Morgunblaðið - 17.11.1982, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1982
71
En í sumum köflum Landnámu
koma fram sjónarmið höfðingja
12. og 13. aldar til jarðeigna og
tekna af þeim. Þetta kemur einna
skýrast fram í landnámi Skalla-
Gríms og á Snæfellsnesi. Langt
mál væri að rekja það.
Skilgreining Landnámu á jarð-
eignum landsins er mjög miðalda-
leg. Sjónarmið hennar er að telja
fram sem skýrast tíundarein-
ingarnar sem skatturinn var lagð-
ur á. En kerfið er í fullu samræmi
við það, sem tíðkazt hefur í land-
inu um aldir. Jörðum var ekki
skipt nema túnum og engjum,
annað var óskipt. Höfuðból og
stórjarðir á Suðurlandi veltu að
nokkru tíundinni yfir á hjáleigu-
menn. Torfuskipulagið sunnlenzka
var notað í þessum greinum.
Þegar landið komst undir Nor-
egskonung, fóru Sunnlendingar
tiltöiulega betur út úr skattinum
til konungs en aðrir landsmenn.
Skipulag þeirra var fastara, ein-
ingarnar voru færri. Vísir að
þessu var í fleiri héruðum, og eru
þau einkennd af skipulagi þriggja
hreppaþinganna, sem var félags-
form úr forna sunnlenzka þjóðfé-
laginu, áður en tíundarlögin voru
lögleidd.
En það er margt jákvætt í bók
Haraldar Matthíassonar, Landið
og landnáma. Hann mótar hana
mjög af sjónarmiðum Ferðafélags
Islands og verður hún því á stund-
um nútimaleg um of. Mörg örnefni
og staðarheiti í Landnámu hafa
breytzt og það svo að sum eru
óþekkjanleg. Á stundum tekst
Haraldi mjög vel að leysa úr
þessu.
Hugmyndafræði Haraldar um
mörg atriði Landnámu er mjög
blönduð sagnfræði, staðfræði og
málfræði. Þetta fer oft mjög vel
saman. Staðarlýsingar hans eru
margar mjög snjallar og hug-
myndir hans um atriði sem aðrir
hafa ekki komið auga á. Ég vil þar
nefna skilgreiningu hans á Bárð-
argötu og ferð Gnúpa-Bárðar suð-
ur í Fljótshverfi. Þar kemur fram
sérþekking hans á ferðalögum og
öræfum landsins.
Lýsingar hans á öræfum á
miðhálendinu milli Norður- og
Suðurlands eru fremur góðar, en
ekki er ég alveg sammála honum
um eignarréttinn á Auðkúluheiði.
En eignarrétturinn á landinu í
Árnesþingi fyrir innan Hvítá er
réttur í skilgreiningu hans.
En hins vegar kemur hann ekki
auga á mismuninn á eignarrétti
afréttanna, annarsvegar á svæð-
inu milli Ytri-Rangár og Hvítár í
Árnessýslu og landsins fyrir utan
Hvítá, sem er í eigu stærstu jarð-
anna við fjallgarðinn. Þessi skil-
greining á örugglega upptök sín í
fyrsta eignarrétti á landinu.
Ég efast ekki um, að áfram
verður haldið að rita um Land-
námu, rannsaka hana og kanna.
Margar heimildir í sambandi við
hana eru enn ókannaðar. En hitt
er ég líka viss um, að bók Harald-
ar Matthíassonar verður alltaf
álitin brautryðjendaverk í sam-
bandi við staðfræði Landnámu og
fleiri atriði snertandi hana. Ef til
vill er það merkast við bók Har-
aldar, að hann hefur sjáifstæða
skoðun á verkinu og bregður
hvergi af þeirri leið. Hann notar
við rannsóknir sínar nýjar aðferð-
ir með því að kanna sögustaði
sjálfur. I því er mikill kostur,
ferskur og heillandi. Lýsingar
hans á landinu, sögustöðunum og
leiðum, eru hrífandi. Málsnilld
hans er mikil og stíll hans fagur
og jafn í kunnáttu máls og fegurð-
ar frá upphafi til endis. Bók hans
er fagurt vitni um kostgæfni og
sérstaklega góð vinnubrögð.
Að lokum vil ég óska Haraldi,
vini mínum, til hamingju með
þessa fallegu og vel gerðu bók. Ég
veit, að hann hefur reist sér minn-
isvarða í garði íslenzkra fræða,
óbrotgjarnan. Bókin, Landið og
landnáma, er bezta ritið sem gert
hefur verið um staðfræði í fornrit-
um okkar. Allir munu virða það og
viðurkenna. íslenzk alþýða mun
lesa þessa bók, nema af henni
mikinn fróðleik, kanna hana og
skilja. Hún er merkur menning-
arviðburður í íslenzkri bókaút-
gáfu.
yj fix
Ný sending
Vinsælu dönsku
leöurinniskórnir
aftur fáanlegir
Hagstætt verð.
Póstsendum.
GEÍSÍP
H
Viðtalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða til viðtals í
Valhöll, Háaleitisbraut 1 á laugardögum frá kl.
10—12. Er þar tekið á móti hvers kyns fyrirspurnum
og ábendingum og er öllum borgarbúum boðiö aö
notfæra sér viötalstíma þessa.
Albert
Margrét
Laugardaginn 20. nóvember veröa til viðtals Albert
I^Guðmundason og Margrét 8. Einarsdóttir.
Geturðu ímyndaó
þó*moigun
ánM
•TSé&fS
Pá geturðu eins vel
ímyndað þér allan gang
heimsmálanna eins og
þauleggjasig t.d.ástandið
í Póllandi,síðustu fréttir
af átökum ráðamanna í
austri og vestri um eldflaugar í Evrópu,
stöðuna í olíulöndunum í Mið-Asíu, mis-
réttið í Afríku o.s.frv.
ímyndaðu þér líka hvað er að gerast
heima fyrir, hvenær sláum við næsta verð-
bólgumet, hver er staða frystiiðnaðarins,
hvað kostar ein pylsa með öllu eftir síðustu
hækkun, hvað er að gerast að tjaldabaki í
stjórnmálunum.
Svo skaltu ímynda
þér eitthvað skemmti-
legt: veistu t.d. hvaða
nýjustu kvikmyndir er
verið að sýna, hvaða
sýningar og tónleikar eru væntanleg,
hvaða íþróttaafrek voru unnin í gærkvöldi,
hvernig stjörnuspáin þín er í dag, hvað allt
forvitnilega fólkið er að aðhafast....?
Geturðu ímyndað þér morgun eða
jafnvel heilan dag án Moggans?
Óskemmtileg tilhugsun, ekki satt?
rSgjk
V