskapurinn sem þó er hinn helgasti í heimi vekur leiðindi og andúð og fer fyrir ofan garð og neðan hjá áheyr endum, vegna kannske smávægi legra mistaka: Stundin of löng, ekki nógu oft og hratt skipt um efni, efnið illa valið of lítill söngur. of löng saga, raddbeitingin framandi, ein- tóna, svæfandi prédikunartónn eða fjarlæg hrynjandi- form EFTIR SÉRA ÁRELÍUS NÍELSSON ar víst flesta ínnst inni, að hamingjan sé eitthvað annað en peningar og vín, og hjarta friður finnist ekki á skemmti stöðum og Mimisbörum fyrst og fremst, heldur ef til vill fremur á hinum fornu vegum kirkjunnar- þegar fokið er í flest önnur skjól. Og ótrúlega mörg eru þau heímili, jafnvel meðal þeirra, sem sízt skyldi grunað, sem fagna ekki öðru fremur í upp orðið gæti og til er ætlazt? Eru þau ekki of oft sögð og á þau hlustað sem hefðbundið hjal, hátíðlegt og framandi, líkt og form fremur en inni- hald? Vei mætti þó muna, að þarna má aldrei kasta til huga né hönd. Líklega er fleira fólk samanlagt við' pessar at- hafnir kirkjunnar árlega en það, sem sækir venjulegar messur, ef skýrslur fengjust um f.iölda hvors tveggja Það og uppbygging of ósveigjanlegt. Svona mætti lengi telja. Það er auðvelt að benda á gallana, en erfiðara að byggja upp, breyta tíl bóta og bæta úr. En samt verður það að gjörast. Og nýtízku tækni þarf einn ig að takr í þjónustu kirkjunn ar, ekki sízt í starfi fyrir börn og unglinga. Myndasýningar. kvikmyndir og sjónvarp verður að nota. En það er líka vandi p- -■kki má bav of langt ganga. Og fátt er fátæklegra í sjálfu sér á þessu sviði, en þar sem presturinn er algjörlega vik- inn af sínum bamarstað fyrir kvikmyndasýnitjaldi eða vél tæknisérfræðingi. En í öllu þessu verður samt presturinn fremur að líta á sig sem Þjón og vin fólksins en sem embættismann ríkis- ins. Og þeir eða þær, sem vinna hin sömu störf í þágu safnaða og kirkju þurfa einn ig að skilja þessa sömu fórn andi afstöðu til málefnisins, en mega ekki eingöngu líta á þau til launa eða sem heppi- leg tómstundaígrip. Eitt er víst, að það er bæði vandi og vegsemd' að vera í þjónustu kirkjunnar. Þar má ekkert vera af handahófi. Ann ars gæti farið svo, að mikill hluti mistaka og misskilnings og þeirra saka, sem á kirkjuna eru bornar yrðu sök — ekki hinna mörgu, sem ekki koma þar ,heldur hinna, bæði prests íns og fólksins, sem Þar kem- ur og starfar. Þar er ábyrgðin mest, en vegsemdin líka stærst. En einmitt viðurkenning, þessa vanda ætti að hvetja hvern þann, sem ætlar sér að vera í þjónustu kirkjunnar til að vanda sem bezt undirbúning sinn og aðstöðu, æfa sig, nema, iðja og biðja til nýrra og heppi legri aðferða á nýjum vegum, með nýjum tækjum, þótt allt hið foma sé í heiðri haft. „En enginn setur bót af óþæfðum dúk á gamalt fat“, sagði meist arinn forðum. Hér þarf í rauninni byltingu á starfsháttum kirkjunnár í nú tímaþjóðfélagi. Og sú bylting er að vissu leyti hafin og mæt ir ekki eins miklum misskiln ingi og andúð og við hefði mátt búast í svo jarðgrónum formum, sem kírkjan hefur yf irleitt verið sökuð um of mikla hollustu við. Má þar þakka því, hve ís- lenzka Þjóðkirkjan er frjáls lynd, víðsýn og umburðarlynd, kannske flestum þjóðkirkjum fremur, en auðvitað getur það bæði verið kostur og galli. Hér vil ég nú nefna það helzta, sem telja mætti uppi- stöðu og ívaf slíkrar nýsköp unar eða starfsbyltingar innan kirkjunnar. Hið fyrsta er, að kirkjan og þá sérstaklega prestarnir verða að taka það mál ef svo mætti segja, sem fólkið skilur og tek ur til sín. Sem betur fer hafa þar orðið miklar breytingar til bóta hina síðustu áratugi, en samt er til enn ákaflega „stagnerað" og staðnað prédik unarmál með hátíðlegum sund urslitnum framburði, sem engu öðru líkist, nema þá helzt þeim fáránleika sem getur gjört vart við sig hjá „oflærðum" leikurum og eftirhermum, og ættu þó prestar sízt af öUu að líkjast þeim, að minnsta kosti viljandí. Sem dæmi um stefnu Þá, sem koma eða taka skal við vil ég nefna, að nýlega hóf ungur prestur sem er enn ósýktur af prédikunarsón og mærð að § hafa morgunandakt í útvarpinu Og það var eins og fólk bók- staflega vaknaði af svefni og færi að hlusta. Mér er sagt, að sumir, sem ekki gátu brugð ið blundi létu vekja sig fyrir átta aðeins tíl að hlýða andakt inni og jafnvel heilir hópar á verkstæðum og vinnustöðum hefðu hægt um sig til að hlusta Framhald á bls I? J

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.