Morgunblaðið - 07.12.1982, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1982
B-listinn á Suðurlandi:
Þórarinn í 1.
sæti - Jón Helga-
son í ööru
ÞORAKINN Sigurjónsson, alþingis-
maóur, varö hlutskarpastur í at-
kvæðagreiðslu um skipan fram-
boðslista Framsóknarflokksins í
Suðurlandskjördæmi og skipar 1.
sæti listans en Jón Helgason, alþing-
ismaður, skipar annað sætið. Kjör-
dæmisþing Framsóknarflokksins á
Suðurlandi fór fram í samkomuhús-
inu á Hvoli á laugardag og greiddu
170 manns atkvæði um skipan list-
ans.
Úrslit atkvæðagreiðslunnar
urðu: Þórarinn Sigurjónsson hlaut
120 atkvæði í 1. sætið og samtals
153 atkvæði, Jón Helgason hlaut
147 atkvæði í 1,—2. sæti og skipar
2. sætið, Böðvar Bragason, Hellu
hlaut 130 atkvæði í 1.—3. sæti og
skipar 3. sætið, Guðmundur Búa-
son hlaut 138 atkvæði í 1.—4. sæti
og skipar 4. sæti listans, Guð-
mundur Agústsson hlaut 123 at-
kvæði í 1.—5. sæti og skipar því 5.
sætið og Guðrún Sveinsdóttir
hlaut 72 atkvæði í 1.—6. sæti og
skipar sjötta sæti listans.
Maraþon í Tónabæ
MARAÞONTÓNLEIKAR SATT, sem ætlað er að standi í a.m.k. 14 sólarhringa, hófust kl. 14 á
laugardag með leik hljómsveitarinnar Þeyr. Að henni lokinni tók Kópavogshljómsveitin Te fyrir tvo við
og síðan koll af kolli.
Framkvæmd tónleikanna hefur gengið mjög vel til þessa og fjöldi gesta lagt leið sína í Tónabæ til að
fylgjast með gangi mála. Tilgangur þessara tónleika er að hnekkja heimsmetinu, sem er 321 klukkustund,
og vekja athygli á lifandi tónlist í landinu um leið.
Olíuskuldum ekki breytt 1
langtímalán að þessu sinni
Skipum Húsvíkinga lagt um næstu helgi verdi vandi þeirra ekki leystur
OLÍUDEILD Kaupfélags Þingeyinga
hefur nú ákveðið að afgreiða ekki
olíu til fiskiskipa á Húsavik nema
gegn staðgreiðslu frá og með næstu
helgi. í kjölfar þess hafa útgerðar-
menn ákveðið að leggja skipum sín-
um um næstu helgi verði vandi
þeirra ekki leystur. Segjast þeir
langeygir eftir skuldbreytingunni og
telja að olíuskuldir verði að vera
inni í þvi dæmi. Hafa þeir skipað
nefnd til þess að reyna að leysa mál-
ið. Olíuskuldir útgerðarmanna á
Húsavík nema nú alls 5 til 6 milljón-
um króna. Að sögn Davíðs Ólafsson-
ar, seðlabankastjóra, var ekki gert
ísafirdi, 2. deNember.
ÝMSA möguleika er nú verið að
athuga í sambandi við rekstur
Flugfélagsins Krnis á Isafirði, en
eins og komið hefur fram í fréttum
er flugfélagið fyrir nokkru hætt
póstflugi um Vestfirði. Til tals hef-
ur komið að auka áætlunarflug og
eftirlitsflug fyrir Landhelgisgæzl-
una, en Krnir eru vel í stakk búinn
til að annast slíkt flug vegna sér-
þekkingar flugmanna á staðhátt-
Þrjú skip
seldu í gær
ÞRJÚ íslenzk fiskiskip seldu afla
sinn erlendis í gær, mánudag. Eitt
skip seldi á föstudag og fyrirhugað
er að rúmlega 10 selji það, sem eftir
er vikunnar.
Á föstudag seldi Ársæll Sig-
urðsson HF 102,8 lestir í Grimsby.
Heildarverð var 1.519.400 krónur,
meðalverð 14,77. í gær seldi Jón
Finnsson RE 65,1 lest í Grimsby.
Heildarverð var 966.000 krónur,
meðalverð 14,83. Sæunn Sæ-
mundsdóttir ÁR seldi 65,4 lestir í
Bremerhaven. Heildarverð var
986.100 krónur, meðalverð 15,08.
Þá seldi Þorsteinn GK 70,4 lestir í
Cuxhaven. Heildarverð var
1.076.000 krónur, meðalverð 15,16.
ráð fyrir því að olíuskuldum yrði
breytt nú í langiímalán, það hefði
síðast verið gert á síðasta vetri. Ekki
náðist tal af Steingrími Hermanns-
syni, sjávarútvegsráðherra, vegna
þessa, þar sem hann er staddur á
Jamaica.
Að sögn Jónasar Egilssonar,
deildarstjóra olíudeildarinnar,
hafa þar safnazt að einhverju leyti
skuldir vegna olíukaupa fiski-
skipa. í seinasta mánuði hafi
menn gert ráð fyrir því að geta
gert þarna einhver skil vegna
skuldbreytinga, samkvæmt loforð-
um hér fyrir vestan og þjálfunar í
flugi við erfiðar aðstæður. Víða er-
lendis eru litlar flugvélar notaðar
til slíkra verkefna, staðsettar með-
fram ströndum ríkjanna, t.d. Nor-
egs og Skotlands.
Þingmenn kjördæmisins og
samgönguráðherra hafa mikinn
áhuga fyrir lausn þessa mikil-
væga máls því að Flugfélagið
Ernir gegnir mjög mikilvægu
hlutverki í heilbrigðis- og örygg-
ismálum Vestfjarða. Mikill urg-
ur er í Vestfirðingum vegna
niðurfellingar póstflugsins því
nú fara allar samgöngur og póst-
þjónusta milli staða á Vestfjörð-
um um Reykjavík. Á sunnan-
verðum Vestfjörðum hefur fólki
brugðið illilega við því fólk þarf
að sækja til ísafjarðar ýmsa
sameiginlega þjónustu í kjör-
dæminu og til að komast á Isa-
fjörð þarf nú að fara um Reykja-
vík. Fyrir utan aukinn tíma og
óþægindi, þá er kostnaðurinn
margfalt meiri. Annað dæmi
þekki ég um mann búsettan á
Flateyri, sem hér var veður-
tepptur í fimm daga, þar sem
landleiðin var ófæí, en flugveður
var hins vegar suma dagana.
Ýmsar þreifingar um lausn
þessa máls hafa átt sér stað, en
lausn er ekki fundin. — Úlfar
um ríkisstjórnarinnar. Jónas
sagði, að fyrir síðustu helgi hefði
hann síðan frétt að olíuskuldir
féllu ekki undir þessa skuldbreyt-
ingu. Því hefði ekki verið nein leið
fyrir olíudeildina önnur en sú, að
tilkynna útgerðarmönnum það, að
eftirleiðis væri ekki hægt að af-
greiða olíu til þeirra nema trygg-
ing fyrir greiðslu eða staðgreiðsla
kæmi til.
Bjarni Aðalgeirsson, bæjar-
stjóri á Húsavík og einn af full-
trúum útgerðarmanna, sagði, að
eftir að þeir hefðu fengið tilkynn-
ingu um að þeir fengju ekki af-
greidda olíu nema gegn stað-
greiðslu frá og með síðustu helgi,
hefðu þeir komið saman til fundar
og skipað nefnd til að leita lausnar
málsins. Eftir það hefði aðgerðum
olíudeildarinnar verið frestað um
viku. Ef málin leystust ekki fyrir
helgi yrði ekki um annað að ræða
en að leggja skipunum. Þá hefði
verið lélegur afli undanfarið og
því hefðu útgerðarmenn átt erfitt
með aö sinna launagreiðslum og
öðrum óhjákvæmilegum greiðsl-
um frá degi til dags.
Menn hefðu gengið að því sem
vísu að olían yrði tekin inn í
skuldbreytinguna, en nú væri
óljóst hvort svo yrði. Bjarni sagði
ennfremur, að þróun mála á Húsa-
vík hefði verið sú, að skuldir út-
gerðarinnar væru ekki nema að
ALLHAKÐUR árekstur varð á
Keykjanesbraut klukkan 21 á
sunnudagskvöldið. Ökumanni
BMW-bifreiðar.fipaðist aksturinn —
ók Reykjanesbraut til suðurs á
eystri akrein — það er á móti ein-
stefnuumferð með þeim afleiðingum
litlu leyti við viðskiptabankana,
heldur fremur við Kaupfélagið og
þá olíudeildina, sem væri stærsti
viðskiptaaðilinn. Utgerðarmenn
væru aðeins að fara fram á að gef-
in loforð yrðu efnd. Þetta væri
mikilvægt mál fyrir bæjarfélagið
og yfir vofði stöðvun tveggja tog-
ara auk mikils fjölda minni báta.
Davíð Ólafsson, seðlabanka-
stjóri, sagði í samtali við Morgun-
blaðið, að skuldbreyting væri þeg-
ar langt komin og nú væri búið að
breyta tæplega 300 milljónum í
langtímalán. I febrúar til apríl á
þessu ári hefði 114 milljónum af
olíuskuidun útgerðarinnar verið
breytt í lán til 5 ára og ekki hefði
verið gert ráð fyrir að koma þyrfti
til annarrar olíuskuldabreytingar
á sama ári. Mætti því segja að
skuldir við olíufélögin hafi haft
algjöran forgang við skuldbreyt-
ingar á þessu ári. Hins vegar
þýddi skuldbreytingin það, að
greiðslustaða útgerðarinnar batn-
aði og ætti hún því að eiga auð-
veldara með að greiða aðrar
skuldir af rekstri. Þá væri há-
marksupphæð skuldbreytingar
miðuð við 7% af tryggingaverði
viðkomandi skipa og ljóst væri að
það dygði ekki öllum, fyrst og
fremst væri ætlunin að breyta
skuldum við innlánsstofnanir og
síðan aðra eftir því, sem viðmið-
unarmarkið leyfði.
að bifreiðin skall framan á Galant-
bifreið, sem ekið var til norðurs.
Ökumenn beggja bifreiðanna
voru fluttir í slysadeild en meiðsli
þeirra reyndust ekki alvarleg. Bif-
reiðirnar eru talsvert skemmdar.
Mynd Júlíus.
Taka Ernir að sér
gæzluflug vestra?
Ók mót einstefnu
Fimm lesta
bátur brann
og sökk
— mannbjörg varð
FIMM lesta vélbátur, Svanur Þór
RE 141 sökk eftir að eldur kom upp
i bátnum skömmu eftir klukkan
fjögur á sunnudag. Einn skipverji
var á Svani Þór og komst hann um
borð í gúmmíbjörgunarbát og var
bjargað skömmu síðar. Slysavarnar-
félagi íslands barst tilkynning frá
Gissuri hvíta, sem gerður er út frá
Sandgerði, klukkan 16.25 um að bát-
ur vsri aö brenna norðarlega i Faxa-
flóa en Gissur hvíti var þá 7 sjómílur
norð-austur af Gróttu.
Slysavarnarfélagið bað Gissur
hvíta að fara á vettvang og haft
var samband við flugturninn í
Reykjavík og beðið um aðstoð.
Skömmu síðar var flugvél komin
yfir hinn brennandi bát og var til-
kynnt að maður væri um borð í
gúmmíbjörgunarbát. Gissur hviti
kom á vettvang klukkan 16.50 en
þá logaði Svanur Þór stafna í
milli. Skipverjar björguðu skip-
verjanum, sem reyndist ómeiddur.
„Það var strax haft samband við
flugturninn í Reykjavík og erum
við ákaflega þakklátir fyrir hina
góðu samvinnu sem við eigum við
flugumsjón og eigendur einka-
flugvéla," sagði Hannes Hafstein,
framkvæmdastjóri Slysavarnarfé-
lags íslands í samtali við Mbl.
Hrólfur
Asvalds-
son látinn
HRÓLFUR Ásvaldsson, viðskipta-
fræðingur, fulltrúi á Hagstofu ís-
lands, er látinn 55 ára að aldri, en
hann var fæddur 14. desember 1926
á Breiðumýri i Reykjadal í Suður-
Þingeyjarsýslu.
Hrólfur Ásvaldsson varð stúd-
ent frá Menntaskólanum á Akur-
eyri árið 1950 og lauk síðan kandí-
datsprófi frá viðskiptadeild Há-
skóla íslands árið 1954 og hefur
hann starfað hjá Hagstofu Islands
síðan, auk þess að vera sparisjóðs-
stjóri í Kópavogi um tíma.
Eldsvoði
í Eyjum
Vestmannauvjum, 6. desember.
Á sunnudagsnóttina kom upp eld-
ur í einu af starfsmannahúsum
sjúkrahúss Vestmannaeyja. Slökkvi-
lið kom fljótt á staðinn og tókst að
ráða niðurlögum eldsins á innan við
hálftima.
Eldurinn var ekki mjög magn-
aður en mikill reykur í húsinu.
Eldsupptök voru í eldhúsi, trúlega
í viftu og skemmdir urðu töluverð-
ar. Þetta var fyrsta brunaútkall
slökkviliðsins í Vestmannaeyjum í
marga mánuði.
hkj.