Morgunblaðið - 25.11.1982, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1982
4f.
SVARAR I SIMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
Fyrirspurn um
heimabakkelsi
Kona hringdi og hafði eftir-
farandi að segja: — Mig langaði
til að forvitnast um það, hvort
einhverjar duglegar konur
tækju að sér að baka fyrir fólk,
gegn greiðslu að sjálfsögðu, og
þá á ég auðvitað við heimabak-
aðar kðkur.
Fyrirspurn til
brunamála-
stjóra
Aðstandandi íbúa í öryrkja-
húsinu við Hátún hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: —
Mér finnst ástæða til að beina
þeirri fyrirspurn til brunamála-
stjóra, hvort ekki sé þörf á að
hafa reykskynjara og aðrar
brunavarnir bæði á herbergjum
og göngum öryrkjahússins í Há-
túni 10. Ég er aðstandandi eins
af íbúunum þar og veit að fólk-
ið, sem margt er fatlað og ófært
um að bjarga sér, ef eitthvað
bregður út af, hefur verið að
velta þessu fyrir sér.
Fyrirspurn til
Borgarspítalans
H.E. hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Að gefnu til-
efni beini ég þeirri spurningu til
stjórnar Borgarspítalans í
Reykjavík, hvort það sé látið af-
skiptalaust, að sjúklingar hafi
með sér útvarpstæki sín, er þeir
Þessir hringdu . . .
leggjast inn á spítalann, jafnvel
þar sem eru 4—6 á stofu. Ég hef
a.m.k. séð dæmi þess, að svo
hafi verið, þó að ég fullyrði ekk-
ert um, hvort þar hafi e.t.v. ver-
ið um undantekningartilvik að
ræða. Hægt er að gera sér í
hugarlund það ónæði sem eitt
útvarpstæki getur valdið, hvað
þá ef fleiri tæki eru í gangi á
sömu stofu. í þessu máli þurfa
að vera ákveðnar reglur; ann-
aðhvort geti allir komið með
tæki sín og haft þau í gangi,
þegar þeim sjálfum hentar,
jafnvel án tillits til annarra,
eða að sjúklingar verði að láta
sér nægja þau útvarpstæki sem
þeir hafa afnot af á spítalanum
og eru við hvert rúm. Þau tæki
þurfa að vera í lagi og vel stillt.
Það á alls ekki að vera svo, að
stofufélagar þurfi að segja álit
sitt á því, hvort einhverjum sé
heimilt að hafa eigin tæki eða
ekki. Slíkt hlýtur stjórn við-
komandi sjúkrahúss að ákveða
og auglýsa, svo að fólk viti, hvað
er leyfilegt í þessu efni og hvað
ekki. öðru máli gegnir um þá
sem eru einir á stofu og þurfa
jafnvel að vera lengi á spítala.
Ég vonast eftir svari sem fyrst.
Alltaf byrjað
og endað
á brauðinu
Sigríður í Hafnarfirði hringdi
og hafði eftirfarandi að segja:
— Ég hringdi vegna greinar
dag) um saltnotkun í brauðgerð.
Hvernig er það með þetta fólk,
sem vill fá ósalt brauð, borðar
það ekki saltkjöt, hangikjöt,
saltfisk, nætursaltaðan fisk,
ýmiss konar saltað álegg og
smjör? Ef svo er, er það alveg
tómt mál að amast við salti í
brauðgerð. Þó að brauð séu mis-
jafnlega mikið söltuð, sem ef-
laust er rétt hjá greinarhöf-
undi, þá held ég að fólk þurfi að
byrja á öðru matarkyns en
brauði, ef það vill minnka við
sig salt. Ég er ekki fylgjandi
mikilli saltneyslu, en mér fynd-
ist brauð æði ólystugt, ef ekki
væri ögn af salti í því, jafnvel
þótt smurt sé með sðltu smjöri.
Það er eins og alltaf sé byrjað
og endað á brauðinu þegar rætt
er um saltneyslu, en lítið hirt
um annan mat.
Vinnuverndarraðstefna:
Var rætt um heilsutjón fólks
vegna reykjandi vinnufélaga?
Prófkjör Sjálfstæöismanna
28. og 29. nóvember
Opiö laugardag og sunnudag kl. 14—22.
Símar 19055 og 19011.
Ragnhildur
Helgadóttir
Skrifstofa stuðn-
ingsmanna er í Skip-
holti 19, 3. hæö, horni
Nóatúns og Skipholts.
Karlmannaföt
kr. 500, kr. 1.175, kr. 1.395 og kr. 1.950.
Terelynebuxur kr. 200, kr. 250, kr. 350 og kr. 398.
Flauelsbuxur kr. 225. Flannelsbuxur kvenna kr. 265.
Gallabuxur kvenna kr. 235. Úlpur, skyrtur, nærföt,
sokkar o.fl. ódýrt.
Andrés, Skólavöröustíg 22,
sími 18250.
Glerblástur og sölusýning
Skrifstofumaður skrifar:
„Velvakandi.
Fyrri skömmu fluttu fjölmiðlar
fregnir af vinnuverndarráðstefnu
sem haldin var til að fjalla um
hollustuhætti á vinnustöðum, að
því er mér skildist.
Vafalaust hefur þar margt borið
á góma því ekki eru allir vinnu-
staðir svo heilsusamlegir.
Mig langar að koma þeirri fyrir-
spurn á framfæri, hvort þarna hafi
verið rætt um það heilsutjón sem
fólk getur hlotið vegna reykjandi
vinnufélaga.
Hvernig stendur á því, að at-
vinnurekendur og fyrisvarsmenn
stofnana sjá ekki svo um, að fólk
sem ekki reykir og líður e.t.v. illa í
tóbaksreyk, þurfi ekki að vinna
innan um tillitslausa reykinga-
menn sem skeyta engu um líðan
annarra, því að nú er talið sannað
að tóbaksreykur sé hættulegri
þeim sem ekki reykja, en neyðast
til að anda honum að sér.
Góður vinur minn berst nú við
lungnakrabba eftir að hafa árum
saman unnið með síreykjandi
vinnufélögum. Væri hann e.t.v.
heilbrigður, hefðu þeir sýnt þá
sjálfsögðu tillitssemi að reykja
ekki í návist hans?
Af hverju rísum við andreyk-
ingamenn ekki upp og krefjumst
þess sjálfsagða réttar að lifa og
hrærast í hreinu andrúmslofti?
Af hverju virðist það ekki
hvarfla að reykingafólki að þeim,
sem ekki reykja, líður oft illa í
svælunni frá þeim?
Og að þetta fólk skuli ekki víla
fyrir sér að svæla sínar sígarettur
inni hjá börnum á öllum aldri —
jafnvel ungbörnum — það er há-
mark tillitsleysisins.
Það er nærri því sama hvert
maður fer — á fundi, í eitthvert
farartæki eða í verzlanir — víðast
hvar er sama svælan. Sumt af-
greiðslufólk getur varla sleppt síg-
arettunni meðan það afgreiðir
viðskiptavini sína — og það jafnvel
í matvöruverzlunum. Skyldu verzl-
anaeigendur halda, að þess konar
fólk örvi söluna?
Hér er um mikilsvert heilsu-
farslegt atriði að ræða og vildi ég
óska, að það yrði tekið til athugun-
ar af öllum sem hlut eiga að máli
og úr sé bætt hið allra fyrsta."
GÆTUM TUNGUNNAR
Spurt var: Er eitthvað dót í pokanum?
Rétt væri: Er eitthvert dót í pokanum?
Hins vegar væri rétt: Er eitthvað í pokanum?
S2P SIGGA V/öGA £
Við höfum opið
alla daga nema mánudaga,
frá kl. 10—12 og 13.30—18. OO.
Verkstœðið
liggur við Vesturlandsveg,
u.þ. b. 30 km frá Lœkjartorgi,
(500 m vestan við Kléberg)
Munir okkar
eru einnig til sýnis og sölu hjá:
íslenskum heimilisiðnaði
Kristjáni Siggeirssyni
Versluninni Róm, Keflavík.
Sigrún & Sören
í BERGVÍK
Bergvík 2. KjaUiniesi, 270 Vanuá. símar 66038 og 67067.