Morgunblaðið - 17.11.1982, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1982
61
Stórkostleg hljóm-
plata Mezzoforte 4
Arni Johnsen
Hljómplatan Mezzoforte 4 er í
einu orði sagt stórkostleg. Líklega
hefur engin íslenzk dægurhljóm-
sveit fyrr gefið út eins góða plötu,
' tónlistarlega séð. Mezzoforte 4
hefur allt til brunng að bera sem
ein plata þarf í hópi þeirra sem
eru án söngs þótt raddir komi ei-
lítið við sögu plötunnar og það til
góða. Mezzoforte er fjölbreytt,
lióðræn, taktföst og listilega vel
útfærð og leikin plata. Þegar
Deep Purple voru upp á sitt bezta
sýndu þeir á sér sígilda hlið og
sama er að segja um þessa nýj-
ustu plötu Mezzoforte, hún er sí-
gild og full af góðri tónlist sem
hlýtur að hrífa mjög breiðan hóp
tónlistarunnenda. Ég býzt við að
þessi plata eigi eftir að koma
mörgum á óvart sem ekki hafa
fylgst með ferli Mezzoforte, en
láta það vonandi ekki sitja á hak-
anum lengur.
Fyrir skömmu héldu meðlimir
Mezzoforte 5 ára afmæli hljóm-
sveitarinnar hátíðlegt með vel
heppnuðum tónleikum í veitinga-
húsinu Broadway. í tilefni af
þessum tímamótum sendi
hljómsveitin frá sér þessa
hljómplötu og er titill hennar ein-
faldlega 4.
Mezzoforte er skipuð 5 ungum
tónlistarmönnum sem eru allir
liðlega tvítugir að aldri. Þeir eru:
Eyþór Gunnarsson (hljómborð),
Friðrik Karlsson (gítar), Jóhann
Ásmundsson (bassi), Kristinn
Svavarsson (saxófónn) og Gunn-
laugur Briem (trommur).
Hljómplatan 4 var hljóðrituð í
Lundúnum í ágúst og hljóðblönd-
un var gerð í septembermánuði.
Það var Geoff Calver eiginmaður
Shady Owens, sem annaðist upp-
tökustjórn og hljóðblöndun plöt-
unnar. Allmargt aðstoðarmanna
lagði Mezzoforte lið við gerð plöt-
unnar og má nefna ásláttarleikar-
ann Louis Jardin og þau Shady
Owens og Chris Cameron, en
Chris er meðlimur hinnar þekktu
hljómsveitar Hot Chocolate.
I byrjun næsta árs ráðgerir
Steinar hf. að gefa plötuna út í
Bretlandi og það kæmi ekki á
óvart þó Mezzoforte ætti eftir að
ná vinsældum, því þeir standa
fyllilega jafnfætis og heldur
framar en flestar hljómsveitir á
þessum vettvangi tónlistar í Evr-
ópu.
Hitt er svo annað mál að það
eru ekki alltaf gæðin sem ná
lengst í bransanum, en Mezzo-
forte býr vissulega yfir stíl sem er
í senn vandaður og með þeim titr-
ingi sem þarf til að hræra fjöld-
ann. Sérstaklega má vekja athygli
á snilldarmeðferð þeirra félaga
þannig að hin ýmsu hljóðfæri
njóta sín til fulls. Hér eru á ferð
tónlistarmenn á heimsmæli-
kvarða.
Svo nefnd séu nokkur lög á 4 má
fyrst nefna Sprett úr spori eftir
Eyþór Gunnarsson, dúndurgott
lag, Undur vorsins, sem er með
sígildum tón og undurfallegt,
Fönksvíta þeirra félaga nr. 1 fyrir
trommur og hljómsveit er stór-
glæsilegt tónverk sem blandar
saman gamni og alvöru á öldum
hljómanna, ótrúlega fjölbreytt
tónverk og einnig nefni ég
Tilhugalíf í gamla bænum eftir
Friðrik Karlsson, sérlega fallegt
lag og yfirvegað, en á hinn bóginn
eru flest lögin mjög góð að mínu
mati og leikur og upptaka tær
sem lindin í haga. Það er engin
lognmolla yfir túlkun Mezzoforte,
bullandi landsiag og veðrabrigði
við hvert fótmál, líf og fjör í tusk-
unum og full ástæða til að óska
þeim félögum til hamingju með 5
ára afmælið og nýju plötuna.
P.S. Það væri skemmtilegt og
vel til fallið að heyra Mezzoforte
leika með Sinfóníuhljómsveit ís-
lands á tónleikum í Háskólabíói.
Clark, hljómborð, í stað hans og
Davids. Clark og Lindes eru
núna orðnir fastir meðlimir í
hljómsveitinni. Það fyrsta sem
vekur athygli er að lögin eru að-
eins fimm. Samanlagt er platan
rúmlega fjörtíu mín. löng og
telst það vera í lengra lagi. Tón-
listin er beint áframhald af
„Making Movies", og heldur
hljómsvetin áfram að þróa þann
stíl sem þeir voru komnir inná.
Gítarplokkið hans Marks er að
mestu horfið. Aðeins örlar á því
ennþá og vonandi dettur það
ekki alveg út í framtíðinni, því
það hefur verið einn skemmti-
legasti þátturinn í tónlist flokks-
ins.
Á hlið 1 eru tvö lög. „Tele-
graph Road“ er lengsta lag plöt-
unnar. Frekar rólegt og gæti allt
eins átt heima á „Making Mov-
ies“. Seinna lagið heitir „Private
Investigations" og var það gefið
út á lítilli plötu skömmu fyrir
útkomu stóru plðtunnar. Lagið
fékk frábærar viðtökur og fór
strax mjög hátt á vinsældalist-
ann. Það verður að teljast frem-
ur undarlegt því að lagið er ró-
legt og við fyrstu hlustun virðist
það ekki þesslegt að vera vin-
sælt. Á hlið 2 eru þrjú lög. „In-
dustrial Disease" er rokkari af
þeirri gerð sem „Dire Straits"
ein getur gert. Skemmtileg lag-
lína og smellinn texi ásamt frá-
bærri rödd Marks senda lagið
inn í hóp bestu laga ársins. Til
að byrja með olli titillagið „Love
Over Gold“ nokkrum vonbrigð-
um. Lagið vanh svo stöðugt á og
varð fljótlega hluti af frábærri
heild. Síðasta lagið „It Never
Rains“ er kannski daemigert
fyrir þá stefnu sem hlómsveitin
hefur tekið.
Þegar öllu er á botninn hvolft
er hér um frábæra plötu að
ræða. Hún virðist við fyrstu
hlustun vera dálitíð öðruvísi og
erfitt að sætta sig við hana. Hún
er vissulega dálítið öðruvísi en
hinar þrjár. Hinsvegar vinnur
hún fljótt á og að lokum ættu
allir að vera sammála um að
fyrstu tvær plöturnar eru frá-
bærar, þriðja platan best og
„Love Over Gold" smeygir sér á
milli þeirra.
FM/AM.
in.illi..i.. .. . . .
kráarknöll
Á
r/s
í/4tv
Nú eru þaö ensk kvöld — engu ööru lík, — enda
búlö að gjörbreyta borðaskipan í Súlnasal, smiöa
enskan bar í Bláa salnum og fá fjölda enskra
skemmtikrafta í heimsókn. Og nú bjóöum við
Lundúnafarþega sérstaklega velkomna.
Móttökuathöfn
Tekiö veröur á móti gestum með fordrykkjum og
tilheyrandi „serimóníum" aö hætti enskra heið-
ursmanna.
„English pub“
Þegar upp í Súlnasal kemur blasir viö enskur bar
með öllum tilheyrandi veitingum eins og viö eigum
þeim bestum aö venjast. Andrúmsloftið veröur í
takt viö ósvikna kráarstemmningu, söngur og
hljóöfæraleikur, eöa eins og þeir ensku segja:
„Just like home“.
Matseðill
OXTAtt. SOUP
ROASTED LEG OF PORC VORKSHIRE
WITH:
ROASTEO POTATOES
YORKSHIRE PUDDING
GREEN PEAS WITH MINTFIAVOUR
DEEP FRIED CAUUFLOWER
CUMBERLAND SAUCE
APPLES SAUCE AND
PORC GRAVY
PLUMB PUDDING
WITH ENGLISH CREAM
VERD ADEINS KR. 290.
Heiðurs-
gestur
V:
I
Skemmtí-
atriði
Við fáum óvænta gesti
og skemmtikrafta í
heimsókn, m.a. töfra-
manninn og eldgleypir-
inn Nicky Vaughn,
söngkonuna Anne
Edwards, harmónikku-
leikarann David Holling-
ton og galdrakarlinn Will
Yorkstein.
Tískusýning
Model 79 undir stjórn Sóleyjar Jóhannsdóttur
sýna fatnaö frá Blondie.
Tískusýningin veröur meö óvenjulegasta móti og
skemmtikröftunum að sjálfsögöu uppálagt að
gefa sviöinu frí og ganga í staðinn á milli borð-
anna og taka þátt i stemmningunni í salnum.
Bingó kl. 11.45. Glæsilegir feröavinningar.
Hljómsveitin Upplyfting
leikur ekki bara fyrir dansi, heldur lagar sig að
enskum siöum á margan hátt og ábyrgist dúndr-
andi fjör á dansgólfinu og úti i salnum.
Fjöldasöngur
Enskt kvöld veröur varla
haldiö meö reisn nema
heiðursgestur veröí á
staðnum. Við létum okkar
ekki eftir liggja og fengum
Anneke Dekker frá Feröa-
skrifstofunni Scancoming,
í heimsókn. Hún hefur
annast alla fyrirgreiöslu
Lundúnafarþega okkar á
liönum árum og þeir sem
reynt hafa, þekkja af frá-
bærri reynslu „stílinn"
hennar.
Fararstjórarnir við
stjórnvölinn
Fararstjórar okkar í London, þeir Magnús Axels-
son, Óli Tynes og Siguröur Haraldsson, veröa við
stjórnvölinn þetta kvöld. Þarf þá nokkuð að fjöl-
yröa um fjöriö meira?
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
Stjórnandi Birgir Gunnlaugsson og píanóleikari
Jón Ólafsson.
Áskorun!
Nú skorum viö hér með á alla Lundúnafarþega aö
fjölmenna í „enska“ Súlnasalinn, hittast þar á nýj-
an leik undir hárréttum kringumstæðum og rifja
upp gamla eða nýlega góöa daga. Allir eru samt
velkomnir — en eins gott er aö hafa húmorinn í
lagi og söngröddina á sínum stað. Klæönaðurinn
er auövitaö frjáls og þægilegur — rétt eins og t
Englandinu góöa!
Föstudagskvöld:
Húsiö opnar kl. 20.00. — Dansað til kl. 03.00.
Sunnudagskvöld:
Húsið opnar kl. 19.00. — Dansað til kl. 01.00.
Miöasala og boröapantanir (dag sftir kl.
16.00 í Súlnasal. Uppl. í síma 20221.
Vid þökkum Flugleidum samstarfið viö
skipulagningu kvöldsins.