Morgunblaðið - 25.02.1983, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1983
ImíkúMaie
ÍMMÍI
AMERIKA
PORTSMOUTH/
NORFOLK
City of Hartlepool 2. mars
Mare Garant 16. mars
City of Hartlepool 22. mars
NEWYORK
City of Hartlepool 1. mars
Mare Garant 15. mars
City of Hartlepool 21. mars
HALIFAX
City of Hartlepool 4. mars
Hofsjökull 21. mars
BRETLAND/
MEGINLAND
FELIXSTOWE
Eyrarfoss 28. feb.
Alafoss 7. mars
Eyrarfoss 14. mars
Alafoss 21. mars
ANTWERPEN
Eyrarfoss 1. mars
Alafoss 8. mars
Eyrarfoss 15. mars
Alafoss 22. mars
ROTTERDAM
Eyrarfoss 2. mars
Álafoss 9. mars
Eyrarfoss 16. mars
Alafoss 23. mars
HAMBORG
Eyrarfoss 3. mars
Alafoss 9. mars
Eyrarfoss 17. mars
Alafoss 24. mars
WESTON POINT
Helgey 1. mars
NORÐURLÖND/
EYSTRASALT
BERGEN
Mánafoss 25. feb.
Dettifoss 4. mars.
KRISTIANSAND
Mánafoss 28. feb.
Dettifoss 7. mars
MOSS
Mánafoss 25. feb.
Dettifoss 4. mars
HORSENS
Dettífoss 9. mars
Dettifoss 23. mars
GAUTABORG
Mánafoss 2. mars
Dettifoss 9. mars
KAUPMANNAHOFN
Mánafoss 3. mars
Dettifoss 10. mars
HELSINGBORG
Manafoss 4. mars
Dettifoss 11. mars
HELSINKI
Hove 28. feb
Hove 21. mars
GDYNIA
Hove 2. mars
Hove 23. mars
THORSHAVN
Dettiloss 19. mars
■m
3
VIKULEGAR
STRANDSIGLINGAR
-fram ogtil baka
frá REYKJAVÍK
alla mánudaga
frá ÍSAFIRÐI
alla þriðjudaga
frá AKUREYRI
alla f immtudaga
EIMSKIP
*
FRÁ fundi sjávarútvegsráðherra með fréttamönnum f fyrradag. Frá vinstri: Hafþór Rósmundsson, Einar Jóhannsson, Baldur Jónsson og Steingrímur
Hermannsson. Baki í Ijósmyndarann snúa Jónas Bjarnason, Halldór Þorsteinsson og Jón Arnalds. Morpinbi*M/RAX
Frumvarp að lögum tilbúið í sjávarútvegsráðuneytinu:
Ríkismat sjávarafurða komi í
stað Framleiðslueftirlitsins
f SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTINU liggur nú tilbúið
frumvarp til laga um „Ríkismat sjávarafurða", nýja stofn-
un, sem koma á í stað Framleiðslueftirlits sjávarafurða.
Hlutverk þessarar stofnunar á að vera „að stuðla að
bættum hráefnis- og vörugseðum með því að hafa eftirlit
með og meta allan fisk, sera veiddur er úr sjó, annan en
bræðslufisk, svo og eftirlit með meðferð, flutningi,
geymslu og vinnslu hans sem og útflutningi fiskafurða".
Að sögn Steingríms Hermannssonar hefur frumvarp þetta
verið kynnt i ríkisstjórn, en „fer þó tapast fyrir það þing,
sem nú situr, enda vonandi stutt eftir af því“, eins og
sjávarútvegsráðherra orðaði það, er frumvarpið var kynnt
fréttamönnum. Þann fund sátu einnig ýmsir þeir, sem
unnið hafa að smíði frumvarpsins og fjallað um gæðaeftir-
lit og vöruvöndun í sjávarútvegi og fiskvinnslu. í fram-
haldi af kynningu á þessu frumvarpi er fyrirhuguð mikil
kynning og fræðsluherferð um meðferð sjávarafla og þýð-
ingu aukinna gæða sjávarafla og vinnslu afurðanna fyrir
erlendan markað. Þrjár milljónir króna „hafa verið tekn-
ar til hliðar vegna gæðamálanna", sagði sjávarútvegs-
ráöherra.
I upplýsingum frá ráðuneytinu
segir, að miklar umræður hafi verið
undanfarin ár um bætt hráefnis- og
vörugæði og nauðsyn þess að endur-
skoða lög um Framleiðslueftirlit
sjávarafurða. Nokkru eftir að
Steingrímur Hermannsson tók við
störfum sem sjávarútvegsráðherra
skilaði nefnd undir forystu Björns
Dagbjartssonar, forstjóra Rann-
sóknarstofnunar fiskiðnaðarins,
skýrslu um breytta skipan fisk-
matsmála, en nefndin hafði verið
skipuð til að endurskoða lög um
Framleiðslueftirlit sjávarafurða.
Þar var lagt til að sett yrði á fót
Fiskmatsráð er hafi yfirumsjón
með gæðaeftirliti og mati á sjávar-
afurðum. Gert var ráð fyrir að
ferskfiskeftirlit og afurðamat yrði
skilið að, afurðamat einfaldað og
ábyrgð framleiðenda aukin. Jafn-
framt var lagt til að sölusamtök og
útflytjendur kæmu á fót eigin
framleiðslueftirliti. Lagt var til að
allar reglugerðir og opinber fyrir-
mæli yrðu endurskoðuð.
Þann 29. janúar 1982, eða fyrir
rúmu ári, skipaði sjávarútvegs-
ráðherra í fiskmatsráð eftirtalda
menn: Halldór Þorsteinssin, for-
mann, Hjalta Einarsson, Jónas
Bjarnason, Hafþór Rósmundsson
og Einar M. Jóhannsson. Var Fisk-
matsráði falið að semja frumvarp
um Ríkismat sjávarafurða, sem nú
liggur fyrir.
Helztu nýmæli í frumvarpinu eru
þau að Ríkismatinu er sett fagleg
ráðgjafarnefnd, Fiskmatsráð, og
skulu hagsmunaaðilar í sjávarút-
vegi ekki eiga færri en fjóra af sjö
ráðsmönnum. Yfirmaður Rfkis-
matsins verður fiskmatsstjóri og
skal hann ráðinn til fjögurra ára í
senn eins og aðrir yfirmenn stofn-
unarinnar. Þá er gert ráð fyrir að
Fiskmatsráð starfi við hlið fisk-
matsstjóra og annist ráðið víðtæk
fagleg verkefni.
Starfsemi Fiskmatsráðs á að
skipta upp í tvær sjálfstæðar deild-
ir, ferskfiskdeild og afurðadeild.
Ábyrgð framleiðenda á eigin fram-
leiðslu skal aukin og framleiðsla til
útflutnings verða leyfisbundin.
Ráðuneytinu er heimilt að svipta
framleiðanda framleiðsluleyfi sýni
hann vítaverða meðferð hráefnis
eða komi alvarlegir gallar I ljós í
afurðum hans. Til að tryggja betur
að gildandi reglum og opinberum
fyrirmælum um fiskmat sé fylgt
mun ráðuneytið ráða sérstakan
eftirlitsmann á næstunni.
í greinargerð með frumvarpinu
segir svo meðal annars um Fisk-
matsráð: „Ýmis af þeim vandamál-
um sem skapast hafa i sambandi
við starfsemi framleiðslueftirlits
sjávarafurða, eða í gæðamálum
fiskafurða, má rekja til þess, að
vettvang eins og Fiskmatsráð hefur
skort. Almennar gæðaflokkunar-
reglur fyrir afurðir verða ekki sett-
ar svo vel fari án beinnar þátttöku
fulltrúa hagsmunaaðila og að frum-
kvæði þeirra að verulegu leyti. Auk
þess eru ýmsar ákvarðanir stofnun-
arinnar það viðkvæmar og umdeil-
anlegar að nauðsynlegt er að nefnd
en ekki einstaklingar standi að baki
þeim. Það er grundvallaratriði fyrir
öryggi í starfi fagmanna í mati á
öllum matvælum, að þeir ákveði
ekki sjálfir þær reglur sem starfað
er eftir.“
í 6. grein frumvarpsins er fjallað
um deildaskiptingu stofnunarinnar.
Þar segir meðal annars að sam-
kvæmt lögum um Framleiðsiueftir-
lit sjávarafurða skipstist sú stofnun
í fjórar deildir, hreinlætisbúnað-
ardeild, ferskfiskdeild og saltfisk-
og skreiðardeild. Síðan segir í
frumvarpinu:
Verulegar breytingar hafa átt sér
stað í mikilvægi og umfangi ein-
stakra deilda, sem og varðandi
nauðsyn á eftirliti á viðkomandi
deildarsviðum. Eftirlit með freð-
fiskafurðum hefur aukist stöðugt á
undanförnum árum á vegum sölu-
samtaka hraðfrystiiðnaðarins,
þannig að nauðsyn fyrir opinbert
eftirlit hefur minnkað að sama
skapi. Sölusamband ísl. fiskfram-
leiðenda og Síldarútvegsnefnd eru
að auka gæðaeftirlit á eigin vegum
og mun sú starfsemi draga úr nauð-
syn opinbers eftirlits með flokkun
og mati afurðanna, öðru en yfir-
mati, sem verður áfram á vegum
hins opinbera. Gera verður ráð
fyrir að sams konar þróun eigi sér
stað varðandi aðrar sjávarafurðir
svo sem skreið og hrogn. Mikilvægt
er, að Rfkismat sjávarafurða verði
sveigjanlegt og standi ekki á móti
eðlilegri þróun f einstökum fram-
leiðslugreinum. Þess vegna er
nauðsynlegt að allt afurðamat verði
undir einni deild og starfslið verði
færanlegt eftir þörfum. Aukin
menntun f fiskiðnaði og ný viðhorf í
gæðamati fiskafurða opna yfir-
matsmönnum möguleika á að sér-
hæfa sig í aðferðarfræði gæðamats
þeirra og verða þannig fjölhæfari í
störfum sínum en nú er algengast.
Stofnunin þarf að útbúa matsreglur
í samræmi við þetta og gera yfir-
Margrét
Guðmunds-
dóttir sýn-
ir í List-
munahúsinu
í DAG, laugardaginn 26. febrúar kl.
14, verður opnuð í Listmunahúsinu
Lækjargötu 2, myndlistarsýning Mar-
grétar Guðmundsdóttur „Allt og hvað
eina“.
Þetta er fyrsta sýning Margrétar,
en hún hefur verið búsett í Stokk-
hólmi frá 1966 þar sem hún hefur
stundað listnám. Á sýningunni eru
um 70 verk, flest unnin með olíu á
striga og pappír, en einnig tempera
á striga og nokkur mónóþrykk.
Sýning Margrétar stendur til 13.
mars og er opin virka daga frá kl.
10-18, en um helgar frá 14-18. Morguabtoðió/ÓI.K.M.
Lokað mánudaga. Margrét Guðmundsdóttir með einu verka sinna.
Borgar-
fundur um
kvennalista
til Alþingis
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
ist eftirfarandi fundarboð frá
áhugahópi kvenna um alþingis-
framboð:
Laugardaginn 26. febrúar kl.
14 verður á Hótel Borg kynn-
ingarfundur á kvennalista til
Alþingis. Auk þess sem listinn
er kynntur verða umræður um
stefnuskrá, og helstu rökin
fyrir kvennaframboði.
Þá verður fundurinn krydd-
aður með nokkru léttmeti, og
m.a. koma þær Ella og vinkona
hennar á svæðið.