Morgunblaðið - 23.12.1982, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1982
Sálskyggn ljósmyndari
Bókmenntir
Jóhann Hjálmarsson
Hallgrímur Einarsson:
AKUREYRI 1895—1930.
Ljósmyndir.
Myndatextar: Haraldur Sigurgeirs-
son.
Formálsorð: Gísli Jónsson.
Fylgt úr hlaði: Valgerður H. Bjarna-
dóttir.
Gefíð út í samvinnu við afkomendur
Hallgríms Einarssonar Ijósmyndara.
Bókaútgáfan Hagall 1982.
Hallgrímur Einarsson ljós-
myndari (1878—1930) var faeddur
á Akureyri, fluttist ásamt foreldr-
um sínum til Seyðisfjarðar 15 ára,
fór utan og lærði ljósmyndun í
Kaupmannahöfn, kom heim og
starfaði sem ljósmyndari á Seyð-
isfirði, en leitaði á bernskustöðvar
sínar á Akureyri 1901 og stofnaði
þar ljósmyndastofu. Að sögn Gísla
Jónssonar var Hallgrímur „ekki
aðeins hagur í höndum, heldur
smekkvís og sálskyggn, enda hafði
hann ekki lengi leikið list sína, er
það spurðist, að þessi ungi maður
ætti vart sína líka hérlendis".
Hallgrímur Einarsson Ijósmyndari.
Það þarf ekki lengi að fletta
ljósmyndabók Hallgríms Einars-
sonar: Akureyri 1895—1930 til
þess að fá staðfestingu á orðum
Gísla. Það sem kemur á óvart er
fjölbreytileiki í vali myndefnis og
það er engin tilviljun sem ræður.
Allt virðist gjörhugsað.
Vitanlega hafa myndir af hús-
um og götum á Akureyri mikið
gildi. En það eru ekki síst myndir
Hallgríms af fólki að starfi og í
leik sem eru eftirminnilegar og
segja meira en mörg orð. Einnig
eru mannamyndirnar skýrar, til
dæmis Ljósmyndarinn og faðir
hans, séra Kristján Eldjárn á
Tjörn og Einar Thorlacius Hall-
grímsson verslunarstjóri, og Sjó-
maður.
Nokkur kynni hefur skoðandi
bókarinnar af atvinnuháttum á
Akureyri. En þó er ekki veiga-
minnst lýsing á því hvernig Akur-
eyringar glöddust eins og Garð-
veisla hjá Oddi C. Thorarensen
apótekara er til vitnis um og Séra
Matthías Jochumsson í heimsókn
hjá syni sínum, Steingrími lækni
og konu hans, Kristínu Thorodd-
sen og börnum þeirra. Eftir mynd-
inni að dæma hefur séra Matthías
ekki fengið í staupinu hjá syni sín-
um í þetta skipti, en oftast er
ástæða til þess að lyfta glasi þegar
góðir vinir hittast. Eitt slíkt dæmi
er mynd af Hallgrími ljósmyndara
og Halldóri Gunnlaugssyni lækni.
Þeir lyfta sælir glösum og bak-
sviðið er suðrænt landslag sem á
vel við.
Aðrar myndir vígðar gleðinni
eru til dæmis Haldið heim frá
Hótel Oddeyri að lokinni kaup-
staðarferð. En skyndilega birtist
alvara lífsins í myndum frá síld-
arplaninu og mynd eins og Torfu-
nesbryggja í smíðum árið 1907.
Markús fram-
leiðir sleftóg
MARKÚS B. Þorgeirsson, björgun-
arnetahönnuður í Hafnarfirði, kom
á ritstjórn Morgunblaðsins á dög-
unum með sleftóg, sem hann sagði
ómissandi fyrir bílstjóra að hafa í
bílnum. Markús sagði sleftógið
tæpa fjóra metra með kóssum,
hanafæti og lásum, þannig að þeir
bílstjórar, sem þurfa að láta draga
bíla sína, sagði Markús, væru
hólpnir með sleftóg hans í fórum
sínum. Á myndinni handleikur
Markús sleftógið, sem hann sagðist
reyndar framleiða í þremur gerð-
um.
Ú S EIG NIN
1$^) Sími 28511
Skólavörðustígur 18, 2.hæö.
Einarsnes — 3ja herb.
3ja herb. 70 fm risíbúð í
járnklæddu timburhúsi. Verö
750 þús.
Laugarnes-
vegur — 3ja herb.
3ja herb. 80 fm íbúð á 4. hæð.
Verð 950 þús.
Hæðarbyggð, Garðabæ
3ja herb. 80 fm íbúð á jarðhæð.
Rúmlega tilbúin undir tréverk.
Ca. 50 fm íbúöarhúsnæöi sem
er fokhelt. Verð 1,2 millj.
Álfaskeið — 4ra herb.
4ra herb. 100 fm íbúð á 4. hæö
með bilskúr. Verð 1,2 millj.
Ákveðin sala.
Óskum viðskiptavin-
um okkar gleðilegra
jóla og farscels kom-
andi árs.
rjp) HUSEIGMIN
Skolavorðustig II, 2. h*ð — Simi 28511
Petur Gunnlaugsion. logfraðingur
26600
a/lir þurfa þak yfir höfuóió
_ Fasteignaþjónustan
^67'®82 Autlurtlræh 17, f. XtOO
Ragnar Tómasson hdl
15 ár í fararbroddi
Nokkrar qóðar
tillögur að
OLYMFUS T-32 leifturljós - hœíir öllum
myndcrvólum en er al-sjállvirkt með
OLYMPUS OM2. Verð kr. 4,780,-
OLYMPUS OM 10, raíeindastýrða mynda-
vélin sem gerir nánast allt fyrir þig nema
að smella af. Verð kr. 5,750 með 50 mm
Iinsu(l,8)ogtösku,
CULLMANN þrífœtur - léttir - stöðugir
meðfœrilegir. Verð kr. 660 2,403-
POLAROID — ljósmyndavél sem skilar
myndunum strax -
kynnið ykkur jólatilboðið frá Polaroid.
OLYMPUS XA OG XA2 sannkallaðar vasa-
myndavélar - en nota samt 35 mm íilm-
ur.Verðkr. 3,160 og 4,190.-m/Al 1 flassi.
OLYMPUS OM2 ljósmyndavél sem á sér
enga hliðstœðu. Frábœr vól á frábœru
verði. Verð kr. 9,120 - með 50 mm
1.81insuogtösku.
KONICA FSl ljósmyndavél með innbygð-
um sjálftrekkjara - vél íramtíðarinnar.
Verð kr. 9.190 með 40 mm 1.8 linsu / tðsku.
Auk þess AGVA myndavélar, leifturljós og
slidessýningarvélar. - Ljósmyndabœkur
- töskur - myndaalbúm - rammar -
íilmur - og fleira. - Sendum ípóstkröfu.
Gevafoto
AUSTURSTRÆTI6, SÍMI22955