Morgunblaðið - 28.12.1982, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 28.12.1982, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 1982 13 Sýslumannafélagið kýs 3 heiðursfélaga ÞANN 24. nóvember sl. hélt Sýslumannafélag íslands aðal- fund sinn í Reykjavík og segir í frétt frá félaginu, að fundinn hafi sótt allir félagsmenn utan einn sem dvaldi erlendis. A fundinum voru kjörnir í fyrsta sinn heiðursfélagar. Hér er um að ræða þrjá sýslumenn, sem látið hafa af störfum eftir 40—45 ára feril á þeim vett- vangi. Þeir eru: Páll Hallgríms- son sýslumaður á Selfossi, Björn Fr. Björnsson sýslumaður á Hvolsvelli og Jóhann Salberg Guðmundsson sýslumaður á Sauðárkróki. Stjórn félagsins var öll endur- kjörin, en hana skipa: Friðjón Guðröðarson sýslumaður á Höfn, formaður, Böðvar Braga- son sýslumaður á Hvolsvelli, Pétur Þorsteinsson sýslumaður í Búðardal, Kristján Torfason bæjarfógeti í Vestamannaeyjum og Jón Eysteinsson bæjarfógeti í Keflavík. Frá aðalfundi Sýslumannafélags íslands 1982. Formaðurinn, Friðjón Guðröðarson, er fyrir miðju í fremstu röð. Vegna sérstakra samninga við MAZDA verksmiðjurnar getum við nú boðið takmarkað magn af MAZDA bílum á hreint ótrúlegu verði: t MAZDA 929 SuperDeLuxe verð áður kr.-208rS0CT VERÐ NÚ kr. 177.700 MAZDA 323 1300 DeLuxe 3 dyra verð áður kr.J^eötT VERÐ NÚ kr. 151.200 Notið þetta einstaka tækifæri og tryggið ykkur bíl strax meðan þetta lága verð helst, því aðeins er um takmarkaðan fjölda af bílum að ræða. (Gengisskr. 21.12. 1982) BÍLABORG HF Smiöshöföa 23 sími 812 99

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.