Morgunblaðið - 25.02.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1983
3
B-keppnin í handknattleik:
Sjónvarpað beint frá
leik íslands og Spánar
KINS og fram hefur komiö í frettum verður sjónvarpað beint frá leik íslands
og Spánar í B-keppninni í handknattleik í Hollandi í dag. Ekki verður útvarp-
að frá þeim leik. Bjarni Felixson, íþróttafréttamaður Sjónvarpsins, mun því
lýsa leiknum hér heima jafnóðum og hann birtist á skjánum, en Hermann
Gunnarsson, íþróttafréttamaður útvarpsins, verður meðal áhorfenda.
Morgunblaðið spurðist fyrir um
það hvers vegna Hermann Gunn-
arsson, íþróttafréttamaður út-
varpsins, sem lýsa mun öðrum
leikjum, lýsti ekki þessum fyrir
sjónvarpið. Að sögn Harðar Vil-
hjálmssonar, fjármálastjóra út-
varpsins, var ákveðið að útvarpa
ekki þessum leik af því að ekki
hefði verið hægt að ljúka honum
vegna fréttaútsendingar klukkan
19.00. Einnig hefði það haft mikið
að segja að sjónvarpið ætlaði að
sýna hann beint. Hins vegar teldi
hann réttast að ríkisfjölmiðlarnir
ynnu sem mest saman og því væri
það ekki óeðlilegt að hans mati að
Hermann lýsti leiknum.
Að sögn Bjarna Felixsonar, vissi
hann ekki annað en þessum leik
yrði lýst í útvarpinu og því hefði
hvorki verið pöntuð aðstaða né lína
til að senda lýsingu með heim. Þeg-
ar hið gagnstæða hefði komið í
ljós, hefði verið orðið of seint að
panta aðstöðu og línu, auk þess
sem erfitt væri að koma því við,
þar sem talið færi líklega ekki eftir
sömu rás og myndsendingin. Sagði
Bjarni að peningasjónarmið hefði
engu breytt í þessu máli.
Sölutregða og
verðfall á dúni
ENN eru óseld úr landi um 400 kg af dúni frá árinu 1981 hjá Búvörudeild StS
en SÍS er aðalútflytjandi þessarar vöru. Auk þess hefur SÍS ekki tekist að selja
neitt af dúni af dúntekju ársins 1982.
Agnar Tryggvason, forstöðumað-
ur Búvörudeildar SÍS, sagði i sam-
tali við Mbl. að sölutregða hefði
verið í hálft annað ár á meginlandi
Evrópu þar sem aðalmarkaðurinn
væri fyrir islenskan dún. Verðið
sem komið var yfir 1.500 mörk
hvert kíló er nú komið niður í 1.050
mörk kílóið af hreinsuðum dúni.
Agnar sagði að dúnninn væri aðal-
lega notaður í sængur og þess hátt-
ar en einnig væri hann notaður í
ýmsar aðrar vörur, t.d. ýmiss konar
búninga.
Árið 1980 voru flutt úr 1.600 kíló
af dúni, 1981 var útflutningur kom-
inn niður í 1.108 kg og í 692 kg árið
1982. Agnar sagði að þó ekki væri
búið að selja allan dúninn frá árinu
1981 væri búið að afreikna hann og
gera upp við bændur en þeir sætu
þó uppi með dúninn frá því í fyrra
nema það sem þeir hefðu getað selt
hér innanlands.
Stykkishólmur:
Þorrablót
eldri íbúa
StykkLshólmi 21. febrúar.
KVENFÉLAGIÐ Hringurinn í Stykk-
ishólmi, minntist 76 ára afmælis síns
sl. sunnudag með því að bjóða öllum
öldruðum hér í bænum i þorramat f
félagsheimilinu í Stykkishólmi.
Var mjög vel mætt af eldri borg-
urum staðarins. Hófst hátíðin með
því að Lúðrasveit Stykkishólms
(miðsveitin) lék undir stjórn Daða Þ.
Einarssonar, tónlistarkennara, sem
hefir verið undanfarið skólastjóri
Tónlistarskólans hér við góðan orð-
stír. Lúðrasveitinni var forkunnar
vel tekið, enda er hún bæði fjölmenn
og vel þjálfuð.
Þá voru ýmis önnur skemmtiatr-
iði, gamanvísur, harmonikkuleikur,
leikþáttur o.fl. Síðan var stiginn
dans um skeið og stóð fagnaður þessi
rúma 4 tima eða frá kl. 5 til rúmlega
9. Þetta framtak kvenfélagsins
mæltist vel fyrir hjá bæjarbúum og
fóru menn mjög ánægðir heim.
FrétUriUri
Mótmæli
málshöfðun
saksóknara
ríkisins í
fjölmiðlunum
— segir Gísli Baldur
Garðarsson
lögfræðingur
„ÉG REYNDI í dag að fá ákæruna á
hendur skjólstæðingi míum hjá sak-
sóknara ríkisins, en var neitað um
hana og bent á yfirsakadómarann í
Keykjavík. Hann taldi ekki eðlilegt að
afhenda afrit af henni fyrr en hún
hefði verið birt lögformlega. Ég leyfi
mér því að mótmæla því að saksóknari
höfði mál á hendur mönnum f fjöl-
miðlum með þessum hætti," sagði Gfsli
Baldur Garðarsson lögfræðingur í sam-
tali við Mbl. í gær vegna fréttar um
höfðun opinbers máls á hendur núver-
andi og fyrrverandi stjórnarmönnum
Video-Son, en Gfsli Baldur er lögfræð-
ingur Njáls Harðarsonar, eins af fyrr-
verandi stjórnarmönnum fyrirtækisins.
„Það er í algjörri andstöðu við ís-
lenzkar réttarreglur að málarekstur
fari fram í fjölmiðlum með þessum
hætti," sagði Gísli Baldur.
Ráðinn
forstöðumaður
Litla Hrauns
GÍISTAF Lilliendahl hefur verið ráð-
inn forstjóri Vinnuhælisins að Litla-
Hrauni, að því er fram kemur I
fréttatilkynningu frá
Dómsmáíaráðuneytinu.
Gústaf hefur verið ráðinn til
starfans frá 15. maí næstkomandi.
AUGLYSINGASTOFA KRlSTlNAR HF 3 107