Morgunblaðið - 17.11.1982, Qupperneq 30
78
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. NÓVEMBER 1982
Kappreiðar 1982:
Hestar
Valdimar Kristinsson
Nú þegar lokið er keppnistímahili
kappreiðamanna og hesta er ekki úr
vegi að líta til baka og kanna árang-
ur sumarsins. í heildina var þetta
frekar dauft keppnistímabil þrátt
fyrir að góður árangur næðist í hest-
um greinum. Það sem því veldur er
fyrst og fremst atburðir er áttu sér
stað i vor á nokkrum kappreiðum. Á
síðasta ársþingi LH voru samþykkt
lög sem ekki áttu rétt á sér eins og
sannaðist í vor. Má þar nefna lög
um aldursmörk knapa, en samþykkt
var að aðeins sextán ára og eldri
mættu hleypa á kappreiðum og kom
það illa niður á nokkrum ungum en
þó reyndum knöpum. Voru sumir
þeirra með þriggja eða fjögurra ára
reynslu að baki og höfðu sýnt mikið
öryggi á sínum keppnisferli. Með
þessum lögum var einnig verið að
bjóða hættunni heim því mikill hörg-
ull var á léttum knöpum og freistuð-
ust margir til að nota óreynda ungl-
inga. Einnig var deilt um ný ákvæði
í kappreiðalögum sem segir að nota
bæri opnanlega lása fyrir ístaðsólar
hliðstætt og er á öllum venjulegum
hnökkum.
Strax í vor kom í ljós að þessir
lásar voru stórhættulegir því þeg-
ar hleypt er á stökki á kappreiðum
standa knapar í ístöðunum og
spyrna fótum örlítið aftur. Leiddi
notkun lásanna til þess að ístaðs-
ólarnar runnu aftur úr og þar með
voru ístöðin á bak og burt. Þarf
ekki að lýsa því nánar hvaða
hættu þetta býður upp á. Þessum
ólögum vildu knapar, eigendur og
forráðamenn hesta ekki una og
létu reyna á það hvort stjórnendur
kappreiða treystu sér til að snið-
ganga þessi lög, en ekki var látið
undan kröfum þeirra og var því
umtalsverður fjöldi hesta dreginn
úr keppni í mótmælaskyni á
nokkrum kappreiðum. Leit oft út
fyrir að kappreiðar myndu leysast
upp vegna þessa. Auðvitað eru
þessar aðgerðir umdeilanlegar því
lög eru lög og þeim ber að hlíta.
En á hitt ber að líta að með þess-
um aðgerðum tókst að vekja menn
til umhugsunar um galla þessara
laga.
Allt þetta uppistand olli því að
öll spenna virtist á bak og burt
framan af keppnistímabilinu, en
heldur fór þetta batnandi þegar á
leið. Einnig virðist þreyta þeirra
er standa í þessu kappreiðastússi
valda því að þetta var ekki eins
spennandi og áður. Er það í sjálfu
sér kapítuli út af fyrir sig. Mikil
vinna liggur að baki þjálfunar
hvers hests og þegar keppnin byrj-
ar að vori þurfa knapar og eigend-
ur hrossanna að borga sig inn á
allar kappreiðar og í ofanálag að
greiða þátttökugjald. Það þætti
sjálfsagt skrýtið ef „Sumargleðin"
þyrfti að borga sig inn á böllin og
þar ofan á að borga fyrir að fá að
skemmta. Væri ekki sanngjarnt
að fylgifiskar (eigandi og knapi)
keppnishrossanna fengju nú frítt
inn en greiddu þátttökutryggingu
sem þeir fengju endurgreidda þeg-
ar sýnt væri að hesturinn mætti
til leiks? Það er annars furðulegt
hvað sumir menn hafa enst í
þessu, því mikil vinna og peningar
fara í þetta, en það vita bara þeir
sem reynt hafa.
Betri tímar en áður
Þegar litið er á afrekaskránna
kemur í Ijós að árangur er betri í
flestum greinum nú en í fyrra.
Þegar þetta er skrifað hefur eitt
met verið staðfest en hugsanlega
gætu þau orðið þrjú. Fróðlegt
verður að fylgjast með hvort
árangur Torfa frá Hjarðarhaga
verður viðurkenndur sem Is-
landsmet en eins og kunnugt er
var keppt eftir nýjum reglum í 150
m skeiði, þannig að aðeins sjö
vetra hestum og yngri er heimil
þátttaka í þeirri grein. Spurningin
er hvort eldri árangur Barkar frá
Kvíabekk verði látinn gilda, en
hann hljóp á 14,2 sek. á sínum
tíma. Að öllu líkindum verður
árangur Fengs í 300 metra brokki
viðurkenndur sem met þar sem
þetta er ný keppnisgrein. Annars
var jöfn keppni í flestum greinum
og enginn gat verið viss um sigur
fyrirfram nema ef vera skyldi
Villingur en hann var nær ósigr-
andi í sumar.
Tvær fljótustu hryssur sumarsins þær Hylling og Spóla í karóri keppni. Hylling er til vinstri, en knapi er Jón Ólafur
Jóhannesson, knapinn á Spólu er María Dóra Þórarinsdóttir.
Fengur eða „Afi“, eins og hann er kallaður, náði bestum tíma í 300 metra
brokki og ef að likum lætur, verður hann fyrsti íslandsmethafinn í þessari
nýju keppnisgrein.
Reynir Aðalsteinsson var með marga nýja hesta í skejðinu í sumar. Hér situr
hann einn þeirra, Sprota frá Torfastöðum, en hann keppti í 250 metra skeiði
og náði fjórða besta tíma sumarsins á þessari vegalengd. Ljdwn. vk.
Skeiö
Skeiðið hefur verið í stöðugri
framför sl. áratug, en heldur virð-
ist hafa hægt á þirri framför því
aðeins tveir hestar náðu tíma und-
ir 23,0 sek. Má geta þess hér að
eitt árið hlupu hvorki meira né
minna en sex hestar undir þessum
tíma. Eins og áður segir var Vill-
ingur í sérflokki og var hann að-
eins sekúndubroti frá metinu. Þrír
nýir hestar eru meðal tíu fljótustu
ársins, þeir Sproti, Hjörtur og
Fjölnir. Verður fróðlegt að fylgj-
ast með þessum vekringum á
næsta ári. Methafinn, Skjóni, er
neðarlega á blaði, en hann var lít-
ið reyndur í sumar og vildu sumir
meina að hann væri búinn í fótum,
en það leiðir tíminn einn í ljós. í
150 metra skeiöinu voru að sjálf-
sögðu allt nýir hestar sem ekki
höfðu unnið frægðarverk á
hlaupabrautinni fyrr en í sumar.
Tímar voru lakari en oft áður en
hafa ber í huga að allt eru þetta
ung hross. Torfi frá Hjarðarhaga
er með bestan tíma, en hann var
yfirleitt í verðlaunasætum þegar
Cesar frá Björgum er með besta tímann í átta hundruð metrunum annað árið í röð.
hann keppti. Ekki er þorandi að
veðja á neitt eitt af þessum hross-
um en fjögur efstu hrossin voru
nokkuð sigursæl og sennilegt að
þau eigi eftir að láta að sér kveða.
Stökk
I stökkinu náðust yfirleitt góðir
tímar og var eitt íslandsmet sleg-
ið. Þar var að verki hin unga og
efnilega Hylling frá Nýja-Bæ og
var það í þrjú hundruð metrunum.
Er hér á ferðinni eitt efnilegasta
hlaupahross sem fram hefur kom-
ið hin síðari ár. Var hún aðeins
sekúndubroti frá gildandi meti í
unghrossahlaupinu og með besta
tíma í fjögur hundruð metra
stökki ásamt Spólu sem er frá
Máskeldu en ekki Brunná eins og
sagt hefur verið. En Spóla var
einnig atkvæðamikil í sumar, hún
er efst á blaði í 350 metrunum og
með sama tíma og Hylling í 300
metrunum, en Hylling var dæmd
sjónarmun á undan og þar með
telst hún methafi. Hinsvegar var
Spóla sjónarmun á undan í 400
metrunum og þar með efst á blaði.
Mörg þekkt hross eru á afreka-
skránni og yrði of langt mál að
telja þau öll upp hér en þó er ekki
hægt annað en að minnast á gott
„come back“ svo notað sé fótbolt-
amál, hjá Loku sem var eitt fljót-
asta hlaupahrossið fyrir nokkrum
árum, er hún þriðja á blaði í 350
metrunum ásamt þeim Mannsa og
Don. En þrátt fyrir að góður tími
næðist í styttri vegalengdunum
var ekki það sama upp á teningn-