Morgunblaðið - 25.11.1982, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 25.11.1982, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1982 33 Talsmaður nýrra viðhorfa eftir Ólaf Helga Kjartansson Það er stundum um það rætt, að margir okkar hæfileikaríkustu manna gefi sig ekki að stjórnmál- um í þeim mæli, að þeir taki sæti á Alþingi. Ég var farinn að halda að Jón Magnússon bættist í hóp þess- ara manna. Eftir langan og glæsi- legan feril sem forystumaður ungra sjálfstæðismanna tók Jón sér nokkra hvíld frá stjórnmálum en hefur nú gefið kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Þetta gladdi mig mjög bæði vegna þess að ég þekki for- ystuhæfileika Jóns og einarða bar- áttu hans fyrir sínum stefnumál- um og eins vegna þess, að ég tel Jón mann af því tagi, sem Sjálf- stæðisflokkurinn þarfnast í þing- lið sitt. Jón er óneitanlega fulltrúi ákveðinna viðhorfa í Sjálfstæðis- flokknum. Hann er talsmaður þeirrar víðsýnu stefnu, sem gert hefur Sjálfstæðisflokkinn að lang stærsta flokki þjóðarinnar og haldið honum saman í gegnum þrengingar síðustu ára. A þeim tíma, sem við Jón sátum saman í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna reyndi mjög á þau bönd, sem tengt hafa stóran hluta þjóðarinnar saman í Sjálf- stæðisflokknum. Flokkurinn klofnaði í afstöðu sinni til ríkis- stjórnar og í Alþingiskosningum klofnaði hann í tveimur kjördæm- um, og þar á meðal Suðurlandi, minu kjördæmi. Framganga Jóns við þessar aðstæður er öðru frem- ur ástæða mín til að skrifa þessar línur. Undir forystu Jóns var boðað til fundar ungra sjálfstæðismanna víðs vegar að af Suðurlandi og til- raun gerð til þess að sætta ólík sjónarmið. Þetta var erfiður fund- ur en svo fór, að ungir sjálfstæð- ismenn í kjördæminu náðu fullri samstöðu um hvernig að framboði flokksins skyldi staðið. Það fór því miður svo, að þeir eldri hlustuðu ekki á okkur ungu mennina og flokkurinn klofnaði um stund í kjördæminu. Þetta hafði þó mikla þýðingu fyrir þá sáttaviðleitni, Draumaráðningabókin „Drauma- bók“ er nú komin út í þriðju útgáfu. Bíbí Gunnarsdóttir tók saman. í bókinni eru draumaráðningar ásamt draumaráðningum nafna og leiðarvísir til að spá í spil og kaffi- bolla. í formála segir m.a.: „Draumar „Jón er óneitanlega full- trúi ákveðinna viðhorfa í Sjálfstæðisflokknum. Hann er talsmaður þeirrar víðsýnu stefnu, sem gert hefur Sjálfstæðisflokkinn að lang stærsta flokki þjóðarinnar og haldið hon- um saman í gegnum þrengingar síðustu ára.“ Jón Magnússon sem á eftir fór og varð mönnum fordæmi til samheldni. A þessum fundi komu ótvíræðir forystuhæfileikar Jóns Magnús- sonar vel fram. Hann gat bæði sýnt lipurð og fulla hörku eftir því sem við átti. Það var niðurstaða margra eftir þennan fund, að Sjálfstæðisflokkurinn þyrfti á mönnum eins og Jóni Magnússyni að halda við að komast sterkur og stór út úr þrengingunum. Eftir myndun núverandi ríkisstjórnar reyndi ekki síður á forystuhæfi- leika Jóns. Hann tók strax af skarið í stjórn sambandsins og lagði áherslu á einarða en mál- efnalega stjórnarandstöðu. Innan stjórnarinnar var langt frá því að vera eining um þetta atriði, því hafa fylgt mannkyninu frá alda öðli og hafa verið og eru enn ein af mörgum gátum vitundarlífsins, sem erfitt er að ráða. Bók sú, sem hér kemur fyrir sjónir, er tilraun til þess að ráða tákn þeirra að ein- hverju leyti." Bókin er 87 bls. að stærð. Útgef- andi er Bókaútgáfan Hildur. Ólafur Helgi Kjartansson, bæði voru þar stjórnarsinnar og eins menn, sem vildu ganga fram af blindri hörku í andstöðu sinni við ríkisstjórn, sem mynduð var af nokkrum þingmönnum flokksins. Stefna Jóns átti síðar eftir að reynast þannig að stjórn SUS vann áfram einhuga að framsæk- inni stefnumótun í þjóðmálum. Undir forystu Jóns var bryddað upp á nýmælum, svo sem stefnan um „stöðvun landflóttans" ber með sér, kröfu um jafnan kosn- ingarétt og að erlendri skulda- söfnun yrði hætt. Túlkun á við- horfum Sjálfstæöisflokksins var í samræmi við viðhorf nýrrar kynslóðar. Hagsmuna- og baráttu- mál ungs fólks voru höfð í fyrir- rúmi og hvarvetna sem berjast þurfti fyrir stefnunni, hvort held- ur innan flokks eða við andstæð- ingana sýndi það sig að Jón er baráttumaður sem þorir að hafa ákveðnar skoðanir og stendur við þær. Þetta hefur sjálfsagt ekki alltaf fallið í góðan jarðveg, en sjálfstæðisfólk þarf í þessu prófkjöri, sem öðrum, að meta hvort það vill fá sem fulltrúa Sjálfstæðisflokksins menn með ákveðnar skoðanir, sem hafa sýnt það að þeir eru ótrauðir baráttu- menn, þó að ekki séu alltaf allir sammála þeim. Með þessari grein vil ég leggja mitt lóð á vogarskálina, ef það gæti orðið vini mínum Jóni Magn- ússyni til hjálpar í þessari próf- kjörsbaráttu. Hann á við það að stríða, að andstæðingarnir hafa hvað eftir annað reynt að koma á hann höggi, draga hann í dilka. Það er ekki óeðlilegt því fáir eru hættulegri andstæðingum flokks- ins. Ég skora því á sjálfstæðis- menn í Reykjavík að kynna sér vel staðreyndir um frambjóðendur flokksins en láti ekki andstæð- ingana villa sér sýn og velja for- ystumenn. Takist Sjálfstæðisflokknum að sætta ólík viðhorf og ef flokkurinn hefur traustu baráttuliði á að skipa getur hann náð meirihluta. Að því eigum við sjálfstæðismenn að stefna í næstu kosningum. Selfossi, 21. nóvember, Draumabók komin út PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISFLOKKS Við styðjum GUÐMIM) H. GARÐARSm vegna þess ad hann liefur unnld farsælt og vidurkcnnt starf ad skipulagsmálum Sjálfstædisflokks- ins á umbrotatímum. STUÐNINGSMENN SKRIFSTOFAN • STIGAHLÍÐ 87 • SÍMAR 30217 & 25966 SIRIUS hjúpsúkkulaðíð kemst ekki aljtaf alla leið a tertumar! Það vill til að hjúpsúkkulaðið er selt í stórum pökkum, því geymsluþol þess í eldhússkápum er óvenjulega lítið! Hjúpsúkkulaðið er nefnilega úr hreinu súkkulaði eins og allar aðrar súkkulaðivörur frá Nóa og Síríus.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.