Morgunblaðið - 25.11.1982, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 25.11.1982, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1982 Utgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 130 kr. á mánuöi innanlands. i lausasölu 10 kr. eintakiö. Hversvegna kosningar? Heilsteyptur og sterkur persónuleiki eftir Einar Hákonarson Þegar litið er yfir völl ís- lenskra þjóðmála, nú þegar ríkisstjórnin er að liðast í sundur, setur hroll að fólki. A flestum sviðum þjóðlífsins svartnætti og stefnuleysi og allt að komast í kalda kol. I fyrsta sinn frá stofnun lýðveld- isins bera menn ótta í brjósti um áframhaldandi sjálfstæði þess, vegna vísvitandi óstjórn- arstefnu kommúnista og band- ingja þeirra, sem þeir hafa ávallt beitt gegn lýðræðis- skipulagi frjálslyndra manna, til þess svo að hrifsa til sín völdin, standandi á rústum efnahagslífsins. Forsvarsmenn Framsóknar og Alþýðubanda- lags keppast nú um, hrópandi á torgum, við að sverja af sér ógagnarverkin. Sá slagur á eft- ir að harðna, er nær dregur kosningum með ásökunum á báða bóga. Atlaga þeirra að Sjálfstæðis- flokknum mistókst, þótt þeim væri dyggilega hjálpað af metnaðarfullum einstaklingum innan hans. Spjótalögin bein- ast nú að þeim sjálfum og þeirra eigin verkum. Arásir þeirra á formann Sjálfstæðis- flokksins, Geir Hallgrímsson, voru og eru hvað hatrammast- ar og náðu þeir töluverðum ár- angri í þeim áróðri, sérstaklega Innkaupakarfa /W l • Verölagsstofnunar: Mesti munur 327,6% á dósasúpum Kinar Hákonarson framan af kjörtímabilinu. Fólk er hinsvegar farið að sjá hvað fyrir þeim vakti, en það er að veikja sem mest forystu flokks- ins og það sem hættulegra er, að koma inn hjá fólki að Geir Hallgrímsson sé óhæfur for- maður. Það þarf sterkan per- sónuleika og heilsteyptan til þess að standa af sér slíkar árásir og það þarf sterkan mann til þess að halda flokkn- um saman, þrátt fyrir tíma- bundna erfiðleika með þeim ár- angri að í síðastliðnum sveitar- stjórnarkosningum kom flokk- urinn út sem glæsilegur sigur- vegari og í sókn víðast hvar á landinu öllu. Aldrei fyrr í sögu íslenska lýðveldisins hefur ver- ið meiri þörf fyrir samhenta og ábyrga stjórn landsmála, aldrei sem nú hefur verið meiri nauðsyn þess að frjálslyndir menn standi saman um vörð lýðræðisins, eftir þær ógöngur sem núverandi ríkisstjórn er búin að koma okkur í. Um þetta eru allir þjóðhollir ís- lendingar sammála. Sjálfstæð- isflokkurinn stendur nú frammi fyrir því í fyrsta sinni í sögu landsins að fá hreinan meirihluta að loknum þing- kosningum. Síðustu atburðir á vinstra væng stjórnmálanna styðja þá kenningu. Það mun því verða mikið verk að byggja upp traust efnahagslíf á rjúk- andi rústum núverandi ríkis- stjórnar, svo íslendingar eign- ist áftur trú á mátt sinn og megin í efnalegum og andleg- um skilningi. Mikil ábyrgð hvílir á formanni Sjálfstæðis- flokksins, Geir Hallgrímssyni. Frjálslyndum mönnum er ljóst að til þess að þeim markmiðum verði náð, sem að framan er lýst, verða þeir að gera kosn- ingu hans sem mesta og besta í komandi prófkjöri flokksins 28.-29. nóvember. Samhent forusta — sameig- inlegur sigur. Baráttukveðjur.. Formenn fjögurra stjórn- málaflokka hafa kveðið upp úr með, í umboði flokka sinna, að ekki komi til mála að draga kosningar til Al- þingis lengur en í síðasta lagi fram í aprílmánuð. Þetta kom ótvírætt fram í sjónvarpsumræðum frá Al- þingi í fyrrakvöld. Formaður Framsóknarflokksins kvað svo fast að orði, að steytti þingið á skeri sundurlyndis í stærri málum næstu vikur, bæri að stefna til þingkosn- inga þegar í febrúarmánuði. Þingflokkur sjálfstæð- ismanna krafðist þess í ág- ústmánuði sl., að Alþingi yrði kvatt strax saman og fjallaði um hin brýnustu mál, en síðan rofið og efnt til kosninga. Formenn Alþýðu- bandalags og Framsóknar- flokks, sem höfnuðu þessari tillögu þá, s^gja nú báðir tveir, að betur hefði farið ef kosningar væru um garð gengnar. Þessi breytta af- staða felur í sér viðurkenn- ingu á því, að ríkisstjórnina skortir hvort tveggja, sam- stöðu um viðbrögð í vanda þjóðarbúsins og starfhæfan þingmeirihluta. Hún hefur því ekki burði til að annast pólitíska stjórnsýslu í land- inu. Geir Hallgrímsson, for- maður Sjálfstæðisflokksins, sagði m.a. í umræðunum, að Næstu alþingiskosn- ingar hljóta að snú- ast um atvinnu- og efna- hagsmál öðru fremur, slíkar. blikur sem eru á lofti í þeinr efnum," sagði formaður Sjálfstæðisflokksins í um- ræðum um vantraust á ríkis- stjórnina, „En áður en til kosninga er gengið er ljóst að það er þjóðarkrafa að jafnað verði vægi atkvæða eftir kjördæmum og tryggt að þingmannatala flokka verði í samræmi við fylgi kjósenda." Geir Hallgrímsson lagði megináherzlu á að samkomulag þyrfti að takast um þetta efni milli íbúa og Ragnar Arnalds, fjár- málaráðherra, sagði í sjónvarpsumræðunum: Við alþýðubandalagsmenn göng- um til kosninga í þeirri trú að núverandi ríkisstjórn fái aukinn meirihluta á Alþingi. í sama streng tóku aðrir ráðherrar úr Alþýðubanda- þær siðferðilegu forsendur sem stjórnarmyndunin var byggð á, að dómi ráðherra, „að bjarga virðingu Alþing- is“, væru brostnar. „Sjaldan hefur virðing Alþingis verið minni en nú, þegar ríkis- stjórn, sem misst hefur starfhæfan meirihluta á Al- þingi, neitar að viðurkenna staðreyndir og rígheldur í ráðherrastóla, hvað sem það kostar." Dráttur á því að starfhæft Alþingi og sterk ríkisstjórn takist á við vanda þjóðarbús- ins versnar dag frá degi, verðbólgan æðir áfram, viðskiptahallinn vex, erlend- ar skuldir hrannast upp og atvinnu- og afkomuöryggi almennings er stefnt í bráða hættu. Flokksráðsfundur Al- þýðubandalagsins metur stöðuna svo, eftir fjögurra ára stjórnarsetu Svavars, Hjörleifs og Ragnars, að grípa verði til jafnlangrar neyðaráætlunar, ef bjarga eigi efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinnar. Ríkisstjórnin er innbyrðis sundurþykk og án starfhæfs þingmeirihluta. Verkstjórn hennar á Alþingi er með þeim hætti, að það er nánast aðgerðarlaust. Þess vegna er nauðsynlegt að þjóðin höggvi á hnútinn með nýjum þing- kosningum. Því fyrr, því betra. þingmanna strjálbýlis og þéttbýlis. „Hið fullkomna lýðræði dugar okkur skammt,“ sagði hann, „ef það verður til að sundra þjóðinni í tvær andstæðar fylk- ingar... En jafnljóst er, að Alþingi er ekki fært um að takast á við vanda þjóðar- búsins, ef það endurspeglar ekki með viðunandi hætti vilja þjóðarinnar allrar. Það er að mínu mati ekki ofmælt að umbætur á þessu sviði séu forsenda þess að við getum brotið blað í efnahags- og at- vinnumálum með svipuðum hætti og gerðist eftir kjör- dæmabreytinguna 1959 með viðreisninni." lagi og Framsóknarflokki. Friðjón Þórðarson, dómsmálaráðherra, sagði hinsvegar: „í mínum huga hefur aldrei komið til greina að framlengja núverandi stjórnarmynstur óbreytt eft- ir kosningar." SÍÐASTLIÐINN lostudag könnuðu starfsmenn Verðlagsstofnunar lægsta og hæsta verð á þeim rúm- lega 30 vörutegundum, sem eru í Innkaupakörfunni svokölluðu. Gerð var úrtakskönnun í 16 verslunum í Reykjavík. Þetta er fjórða könnunin af þessu tagi og er niðurstaðan sú, að lægsta verð hefur í heild lækkað og hæsta verð hækkað. Samanborið við Innkaupakörfu eitt, sem var birt fyrir einum mánuði hefur munur á lægsta og hæsta veröi aukist úr 49,1% í 56,6%, segir í fréttatilkynn- ingu frá Verðlagsstofnun. Þar segir ennfremur: Tvær fyrstu kannanirnar voru nákvæmlega eins og sú, sem nú er birt. Eftirfarandi vekur athygli, þeg- ar þessi könnun er borin saman við þær fyrri: 1. Mismunur á samanlögðu lægsta og hæsta verði hefur auk- ist allnokkuð og miðverð, þ.e. meðaltal af lægsta og hæsta verði, hefur hækkað um 3,6% á rúmum þremur vikum. Þar sem ekki er ailtaf um sömu vörumerki að ræða má þó ekki draga af þessu ályktun um almenna verð- hækkun. 2. Samanlagt lægsta verð var í fyrstu könnun um 890 krónur en er nú um 870 krónur, eða nokkru lægra. 3. Samanlagt hæsta verð er nokkru hærra. Það var í fyrstu könnun kr. 1.327,80, kr. 1.342,50 í annarri en er nú kr. 1.364,00. 4. Lægsta verð hefur breyst á 16 vörutegundum af 31 frá síðustu sams konar athugun. í sjö tilvik- um er það hærra en í níu tilvikum lægra. 5. Mesti munur á verði í þessari könnun er á dósasúpum, eða 327,6%, handsápu 293,3%, korn- flögum 250%, eplum 191,3%, grænum baunum 176,6% og upp- þvottalegi 157,7%. Þess má geta, að borið er saman verð á sama vörumerki á dósasúpum. Eins og áður hefur verið lögð áhersla á er ekki höfð hliðsjón af gæðum vörunnar eða þjónustu verslana, þegar samanburður er gerður á vöruverði. Þó er ávallt miðað við það, sem seljendur kalla 1. flokks vöru, þegar ekki er um merkjavöru að ræða. Innkaupakarfan gegnir því hlutverki einu að benda almenn- ingi á verðmun, sem getur verið á vöru í sama vöruflokki. Síðan er það neytandans að leggja mat á gæði vörunnar og hvort þau jafni út verðmun. Neytandinn hlýtur að gera það upp við sig hvort hon- um finnst ein tegund af kornflög- um svo góð, að hann sé reiðubúinn til þess að greiða fyrir hana 250% hærra verð en fyrir aðra tegund, svo dæmi sé nefnt. TIERÐKYNNING J\ Merðlagssidfnunar *± INNKAUPA KARFAN Landbunaðarvörur Lægsta vcrð Hæsta verð Mlsmunur i' Nýmjólk 1 ttr. 8.35 8.35 0 Smjðr 250 gr. 22.65 22.70 0.2% Gouda oatur 26% 100 gr. 9.85 9.85 0 Dilkakjöt lærl 1 kg. 56.90 72.90 28.1% Nautagullas 1 kg. 148.00 198.10 33.9% Nautahakk 1 kg. 79.00 134.60 70.4% Kjuktingar 1 kg. 79.80 128.80 61.4% Raykt modlatarpylaa 1 kg. 62.00 107.80 73.9% Svinaaklnka aneidd 100 gr. 25.00 30.75 23.0% Egg 1 kg. 45.00 59.00 31.1% Kartöflur 2.5 kg. 14.40 14.50 0.7% Tómatar 1 kg. Fiskur 52.00 63.00 21.2% Yauflök m. roðl 1 kg. Brauð og kökur 31.00 45.90 48.1% Kremkex 16.45 19.40 17.9% Rúlluterta Ijóe 21.90 37.10 69.4% Heilhveitlbrauð Korn og sykurvörur 7.80 13.16 68.6% Hvelti 1 kg. 9.00 15.15 68.3% Sykur 1 kg. 8.85 11.30 27.7% Kornflögur 500 gr. Aftrar matvörur 22.00 77.00 250.0% Grænar baunlr 450 gr. 11.10 30.75 176.6% Dóaaaupa 300 gr. 2.90 12.40 327.6% Epli 1 kg. Drykkjarvörur 13.25 38.60 191.3% Hrelnn appelsinusafi'/«I. 6.60 12.30 86.4% Kaffl 250 gr. pokl 15.80 28.70 81.6% Kakómalt 400 gr. Sælgæti 28.15 47.95 70.3% Atsukkulaöi hrelnt 100 gr. 12.00 21.00 75.0% Prlna póló atórt 7.50 9.00 20.0% Vanllluía 11tr. Hreinlætisvörur 25.30 27.50 8.7% Þvottaduft, lágfr. 600 gr. 16.60 32.40 95.2% Uppþvottalögur 500 ml. 9.80 25.25 157.7% Handsapa 90 gr. 2.25 8.85 293.3% / 871.20 1.364.00 56.6% Skyrlngar: lnntuup*Kw1»n •> unaktkOnnun »*m nmi M 1S varslarut i Reyktívik Ofl var v*rðuppuk*n o«rð 19 nOv«mb*t sl Ekkiet l«gl m«1 é þ(6nu*!u ofl gæöi »n<!» um mimmunandi vOrumorki að irOn l nokkium Wvikum. n«kJur •Migöngu um bainan vwðs»m»nt>uid aö iað» Inn k»up»k»rt»n »1 «kkt l»ö»rvi»v um nvaö »ð» nv»r O&fiK •< »ö v»»l». n»«or ei Wflíngunnn »» að v«k|» neytendur tit umhufljunar um v«rðmn mun 1 vOrum mnan uma vöruöokks Samkomulag verður að nást Gagnstæðar yfirlýsingar ráðherra

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.