Morgunblaðið - 02.12.1982, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1982
Bíóhöllin sýnir „Americathon“
BÍÓHÖLLIN hefur frumsýnt kvikmyndina „Americathon" undir leik-
stjórn Neil Israel og með Zane Buzby í aðalhlutverki.
Myndin fjallar um Bandaríki framtíðarinnar, eins og leikstjórinn sér
þau og heim framtíðarinnar, „heim, þar sem óhóf og eyðsla amerísku
þjóðarinnar hefur skilið landið eftir á barmi gjaldþrots," eins og segir í
kynningu kvikmyndahússins.
Frönsk kvikmynda-
helgi á Akureyri
MENNINGARDEILD franska sendi
ráðsins og Borgarbió standa fyrir
franskri kvikmyndahelgi á Akureyri
helgina 3. til 5. desember næstkom-
andi.
Sýndar verða í Borgarbíói fjórar
af þeim sjö myndum sem sýndar
voru á 7. Frönsku kvikmyndavikunni
í Reykjavík. Þær myndir, sem sýnd-
ar verða eru: Moliére, Stórsöng-
konan (Diva), Surtur (Anthracite)
og Undarlegt ferðalag (Un étrange
voyage).
Dagskrá helgarinnar er svohljóð-
andi: Föstudaginn 3. desember kl. 9
— Moliére (fyrri hluti). Laugardag-
inn 4. desember kl. 6 — Undarlegt
ferðalag. Laugardaginn 4. desember
kl. 9 — Surtur. Sunnudaginn 5. des-
ember kl. 5. Moliére (síðari hluti).
Sunnudaginn 5. desember kl. 9 —
Stórsöngkonan.
Nýr fríkirkjuprestur tekur við
6„SUNNIJDAGINN 28. nóvember
1982, fyrsta sunnudag i aðventu, var
hátíðarguðsþjónusta í Frikirkjunni í
Reykjavík. Séra Kristján Róberts-
son, sóknarprestur á Hálsi í Fnjóska-
dal og fyrrum fríkirkjuprestur i
Reykjavik, setti nýkjörinn fríkirkju-
prest í Reykjavik, séra Gunnar
BJörnsson, fyrrum sóknarprest í Bol-
ungarvík, inn í embætti.
Söngstjóri og organleikari var
Sigurður ísólfsson, en kór Frí-
Leiðrétting
í FRÉTT um samninga SH og SÍS
um sölu á frystum fiski til Sovétríkj-
anna í Morgunblaðinu í gær, varð
misritun í fyrirsögn. í fyrirsögn er
sagt að samið hafi verið um sölu á
323.000 lestum í stað 23.000 eins og
fram kemur í fréttinni sjálfri, það er
17.000 lestum af flökum og 6.000
lestum af heilfrystum fiski. Morgun-
blaðið biðst hér með velvirðingar á
þessum mistökum.
kirkjunnar söng hátíðarmessu-
söngva séra Bjarna Þorsteinsson-
ar. Meðhjálpari var frú Berta
Kristinsdóttir.
Séra Kristján Róbertsson ávarp-
aði söfnuðinn og hinn nýja safnað-
arprest, er síðan steig í stólinn og
flutti prédikun sína. Mikið fjöl-
menni var við guðsþjónustuna og
meðal kirkjugesta var forseti ís-
lands, Vigdís Finnbogadóttir.
Að lokinni messu var safnast
saman til kaffidrykkju á Hótel
Esju. Þar flutti ávarp formaður
Fríkirkjusafnaðarins, Ragnar
Bernburg, stórkaupmaður, en
veislustjóri var Þórarinn Sveins-
son, forstjóri Slippfélagsins í
Reykjavík og fyrrum safnaðarfor-
maður. Þá tóku til máls séra
Kristján Róbertsson og frú Auður
Guðjónsdóttir, fyrrverandi
prestshjón í Fríkirkjunni og þökk-
uðu klukku sem söfnuðurinn færði
þeim að gjöf. Frú Bryndís Þórar-
insdóttir, ekkja séra Árna Sigurðs-
sonar fríkirkjuprests, ávarpaði
samkvæmið, bauð nýju prestshjón-
in velkomin og þakkaði farsæl
störf hjónanna, sem nú voru að
kveðja söfnuðinn.
Á Hótel Esju sungu þeir tvísöng,
séra Kristján og séra Gunnar, frú
Ágústa Ágústsdóttir söng einsöng
og séra Gunnar Björnsson lék á
selló. Allan undir- og meðleik ann-
aðist Sigurður ísólfsson.
Loks sleit Ragnar Bernburg
samsætinu og þakkaði viðstöddum
ánægjulegan dag. Risu allir úr
sætum og sungu „Ég vil elska mitt
land“. (l!r frétt frá Fríkirkjunni.)
„Skjótið píanist-
ann“ sýnd í kvöld
SKJÓTIÐ píanistann heitir kvik-
mynd, sem kvikmyndaklúbbur All-
iance Francaise sýnir í Regnbogan-
um kl. 20.30 í kvöld. Leikstjóri er
Francois Truffaut og aðalhlutverk er
í höndum Charles Aznavour.
27
Sérstaklega vel með farinn
vínrauður Peugot 604,
árgerð 1978 til sölu.
Ekinn aöeins 55 þús. kílómetra. Skipti á ódýrari bíl
koma til greina. Bíllinn er meö V-6 vél, aflstýri og
aflbremsum auk annars fransks lúxusútbúnaöar.
Upplýsingar í símum 31772 á vinnutíma, en annars
74454.
PAPPÍRSSTATÍV
MARGAR GERÐIR NÝKOMNAR
GEYsiP
festing
fyrir létta og þunga hluti. hefur grip og hald.
fæst í flestum byggingavöruverslunum.
Ólafur Kr. Guðmundsson
c/o Trévirki hf.
„Allir fagmenn hljóta að þekkja Thorsmans boltana og vita um þeirra festigetu, enda er Thorsmans nafnið
gæðamerki sem allir geta treyst.“
Ef óskað er eftir sýnishornum af ofanskráöu efni frá Thorsmans þá góðfúslega fyllið út
þennan miða. Sýnishornin eru send án endurgjalds.
X
Nafn:
Heimilisfang:
Staöur:
JOHAN RÖNNING HFÆTSSS,