Morgunblaðið - 02.12.1982, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1982
25
Stefán Steinar Smárason komin heim heilu og höldnu. Morgunblaftii/ rax
leysur sem ég gerði, eins og ég
minntist á. Ég lærði mikið á þessu,
til dæmis það að hafa búnaðinn
minn í betra lagi næst og vera betur
útbúinn. Þá verður alltaf skófla á
mínum bakpoka í framtíðinni, það
hefði munað miklu að hafa skóflu.
Þetta var mikil reynsluferð fyrir
mig og það má segja að ég var mjög
heppinn að hafa fundist."
Leitaði svefn mikið á þig?
„Auðvitað var maður þreyttur, en
ég var bara harður við mig og pass-
aði það að sofna ekki. Það þýðir
ekkert að gefast upp, ef maður ætl-
ar að lifa svona af. Maður á ekkert
erindi upp á fjöll, ef maður ætlar að
sofna í svona tilfelli."
Hvað hugsar maður, þegar svona
stendur á?
„Það er erfitt að segja. Á tímabili
var ég að hugsa um að hætta allri
fjallamennsku, ef ég yrði svo hepp-
inn að finnast, en það er tóm vit-
leysa, fjallamennska er það eina
sem gildir fyrir mig og ég er ekkert
á því að hætta.
Ég vil þakka öllum sem áttu þátt
í leitinni, björgunarsveitarmönnum,
lögreglunni á Hvolsvelli og fólkinu á
bænum Fljótsdal í Fijótshlíðinni,
sem þetta fór allt um og sérstaklega
þeim félögum minum sem lögðu það
á sig að ganga úr neðsta skálanum
niður að Fljótsdal í þessu brjálaða
veðri til að ná í hjálp. Ég get ekki
látið hjá líða að minnast á hversu
mikils virði starf björgunarsveit-
anna er. Þar eru menn boðnir og
búnir til að gera allt sem í þeirra
valdi stendur. Þeir leggja eigin tæki
í þetta og maður skilur, þegar svona
stendur á, hvað starf þeirra er
nauðsynlegt og unnið af mikilli
fórnfýsi," sagði Stefán Steinar
Smárason að lokum.
Friðrik Ólafsson
stofnar skákskóla
í félagi við alla sterkustu skákmenn landsins
FRIÐRIK Olafsson, stórmcistari í skák og fyrrum forseti FIDE, mun fljótlega eftir
áramót stofna „Skákskóla Friðriks Olafssonar". Með honum verða allir stcrkustu
skákmenn landsins, Guðmundur Sigurjónsson, stórmeistari og alþjóðlegu meistararnir
Margeir Pétursson, Helgi Ólafsson og Jón L. Árnason.
„Hugmyndin er gömul og með þessu
viljum við leggja okkar af mörkum til
þess að styrkja og efla skák á íslandi.
Mér hefur fundist, að miðað við alla þá
efnilegu skákmenn sem komið hafa
fram hér á landi hafi ekki sá árangur
náðst sem efni hafa staðið til,“ sagði
Friðrik Ólafsson í samtali við Mbl.
„Vinna þarf markvisst að því að efla
skák ef góður árangur á að nást. Ég
vona að þetta framtak falli í góðan
jarðveg, en ljóst er að full þörf er á
skákskóla. Við munum skipta skák-
kennslunni í byrjendaflokk og fram-
haldsflokka eitt og tvö. Hugmyndin er,
að á milli 10 og 15 manns verði í hverj-
um flokki.
Skákkennslan miðast ekki eingöngu
við byrjendur og unglinga — við von-
umst til þess að geta miðlað af þekk-
ingu okkar til skákmanna, sem lengra
eru komnir og hjálpað efnilegum skák-
mönnum til þess að beisla hæfileika
sína,“ sagði Friðrik Ólafsson.
Fyrirspurn til Jóns
Magnússonar frambjóðanda
MORGUNBLAÐINU barst í gær bréf frá Helga Olafssyni hagfræðingi, sem
er svohljóðandi:
„Hr. ritstjóri,
I blaði yðar i dag (1. des.) eru
viðtöl við nokkra af þeim, sem
efstir urðu í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins. Mér kemur afar mikið á
óvart að lesa umsögn Jóns Magn-
ússonar um prófkjörið. Hann segir
að lokinni umsögn um „útreið"
formannsins:
„Mér sýnist ekki hægt að túlka
þessi úrslit á annan hátt, en að
þau séu sigur fyrir þau viðhorf að
Sjálfstæðisflokkurinn eigi að vera
breiður, víðsýnn og frjálslyndur
flokkur."
Undirritaður hefur fram að
þessu talið sig frjálslyndan sjálf-
stæðismann, en skilur þó ekki full-
yrðingu frambjóðandans og hugs-
anlega er svo um fleiri. Skýringar
óskast.“
Arsneyzla meðalfjölskyldu vegna mat- og hreinlætisvara:
Um 15,8% munur á hæsta og
lægsta verði í 89 verslunum
— Ódýrast í Hagkaup og Víði, en dýrast í Hverfiskjötbúðinni
FIMMTA verðkönnun Verðlagsstofnunar undir heitinu Innkaupakarfan sýnir hver heildar-
útgjöld meðalfjölskyldu á höfuðborgarsvæðinu vegna mat- og hreinlætisvöru eru mikil á einu
ári eftir því hvar er verslað.
Þessar upplýsingar koma
fram í frétt Verðlagsstofnunar.
Ennfremur segir:
I hverri verslun var ávallt
miðað við lægsta verð þeirrar
vörutegundar sem athuguð var.
Var miðað við sömu þyngdar-
eða stærðareiningu í öllum til-
vikum. Voru 35 vörutegundir
látnar endurspegla heildar-
neysluna og miðað við það magn
í hverjum vöruflokki sem kom
fram í neyslukönnun sem gerð
var fyrir þremur árum.
Reynt var að taka upp verð í
öllum matvöruverslunum á höf-
uðborgarsvæðinu þar sem vöru-
tegundirnar 35 fengust allar
dagana 22.-26. nóvember sl.
Nokkrar verslananna varð að
fella út en eftir standa alls 89
verslanir. Er þetta umfangs-
mesta verðkönnun sem gerð hef-
ur verið hérlendis og óvíst að
önnur eins hafi verið gerð í öðr-
um löndum.
Úr könnuninni má lesa marg-
ar athyglisverðar upplýsingar
og mun hér drepið á þær helstu.
1. Munurinn á verðinu í þeirri
verslun sem var með
lægsta heildarverð og
hæsta heildarverð skv.
ofangreindum forsendum
var 15,8% eða 8.759 kr. mið-
að við ársneyslu.
2. í fyrri könnunum þegar
borið hefur verið saman
verð á einstökum vöruteg-
undum pakka- og dósavöru
í verslunum hefur komið
fram allnokkur munur á
heildarverði eftir verslun-
um. Þar hafa s.k. mark-
aðsverslanir skorið sig
nokkuð úr hvað lægsta
verði viðkom. í þessari
könnun sem nær til allra
matvöruflokka þ.m.t. mjólk
og mjólkurvörur, kjöt og
. fiskur, skera markaðsversl-
anir sig ekki verulega úr en
eru þó meðal þeirra versl-
ana sem eru með einna
lægst heildarverð.
3. Jafnframt því að kanna
lægsta verð á hverri vöru-
tegund í matvöruverslun-
um skráðu starfsmenn
Verðlagsstofnunar hæsta
verð á sömu tegundum.
Mestur var mismunur inn-
an sömu verslunar um 20%
og nemur það í heildar-
upphæð um 11.000 kr. á ári.
Má í því tilviki segja að sú
fjölskylda sem ávallt kaup-
ir dýrasta vörumerkið í
þeirri verslun þar sem
munur á lægsta og hæsta
verði var mestur gæti spar-
að sér 11.000 kr. á ári með
því að velja alltaf ódýrasta
vörumerkið.
4. Könnunin undirstrikar það
sem Verðlagsstofnun hefur
áður bent á að árangursrík-
asta leiðin til hagkvæmra
innkaupa er að bera saman
vöruverð innan verslana í
stað þess að reyna að kaupa
hinar einstöku vörutegund-
ir í mismunandi verslun-
um.
Verðlagsstofnun vinnur nú að
frekari úrvinnslu á könnuninni
og mun birta upplýsingar úr
henni síðar.
Eins og áður leggur stofnunin
ekki mat á gæði vöru né mis-
munandi þjónustustig verslana.
Þó má benda á það að þar sem
mikill verðmunur er innan sömu
verslunar er oft um mikið vöru-
úrval að ræða.
Loks skal á það bent að í
nokkrum tilvikum var tekið upp
verð á fiski, kjöti eða brauði í
sérverslunum í verslunarmið-
stöðvum, ef hluti þessara vöru-
tegunda fékkst ekki í viðkom-
andi nýlenduvöruverslun.
TIERÐKYNNING
Merðiagsstofnunar
Verð eftir verslunum
Matur og hrelnlœtlsvara -
Ársútgjöld meftalfjölskyldu
INNKAUPA
KARFAN
55 — 56 þús. kr. Hagkaup Skeifunni - VI6ir Starmýri.
56 — 57 þús. kr. Hólagarður Lóuhólum 2-6 - Kaupfélag Kjalarnesþings -
Kjötmiðstöðin Laugalæk 2 - Kostakaup Reykjavikurvegi Hf. -
KRON stórmarkaður Skemmuvegi Kóp. - Vörumarkaðurinn Ármúla 1.
57 — 58 þús. kr. Ásgeir Tindaseli 3 - Breiðholtskjör Arnarbakka 46 - Fjarðarkaup Hólshrauni 16 Hf. -
Gunnlaugsbúð Freyjugötu 15 - Hagkaup Laugavegi 59 -
Kjörbúðin Laugarás Norðurbrún 2 - S.S. Iðufelli 4 - S.S. Laugavegi 116 -
, Telgakjör Laugateigi 24 - Vörðufell Þverbrekku 8 Kóp.
58 - 59 þús. kr.
59 - 60 þús. kr.
60 - 61 þús. kr.
61 -62 þús. kr.
62 - 63 þús. kr.
Arbæjarmarkaðurinn Rofabæ 39 - Brekkuval Hjallabrekku 2 Kóp. -
Drffa Hliðarvegi 53 Kóp. - Freyjubuðin Freyjugötu 27-JL-húsið Hringbraut 121 -
Kaupfélag Hafnflrðinga Miðvangi Hf. - Kjörbúð Vesturbæjar Melhaga 2 -
Kjörval Mosfellssveit - Kjöt og fiskur Seljabraut 54 - KRON Álfhólsvegi 32 Kóp. -
KRON Eddufelli - KRON Hlíðarvegi 29 Kóp. - KRON Tunguvegi 19 -
Langholtsval Langholtsvegi 174 - Matvælabúðin Efstasundi 99 -
S.S. Austurveri Háaleitisbraut 68 - Straumnes Vesturbergi 76 -
Teigabúðin Kirkjuteigi 19 - Verslunin Kópavogur Hamraborg 12 Kóp.
Allabúð Vesturbraut 12 Hf. - Árbæjarkjör Rofabæ 9 - Ásgelr Efstalandi 26 -
Arnarkjör Lækjarfit 7 Garðabæ - Austurborg Stórholti 16- Dalmúli Siðumúla 8 -
Finnsbúð Bergstaðastræti 48 - Grensáskjör Grensásvegi 46 -
Hamrakjör Stigahlíð 45 - Herjóltur Skipholti 70 - Holtskjör Langholtsvegi 89 -
Hringval Hringbraut 4 Hf. - Kaupgarður Smiðjuvegi 9 -
Kjörbúð Hraunbæjar Hraunbæ 102 - KRON Snorrabraut 56- KRON Stakkahlíð 17 -
Skerjaver Einarsnesi 36 - Skjólakjör Sörlaskjóli 42 - Snæbjörg Bræðraborgarstíg 5 -
S.S. Glæsibæ - Valgarður Leirubakka 36 - Versl. Þórðar Þórðarsonar
Suðurgötu 36 Hf. - Víðir Austurstræti 17 - Þingholt Grundarstíg 2.
Dalver Dalbraut 3 - Hagabúðin Hjarðarhaga 47-
Kársneskjör Borgarholtsbraut 71 Kóp. - Kaupfólag Hafnfirðinga Garöabæ -
Kaupfélag Hafnflrðlnga Strandgötu 28 Hf. - Kjöthöllin Háaleitisbraut 58-60-
Lækjarkjör Brekkulæk 1 - Matval Þingholtsbraut 21 Kóp. - Melabúðin Hagamel 39 -
Sundaval Kleppsvegi 150 - Sunnukjör Skaftahltð 24 - Vogur Vtghólastíg 15.
Álfaskeið Álfaskeiði 115 Hf. - Arnarhraun Arnarhrauni 21 Hf. -
Baldur Framnesvegi 29 - Borgarbúðin Hófgeröi 30 Kóp. - Hlíðarkjör Esklhlíð 10 -
Kjötborg Ásvallagötu 19 - KRON Langholtsvegi 130 -
Nesval Melabraut 57 Seltj.nesi. - S.S. Hafnarstraeti 5 -
Vegamót Nesvegi Seltj.nesi. - Verslun Guðm. Guðjónssonar Vallargerði 40 Kóp.
Borgarkjðr Grensásvegi 26 - S.S. Aðalstræti 9 - S.S. Bræðraborgarsttg 43 -
S.S. Skólavörðustfg 22.
63 - 64 þús. kr. Hverfiskjðtbúðin Hverfisgötu 50.
Skýrlngar: Pessi Innkaupakada sýnir aamanlagt leagata earft á 35 mat- og hreinlætisvörum 189 verslunum á hötuftborgarsvæftinu dagana
22.-26. nóvember st. Pessar 35 vörutegundir eru látnar endurspegla öll innkaup á mat- og hreinlætlsvörum meöalfjölskyldu á einu ári. I öllum
tilvikum var ódýrasta vörumerki valiö. Ekki er lagt mat á gædi eöa þjónustu.