Morgunblaðið - 25.11.1982, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 25.11.1982, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1982 35 Athugasemd frá Vilmundi Gylfasyni BLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Vilmundi Gylfasyni: Alþingi, 22. nóvember 1982. Herra ritstjóri. í Staksteinum Morgunblaðsins í dag, sem mér hafa virst vera ein- hvers konar æfingardálkar fyrir Heimdellinga, sem Morgunblaðið er að reyna að gera að mönnum, er vikið að væntanlegu Bandalagi jafnaðarmanna, og ber dálkahöf- undur fyrir sig heldur lítilfjörlega blaðagrein, sem Magnús Bjarn- freðsson ritaði nýlega í DV, til þess þó að koma eigin fordómum á framfæri. Það er aðeins ein athugasemd Heimdellings í staksteinagervi, sem ég vildi vinsamlegast fá að gera athugasemd við. Það eru þau ummæli, að væntanlegt Bandalag jafnaðarmanna fái „nær allt það lausafylgi, sem annars hefði farið á Alþýðuflokkinn". I þessum fáu orðum er lýst slíkri fyrirlitningu á skoðunum fólks og rétti þess, að varla tekur tárum. Valdakerfið í landinu — með Morgunblaðið og ríkisfjöl- miðla í broddi fylkingar — hefur búið sér til orðaforða, sem lýsir þó auðvitað innræti þeirra sjálfra. Hvað er „lausafylgi"? Er það það fólk, sem notar sér þau mannrétt- indi sín að greiða atkvæði eftir því sem því þykir skynsamlegt hverju sinni? — Af hverju skyldi flokks- blað, eins og Morgunblaðið auðvit- að er, varnartæki fyrir valdakerfi, nota svo niðrandi orð um það fólk, sem nýtir sér þau réttindi, sem því eru tryggð í stjórnarskrá. Morg- unblaðið gæti að þessu sinni skýlt sér á bak við Magnús Bjarnfreðs- son. En Morgunblaðið sjálft hefur iðulega notað þetta dónalega orð — og mörg fleiri slík. Fylgi í kosningum er ekki fast- eign — hvorki Sjálfstæðisflokks- ins eða nokkurra annarra sam- taka. Fólk er í sínum fulla rétti til þess að nýta sér réttindi sín — þrátt fyrir þennan gífuryrðaflaum sem valdakerfið í landinu stefnir geen því. Sjálfstæðisflokkurinn „á“ ekki þau rúmlega 30% atkvæða, sem hann hefur fengið í síðustu kosn- ingum. Það fylgi hefur hann þá fengið, kannski fær hann meira næst, kannski minna. Hann mun væntanlega njóta verka sinna og hugmynda! Morgunblaðið ætti að temja sér kursteislegra orðfæri um þau grundvallarréttindi fólks, að fylgja sannfæringu sinni og sam- visku. Valdakerfið, flokkavaldið, talar auðvitað um „lausafylgi", „sérframboð", „aukaframboð", býr til niðrandi orð yfir alla þá, sem þeim þykir ógna friði þeirra og hagsmunum. Þetta er eitthvert versta ein- kennið á valdbeitingu hinna fá- mennu forréttindahópa í íslensku samfélagi; svona beita þeir vald- inu, með stöðugu nagi og níði; með því að reyna að hrekja fólk frá réttindum sínum. Virðingarfyllst, Vilmundur Gylfason, alþingismaður. ÍSLENSKIR SAGNAÞÆTTIR Æ' Islenskir sagnaþættir Safnað af Gunnari Þorleifssyni KOMIÐ er út fyrsta bindi af íslensk- um sagnaþáttum, sem Gunnar Þor- leifsson hefur safnaö. „Efnið er tínt saman úr ýmsum áttum, úr gömlum blöðum og bók- um,“ segir í frétt frá Bókaútgáfunni Hildi, sem gefur bókina út. „Hug- myndin er að halda þessari útgáfu áfram og birta smám saman þætti alls staðar að af landinu, gamla og nýja, og mun kappkostað að hafa efnið sem fjölbreytilegast." Bókin skiptist í sex meginkafla, sem bera heitin: Sagnaþættir, Nátt- úruhamfarir, Einkennilegir menn, Sagnir af Tyrkjaráninu, Sagnir af útilegumönnum og Þjóðsagnaþætt- ir. GOODpYEAR VEYRARDEKK Bókin er 208 bls. að stærð. sér í hljóðlátari, sparneytnari, öruggari og endingarbetri vól. Bylting í öryggi og endingu BARCO, báta- og vélaverslun hefir tekið við íslandsumboði fyrir THORNYCROFT bátavél- ar. Vélarnar eru byggöar á Leyland og Ford vélum, en nýja 2720 línan frá Ford hefir vakiö feikna athygli og er nú ein eftirsóttasta diesei- vél á markaönum. Við bjóöum vélar frá 30—182 hestöfl. Afgreiðslufrestur er stuttur svo og varahlutaafgreiðsla. Meðal nýjunga i Thornycroft-vélunum má sérstaklega benda á sjálfvirka lofttæmingu olíuverks, upphersla er ekki lengur nauösynleg. Olíueyðsla hefir minnkað um 7—8% og síðast en ekki síst hefir hávaði og titringur minnkað um allt að 30%. 53322 52277 óorco _ BÁTA- OG VÉLAVERZLUN, LYNGÁSI 6, GARÐABÆ, |8é PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆDISFLOKKS Við styðjum GIIÐMOR) H. GARÐARSSOK vegna þess að liann hefur barisí og ber&t fyrir öflngnm lífeyri§sjódiun og réttindiim aldradra og sjúkra. STUÐNINGSMENN SKRIFST0FAN • STIGAHLÍÐ 87 • SÍMAR 30217 & 25966 Ny sending Donsk og ítölsk herraföt. Staki jakkar og buxur í miklu úrvali. Hagstsett verö. Yfirstaeröir. GEíslP H F

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.