Morgunblaðið - 05.12.1982, Blaðsíða 46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1982
94
Maraþonið
er hafið
Maraþontónleikar SATT hóf-
ust í gær kl. 14 í Tónabæ meö
leik hljómsveitarinnar Þeyr.
Ætluöu þeir aö leika eitthvaö
frameftir degi, en stöan tóku
aörir við.
Ekki er víst aö allir hafi gert
sér fulla grein fyrir því hversu
mikiö fyrirtæki þessir maraþon-
tónleikar eru. Til þess að skýra
þaö út í sem stystu máli þurfa
60 hljómsveitir aö leika i 6
klukkutíma hver til þess aö
heimsmetiö náist. Er þá miðað
víö aö hver hljómsveit leiki aö-
eins einu sinni.
Eins og fram hefur komiö
koma allar hljómsveitir fram
þarna endurgjaldslaust. Aö
tónleikunum loknum, sem
væntanlega verður ekki fyrr en
19. des., veröur dregiö úr nöfn-
um þeírra hljómsveita, sem
luku viö 6 klukkustunda
skammtinn. Sú heppna fær
6000 króna verðlaun. Þá verður
einnig dregiö úr nöfnum þeirra,
sem komast yfir hámarks-
skammtinn, en þaö eru heilir 12
tímar. Þar eru verðlaunin 20
tímar í hljóöveri.
Aö því er Járnsíöan hefur
hermt hefur ein hljómsveit boö-
ist til þess aö leika samfleytt í
heilan sólarhring. Var ekki búið
aö ákveða hvort þvi boöi yröi
tekiö eður ei. Tekiö skal fram,
aö þótt leikiö veröi allan sól-
arhringinn veröur Tónabær
ekki opinn á nóttúnni. Hins
vegar munu eftirlitsmenn, m.a.
frá Heimsmetabók Guinness,
veröa á staönum og sjá um aö
öllum reglum sé framfylgt.
Stuðmenn
vakna á ný
Stuömenn eru ekki dauöir
úr öllum æöum og hafa ákveó-
ið að vakna til lífsins á ný á
milli jóla og nýárs.
í tilefni sýninga á kvikmynd-
inni „Með allt á hreinu" ætla
þeir að efna til nokkurra tón-
leika, en þeir hafa enn ekki
verið auglýstir. Hitt er víst aö
margur bíöur spenntur eftir
þeim félögum.
Toppurinn
austan hafs
og vestan
Bretland.
1. I don't wanna dance/
EDDY GRANT
2. Heartbreaker/ DIONNE WARWICK
3. Mad world/ TEARS FOR FEARS
4. (Sexual) healing/ MARVIN GAYE
5. Theme trom Harry's game/
CLANNAD
6. Mirror man/ HUMAN LEAGUE
7. The girl Is mine/ MICHAEL JACK-
SON OG PAUL MCCARTNEY
8. Young guns/ WHAM!
9. Maneater/ HALL AND OATES
10. Do you really want to hurt me/
CULTURE CLUB
Bandaríkin:
1. Truly/ LIONEL RICHIE
2. Gloria/ LAURA BRANIGAN
3. Maneater/ HALL AND OATES
4. Up where we belong/ JOE
COCKER OG JENNIFER WARN-
ES
5. The Girl is mine/ MICHAEL
JACKSON OG PAUL McCARTNEY
6 Steppin’ out/ JOE JACKSON
7. Mickey/ TONI BASIL
8. Dirty laundry/ DON HENLEY
9. Muscles/ DIANA ROSS
10. It's raining again/ SUPERTRAMP
Grýlurnar í hlutverkum sínum sem Gærurnar í myndinni „Með allt á
hreinu".
„Með allt á hreinu“:
Platan komin og
myndin væntanleg
Þá er biöinni lokiö. Platan úr
myndinni „Meö allt á hreinu", sem
þeir Stuömenn (Þursar?) tóku upp
í sumar meö dyggilegri aöstoö
Grýlanna er komin á markaö. Plat-
an er aöeins forsmekkurinn aö því
sem koma skal því sjálf kvikmynd-
in veröur frumsýnd þann 18. des. í
Háskólabíói.
Á þessari umræddu plötu er aö
finna ein 13 lög úr myndinni. Þaö
eru Stuðmenn og Grýlurnar, sem
flytja tónlistina meö hjálp nokkurra
aöstoðarmanna.
Plata þessi hefur aö geyma
meginhluta þeirra laga, sem
hljómsveitirnar léku á feröalagi
sínu um landiö í sumar og þá var
ekki annaö aö heyra en þau féllu
aldeilis í kramið. Þau ættu því ekki
aö vera óvelkomin sisona rétt fyrir
jólin. Á meöal laga má nefna: „Is-
lenskir karlmenn", „Maó gling“,
„Viö viljum franskar", „Úti í Eyj-
um“, „Ekkert mál" og „Reykingar",
auk fleiri laga.
Það er útgáfufyrirtækiö Bjarma-
land, sem gefur plötuna út.
Bjarmaland? kunna einhverjir aö
spyrja. Nei, þetta er ekki nýr ís-
lenskur plöturisi, heldur útgáfufyr-
irtækiö aö baki myndinni og plöt-
unni.
nýjar plötur ... nýjar plötur ... nýjar plötur ... nýjar plötur ... nýjar plötur ... nýjar plötur
Michael Schenker Gropu/Assault attack:
Heilsteyptasta platan
frá Schenker til þessa
★ ★★★
Já, Michael Schenker er svo
sannarlega í essinu sínu á nýjustu
plötu MSG, Michael Schenker
Group, sem ber nafniö „Assault
Attack“. Aö vanda fer gítarleikar-
inn glóhæröi á kostum þótt stund-
um hafi öflugri tilþrif heyrst af hans
hálfu, en þaö sem nú gerir útslagiö
er aö þeir, sem leika meö honum á
plötunni, mynda saman afbragös-
góöa sveit.
Ted McKenna hefur vart í annan
tíma barið húöirnar betur. Graham
Bonnett syngur eins og bárujárns-
rokkurum er einum lagiö og Chris
Glen plokkar bassann af innlifun
og öryggi og oft á mjög óvenju-
legan hátt frá því sem maöur á aö
venjast úr þessari tegund rokks.
McKenna tók viö af Cozy Powell
og skilar sínu mjög vel. Bonnet
geröi eiginlega ekkert annaö meö
sveitinni en aö syngja inn á þessa
plötu, svo stutt var vera hans í
henni, en nærvera hans gerir það
m.a. aö verkum aö „Assault Att-
ack“ er besta plata MSG. Glen er
bassaleikari, sem aldrei hefur hlot-
iö þaö hrós, sem hann á skiliö.
Um tima var ég farinn aö óttast
aö Schenker ætlaöi að staöna í
sinni tónlist, en þessi plata tekur af
öll tvímæli. Lög hans eru ferskari
og um leiö kröftugri en áöur.
Platan hefst á hörkukröftugu
lagi, „Assault Attack", og á eftir
fylgir öflugur blúsari, sem einkenn-
ist mjög af rífandi söng Bonnet.
„Dancer“ er dálítiö „commerciar
lag, en gott sem slíkt og lokalag
fyrri hliöarinnar hefur aö geyma
eina „ekta" Schenker-lag plötunn-
ar, „Samurai", sem sett var saman
á tónleikaferö MSG um Japan.
Síðari hliöin er enn hressari.
Hún hefst á tveimur lögum, sem
ekki geta á neinn hátt svariö sig í
ætt viö Schenker og síöan kemur
lagiö „Searching for a Reason",
sem er dulitiö poppaö fyrir minn
smekk. Öllu popphjali er hins veg-
ar rutt úr vegi í lokalagi skífunnar,
„Ulcer". Þar er allt á útopnu frá
fyrstu sekúndu til hinnar síöustu.
Kórónan á góöri plötu.
Þaö skapar Michael Schenker
ætíö verulega sérstööu á meöal
gítarleikara bárujárnsrokksins, aö
hann er ákaflega melódiskur þegar
hann vill þaö viö hafa. Þegar fít-
onskraftur eins og á „Assault Att-
ack“ bætist ofan á verður útkoman
vægast sagt töfrandi.
Sonus Futurae/Þeir sletta skyrinu
Fyrsta flokks tölvupopp
★ ★★★
Sannast sagna var ég farinn aö
gefa þær vonir upp á bátinn, aö
íslendingar eignuöust nokkru sinni
almennilega tölvupoppsveit. Son-
us Futurae hefur látiö vonirnar
rætast. Tölvupopp þeira þremenn-
inga úr því ævaforna (og landsins
besta) menntasetri er í stuttu máli
afbragösgott.
Eins og fram hefur komiö á
Járnsíöunni er Sonus Futurae
skipuð þremenningunum Jóni
Gústafssyni, Kristni R. Þórissyni
og Þorsteini Jónssyni. Hljóöfæra-
leikur er í höndum þeirra tveggja
síöastnefndu. Þeir eru báöir há-
menntaöir í tónlist og slikt kemur
alls staöar aö góöum notum, jafn-
vel í tölvupoppi.
Á piötunni eru sex lög, hvert
ööru betra. Þau eru byggö upp í
kringum lítil og snotur stef og loka-
lag plötunnar er gullfalleg ballaöa,
eitthvaö þaö Ijúfasta sem heyrst
hefur í þessari tegund tónlistar.
Hljóögervlarnir skemmtilega not-
aöir og rokk-gítar og saxófónn
gefa tveimur laganna ferskan blæ.
Textarnir eru flestir hverjir hinir
ágætustu og taka á ýmsum mál-
um, sem eru ofarlega á baugi.
Þaö eina, sem í raun er hægt að
finna aö þessari plötu, er aö söng-
urinn heföi á köflum mátt vera ðgn
beittari. Söngur er reyndar þaö
vandamál, sem flestar sveitir eiga
viö aö glíma hér á landi, og söngv-
arar í anda tölvupopps eru vand-
fundnir í ekki stærra þjóöfélagi.
Hvaö sem því líöur er ekki hægt
annað en aö lýsa yfir eindreginni
ánægju meö þennan grip.
Pat Benatar/Get
nervous:
Skvísan er
stöðnuð!
★★★
„Pat Benatar hefur tekiö sig á
eftir síöustu plötu" las ég í ein-
hverri auglýsingu. Nokkuö er til í
því, en átak hennar nægir engan
veginn til aö lyfta henni upp á þann
stall, sem hún var á í kjölfar
tveggja fyrstu platna sinna. Eftir
þriöju plötuna hennar lækkaöi
frægöarsólin illilega og meö þeirri
fjóröu, „Get nervous", gerir hún
ekki mikiö betur en aö haida í horf-
inu.
Þessi plata Benatar á ekki eftir
aö afla henni neinna óhemju vin-
sælda. Fólk sem þekklr hana
kaupir plötuna, en mér þyklr hæp-
iö aö aörir veiti henni eftirtekt. Þó
eru þarna tvö lög, sem gætu oröiö
vinsæl, „Anxiety" og „The victim".
Bæöi eru á fyrri hliö plötunnar.
Kannski er Benatar einfaldlega
oröin stöönuö. Hitt er kannski lík-
legra, aö hún reyni aö troöa veg
sölumennskunnar fremur en aö
rífa sig út úr deyföinni og láti því
allar pælingar lönd og leiö. „Only
in it for the money" er kannski
hennar mottó, hver veit.
Ég efast ekki um sönghæfileika
Pat Benatar, en meö jafn „flötum"
lögum og raun ber vitni er ástand-
iö ekki nógu gott. Hlutirnir eru vel
geröir á þessari plötu, en þreytu-
merki komin fram. Slíkt er aldrei
vænlegt í poppinu.
Af hverju annað safn?
Sveinarnir þrír í Sonus Futurae.
★ ★★
Hljómsveitin Eagles var vafalítiö
ein af vinsælli sveitum Bandaríkj-
anna á meðan hún var og hét.
Plötur hennar seldust heiftarlega
og allar tónleikahallir fylltust á
svipstundu þar sem hún fór um.
Svo hætti Eagles.
En það er meö þessa hljómsveit
eins og aörar vinsælar, aö nafniö
er blóömjólkaö eins lengi og pen-
inga er von úr þeirri átt. Þó er
Eagles alls ekki versta dæmiö um
slíkt. Nokkuö er nú um liöiö frá því
samansafn bestu laga sveitarinnar
kom út, en nú er búiö aö hnoöa
ööru safni saman. Ber þaö nafniö
II, rétt eins og Rocky og allar hinar
bíómyndirnar, sem sýndar eru
endalaust.
Á þessari samansafnsplötu er
aö finna gullkorn Arnanna frá því á
árunum 19761980. Ef einhver man
ekki eftir þeim er rétt að minna á
lög eins og „Hotel California“,
„Heartache Tonight", „Victim of
Love“ o.fl. o.fl. Alls eru 10 lög á
þessari plötu og hún ágæt sem
slík, en ég er á þeirri skoöun aö ein
safnplata meö Eagles heföi átt aö
nægja.