Morgunblaðið - 02.12.1982, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1982
33
Jón Kristinsson afhendir Gunnari Ragnars lyklana að Systraseli.
Að lokum lýsti hann yfir því, að
hinn nýi hluti húss FSA væri tek-
inn í notkun og bar fram heillaósk-
ir til allra landsmanna af því til-
efni.
Stefán Stefánsson bæjarverk-
fræði'ngur, fyrrverandi formaður
stjórnar FSA, sagði sögu sjúkra-
húsa á Akureyri í stuttu máli, en
rakti síðan byggingarsögu þessa
nýja húsnæðisáfanga.
" Jón Kristinsson, forstjóri dval-
arheimila aldraðra á Akureyri, tal-
aði næstur og mælti fyrir hönd
áhugamannahóps, sem gengist hef-
ur fyrir fjársöfnun til Systrasels,
þannig að þar gæti tekið til starfa
hjúkrunarstofnun fyrir rúmlæg
gamalmenni. Hann lýsti búnaði og
byggingarsögu í stuttu máli, fjár-
framlögum og sjálfboðastarfi. Því
næst afhenti hann Gunnari Ragn-
ars lykla að húsinu til merkis um,
að nú stæði þaö fullbúið og biði
aðeins eftir starfsfólki og sjúkling-
um.
Þá talaði Sigríður Hafstað á
Tjörn og afhenti FSA að gjöf són-
artæki frá öllum kvenfélögum á
Akureyri og í Eyjafjarðarsýslu og
nokkrum kvenfélögum í Suður-
Þingeyjarsýslu.
Valgerður Bjarnadóttir, forseti
bæjarstjórnar Akureyrar, flutti
ávarp og heillaóskir frá Akureyr-
arbæ og bæjarbúum.
Loks talaði Gunnar Ragnars,
þakkaði hlý orð, hamingjuóskir og
stórgjafir. Einnig flutti hann þakk-
ir til hönnuða hússins, verktaka,
iðnaðarmanna og verkamanna,
sem unnið hafa við smíði hússins,
en þeir eru fleiri en tölu verði á
komið.
Að lokinni þessari vígsluathöfn
var öllum viðstöddum boðið til
kaffidrykkju á göngum hins nýja
húss, og eftir það gengu menn um
og skoðuðu húsakynnin.
Sv.P.
OMRON búðarkassar fyrir minni og
stærri fyrirtæki fyrirliggjandi.
Verðfrá 8.560 kr.
(gengi 1.11. ’82).
í*
v m---^
%
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
%
"rríw&’
Hverfisgötu 33
Simi 20560
ÞÆR ERU SPENNANDI í ÁR,
SKEMMTISÖGURNAR FRÁ SKUGGSJÁ!
Barbara Cartland
Ástin blómstrar á öllum
aldursskeiðum
Eftir lát konu sinnar segir Malcolm Worthing-
ton skiliö við starf sitt í utanríkisþjónustunni og
fer til Miðjarðarhafsins í þeim tilgangi að gleyma
fortíðinni og hefja nýtt líf. Þar verða tvær konur
á vegi hans og þær eru ólíkar eins og dagurinn
og nóttin. Elísabet er fínleg, lífsglöð og óeigin-
gjörn og kennir honum að elska á ný. Marcia er
há og grönn, fögur og fönguleg, en Malcolm
metur hana einskis. En þegar Marcia er að því
komin að hverfa að fullu úr lífi hans, ske óvæntir
atburðir, sem Malcolm hafði ekki séð fyrir...
€artland
Ástin blómstrar á
öllum akfursskeióum
uió
systurnar
Theresa Charles
við systurnar
Althea er fögur, alvörugefin og mjög gáfuð og
stjórnar yngri systur sinni, full afbrýðisemi og
öfundar. Rósamunda er lífsglöð og skemmtileg,
aðlaðandi og kærulaus, en full af mannlegri
hlýju. Adrían er aðstoðarprestur föður þeirra og
þær eru báðar ástfangnar af honum. Hann kvæn-
ist Altheu. Cecil er frændi Adríans, glæsilegur
og sjálfsöruggur. Hann kvænist Rósamundu.
Þessar systur voru mjög ólikar, en áttu þó svo
margt sameiginlegt í fari sinu, að mennirnir, sem
urðu á vegi þeirra hrifust af þeim báðum.
Sigge Stark
Skógarvörðurinn
Anna frá Hlíð var sautján ára og mjög þögul
og fáskiptin. Hún tjáði engum hug sinn, heldur
hélt sig út af fyrir sig, rölti ein um skóginn með
hundinum sínum, sem í raun var hennar eini
félagi. En einn indælan sumardag, þegar sólin
hellti geislum sínum yfir skóginn, fjöllin og mýr-
arnar, hitti hún skógarvörðinn nýja. Þessi sumar-
dagur festist henni i minni sem einn mesti
hamingjudagurinn í lifi hennar, enda þótt hann
bæri í senn með sér sorg, biturleika og tár...
SIGGE STARK
SKÓGAR-
VÖRÐURINN
ELSE-MARIE NOHR
I1VER CR ÉO?
Else-Marie Nohr
Hver er ég?
Eva Birk er að undirbúa brúðkaup sitt og
Henriks Borg, þegar hún fær þær óvæntu upp-
lýsingar, að af vígslunni geti ekki orðið, þar sem
hún sé þegar gift öðrum manni. Eva verður að
sjálfsögðu skelfingu iostin. Hún hafði orðið fyrir
bifreiðarslysi og þjáðst af minnisleysi um tíma,
en þegar hún tekur að kanna málið, kemst hún
að því að hún er þegar gift, og það manni sem
henni er ákaflega ógeðfelldur, — og að með
þessum manni á hún þriggja ára gamla dóttur...
Erik Nerlöe
Hvítklædda brúöurin
Karlotta var á leið til kirkjunnar þar sem Jesper
og veizlugestirnir biðu hennar. Hún var klædd í
brúðarkjólinn hvíta, með fagran brúðarvönd í
fanginu og fyrir brúðarvagninn voru spenntir
tveir fagrir gæðingar. En hún komst aldrei alla
leið til kirkjunnar, — og enginn vissi um mennina
tvo, sem í brúðarvagninum sátu og óku á brott
með Karlottu, tvo illskeytta menn, sem til alls
voru vísir. Og þar með fékk Benedikta Liljen-
krona möguleika til að vinna ástir Jespers á ný...
ErifeNerlíie
HVÍTKLÆDDA
BRUÐURIN
Francis Durbridge
Með kveðju frá Gregory
Fáir útvarpsþættir hafa vakið jafnmikla
spennu meðal íslenzkra útvarpshlustenda sem
Gregory-þættirnir sællar minningar. Með kveðju
frá Gregory er sagan sem þessir æsilegu þættir
voru byggöir á, — og sagan er ekki síður
spennandi. Hver var hann þessi leyndardómsfulli
glæpamaður, sem skildi eftir orðsendinguna
„Með kveðju frá Gregory,“ ritaða með rauðu
bleki, sem minnti óhugnanlega á blóð, og festi
á fórnarlömb sín? — Það kostar vökunótt aö
byrja lestur þessarar bókar.