Morgunblaðið - 25.11.1982, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 25.11.1982, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1982 39 fólk í fréttum Joan Collins á heimaslóðum + Joan Collins er um þessar mundir stödd í Bretlandi, til að taka þátt í sjónvarpsþáttum á heimaslóðum. Hún er í fylgd eiginmanns síns og dóttur og við komuna til landsins tilkynntu þau hjón, að þær sögusagnir er gengið hetðu um hjónabandserfiðleika þeirra væru ekki á rökum reistar og hrein firra. Ron Kass, eiginmaður leikkonunnar, var í hjólastól viö komuna, eins og sést á meðfylgjandi mynd af fjölskyldunnl, en hann þríbraut nýveriö á sér ökklann í samkvæmi nokkru, án þess að frekari sögum fari af því. Dóttir þeirra, Katy, sem er tíu ára að aldri, mun heldur ekki vera búin að ná sér fullkomlega eftir bílslys er hún lenti í fyrir tveimur árum, þannig að svo virðist sem Joan hafi í nógu að snúast kringum fjölskylduna ... Keypti sæti undir f jár- muni sína... + Henni brá í brún, flugfreyj- unni sem tók á móti arabískum viöskiptajöfri um borð í Con- corde-þotu, en flugleiðin var frá London til New York. Hann bar meö sér allan sinn farangur, sem var svo stór í sniöum aö engan veginn var hægt aö telja hann til handfarangurs, þó allur heimsins vilji væri með í ferð- um. Flugfreyjan benti hinum arabíska viöskiptavini vinsam- lega á þetta atriöi og baö hann aö koma farangri sínum fyrir í þar til geröri geymslu á öðrum stað í þotunni. Arabinn þvertók fyrir aö setja sekki sína í geymslu, á þeirri forsendu aö um væri að ræöa 1,2 milljónir dollara í reiöufé og kvaðst hann vilja hafa auga meö sekkjunum .. . sem tókst að lokum með því aö kaupa undir þá sætiö viö hliöina... Christian Klar Christian Klar (í miðjunni), einn leiðtoga hryöjuverka- hópsins Baader-Meinhof, sést hér þar sem hann yfir- gefur þyrlu í nánd við Karlsruhe á fimmtudag eftir aö hafa veriö þar í yfir- heyrslum. Hann var sem kunnugt er handtekinn í fyrri viku í skógi nokkrum í nánd vi Hamborg, en hans hefur verið ákaft leitað undanfarin ár. Eigum til á lager 1200 R20 snjódekk. Mjög góöir greiðsluskilmálar. BÍLABORG HF. SmiöshöfÓa 23, sími 812 99. Jónas Bjarnason er einn þeirra sem vilja breytingar í þjóömálum. Hann vill jöfnun kosningaréttar, efl- ingu og uppbyggingu atvinnulífsins úr stöönun og styrka stööu neyt- enda. Þess vegna hvetjum viö fólk til þátttöku í prófkjöri Sjálfstæöis- flokksins og til aö styöja hann. Stuðningsmenn. UB4 Allir gagnrýnendur eru sammála ui ______ aö UB-44, hin nýja plata UB-40, sé eip af bestu plötum þessa árs. Hvernig væri aö gefa sjálfum sér góöa tónlistargjöf? stoÍfiQf’ HLJÓMPLÖTUDEILD Austurstræti 22, Laugavegi 66, Rauöarárstíg 16, Glæsibæ, Mars, Hafnarfiröi, Pfðtuklúbbur/ Póstkröfusími 11620. I I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.