Morgunblaðið - 07.12.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1982
5
HLJOMBÆR
Z2X-S7Z «mahp .<•
■ ---SMilimi
Ii; i; 11•■'
HLJOM'HEIMIIIS'SKRIFSTOFUTÆKI HVERFISGÖTU 103
SIMI 25999 -17244
Jón Óskar
Ný ljóðabók
eftir Jón Óskar
BÓKAÚTGÁFA Menningarsjóðs
hefur gefið út nýja kvæðabók eftir
Jón Óskar. Heitir hún Næturferð og
er sjötta ljóðabók skáldsins, en hin-
ar fyrri eru: Skrifað í vindinn (1953),
Nóttin á herðum okkar (1958), Ljóða-
þýðingar úr frönsku (1963), Söngur i
næsta húsi (1966) og Þú sem hlustar
(1973).
Á kápu bókarinnar segir svo um
efni hennar: „Jón Óskar nefnir þessa
nýju kvæðabók sína Næturferð, en
undirfyrirsögn hennar er Ljóð um
frelsi. Fyrsti kafli heitir Náttfara-
bálkur og fjallar um þræl og ambátt
Garðars Svavarssonar er verða
fyrstu landnemarnir en ekki þykir
hlýða að skipi öndvigi í þjóðarsög-
unni þegar til kemur. Annar kafli
heitir Frelsi og haf og hefur að geyma
Ijóðmyndir skáldsins frá uppvaxtar-
árum þess á Akranesi. Þriðji kafli
heitir Horft í skuggsjá og gerist í höf-
uðstaðnum fyrr og nú. Fjórði kafli
heitir Eins og tíminn í dag og greintr
frá hinni raunverulegu næturferð
sem fellir bókina í ramma, bílferð á
næturþeli norður í land þar sem
minningar og nútími fléttast. Undir-
alda allra Ijóðanna er svo frelsisþrá-
in, eðlislæg og ásækin leit að
óbrotnu og óháðu lífi.“
Næturferð er 120 blaðsíður að
stærð. Bókin er sett, prentuð og
bundin í Prentsmiðju Hafnarfjarð-
ar.
fflNKHSfó IV<----
"FUÓTLEGRST VÆRl NflTíuR-
LEGR RD TtUR tW 6RRR UPP
5EM HÆKKRR EKKI"
Tölvuvæðing or-
sök mistakanna
- segir Björn Hermannsson, tollstjóri um
orsakir þess að krafa frá embættinu í
þrotabú barst of seint
EMBÆTTI tollstjóra sendi kröfu fyrir vangoldinn söluskatt að upphæð
liðlega 1 milljón krónur í þrotabú fyrirtækisins T.H. Garðarsson of seint,
þannig að hún var ekki tekin til greina, svo sem fram hefur komið í Mbl.
Frestur til þess að lýsa kröfum í þrotabúið rann út 11. október síðastliðinn,
en krafa tollstjóra barst 14. október.
„Orsök þessara mistaka er sú,
að unnið var að tölvuvæðingu hjá
embættinu. Verið var að breyta úr
handunninni færslu í vélunna. Sú
ákvörðun var tekin að tvífæra
ekki, heldur bíða þar til breytingin
væri afstaðin — þar til búið væri
að taka upp tölvuskráningu. Við
gerðum okkur grein fyrir því, að
vandamál gætu skapast á meðan
breytingin ætti sér stað," sagði
Björn Hermannsson, tollstjóri, í
samtali við Mbl.
„Mér vitanlega hafa svona mis-
tök ekki hent áður. Hins vegar
hefur það gerst oft áður, að kröfur
hafa ekki borist tímanlega í þrota-
bú vegna þess að álagning barst of
seint.“
— Hvernig má það vera, að
vangoldinn söluskattur fyrir lið-
lega milljón safnast upp án þess
að nokkuð sé að gert?
„Algengt er að álagning berist
eftir á — jafnvel fyrir liðin ár og
er þá um að ræða mistök framtelj-
enda, ef nota má það orð. Hvað
T.H. Garðarsson snertir, þá virð-
ist sem fyrirtækið hafi ekki gefið
upp alla veltu og því er skuldin
jafn há og raun ber vitni, en einn-
ig er hluti gömul skuld.
Við reiknum ekki út álagningu
— það gera skattayfirvöld. Við
innheimtum eftir að álagning hef-
ur verið reiknuð út. Ríkissjóður
hefur engar tryggingar fyrir sölu-
skattsskuldum og því alveg ófyr-
irséð hvort nokkurn tíma hefði
tekist að innheimta þessa skuld,“
sagði Björn Hermannsson.
Þór Magnússon, þjóðminjavörður:
Ekki raunhæft að
byggja yfir rúst-
ir í Herjólfsdal
• Plötuspilarinn er meö fullkomnum
„Linear track“-tónarmi, sem spilar plöt-
una beggja megin. Þannig er komiö í veg
fyrir aö hljómplatan og nálin veröi fyrir
hnjaski og ending þeirra veröur mun
lengri.
• Plötuspilarinn stendur upp á rönd,
þannig aö óhreinindi setjast síöur á
hljómplötuna, og tækiö tekur minna
pláss en ella.
• Kassettutækiö er gert fyrir metalspól-
ur, og aö sjálfsögöu hefur þaö Dolby-
kerfi og sjálfvirkan lagaleitara.
UMRÆÐUR hafa verið um það í
Vestmannaeyjum, að í stað þess
Islandsráðherra
í tugthúsi
— eftir Jón Sigurösson
BÓKAÚTGÁFA Menningarsjóðs
hefur gefið út ritið fslandsráðherrann
í tugthúsið eftir Jón Sigurðsson
skólastjóra í Bifröst, en þar er rakin
sagan af Peter Adler Alberti
(1851—1932) en einkum sá hluti
hennar er snýr að íslandi og íslend-
ingum.
I frétt frá útgefanda segir m.a.:
„Haustið 1908, tveim dögum áður en
íslendingar gengu til kosninga um
„uppkastið" fræga, urðu tíðindin um
örlög Albertis fyrrum íslandsráð-
herra að stórkostlegri kosninga-
sprengju hér á landi. Þá barst
hingað sú frétt að Albert hefði gefið
sig fram við lögregluna í Kaup-
mannahöfn fyrir fjársvik og skjala-
fals, en í hans hlut hafði fallið að
veita íslendingum heimastjórn 1904
og hann haft úrslitaáhrif á með
hvaða hætti það gerðist og hver
valdist til forustu úr hópi islenskra
sjórnmálamanna þegar Hannes Haf-
stein varð ráðherra."
íslandsráðherrann í tugthúsið er 119
blaðsiður að stærð og bókin er unnin
í Prentsmiðju Hafnarfjarðar.
að hylja uppgröftinn í Herjólfsdal
beri að varðveita þessar minjar.
Það er Guðlaugur Gíslason,
fyrrverandi alþingismaður, sem
vill að svo verði gert, en bæjarráð
hafði samþykkt að hylja staðinn
nú er rannsókn er lokið.
Morgunblaðið ræddi þetta
mál við Þór Magnússon, þjóð-
minjavörð, og sagði hann að
stundum væri tyrft í gólf og
veggir hlaðnir upp þannig að-
markaði fyrir þeim. Slík vinnu-
brögð væru ekki óalgeng er-
lendis og hér væri dæmi um
slíkt frá Hrafnseyri. Hins veg-
ar sagði hann að ekki væri
raunhæft að ætla sér að byggja
yfir rústirnar og gera hús
manngeng. Erlendis yrðu menn
yfirleitt að sætta sig við að
slíkar fornminjar yrðu að víkja
fyrir nýjum byggingum, vegum
eða öðrum slíkum framkvæmd-
um.
Útvarpiö er meö FM, AM og LW mót-
takara.
Síöast en ekki síst er magnarinn kröft-
ugur (2x25 rms wött) og ásamt tveim-
ur 50 watta nýtískulegum hátölurum
tryggir hann öruggan og góöan hljóm-
flutning.
Fram aö jólum getur þú tryggt þér
þessa einstöku samstæöu meö aöeins
3.000 kr. í útborgun og rest til 6 mán-
aöa. Verö kr. 17.220 Stgr.