Morgunblaðið - 05.12.1982, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1982
59
skipulagður. Um sumarið eru
fyrstu SS-sveitirnar stofnaðar.
Ernst Röhm, hómósexúal og
helsti ráðgjafi Hitlers, ber fram
ákæru á hendur 17 ára gömlum
hjásveini sínum, er hafði rænt
hann „morguninn eftir."
1928 Þann 4. maí birtir Nas-
istaflokkurinn stefnu sína í
málefnum hómósexúala: „Það
er nauðsyn að þýska þjóðin lifi.
Og hún lifir ef hún berst, því
lífið er barátta. Og hún getur
aðeins barist ef hún heldur
karlmennsku sinni. Hún heldur
aðeins karlmennsku sinni svo
fremi hún sé öguð, sér í lagi
hvað varðar ástamál. Frjálsar
ástir og öfuguggahátterni eru
óöguð. Þess vegna afneitum við
ykkur á sama hátt og við afneit-
um hverju því er gæti skaðað
þjóðina. Hver sem þó ekki nema
leiðir hugann að hómósexúal
ást er óvinur okkar." Sama ár
samþykkir þingnefnd með 15
atkvæðum gegn 13, frumvarp
um endurbætur á refsilöggjöf. I
því felst m.a. að hómósexúal at-
ferli telst ekki lengur refsivert.
1929 Heimskreppan mikla
hefst með verðhruni á verð-
bréfamörkuðum um allan heim.
Endurbótum á refsilöggjöf er
frestað. Nasistar ná völdum.
1930 Ernst Röhm verður for-
ingi SA-sveitanna.
1933 í janúar verður Hitler
ríkiskanslari. í mars eru fanga:
búðir stofnsettar í Dachau. í
apríl er Gestapó (leynileg ríkis-
lögregla) mynduð. Nasistar láta
gera leit í stofnun Hirschfeld
fyrir kynferðislegar rannsóknir.
1934 í júní á „Nótt hinna
löngu hnífa" er Röhm myrtur
og 200 yfirmönnum SA-sveit-
anna safnað saman og þeim
slátrað. Hitler gefur út tilskip-
un um að allir hómósexúal verði
reknir úr hernum. í júlí er Kurt
Hiller, einn helsti baráttumað-
ur fyrir réttindum hómósexú-
ala, handtekinn og sendur í
fangabúðir í Cranienburg. Lög
eru samþykkt, sem fyrirskipa
ófrjósemisaðgerðir á öllum
hómósexúölum, kleyfhugum,
flogaveikum, eiturlyfjasjúkling-
um, móðursjúkum og fólki sem
hefur fæðst blint eða vanskap-
að. Árið 1935 höfðu 56000
manns undirgengist þannig
meðferð. Hómósexúalar voru
venjulega vanaðir, en ekki ein-
ungis gerðir ófrjóir. Öll starf-
semi mannréttindahreyfingar
Hirschfelds er bönnuð og hreyf-
ing hómósexúala er barin niður.
1935 Ári eftir „Nótt hinna
löngu hnífa" er grein 175 breytt:
Nú eru skilgreind 10 atriði
hómósexúal hegðunar sem telj-
ast refsiverð, þar á meðal koss-
ar, faðmlög og hómósexúal
draumórar.
1936 Úrdráttur úr ræðu eftir
Himmler: „í mati okkar á
hómósexúal hegðun, — einkenni
úrkynjunar er eytt gæti þjóð
vorri, — verðum við að styðjast
við hina fornu norrænu siði í
sambandi við eyðingu úrkynj-
aðra.“ Vist í fangabúðum er tek-
in upp á borgaralegum afbrota-
mönnum, þar með töldum
hómósexúölum. I upphafi voru
fangabúðirnar gæslustöðvar, en
var breytt í útrýmingarstöðvar
eftir 1940.“
Þægileg drykkjarskál
fyrir ungbarnið
Ný sérhönnuð drykkjarskál fyrir ungbörn,
kjörin til notkunar fyrst eftir pelann. Þolir
suðu og er óbrjótandi. örugg og þægileg i
notkun. Strik við 50 cl. Notið aðeins það
besta fyrir ungbörnin.
Fæst í apótekum. i
EINKAUMBOÐ:
GYLCOHF
BOX 4370 REYKJAVlK
Staða höfundar
(rithöfundar, dansahöfundar, tónskálds) viö Þjóðleik-
húsið, er laus til umsóknar.
Staöan er veitt til 6 mánaða í senn og laun eru sam-
kvæmt launakerfi opinberra starfsmanna.
Ætlast er til aö höfundur leggi fram greinargóða lýsingu
eða handrit að því leikverki, sem hann hyggst vinna að.
Æskilegt er að umsækjandi hafi áður skrifað fyrir leik-
hús eða hafi nokkra þekkingu á leikhússtarfi.
Umsóknum sé skilað á skrifstofu Þjóðleikhússins,
Hverfisgötu 19, fyrir 23. desember 1982.
Þjóðleikhússtjóri.
c,ev^
\M
húsgögn
Ármúla 44 - Simar 65153 og 32035
I dag sýnum við gullfalleg húsgögn
sem voru að koma til landsins