Morgunblaðið - 25.11.1982, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.11.1982, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1982 Prófkjör sjálfstæðismanna í Reykjavík: Síðustu forvöð fyrir óflokksbundna að láta skrá í I)AG eru siðustu forvöð fyrir óflokksbundna stuðningsmenn Sjálfstæðisflokksins í Reykjavik, að láta skrá sig til þáttöku í prófkjöri flokksins um helgina. Skráning á kjörskrá í prófkjöri fer fram í allan dag í Valhöll, frá klukkan 9 árdegis til miðnættis. „Mjög margir hafa komið og skráð sig til þátttöku nú síðustu daga, samtals hafa um 500 skráð sig, og greinilegt er að margir vilja notfæra sér þennan rétt,“ sagði Árni Sigfússon fram- kvæmdastjóri fulltrúaráðsins, er blaðamaður spurði hann í gær um sig í dag hvort margir hefðu látið skrá sig. „Ég vil sérstaklega hvetja alla þá stuðningsmenn Sjálfstæðisflokks- ins, sem vilja kjósa í prófkjörinu, en vilja ekki af einhverjum ástæð- um ganga í flokkinn, til að nýta sér þennan rétt,“ sagði Árni. Síðasti dagur skráningarinnar er sem fyrr segir í dag, skráning fer fram í Valhöll við Háaleitis- braut, og verður opið til miðnætt- is. „Við búumst við miklum fjölda fólks hér í dag, og höfum gert ráðstafanir til að skráning gangi greiðlega og hratt fyrir sig,“ sagði Árni Sigfússon að lokum. „Hitatónleikar“ í Langholtskirkju KÓR Langholtskirkju heldur óvenjulega tónleika 3. og 4. desem- ber nk. Tónleikarnir munu hefjast kl. 19.00 á röstudagskvöldið þann þriðja, og mun ekki Ijúka fyrr en kl. 19.00 daginn eftir! „Þetta verða langir og kaldir tónleikar,“ sagði Jón Stefánsson, kórstjóri. Langir, vissulega, en hvers vegna kaldir? Jú, þeir verða haldnir í hinni nýju kirkjubygg- ingu Langholtssafnaðar, sem enn er ófullgerð, og eitt af því sem á eftir að gera er að koma fyrir hita- lögn. Og tónleikarnir eru einmitt haldnir í því skyni að reyna að safna fé til þeirrar framkvæmdar. Góðar sölur í Englandi og Þýzkalandi TVÖ skip seldu mjög vel í Grimsby í Bretlandi í gærmorgun. Vantaði aðeins 45 cent upp á að um metsölu yrði að ræða hjá Vestra BA. Vigri átti einnig mjög góða söiu í Grimsby á sama tíma. Þá seldi Snæfugl í gærmorgun fyrir gott verð í Bremerhaven í Þýzkalandi. Vestri var með 73,3 tonn af fiski og seldi fyrir 1.775.200 kr., meðalverð 24,21 kr. á kílóið eða 58,59 brezk pund pr. kit. Metin eru reiknuð út frá pundum og hæsta meðalverð sem fengist hefur fram til þess er frá 4. janúar 1979, en það var 59,06 brezk pund pr. kit. Vigri átti einnig góða sölu í Grimsby í gær. Hann seldi 103,8 tonn fyrir 2.140.800 kr. meðal- verð 20,63 kr. Snæfugl seldi í Þýzkalandi í gærmorgun Brem- erhaven með 143,2 tonn fyrir 1.863.200 kr. eða 13,01 kr. meðal- verð. Látinn eftir umferðarslys MAÐURINN sem varð fyrir stræt- isvagni i Hafnarstræti, 29. septem- ber síðastliðinn, er látinn af völdum slyssins. Hann hét Jóhannes Gíslason til heimilis að Austurbrún 4 í Reykjavík. Hann var 80 ára að aldri, fæddur 8. september 1902. Jóhannes komst aldrei til meðvit- undar eftir slysið. Hann lætur eft- ir sig þrjú uppkomin börn. Unnið að töku myndarinnar, Kristln Jóhannesdóttir leikstjóri að störf- um. Auglýst eftir „fallega gráhærðum konum“ til að leika í kvikmynd: * „A hjara veraldar“ tilbúin í marsmánuði NÚ ER unnið að kvikmyndun atriða í myndinni „Á hjara veraldar“, en vinna við myndina hófst í sumar. Vegna þeirrar vinnu sem fram fer nú, hafa aðstandendur myndarinnar ýmiskonar aukaleikara og hafa nú síðast auglýst eftir konum með „fallega grátt hár“ til að leika í mynd- inni. Fyrirtækið Völuspá framleiðir kvikmyndina, en leikstjóri er Kristín Jóhannesdóttir, en hún hefur stundað nám í kvikmynda- gerð og kvikmyndaleikstjórn í Frakklandi og dvalist þar í 12 ár, samkvæmt upplýsingum sem Mbl. fékk hjá Sigurði Pálssyni, aðstoðarleikstjóra. Sigurður sagði að í sumar hefðu verið teknir um % hlutar myndarinn- ar og nú yrði lokið við hana. Áformað er að myndin verði til- búin til sýninga síðari hlutá marsmánaðar. Þetta er leikin kvikmynd í fullri lengd og aðal- hlutverk eru þrjú. í þeim hlut- verkum eru þau Arnar Jónsson, Þóra Friðriksdóttir og Helga Jónsdóttir, en einnig eru 12—15 smærri hlutverk í myndinni, auk aukahlutverka. Sigurður sagði, vegna auglýs- ingarinnar þar sem auglýst var eftir gráhærðum konum, að fjöl- margar konur hefðu sett sig í samband við fyrirtækið, en síðan myndi leikstjóri ákveða hverjar myndu leika í kvikmyndinni. Bláfjalla- svæðið opnað í kvöld SKÍÐASVÆÐIÐ í Bláfjöllum verður opnað síðdegis í dag, að sögn Stefáns Kristjánssonar, íþróttafulltrúa Reykjavíkur, þar sem reiknað er með að framkvæmdum við Bláfjallaveginn verði lokið um hádegisbilið. Stefán bjóst við að aðeins stóla- lyftan yrði í gangi þar sem enn er ekki mikill snjór á svæðinu. Færi er þar hins vegar gott. Þá er heldur ekki nægur snjór í Hveradölum, á Kolviðarhólssvæð- inu eða í Skálafelli, svo skíðastað- irnir á þessum svæðum verða ekki opnaðir fyrst um sinn. Að sögn Veðurstofu íslands er gert ráð fyrir áframhaldandi en minnkandi norðanátt í dag, en búist við að í kvöld og nótt þykkni upp með vaxandi suðaustanátt og hvassviðri og rigningu í byggð suð- vestanlands á föstudag, en hugsan- legri snjókomu í fjöllum. Á laugar- dag og sunnudag er spáð útsynningi og kólnandi veðri með hugsanlegu éljaveðri, einkum til fjalla. Forstjóri Rannsóknar- ráðs ríkisins: Þrír sækja um stöðuna ÞRÍR sóttu um stöðu forstjóra Rannsóknarráðs ríkisins, en um- sóknarfrestur um stöðuna rann út 19. nóvember síðastliðinn. Þeir eru: Baldur Garðarsson, BS, Kári Einarsson, verkfræðing- ur og dr. Vilhjálmur Lúðvíksson, en hann hefur gegnt stöðunni und- anfarið. Lagt til að veiða 360 þús. tonn af þorski 1983: Stofninn mun minnka náist það aflamagn STÆRÐ þorksstofnsins er áætluð 1.420—1.570 þúsund tonn i upphafi næsta árs, en stofnstærðin fer eftir styrkleika stofnsins frá 1976, en hann er nú talinn 10—20% minni en í upphafi þessa árs, aö því er fram kom í ræðu Jóns Jónssonar, for- stjóra Hafrannsóknarstofnunar, á aðalfundi LÍÚ, sem hófst í gær. Miðað við 300 þús. tonna veiði á næsta ári myndi stofninn standa í stað, miðað við 350 þús. tonna veiði myndi verða minnkun á stofninum, en miðað við 400 þús. \ tonna ársafla myndi stofninn minnka talsvert nteira. Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, gagn- rýndi það, að lagt væri til að veidd yrðu 350 þús. tonn á næsta ári, þegar Hafrannsóknarstofnun segði að með slíkri veiði myndi stofninn minnka. Jón Jónsson svaraði gagnrýni Kristjáns og sagðist sammála honum að lagt væri til að meira yrði veitt, en srtöngustu vísindi segðu og það hefði komið fiskifræðingum á óvart að orðið hefði að leggja til 100 þús. tonna minnkun á þorsk- afla. Hægt væri að standa við 350 þús. tonna afla, þó æskilegasta aflamagn væri 300 þús. tonn, en það mætti endurskoða á næsta ári. Um aðra fiskistofna sagði Jón Jónsson, að ýsustofninn væri ágætur og í vexti. Hins vegar ætti aflinn á næsta ári ekki að fara yfir 60 þúsund tonn, en þá væri hrygn- ingarstofninn í jafnvægi. Um ufsa sagði Jón að lagt hefði verið til að veidd yrðu 65 þús. tonn, en búist væri við að aflinn færi í 68 þús. tonn, en það vapri næst besti afli frá upphafi. Varðandi karfa sagði Jón að í ár stefndi í yfir 100 þús- und tonna afla og heildarveiði úr stofninum yrði um 145 þús. tonn í ár. Stofninn væri ofnýttur, en hins vegar tæki langan tíma að koma stofninum á kné, og einnig að koma honum upp aftur, en hefðu íslendingar ekki einir um karfann að segja. Fjórir piltar trufluðu út- sendinguna Aldrei komið til greina að fram- lengja núverandi stjórnarmynstur — segir Friðjón Þórðarson dómsmálaráðherra ALDREI hefur komið til greina í mínum huga að framlengja núver- andi stjórnarmynstur óbreytt eftir þingkosningar sagði Friðjón Þórð- arson dómsmálaráðherra meöal annars í ræðu sinni við umræður um vantraust á rikisstjórnina á þriðjudagskvöld. Friðjón sagði, að leggja þyrfti frumvarp til nýrrar stjórnarskrár fyrir þingið nú þegar, og síðan afgreiða það snemma á næsta ári, og boða þá til nýrra kosninga, sem allir Bokkar gengju til hver í sínu lagi. Orðrétt sagði ráðherrann í lok ræðu sinnar: Að samþykktri nýrri stjórn- arskrá „yrði þing rofið og stjórn- málaflokkarnir gengju til reglu- legra alþingiskosninga hver í sínu lagi, svo sem venjulegt er með svipuðum hætti og í sama sameiningaranda, a.m.k. að því er varðar Sjálfstflokkinn og gengið var til sveitarstjórna- kosninga á liðnu vori, enda hefur í mínum huga aldrei komið til greina, að framlengja núverandi stjórnarmynstur óbreytt eftir þingkosningar. I öllum flokkum eru uppi skiptar skoðanir og ólík sjón- armið, ekki síst í Sjálfstflokkn- um, en ég hef alltaf vonað og gengið út frá því, við sjálfstæð- ismenn gætum borið gæfu til samþykkis til þess að jafna deil- ur og greiða úr málum nú eins og ævinlega hefur tekist í 50 ára sögu flokks okkar og eitt er víst, að það mundi verða landi og þjóð fyrir bestu. Lifið heilir, hlust- endur góðir. frá Alþingi FJÓRIR piltar á aldrinum 16—18 ára hafa viðurkennt að hafa truflað beina útsendingu sjónvarpsins frá vantraustsumræðum á Alþingi í fyrrakvöld. „Steinhaldiði kjafti, hel- vítis vitleysingar.. “ heyrðist í sjónvarpstækjum landsmanna þegar Friðjón l»órðarson, dómsmálaráð- herra, var að flytja ræðu sína. Piltarnir náðu að trufla útsend- inguna með öflugri 40 rása talstöð, sem er ólögleg og ekki á skrá. Talstöðin hefur verið afhent radíóeftirliti Landsíma Islands. Þeir lögðu bifreið sinni skammt frá bifreið sjónvarpsins og komust inn á sömu tíðni. Grunur beindist að bifreiðinni og voru piltarnir teknir í gær. Þeir voru eftirlýstir af lögreglunni í Kópavogi vegna þjófnaðarmáls þar. Þeim hefur nú verið sleppt úr haldi. - v

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.