Morgunblaðið - 05.12.1982, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1982
93
^L^AKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
kaupþing hf.
Veröbréfasala
Frétt út-
varpsins
tilhæfulaus
P.I. skrifar:
„í fréttum Ríkisútvarpsins á
sunnudagskvöld var sagt að ferð
Reagans til ríkja Mið- og Suður-
Ameríku væri farin til að stappa
stalinu í herforingjastjórnir þar.
Ferð Reagans stendur frá 29.
nóv. til 4. des. og heimsækir hann
eftirtalin ríki: Honduras, Costa
Rica, Columbíu og Brasiliu. í
Honduras, Costa Rica og Col-
umbíu eru lýðræðislega kjörnar
stjórnir. í Brasilíu er að vísu
stjórn hersins, en þar er samt sem
áður lýðræðisþróun langt á veg
komin, eins og nýafstaðnar fylkja-
kosningar sýna.
Costa Rica hefur engan her og
er lýðræðið þar tryggara í sessi en
í nokkru öðru ríki álfunnar.
Avöxtunarleið
Hefur þú hugleitt veöskuldabréf sem ávöxtunarleiö?
Setjum okkur í spor fjögurra manna sem áttu 20.000 krónur
fyrir ári síðan. Þeir fóru mismunandi leiðir viö ávöxtun þessarar
upphæðar. Einn keypti verðtryggt veöskuldabréf til 5 ára þar
sem gengiö miðast viö 8% ávöxtun umfram verötryggingu.
Annar keypti óverðtryggt veöskuldabréf meö hæstu leyfilegu
vöxtum til 5 ára. Sá þriöji keypti spariskírteini ríkissjóðs þar
sem gengiö miöast viö 5% ávöxtun umfram verötryggingu og
sá fjóröi lagöi upphæöina inn á verötryggöan reikning í banka.
Á þriðjudag: Reagan í Brasillu. T.h. er Joao Figueiredo forseti.
Lítum á hvernig staöa þessara fjögurra 1982. manna leit út 1/12
Ávöxtunarleiö 1) Verðtryggt Staða 1/12’82 Ávöxtun Ávöxtun i kr. i kr.
veðskuldabréf 2) Óverötryggt 34.518.- 14.518.- 72,8%
veöskuldabréf 3) Spariskirteini 34.378.- 14.378,- 71.9%
ríkissjððs 4) Verðtryggður 33.873.- 13.873.- 69,3%
reikningur 32.515.- 12.515.- 62,6%
Til samræmis miöast útreikningar á ávöxtunarleiöum 1, 3 og 4
Ferð Reagans er því til þess
fallin að styrkja lýðræðið í álf-
unni. Frétt Ríkisútvarpsins er því
tilhæfulaus og ekki til þess fallin
að auka traust heiðarlegs fólks á
þeirri stofnun."
Þessir hrlngdu . .
Frábær grein
Marta hringdi og hafði eftir-
farandi að segja:
— Mig langar til að þakka
Margréti Guðmundsdóttur fyrir
grein hennar í Velvakandadálk-
unum á fimmtudag. Þó að ég
hafi ekki lesið greinina, sem
Margrét er að svara, finnst mér
lofsvert að hún skyldi gefa sér
tíma og taka sér penna í hönd.
Og greinin hennar er frábær.
Tilmæli til bók-
sala og útgefenda
Kristbjörg Þórhallsdóttir
hringdi og hafði eftirfarandi að
segja: — Mig langar til að koma
á framfæri þeim tilmælum til
bóksala og bókaútgefenda núna í
bókaflóðinu, að þeir geti þess í
auglýsingum hverjir séu þýðend-
ur, þegar um erlendar bækur er
að ræða. Það er nefnilega oft
svo, að þess er ekki getið á kápu-
umslaginu, hver þýðir, og ég hef
orðið fyrir því í smærri bókabúð-
um, að starfsfólkið vill alls ekki
fjarlægja hlífðarplastið af bók-
unum. Þá stendur maður þarna
eins og glópur, með gott skáld-
Vísa vikunnar
verk, og veit ekkert hver hefur
þýtt. Þetta er afleitt og ég vona
að hlutaðeigandi aðilar taki það
til athugunar, auk þess sem gott
væri, að verð fylgdi með í aug-
lýsingu, eins og reyndar er laga-
skylda.
Brúnn leðurpoki
með
veski í tapaðist
Elísabet G. Cortes hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: —
Eg var svo óheppin að tapa
töskupoka hérna í Álftamýrinni
á sunnudagsmorguninn 20. nóv.,
þegar ég var að fara á vakt, og ég
hringi til þín í veikri von um að
finnandinn lesi þessar línur eða
einhver sem hefur hugmynd um
hvar pokinn er niðurkominn.
Hann er úr leðri, brúnn á lit og í
honum var minna véski með
ýmsum persónulegum munum í,
engir peningar, en ýmislegt sem
mér er ákaflega verðmætt, m.a.
skilríki og minnisbók, sem ég
yrði þakklát fyrir að fá aftur.
Síminn hjá mér er 31028.
Til hábor-
innar skammar
Sveinn Sveinsson hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: —
Það er til háborinnar skammar
hvernig gengið er um götur
Reykjavíkurborgar núna. Göt-
urnar eru óhreinsaðar dögum
saman, svo og gangstéttirnar,
svo að það er engu líkara en
þarna sé verið að gera sérstaka
atlögu að okkur gamla fólkinu á
ári aldraðra, og eins öðrum sem
á einhvern hátt eru hreyfihaml-
aðir og eiga örðugt með að kom-
ast leiðar sinnar.
Ungar hljómsveit-
ir í sjónvarpið
T.V. „nýbylgjufrík" hringdi og
hafði eftirfarandi að segja:
— Mér finnst að sjónvarpið
ætti að taka til hendinni og sýna
hljómlistarþætti, þar sem ungar
hljómsveitir á borð við Von-
brigði, Te fyrir tvo, Meinvill-
ingana og Strates og margar
aðrar jafngóðar hljómsveitir
kæmu fram.
Þegar verötryggö veöskuldabréf eru keypt t.d. til 5 ára fær
kaupandi bréfsins verötryggöar afborganir næstu 5 árin sem
getur t.d. veriö heppileg ráöstöfun erfðafjár eöa bótagreiöslna.
Viö kaup á veöskuldabréfum er um stærri einingar aö ræöa en
þegar keypt eru spariskírteini eöa happdrættislán ríkissjóðs.
Kaupverö veðskuldabréfa er frá u.þ.b. 20.000 krónum en t.d.
má fá Spariskírteini ríkissjóös 2. flokk 1980 aö nafnveröi 100
krónur keypt á 240 krónur miöað viö gengi pr. 1/12 1982.
Starfsfólk Kaupþings h.f. veitir ókeypis ráögjöf á þessu sviöi.
Tökum öll veröbréf í umboössölu. Hjá okkur
eru fáanleg verðtryggð skuldabréf ríkissjóös
2. fl. 1982.
KAUPÞING HF.
Húsi verzlunarinnar, 3. hœö, sími 86988.
Fasteigna- og veröbréfasala. leigumiölun atvtnnuhúsnœöis, fjárvarzta, þjóöhag-
fræöi-, rekstrar- og tölvuráögjöf
Þremur köss-
um af gúmmí-
verjum stolið
FJÖGt'R innbrot voni Iramin um
helgina. Brotist vnr inn á skrifntof-
ur Ræjsnitgerðar Keykjsvikur og
•rtoliö 60 knrtonum sf signrettum
Úr Njoppu. Fjórir hurðarkarmar
voru eyAilngAir.
Brotist var inn í Hafnarbadið
viö Grandagarð og þremur köas-
um af gúmmíverjum stolið. Auk
þess var vindlum stolift, 1200
krónum I peningum, reykjarpip-
um ok fleiru Brotist var inn á
skrifstofur SjómannafélaRS
Reykjavíkur vift Lindargötu og
300 bandarískum dollurum stol-
ift.
KAUPÞING HF
Eiginkonuástandið
eitthvað virðist snúið,
að verða að hafa varalið
og vel í stakkinn búið.
Hákur
Hagkvæmustu fjar-
festingar- og ávöxtunar-
möguleikar almennings
Kaupþing h.f. boöar til almenns fræöslufundar um efniö:
Hagkvæmustu fjárfestingar- og ávöxtunar-
möguleikar almennings.
Fundurinn veröur haldinn aö Hótel Loftleiöum (Kristalsal), miö-
vikudaginn 8. desember n.k. og hefst kl. 20.30.
Erindi flytur dr. Pétur H. Blöndal, tryggingastæröfræöingur.
Fjallaö vorftor m.a. um fjárfestingu í
• spariskírteinum
• happdrættisskuldabréfum
• veöskuldabréfum einstaklinga
• fasteignum
• hlutabréfum
• vörubirgöum
• listaverkum (safnhlutum)
• eöalsteinum (demöntum) og
eðalmálmum (gulli, platínu).
Aö loknu erlndi veröa frjálsar umræður og fyrirspurnum svar-
aö.
Öllum er heimill aögangur, meöan húsrúm leyfir.