Morgunblaðið - 25.11.1982, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1982
15
„Sól ég
Fyrra bindi sjálfs-
ævisögu Steindórs
Steindórssonar
BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örlygur hf.
hefur gefid út bókina „Sól ég sá“, og
er hún fyrra bindi sjálfsævisögu
Steindórs Steindórssonar, náttúruvís-
indamanns og fyrrverandi skóla-
meistara frá Hlöðum.
í bókinni segir Steindór Stein-
dórsson frá uppvexti sínum, náms-
árum og skólastarfi. Er höfundin-
um fylgt frá smalaslóðum hans og
fjárgötum heima á Hlöðum og það-
an á skólabekk bæði í Gagnfræða-
skólanum á Akureyri, Mennta-
skólanum í Reykjavík og í háskól-
anum í Kaupmannahöfn þar sem
Steindór opnar lesendum sýn til
skemmtilegs, fjölbreytts og ævin-
týraríks stúdentalífs.
Síðan liggur leiðin aftur heim og
í Menntaskólann á Akureyri þar
sem Steindór kenndi fræði sín í
meira en 40 ár og stjórnaði þessum
fjölmenna skóla síðustu árin. Segir
Steindór frá ýmsu í skólastarfinu
— bæði skemmtilegum atvikum og
eins þeim sem erfið voru úrlausnar
og kostuðu stundum deilur.
Bókin „Sól ég sá“ er sett, um-
brotin, filmuunnin, prentuð og
bundin hjá Prentsmiðjunni Eddu
hf. Kápu hannaði Erst Bachmann.
„Togarasjómaðurinn
Guðmundur Halldór“
FYRIR 20 árum kom út bókin „60 ár
á sjó“ eftir Jónas Guðmundsson rit-
höfund, þar sem rakin er ævi Guð-
mundar Halldórs Guðmundssonar.
Bókin er löngu uppseld, og hefur
JÓNAS GUÐMUNDSSON:
TOGARAMAÐURINIM
GUÐMUNDUR HALLDÓR
Jónas nú yfirfarið hana og aukið
mjög með viðtölum við Guðmund
J. Guðmundsson, son Guðmundar
Halldórs.
„Sá þáttur eykur gildi bókarinn-
ar að verulegum mun, því að hún
fyílir myndina og sýnir þá hlið
togarasjómannsins, sem snýr að
fjölskyldunni í landi og viðhorfi
hennar til hans. Jónas fer snilld-
artökum um hina sígildu sögu tog-
aramannsins, þannig að enginn
leggur bókina frá sér fyrr en að
henni lokinni," segir í frétt frá út-
gefanda.
Bókin er 173 bls. að stærð með
fjölda teikninga, sem falla að efn-
inu. Útgefandi er Bókaútgáfan
Hildur.
StSSöBflNOllLBG
'É6VEITTOERÓ1FÚLEÖT. EN
ÞETTRWMR10t«RK'
FARSÆLL
FORYSTUMAÐUR
Birgir ísleifur Gunnarsson hefur um árabil reynst
Reykvíkingum farsaell forystumaður.
Fyrst í störfum sínum að borgarmálum, síðar á Alþingi.
Sjálfstæðismenn í Reykjavík verða að standa vörð um
hagsmuni Reykvíkinga og tryggja einörðum
talsmanni sínum og sjálfstæðisstefnunnar öruggt sæti á
Alþingi, því úrslit kosninga veit enginn fyrirfram.
Fylkjum okkur um farsælan forystumann,
Birgi ísleif Gunnarsson.
Stuðningsmenn.
Reykjavíkurvegi 72 — Hafnarfirði
Kynnir í dag frá kl. 4-6
örbylgjuofna
í dag kynnir Gunnar Bollason, matreiöslu-
maöur, Sharp örbylgjuofna í versluninni. Geriö
svo vel aö líta inn — kynnist möguleikum ör-
bylgjuofna og hve sáraeinfaldir þeir eru í allri
notkun.