Morgunblaðið - 17.11.1982, Síða 18
66
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1982
Sierra heitir sá
nýjasti frá FORD
Straumlínulaga
Ford-menn segjast hafa haft
það að leiðarljósi, að framleiða
rúmgóðan fjölskyldubíl, sem
væri jafnframt straumlínulaga Mælabordið er „samþjappað", þannig að stjórntæki
og eyðslugrannur. Þeim hefur eru í góðri fjarlægð fyrir bilstjórann.
óneitanlega tekizt vel upp í
þessu efni, því vindstuðull Sierra
er 0,34 Cw, sem er um 22% betri
straumlínulögun, en þekkist að
meðaltali á þeim fjölskyldubíl-
um, sem eru á Evrópumarkaði í
dag.
Stærð
Bíllinn er boðinn í þriggja og
fimm dyra „Saloon" útfærslu og
5 dyra „Wagon“ útfærslu.
„Saloon" Sierra er 4.394 mm á
lengd, breiddin er 1.720 mm,
hæðin 1.362 mm, hjólhafið 2.608
mm. Fótarými frammi í er 1.034
mm, loftrými er 977 mm, en fót-
arými aftur í er 902 mm og loft-
rými er 963 mm. Heildarlengd
„Wagon“ Sierra er 4.491 mm,
breiddin 1.720 mm, hæðin 1.393
mm og hjólhafið 2.608 mm. Fót-
arými frammi í er 1.034 mm,
loftrými 986. Fótarými aftur í er
902 mm og loftrými 994 mm.
Þyngd Sierra er á bilinu
970—1.195 kg eftir útfærslu, en
burðargeta er á bilinu 445—505
kg, en auk þess er boðið upp á
sérstakarn „burðarklár" fyrir
fyrirtæki, sem hefur 575 kg
burðargetu.
Vél
Varðandi benzíneyðsluna,
segjast Ford-menn hafa komið
henni mjög neðarlega, en boðið
er upp á átta mismunandi vélar í
bílinn, allt frá 4 strokka, 1,3 lítra
benzínvél, upp í 6 strokka 2,8
lítra benzínvél, auk þess að bjóða
4 strokka, 2,3 lítra dísilvél. 4
strokka vélarnar eru fjórar og 6
strokka vélarnar þrjár og síðan
ein dísilvél. Hestaflatala vél-
anna er á bilinu 60—150 DIN, en
þær eru á bilinu 1.294—2.792
rúmsentimetrar. Ford segir for-
senduna fyrir þessu vélarúrvali
vera þá staðreynd, að bíllinn er
afturdrifinn, sem hefur reyndar
vakið töluverða athygli, á sama
tíma og margir bílaframleiðend-
ur eru að fara yfir í framdrif.
Um benzíneyðsluna segir fram-
leiðandi, að hún sé frá 7,3 lítrum
upp í 11,7 lítra á hverja 100 km,
sé um bæjarakstur að ræða, hins
vegar sé hún 5,4—8,7 lítrar sé
ekið á jöfnum 90 km hraða á
klukkustund. Hámarkshraði
bílsins er á bilinu 152—200 km á
klukkustund, eftir útfærslu.
Fjöðrun — gírkassi
í Sierra hefur verið hönnuð ný
sjálfstæð fjöðrun á öll hjól og
hafa sérfræðingar farið mjög
lofsamlegum orðum um hana.
Segja hana svara mjög skemmti-
lega og bíllinn sé hæfilega stífur.
Hann leggist t.d. lítið niður í
hornin í kröppum beygjum.
Sierra kemur „Standard" með
fjögurra gíra kassa, en síðan er
boðið upp á 5 gíra kassa og
sjálfskiptinu eftir óskum hvers
og eins. Reyndar kemur 2,8 lítra
bíllinn með 5 gíra kassa „Stand-
ard“.
Það tekur Sierra á bilinu
9,3—18,1 sekúndu að ná 100 km
hraða á klukkustund, eftir út-
færslu, en eins og áður sagði er
hámarkshraði bílanna á bilinu
152—200 km á klukkustund.
— Hefur vakið hvað mesta athygli nýrra bíla í haust
— Hefur vindstuðulinn 0,34 Cw
— Boðinn með 8 mismunandi vélum
— Rými innandyra mjög gott
Rými innandyra er mikið og íburður sömuleiðis.
„Wagon“ Sierra, 5 dyra.
Sierra XR4, flaggskipið, 3ja dyra.
þýzka segir t.d., að Sierra sé
rúmgóður 5 manna bíll, þ.e.
ágætlega fari um þrjá fullorðna
aftur í, sem verður að teljast
mjög gott af svona millistærð-
arbíl að vera.
Sierra verður i raun boðinn í
fimm mismunandi útfærslum,
þótt vélarúrvalið sé meira, en
það er Sierra, Sierra L, GL, Ghia
og XR4, sem verður flaggskip
flotans. Reyndar segja Ford-
menn að á næsta ári verði hann
boðinn með lítilsháttar breyt-
ingum, þannig að vindstuðull
Bílar
Sighvatur Blöndahl
FORD SIERRA er án efa sá nýi
bíll, sem hefur vakið hvað mesta
athygli bílaáhugamanna á þessu
hausti, en hann hefur verið á
teikniborði sérfræðinga Ford um
langt árabil og er ætlað að taka við
af Cortinu og Taunus, sem hafa
verið í framleiðslu um áraraðir.
Hafa nokkrir bílasérfræðingar
jafnvel gengið svo langt, að segja
Sierra bezta bílinn, sem Ford hef-
ur framleitt í áratugi. Sierra var
formlega kynntur á bílasýningunni
í París i októberbyrjun, en fyrstu
bílarnir eru ekki væntanlegir
hingað til lands fyrr enn eftir ára-
mótin.
Rými
Evrópskir bílasérfræðingar
virðast á einu máli um að vel
hafi tiltekizt í sambandi við
rými inni í bílnum. „Auto Motor
und Sport“ bílablaðið vestur-
hans verði aðeins 0,32 Cw á móti
0,34 Cw.
Afturdrif
Eins og áður sagði vakti það
töluverða athygli, að bíllinn
skyldi vera afturdrifinn, en
Ford-menn segja þá ákvörðun
tekna að vel athugðu máli. „Ef
bjóða ætti margar gerðir véla,
var t raun nauðsynlegt að hafa
bílinn afturdrifinn. Þá hefur
löngum verið talað um nauðsyn
þess að hafa bílana framdrifna
til þess að auka rými innandyra.
„Þetta atriði á fullan rétt á sér í
minni bílum, enda framleiðum
við Fiesta og Escort framdrifna.
Sierra er hins vegar orðinn það
stór bíll, að þetta atriði skiptir
minna máli,“ segja Ford-menn.
Kostar frá 270.000 krónum
Samkvæmt upplýsingum Úlf-
ars Hinrikssonar hjá Sveini Eg-
ilssyni hf., sem hefur umboð
fyrir Ford hér á landi kosta bíl-
arnir frá 270 þúsund krónum, en
fyrstu bílarnir eru væntanlegir
eftir áramótin.
CcáourcArt yhotp
Kæru vidskiptavinir!
Vegna mikils annríkis biöjum viö ykkur um aö
leggja inn eftirpantanir á stofumyndum okkar
sem afgreiöast eiga fyrir jól sem fyrst.
Meö því er hægt aö foröast tafir og veita bestu mögulega þjónustu.
UÓSMYNDAÞJÓNUSTAN £ ■ ■