Morgunblaðið - 26.01.1983, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 1983
37
Nokkrar fyrirspurnir til
formanna HFÍ og FHH
Guðrún Guðmundsdóttir sjúkra-
liði skrifar:
„Mig langar til að leggja nokkr-
ar fyrirspurnir fyrir formenn HFÍ
og FHH:
Rýrir aukin menntun sjúkraliða
gæði heilbrigðisþjónustunnar?
Gildir þar ekki það sama um
framhaldsmenntun hjúkrunar-
fræðinga?
Er það alræðisvald um málefni
heilbrigðisþjónustunnar í landinu
sem hjúkrunarfræðingar eru að
fara fram á, þegar þess er óskað af
hálfu samtaka þeirra, að samráð
sé haft við stéttarfélög hjúkrunar-
fræðinga, ef í bígerð séu einhverj-
ar breytingar á þessari starfsemi?
Hvað aðstoðarhjúkrunarfræð-
ings-starfsheiti sjúkraliða varðar,
sem fer svo mjög fyrir brjóstið á
hjúkrunarfræðingum, vil ég benda
á, að þetta er bein þýðing á al-
þjóðastarfsheiti sjúkraliða frá
WHO: Auxiliary Nurses.
Ég bið hjúkrunarfræðinga að
athuga starfsheiti sjúkraliða í
nágrannalöndum okkar, t.d. Nor-
egi, Danmörku, Svíþjóð, Finn-
landi, Þýskalandi, Bretlandi og
Sviss, sem alls staðar kemur heim
við þetta: aðstoðarhjúkrunarfræð-
ingar.
Én ég vona að við sjúkraliðar
fáum að halda okkar gamla
starfsheiti sem áður, þó að mennt-
un okkar verði aukin.
Hafa félög hjúkrunarfræðinga
og sjúkraliða rætt þessi mál? Ef
ekki: Væri þá ekki tímabært að
það yrði gert, stríðsaxir grafnar
og teknar upp friðarpípur til
marks um gott samstarf þessara
stétta.
Svar óskast á sama vettvangi.
Með bestu kveðjum."
Orð í
tíma töluð
8488-9288 skrifar:
„Velvakandi.
Mig langar að koma á fram-
færi þakklæti til dr. Gunn-
laugs Þórðarsonar fyrir þátt-
inn „Um daginn og veginn",
sem hann flutti 10. þ.m. Einn-
ig langaði mig til að vita,
hvort ekki væri hægt að fá
þáttinn birtan á prenti í ein-
I)r. Ounnlaueur D*R™n
l*órftarson Krisljánsdoltir
hverju blaðanna. Dr. Gunn-
laugur fjallaði um málefni
sem ég hefi mikinn áhuga á.
Eg veit um marga sem einnig
hefðu viljað heyra erindið, en
höfðu ekki tök á að hlusta
þetta kvöld. Þeim væri akkur í
því að geta lesið það.
Eins vil ég þakka Dagrúnu
Kristjánsdóttur fyrir þátt
hennar á sama vettvangi síðla
nýliðins árs. Það voru orð í
tíma töluð, sem líka væri gott
að kæmu fyrir almennings-
sjónir.
Þökk fyrir birtinguna."
Þessir hringdu . . .
Hafa þessa þjónustu
við bæjardyrnar
S.S. á Húsavík hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: —
Það er mikið talað um vægi at-
kvæða þessa dagana, og að það
þurfi að vera hið sama hvar sem
er á landinu. Þessu markmiði er
m.a. talað um að ná með fjölgun
þingmanna. Fólk á suðvestur-
horninu nefnir gjarnan jafnrétti
í þessu sambandi og telur á sig
hallað í atkvæðavægi. Þá gleym-
ist jafnan, að við sem búum úti á
landsbyggðinni höfum ekki sama
rétt og sömu möguleika og íbúar
höfuðborgarsvæðisins til að
notfæra okkur þá menningu sem
þar er að finna, t.d. í Þjóðleik-
húsi o.fl. o.fl. Ef við ætlum okkur
í leikhús þjóðarinnar, þá kostar
það okkur mikla fjármuni að
komast það. Ibúar Reykjaness
hafa hins vegar þessa þjónustu
við bæjardyrnar og eiga þægi-
legt með að veita sér hana. Er
þetta ekki misrétti? En þannig
er þetta líka um fjölmarga aðra
þjónustu sem við á landsbyggð-
inni verðum að sækja við ærinn
kostnað til höfuðborgarsvæðis-
ins. Er það þá ósanngjarnt, að
okkur sé að einhverju bættur
upp þessi aðstöðumunur með
hærra vægi atkvæða okkar?
GÆTUM TUNGUNNAR
Sagt var: ísraelsmenn réðust á Palestínumenn
og varð mannfall í liði beggja.
Rétt væri: ... og varð mannfall í liði hvorra-
tveggju.
(Ath.: Báðir er einungis hægt að segja um tvo,
en EKKI um tvenna.)
Elísabet F. Eirfksdóttir
Leiðrétting
í smápistli, sem birtist hér í dálk-
unum á þriðjudag, undir yfirskrift-
inni „Aldrei heyrt þetta lag áður“,
var sagt að Elísabet Erlingsdóttir
hefði sungið lag Kristins Magnús-
sonar, „Faðir vor“ við guðsþjónustu
í Neskirkju. Hið rétta er að það var
Elísabet F. Eiríksdóttir, sem lagið
flutti við þetta tækifæri. Eru þær
nöfnur beðnar velvirðingar á mis-
tökunum.
STEYPU-
DÞORF
ariviula.H
MetsöhHadá hverjum degi'
Djúpslökun og
spennulosun
I fræðslumiðstööinni Miðgarðar veröa haldin tvö
helgarnámskeiö í djúpslökun og spennulosun. Fyrra
námskeiöiö er 28.—30. janúar og þaö síðara 4.—6.
febrúar. Á námskeiöunum veröur kennt djúpslökun-
arkerfi sovéska læknisins A.G. Odessky en þaö er
talið meöal áhrifaríkustu aöferöa til tauga- og vööva-
slökunar. Djúpslökunarkerfið byggir á áhrifum sí-
gildrar tónlistar, sjálfsefjun, öndunartækni og beit-
ingu ímyndunaraflsins. Notaö veröur „Bíófeed-
back“-tæki sem gefur þátttakendum upplýsingar um
spennu- og hvíldarástand eigin vööva. Á námskeiö-
unum veröur einnig fjallaö um:
• Draumastjórn
• Myndun innri ráögjafa
• Breytta sjálfsímynd
• Varnir gegn streitu
Upplýsingar og skráning er í Miðgarði Bárugötu 11,
sími: 12980, milli kl. 11—20.
/V1IÐG/4RÐUR
ALLTAF A FIMMTUDÖGUM
BROSTU!
MYNDASÖGURNAR
KOMA Á-r MORGUN
Vikuskammtur afskellihlátri
AUGLYSINGASTOA KHISIINAM Mf