Morgunblaðið - 07.12.1982, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1982
Öfgamennirnir pyntadir?
Kairó, 6. desember. Al*.
DÓMSTÓLL hefur ákveöiö að rann-
saka ákærur 300 fanga um að þeir
hafi verið pyntaðir af fangavöröum
meðan á gæsluvarðhaldi þeirra hef-
ur staöið.
Málið er eitt hið stærsta og at-
hyglisverðastá sem upp hefur
komið í Egyptalandi, en fangarnir
eru allir félagar í öfgasamtökum
sem hafa það á stefnuskrá sinni að
kollvarpa lýðræðinu í Egyptalandi
og koma á ógnarstjórn með íran
og Khomeini að Ieiðarljósi. Allir
fanganna að þremur undanskild-
Fróöleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
um eiga dauðadóma yfirvofandi og
réttarhöld standa einnig yfir 20
öðrum sem yfirvöld hafa enn ekki
náð að góma. Samtök þessi heita
A1 Jihad, en það útleggst „Heilög
barátta".
Réttarhöldin standa yfir og eru
þau hin umfangsmestu í sögu
Egyptalands, en föngunum hefur
verið komið fyrir í 12 stórum búr-
um í miðjum réttarsalnum sem er
öllum opinn. Margir sakborn-
inganna verða auk þess sakaðir
um morð, morðtilræði, vopnað rán
svo eitthvað sé nefnt.
Ekki hafa réttarhöldin gengið
snurðulaust þar sem fangarnir
hafa til þessa verið ófáanlegir til
að þegja og söngla stanslaust slag-
orð á borð við: „Guð einn getur
sakfellt, hann mun refsa ykkur
öllum."
Árekstrar öfgamanna og
egypsku stjórnarinnar eru ekki ný
bóla í Egyptalandi, til dæmis
magnaðist allt slíkt síðustu mán-
uðina fyrir morðið á Anwar Sadat.
Fremur lítið hefur farið fyrir
öfgahópunum eftir að Mubarak
settist í forsetastólinn. Þess má
geta, að auk hinna 300 sakborn-
inga sem hér um ræðir, sitja aðrir
1.500 á bak við lás og slá.
Marty Feldman látinn
ENSKI leikarinn góðkunni, Marty
Feldman, lést af eðlilegum orsökum
fyrir fáum dögum, hann var 49 ára
gamall.
Andlátið bar að þar sem Feld-
man var að vinna að kvikmynd-
inni Yellow Bird sem leikstýrð er
af Dino De Laurentiis. Feldman
var kunnastur fyrir þátt sinn í
gamanmyndum þeim sem hann
Íék í og í all mörg ár hefur hann
verið einhver vinsælasti gaman-
leikari Breta. Frægastur var hann
fyrir sérkennileg augu sín sem
hann ranghvolfdi með fádæma
fimi og tilþrifum. Augun útveguðu
Feldman mörg hlutverkin, til
dæmis hinn smávaxna og óheyri-
lega ljóta aðstoðarmann Frank-
ensteins í mynd Mel Brooks,
„Frankenstein Yngri“. Fleira
mætti telja og margar af myndum
Feldmans hafa verið sýndar hér-
lendis við góðar undirtektir.
Sprengdu
jólakort
sendiherrans!
Osló, 6. desember. Frá Jan Krik Lauré,
fréttaritara Mbl. í Noregi.
Sprengjusérfræðingar norska
hersins sprengdu um helgina í
loft upp jólakortabirgðir ísra-
elska sendiráðsins í Osló. Þann-
ig var mál með vexti, að sendi-
ráðið pantaði jólakort og dag
nokkurn nokkru síðar barst dul-
arfullur pakki til sendiráðsins og
kannaðist enginn við hvað verið
gæti á ferðinni.
Þá var komið að þætti
norsku lögreglunnar og rann-
sakaði hún pakkann með
málmleitartækjum og fleiri
tólum. Málmleitin bar árang-
ur, kvarðarnir tifuðu ótt og títt
og var öllum starfsmönnum
sendiráðsins ásamt öllum
íbúum nærliggjandi hverfa
smalað burt meðan beðið var
eftir sprengjusérfræðingum
hersins. Þeir voru fljótir að
koma sprengiefni fyrir utan á
pakkanum og eftir að hafa
komið honum fyrir á afviknum
stað var þrýst á hnappinn.
Sprenging kvað þá við, en held-
ur urðu menn kindarlegir er
fleiri hundruð jólakort svifu
um allt og þekktu menn þá
strax innihald pakkans.
Ástæðan fyrir því að
málmleitartækin létu ófriðlega
var sú að á kortunum voru
englamyndir, en á vængi þeirra
var stráð áldufti.
Veður
víöa um heim
Akureyri +1 skýjaó
Amsterdam 8 skýjað
Aþena 12 heíðskírt
Berlín 3 rígning
Brussel 9 rigning
Buenos Aires 25 skýjað
Caracas 28 skýjað
Chícago 17 skýjað
Oyflinni 4 heiðskírt
Feneyjar 2 þoka
Frankfurt 3 þoka
Færeyjar 1 léttskýjað
Genf 5 skýjaö
Hong Kong 15 skýjað
Jerúsalem 7 skýjað
Jóhannesarborg 26 heiöskírt
Kairó 15 heiðskírt
Kaupmannahöfn 3 skýjað
Lissabon 16 heiðskírt
London 5 léttskýjað
Los Angeles 22 skýjað
Madrid 11 skýjaö
Maiaga 15 léttskýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Mexikóborg 27 heiðskírt
Miami 26 heiðskrrt
Montreal 4 skýjað
Moskva 0 skýjað
Nýja Delhí 24 heiðskírt
New York 17 skýjað
Zimbabwe:
Smith ofsóttur
llarare, Zimbabwe, 6. desember. Al\
IAN Smith, fyrrum forsætisráðherra
Rhodesiu, sem nú gengur undir
nafninu Zimbabwe, varð fyrir að-
kasti yfirvalda á búgarði sínum í
miðhluta landsins um helgina. Lög-
regiulið birtist þá og hafði í fórum
sínum húsleitarheimild.
Rótaði flokkurinn alllengi í
húsakynnum fyrrum ráðherrans
og hafði á brott með sér meðal
annars einkabréf Smiths til konu
sinnar og einkabréf hennar til
hans. Smith var sviptur vegabréfi
sínu fyrir skömmu og aðgerðir
þessar eru hinar hörðustu sem
ríkisstjórn Mugabes hefur beitt
sér fyrir síðan að svartir náðu
völdunum árið 1980.
„Þetta eru náttúrulega ekkert
annað en ofsóknir og gróf skerðing
á persónufrelsi," sagði Smith í
samtali við fréttamenn og bætti
við „en stjórnin getur gert hvað
sem hún vill, ég fer hvergi og ætla
ekki að láta undan þessari andlegu
pyntingu."