Morgunblaðið - 05.12.1982, Síða 11

Morgunblaðið - 05.12.1982, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1982 59 skipulagður. Um sumarið eru fyrstu SS-sveitirnar stofnaðar. Ernst Röhm, hómósexúal og helsti ráðgjafi Hitlers, ber fram ákæru á hendur 17 ára gömlum hjásveini sínum, er hafði rænt hann „morguninn eftir." 1928 Þann 4. maí birtir Nas- istaflokkurinn stefnu sína í málefnum hómósexúala: „Það er nauðsyn að þýska þjóðin lifi. Og hún lifir ef hún berst, því lífið er barátta. Og hún getur aðeins barist ef hún heldur karlmennsku sinni. Hún heldur aðeins karlmennsku sinni svo fremi hún sé öguð, sér í lagi hvað varðar ástamál. Frjálsar ástir og öfuguggahátterni eru óöguð. Þess vegna afneitum við ykkur á sama hátt og við afneit- um hverju því er gæti skaðað þjóðina. Hver sem þó ekki nema leiðir hugann að hómósexúal ást er óvinur okkar." Sama ár samþykkir þingnefnd með 15 atkvæðum gegn 13, frumvarp um endurbætur á refsilöggjöf. I því felst m.a. að hómósexúal at- ferli telst ekki lengur refsivert. 1929 Heimskreppan mikla hefst með verðhruni á verð- bréfamörkuðum um allan heim. Endurbótum á refsilöggjöf er frestað. Nasistar ná völdum. 1930 Ernst Röhm verður for- ingi SA-sveitanna. 1933 í janúar verður Hitler ríkiskanslari. í mars eru fanga: búðir stofnsettar í Dachau. í apríl er Gestapó (leynileg ríkis- lögregla) mynduð. Nasistar láta gera leit í stofnun Hirschfeld fyrir kynferðislegar rannsóknir. 1934 í júní á „Nótt hinna löngu hnífa" er Röhm myrtur og 200 yfirmönnum SA-sveit- anna safnað saman og þeim slátrað. Hitler gefur út tilskip- un um að allir hómósexúal verði reknir úr hernum. í júlí er Kurt Hiller, einn helsti baráttumað- ur fyrir réttindum hómósexú- ala, handtekinn og sendur í fangabúðir í Cranienburg. Lög eru samþykkt, sem fyrirskipa ófrjósemisaðgerðir á öllum hómósexúölum, kleyfhugum, flogaveikum, eiturlyfjasjúkling- um, móðursjúkum og fólki sem hefur fæðst blint eða vanskap- að. Árið 1935 höfðu 56000 manns undirgengist þannig meðferð. Hómósexúalar voru venjulega vanaðir, en ekki ein- ungis gerðir ófrjóir. Öll starf- semi mannréttindahreyfingar Hirschfelds er bönnuð og hreyf- ing hómósexúala er barin niður. 1935 Ári eftir „Nótt hinna löngu hnífa" er grein 175 breytt: Nú eru skilgreind 10 atriði hómósexúal hegðunar sem telj- ast refsiverð, þar á meðal koss- ar, faðmlög og hómósexúal draumórar. 1936 Úrdráttur úr ræðu eftir Himmler: „í mati okkar á hómósexúal hegðun, — einkenni úrkynjunar er eytt gæti þjóð vorri, — verðum við að styðjast við hina fornu norrænu siði í sambandi við eyðingu úrkynj- aðra.“ Vist í fangabúðum er tek- in upp á borgaralegum afbrota- mönnum, þar með töldum hómósexúölum. I upphafi voru fangabúðirnar gæslustöðvar, en var breytt í útrýmingarstöðvar eftir 1940.“ Þægileg drykkjarskál fyrir ungbarnið Ný sérhönnuð drykkjarskál fyrir ungbörn, kjörin til notkunar fyrst eftir pelann. Þolir suðu og er óbrjótandi. örugg og þægileg i notkun. Strik við 50 cl. Notið aðeins það besta fyrir ungbörnin. Fæst í apótekum. i EINKAUMBOÐ: GYLCOHF BOX 4370 REYKJAVlK Staða höfundar (rithöfundar, dansahöfundar, tónskálds) viö Þjóðleik- húsið, er laus til umsóknar. Staöan er veitt til 6 mánaða í senn og laun eru sam- kvæmt launakerfi opinberra starfsmanna. Ætlast er til aö höfundur leggi fram greinargóða lýsingu eða handrit að því leikverki, sem hann hyggst vinna að. Æskilegt er að umsækjandi hafi áður skrifað fyrir leik- hús eða hafi nokkra þekkingu á leikhússtarfi. Umsóknum sé skilað á skrifstofu Þjóðleikhússins, Hverfisgötu 19, fyrir 23. desember 1982. Þjóðleikhússtjóri. c,ev^ \M húsgögn Ármúla 44 - Simar 65153 og 32035 I dag sýnum við gullfalleg húsgögn sem voru að koma til landsins

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.