Morgunblaðið - 25.11.1982, Page 14

Morgunblaðið - 25.11.1982, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1982 Efnahagsöngþveitið ógnar börnum okkar eftir Sólrúnu B. Jensdóttur sagnfrœðing Þegar kona, sem lítið hefur látið til sín taka á stjórnmálavettvangi birtist á framboðslista í prófkjöri, hljóta væntanlegir kjósendur að spyrja: Hver er þessi kona, og hvað vill hún? Ég ætla að reyna að svara því. Ég er fædd og uppalin í Reykja- vík, sagnfræðingur að mennt, lauk magistersprófi frá Lundúnahá- skóla. Ég var blaðamaður við Morgunblaðið í sex ár og hef kennt við menntaskóla og Háskóla íslands. Ég hef skrifað um nútímasagnfræði, t.d. um ísland í fyrri heimsstyrjöld og lýðveldis- stofnunina og vinn nú að sagnfræðirannsóknum á utanrík- isverslun íslendinga á fyrra helm- ingi aldarinnar auk húsmóður- starfa. Þegar kjörnefnd Sjálfstæðis- flokksins fór þess á leit við mig, að ég tæki þátt í prófkjöri flokksins fyrir alþingiskosningarnar, ákvað ég að láta til leiðast. Ástandið í þjóðfélaginu er þannig, að enginn, sem fær tækifæri til að leggja hönd á plóginn, getur færst und- an. Ég er eindregið fylgjandi stefnu Sjálfstæðisflokksins. Eink- um fellur mér vel sú áhersla, sem hann leggur á frelsi einstaklings- ins til orða og athafna, andstætt öðrum stjórnmálaflokkum, sem telja, að stjórnmálamenn eigi að hafa vit fyrir almenningi og ákveða fyrir einstaklinga og atvinnufyrirtæki, hvernig aflafé þeirra er varið og eru haldnir þeirri áráttu að reyna að stjórna atvinnulífinu með höftum, ofsköttun og tilfærslu fjármagns frá arðbæru starfi til tapreksturs. Með slíkum aðferðum eignumst við aldrei blómlegt atvinnulíf, sem getur skapað ný atvinnutækifæri fyrir unga fólkið, sem kemur á vinnumarkaðinn. Hér erum við komin að mikil- vægasta hagsmunamáli þjóðar- innar. í hefðbundnu atvinnuveg- unum, landbúnaði og sjávarútvegi, er dulbúið atvinnuleysi og ekki batna lífskjörin, ef ríkið ræður alla, sem þurfa vinnu á komandi árum. Orkan er eina auðlind okkar, sem ekki er nær fullnýtt. Það verður því að vinda bráðan bug að uppbyggingu arðbærrar stóriðju. Ég neita að trúa því, að ekki sé unnt að nýta orkuna Is- lendingum til hagsbóta. Skrif- finnskunni í iðnaðarráðuneytinu verður að linna. Endalaus skýrslu- gerð gagnar ekkert, ef engar framkvæmdir fylgja. Hvað léttan iðnað varðar, verð- ur að skapa honum betri vaxtar- skilyrði. Áðgerðir stjórnvalda að undanförnu virðast miða að því að kæfa hann í fæðingu með rangri gengisskráningu og óhæfilegum álögum. Þessu verður að breyta. Áhyggjur landsmanna af verð- bólgunni aukast stöðugt. Af hálfu stjórnarliða hefur hvorki skort loforð né máttvana aðgerðir, enda versnar ástandið sífellt. Fánýti aðgerðanna er loksins viðurkennt, jafnvel af þeim flokki, Alþýðu- bandalaginu, sem alþjóð þekkir aðeins af fullkomnu fjárhagslegu ábyrgðarleysi. Verðbólgan verður ekki kveðin niður nema með fjármagnsflutn- ingi frá ríkisrekstri og einka- neyslu til arðbærra atvinnuvega. Verði það gert skapast ný at- vinnutækifæri og við getum gert okkur vonir um að halda góðum lífskjörum og jafnvel bæta þau. Þetta getur haft í för með sér tímabundna kjaraskerðingu, en hún verður minni en sú kjara- skerðing, sem blasir við okkur öll- um, fái verðbólgan að æða áfram óhindruð. Almenningur er, sem betur fer, farinn að gera sér þetta ljóst. Aðgerðir, sem þýða kjara- rýrnun, þurfa ekki að vera óvinsæl- ar, ef fólk skilur, að þær eru nauðsynlegar og árangur lætur ekki bíða of lengi eftir sér. Skammarlega lágt hlutfall kvenna í opinberu lífi var mér hvatning til að taka þátt í próf- kjörinu. Þrátt fyrir rétt kvenna til setu á Alþingi í tæp 70 ár, eru þar aðeins 3 konur en 57 karlar. Þess- ar tölur endurspegla ástandið víð- ar. Ég ætla ekki að reyna að skýra þetta, en ég er ekki þeirrar trúar að karlmenn hafi meðvitað haldið konum úti í kuldanum. Viljum við aukin áhrif verðum við að vinna að því sjálfar. Við eigum ekki að bjóða okkur fram til sveitastjórna og Alþingis til að vinna að svoköll- uðum kvennamálum, heldur öllum Sólrún B. Jensdóttir málum sem þjóðfélaginu eru gagnleg við hlið karla og á sama grundvelli og þeir. Flestar konur vinna óhæfilega mikið utan heimilis og innan. Fá- ar fjölskyldur geta lifað af einum launum, en æskilegast væri, að það væri unnt og hjón gætu komið sér saman um hvort ætti að vinna úti og hvort gæta bús og barna. Það ætti ekki að hindra frama fólks þótt það ynni hlutastörf. Þetta er draumur, sem ekki rætist í bráð. Hins vegar má gera ýmis- legt til að bæta ástandið við nú- verandi aðstæður. Til dæmis með því að koma á sveigjanlegum vinnutíma og samfelldum skóla- degi. Það er ómannúðlegt, að mæður, sem kjósa að vera heima og hugsa um ung börn sín, geti það ekki af fjárhagsástæðum. Það ætti að veita þessum mæðrum opinberan styrk. Kannað hefur verið í Sví- þjóð, hvort þetta sé hagkvæmt fyrir þjóðfélagið. Niðurstaðan var sú, að það þyrfti ekki að vera dýr- ara að styrkja mæður á þennan hátt, því að það sparaði bæði stofn- og reksturskostnað dag- vista. Loks vil ég nefna það áhugamál kvenna, sem mest hefur verið rætt undanfarna áratugi, dagvistun fyrir öll börn mæðra, sem kjósa eða verða að vinna utan heimilis. Ástandið í þessum málum er enn óviðunandi. Algengt er að dag- mæður gæti barna útivinnandi mæðra, en auðskilið er, að konur, sem í ár hafa tíma og tækifæri til að starfa sem dagmæður, geti ekki skuldbundið sig til að veita sömu þjónustu næstu ár. Flækingur milli staða og einstaklinga getur komið róti á börnin. Alvarlegasta ógnun, sem vofir yfir börnum okkar, felst þó í efna- hagsvandanum. Það er geigvænleg staðreynd, að ríkisbúskapurinn er rekinn með erlendum lánum og ekkert gert til að auka útflutn- ingsverðmæti og framleiðslu. Oft er sagt, að við verðum að standa vörð um sjálfstæði okkar og menningu, en ekki er víst að allir geri sér ljóst, hve sjálfstæði okkar stendur mikil ógn af sífelldum er- lendum lántökum til rekstrar. Við viljum ekki, að börnin okkar verði skuldaþrælar erlendra ríkja, eins og nú stefnir. Ég trúi því, að Sjálfstæðisflokkurinn sé eina aflið í þjóðfélaginu, sem getur stöðvað þessa óheillaþróun. Almenningur fái að ræða stjórnarskrármálið eftir Jónas Elíasson, prófessor Hvaö vill stjórn- arskrárnefnd? Af þeim fréttum að dæma, sem hafa „lekið" út af fundum stjórn- arskrárnefndar, mun fullur vilji innan nefndarinnar til að bæta úr óréttlæti vegna núverandi kjör- dæmaskipunar. Þau áform njóta áreiðanlega víðtæks stuðnings. Það eru hins vegar slæmar fréttir, sem hafa borist þess efnis, að nefndin ætli sér að ljúka allsherj- arendurskoðun stjórnarskrárinn- ar og leggja tillögur að nýrri stjórnarskrá fyrir það þing, sem nú situr. Þar mun gert ráð fyrir verulegum breytingum á eignar- réttar- og mannréttindaákvæðum stjórnarskrárinnar. Engin umræða farið fram um stjórnarskrárbreytingar Stjórnarskrárnefnd hefur ekk- ert upplýst um áform sín eða til- lögur, sem hún vill leggja fyrir Al- þingi. Því hafa menn ekki átt þess kost að ræða um eða gera athuga- semdir við breytingartillögur nefndarinnar. Það verður að telj- ast ófært, ef keyra á breytingar á eignarréttar- og mannréttinda- ákvæðum stjórnarskrárinnar gegnum þingið án þess að almenn- ingi gefist kostur á að ræða þær. Til þess er hér um of veigamikið mál að ræða. Tökum lítið dæmi: Það hefur „lekið" út, að til standi að setja í stjórnarskrá, að jarðhiti fyrir neðan 100 metra dýpi verði „þjóðareign". Fréttinni fylgdi, að fyrir neðan 100 metra tæki skratt- inn við, og það, sem næðist frá honum, ætti að vera eign „þjóðar- innar" allrar. Þetta hljómar kannski ágætlega, en hvað þýðir það í raun, þegar stjórnarskrár- nefnd er komin á skak hjá kölska? Umboðsmaður kölska Hvað gerist nú ef jarðhiti fyrir neðan-100 metra verður „þjóðar- eign“ samkvæmt stjórnarskrá? Hvað verður um réttindi, sem Reykjavík á á Nesjavöllum og ætl- ar að nota fyrir hitaveitu sína? Hvað um réttindi sem Hafnar- fjörður á í Krýsuvík og verða líka notuð? Verða þessi réttindi „þjóð- areign" fyrir neðan 100 metra? Ef svo er, má ekki bora niður fyrir 100 metra nema með leyfi húsráð- enda? Þarf þá ekki Hitaveitan að fá uppáskrift hjá umboðsmanni kölska, ef hún ætlar að bora á Nesjavöllum? Eða með öðrum orð- um, þarf Reykjavíkurborg að biðja um leyfi til að bora á Nesjavöllum, hjá orkumálaráðherra? Hann set- ur væntanlega nefnd í málið ag svarar ekki fyrr en eftir mörg ár. Eða getur þá fjármálaráðherra, með skírskotun til þessa ákvæðis, lagt „þjóðareignarskatt" á borhol- ur sem þegar eru notaðar, með auðveldari hætti en nú er hægt? Mikið hefur verið rætt um að skattleggja Hitaveitu Reykjavík- ur. Núverandi orkumálaráðherra er því fylgjandi að því er manni skilst. Mun ákvæði í stjórnarskrá, um að jarðhiti fyrir neðan 100 metra sé „þjóðareign", auðvelda honum það? Allir hljóta að sjá, að slík ákvæði er ekki hægt að keyra gegnum þingið án þess að gefa mönnum kost á rækilegri umræðu um þau. „Það verður að teljast ófært, ef keyra á breyt- ingar á eignarréttar- og mannréttindaákvæðum stjórnarskrárinnar gegn- um þingið án þess að al- menningi gefist kostur á að ræða þær. Til þess er hér um of veigamikið mál að ræða.“ Afstaða Sjálf- stæðisflokksins Afstaða Sjálfstæðisflokksins í kjördæmamálinu er skýr. Á síð- asta flokksráðsfundi og á síðasta landsfundi voru kosningalög og kjördæmaskipan mjög til um- ræðu. Ályktun landsfundar 1981 um kosningalög og kjördæmaskip- an er skýr og afdráttarlaus. En flokkurinn hefur enga sérstaka stefnu markað í stjórnarskrár- málinu sem slíku. Það hafa aðrir flokkar ekki heldur gert. Það er því ekki við hæfi að gera breyt- ingar á veigamiklum þegnréttar- ákvæðum án þess að gefa almenn- ingi kost á að ræða þær, áður en þær eru lagðar fyrir Alþingi. Ef slíkt er gert, þáer stefnt í deilur um stjórnarskrármálið. Það verð- ur að rjúfa þing jafnskjótt og búið er að samþykkja frumvarp að nýrri stjórnarskrá á Alþingi. Ef almenn umræða hefur ekki orðið um þetta stjórnarskrárfrumvarp áður en það er samþykkt á þingi, fer hún fram eftir á. Það þýðir, að umræðan um stjórnarskrána blandast saman við almenna póli- tíska kosningabaráttu. Allir hafa verið sammála um það hingað til að þetta bæri að forðast. Því verð- ur að halda sig við það á þessu þingi að ná fram breytingum á kosningalögum og kjördæmaskip- an og leiðrétta núverandi órétt- læti. Samþykkt stjórnar Full- trúaráðs sjálfstæðis- félaganna í Reykjavík Að ofangreindu tilefni sam- þykkti stjórn Fulltrúaráðs sjálf- stæðisfélaganna í Reykjavík eftir- farandi ályktun á fundi sínum 28. október síðastliðinn. Stjórn Fulltrúaráðs sjálfstæðis- félaganna í Reykjavík skorar á stjórnarskrárnefnd, að gera nú þegar opinberar þær tillögur að breytingum á stjórnarskránni, sem fjailað er um innan nefndar- innar nú. Hér er talað skýru máli um nauðsyn þess, að almenningur fái að fylgjast með stjórnarskrármál- inu og fái tækifæri til að ræða fram komnar breytingartillögur. Allir sjá nauðsyn þess, að máls- meðferð í þessu mikilvæga máli sé slík, að ekki sé stefnt út í pólitísk- an ófrið um stjórnarskrármálið. Tíöindalaust hjá stjórnarskrárnefnd Á þessu ári hefur stjórnarskrár- nefnd starfað miklu meira og haldið fundi oftar en menn hafa vanist fram til þessa. Sá ásetning- ur stjórnmálamanna að endur- skoða stjórnarskrána í heild á fjörutíu ára afmæli. Því er eðlilegt að nú vilji menn fara að sjá ein- Jónas F.liasson hvern árangur af endurskoðun- arstarfinu. En þrátt fyrir mikið starf heyr- ist ekkert frá stjórnarskrárnefnd. Hún hefur ekki gert almenningi kunnar neinar tillögur að breyt- ingum á stjórnarskránni. Því er eðlilegt að menn spyrji, hvort engra breytinga sé von. Telur stjórnarskrárnefnd ef til vill að engra breytinga sé þörf ? Er breytinga þörf? Þessari spurningu má tvímæla- laust svara játandi. Einn dreifbýl- isbúi getur haft sömu áhrif á stjórn landsins og fimm þéttbýl- isbúar. Þetta óréttlæti verður að afnema, jafnvel þótt sumum full- trúum dreifbýlisins þyki völdin harla góð eins og margsinnis hef- ur komið fram. Menn skilja vel að þeir séu ekki sérstaklega viljugir að flýta fyrir breytingunni. En þeir mega ekki nota völd sín á Al- þingi til að hindra að breytingin nái fram að ganga. Slíkt væri póli- tískt samsæri minnihlutans gegn meirihlutanum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.