Morgunblaðið - 23.12.1982, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1982
9
Viktor Arnar Ingólfsson — Heitur snjór:
„Draumurinn að skrifa
góðar skemmtisögur“
NILFISK
GS80
heímsins besta ryksuga. Stór orð sem reynslan réttlætir
Viktor Arnar Ingólfsson hefur
sent frá sér aðra skáldsögu sína og
ber hún nafnið „Heitur snjór“. Fyrri
bók höfundar hét „Dauðasök“ og
kom út árið 1978. Bók Viktors er
saga um íslensk dýragarðsbörn ef
svo mætti að orði komast, athafna-
maður nokkur og glaumgosi flytur
heróín til landsins og í gegnum milli-
lið kemur hann efninu á markað
hér. Neytendurnir eru unglingar,
15—17 ára gamlir, sem hafa ekki
hugmynd um hvaða efnis þeir eru að
neyta, vita einungis að það gefur
spennandi „kikk“. Eftir þvi sem
unglingarnir verða háðari efninu og
þeim fjölgar sem þess neyta, fléttast
inn í tilburðir lögreglunnar til að
hafa hendur í hári sölumannanna.
Ekki skal efnið rakið nánar, en Vikt-
or hins vegar spurður hvort hann
hafi eitthvað fyrir sér hérlent í bók-
arefninu.
„Ég hef enga hérlenda fyrir-
mynd og persónurnar bjó ég til.
Sagan er í raun blanda af raunsæ-
issögu og reyfara. Ég er alls ekki
að setja mig í predikunarstell-
ingar, ég reyni, og það er raunar
minn stærsti draumur, að skrifa
sögu sem fólk hefur gaman af,
Viktor Arnar Ingólfsson
spennusögu með kímnigáfu, sögu
sem er mannbætandi fremur en
hitt. Hvort það hefur tekist verða
^aðrir að dæma um,“ segir Viktor.
Tökum gamlar vélar upp í nýjar
Polaroid vélar!
Polaroid
augnabliksmyndirnar
eru hrókur alls fagnaðar
Polaroid660 myndavélin tryggir faiiegri,
litríkari og skarpari augnabliksmyndir
■ 660 vélin hefur sjálfvirka fjarlægðarstillingu
frá 60 cm til óendanlegrar, 640 vélin er með
fix focus og 650 vélin með fix focus og nærlinsu.
■ Óþarft að kaupa flash og batteri
því batteri er sampakkað filmunni.
■ Notar nýju Polaroid 600 ASA
litmyndafilmuna, þá hröðustu í heimi!
helmingi Ijósnæmari en aðrar sambærilegar filmur!
En ef fyrirmyndin er engin og
persónurnar tilbúnar, er þá ekki
erfitt að setja saman skáldsögu
um óþekkt fyrirbæri hér á landi?
„Bókina skrifaði ég á 3—4 mán-
uðum og mér gekk vel að koma
verkinu frá mér á handrit. Hitt er
svo annað mál að ég þurfti auðvit-
að að kynna mér ýmislegt varð-
andi heróínið til þess að þetta yrði
sannfærandi. Til dæmis varð ég að
kynna mér verðmyndun og fleira
slíkt. Slíkar upplýsingar fékk ég
bæði í þýskum og bandarískum
ritum, einkum þó í bandaríska
tímaritinu „High Times". Annars
þykist ég ekki vera neinn sérstak-
ur stílisti, eins og ég sagði áðan
vakir fyrst og fremst fyrir mér að
skemmta fólki. Ég virði geysilega
það sem mörg ljóðskáld eru að
senda frá sér og ég vil leggja
eitthvað af mörkum. Það þýðir
hins vegar ekkert fyrir mig að
leika eftir ljóðskáldunum, spennu-
sögurnar verða því mitt framlag."
Hvað er svo framundan, ný
skáldsaga?
„Ég er mikið að spá í að spreyta
mig á kvikmyndahandriti, semja
slíkt fyrir mynd sem Karl
Óskarsson er með í smiðju sinni.
Það mál er hins vegar á algeru
frumstigi og því enn óvíst hvað
næst er á dagskrá."
— gg-
Vönduð og tæknilega ósvikin, gerð til að vinna sitt verk
fljótt og vel, ár eftir ár, með lágmarks truflunum og
tilkostnaði. Varanleg: til lengdar ódýrust. Góð kjör.
/rOnix
HÁTÚNI 6A • SÍMI 24420
Við höfum
opiðum
hátíðamar
sem hér segir:
Aðfangadagur ..............tilkl. 15
Jóladagur .................lokað
2. íjólum .................frákl. 10
Gamlársdagur ..............til kl. 15
Nýjársdagur ...............lokað.
19
Gkðilega hátíð!