Morgunblaðið - 24.03.1983, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 24.03.1983, Blaðsíða 28
nn r r r\ + nnr l • 28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1983 atvinna - - atvinna — atvinna — atvinna — atvinna - - atvinna Tölvuskráning Fyrirtæki í Hafnarfirði óskar að ráða vanan starfskraft til skráningar á tölvu hálfan dag- inn. Kunnátta í meðferð tölvu nauðsynleg. Þarf aö geta hafið störf fljótlega. Umsóknir sendist augl. Mbl. fyrir mánudag 28. marz merktar: „Tölvuskráning — 020“. Suðurnes Kjötiðnaðarmaður eða matreiðslumaður óskast til starfa sem fyrst. Uppl. í síma 92-1598. Kjötsel. Hárskerasveinn Hárskerasveinn óskast sem fyrst. Tilboð sendist Mbl. fyrir 30. marz nk. merkt: „H — 347“. Keflavík Keflavíkurbær óskar að ráða starfskraft til aðstoðar á skrifstofu félagsmálafulltrúa. Uppl. um starfið veitir félagsmálafulltrúi í síma 1555. Umsóknarfrestur er til 6. apríl nk. Félagsmálaráð Keflavíkur. BÓKHALDSTÆKNI RÁÐNINGARÞJÓNUSTA óskar eftir að ráða: AFGREIÐSLUSTÚLKU fyrir fataverslun við Laugaveg. Við leitum að stúlku sem getur hafiö störf strax og unnið frá 13—18. Æski- legt að viðkomandi sé vön afgreiðslu. Umsóknareyöublöð á skriístoíu okkar. Umsóknir trúnaðarmál ei þess er óskað káðningarþjónustan BÓKHALDSTÆKNI HE Laugavegi 18 ÍOI Reykjavík Deildarstjóri: Úlíar Steindórsson sími 25255. BókhaJd Uppgjör FJárhaJd Eignaumsýsla Rádnmgarþjónusta Garðabær Blaöberi óskast á Flatir. Uppl. í síma 44146. Skólastjóra vantar að Tónlistarskóla A-Hún. næsta skólaár. í skólanum eru nú 117 nemendur og fer kennsla fram á Blönduósi, Skagaströnd og í Húnavallaskóla. Umsóknarfrestur er til 20. apríl. Nánari upplýsingar gefa Sveinn Kjartansson, sími 95-4437 og Jónas Tryggvason 95-4180. Textainnritarar óskast nú þegar. Vinnsla á Compugraphic- setningartölvu allan daginn eða hluta úr degi. Skákprent Dugguvogi 23. Símar 31335 og 31975. Tryggingafélag óskar að ráða einkaritara Starfiö felst í almennum störfum einkaritara. Góð vélritunar- og enskukunnátta áskilin, ásamt fágaðri framkomu og nokkurri starfs- reynslu. Umsóknir sendist Morgunblaöinu fyrir 29. marz nk. merkt: „H — 342“. Öllum umsókn- um verður svarað. Bakarar óskast Upplýsingar í síma 78125. Starfsfólk óskast til framreiðslustarfa nú þegar. Uppl. í síma 46999 milli 1 og 3 í dag. Júmbó-samlokur, Kársnesbraut 124, Kópavogi. Fjósameistari óskast Bændaskólinn á Hólum í Hjaltadal óskar að ráða fjósameistara viö skólabúið frá og með 1. júní nk. Laun samkv. kjarasamningi opin- berra starfsmanna. Skriflegum umsóknum sé skilað fyrir 20. apríl nk. Nánari uppl. um starfið gefur ráðsmaður eða skólastjóri í síma 95-5961. Sjúkrahús Skagfirðinga Sauðárkróki, óskar aö ráða eftirtaliö starfs- fólk: Hjúkrunarforstjóra til starfa frá 1. júní nk. Umsóknarfrestur framlengdur til 15. apríl. Húsnæði til staöar. Umsóknir er greini frá menntun og fyrri störf- um, sendist formanni sjúkrahússtjórnar. Meinatæknir til starfa frá 1. júní og einnig til sumarafleysinga. Húsnæði til staöar. Upplýsingar veitir forstöðumaður Sjúkra- hússins í síma 95-5270. Þörungavinnslan hf. Þeir aðilar sem áhuga hafa á þangskurði á komandi þangvertíð eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við verksmiðjuna sem fyrst. Þörungavinnslan hf., Reykhólum, sími 93-4740. Arnarflug: Ný þjónustu- tölva í notkun ARNARFLUG hefur tekið í notkun þjónustutöivu, sem annast farbókanir um alian heim og tiargvíslega aðra þjónustu og upplýsingamiðlum fyrir viðskiptavini félagsins. Tölvan nefnist (Jorda og er í eigu hollenzka flugfé- lagsins KLM í Amsterdam. Þessar upplýsingar komu fram á blaða- mannafundi, sem Arnarflug boðaði til vegna tímamótanna. Arnarflugsmenn sögðu tölvuna vera eina þá fullkomnustu á þessu sviði í heiminum, enda hafi 11 flugfélög gert samning við KLM um að nota hana sem móðurtölvu. Þjónustan sem tölvan veitir er mjög víðtæk og var nefnt: Farbók- anir á svipstundu um allan heim með nær öllum flugfélögum heims. Hótelbókanir á rúmlega 300 hótel- um um allan heim, auk þess sem unnt er að bóka á skömmum tíma gistingu í þúsundum annarra hót- ela. Bílaleigubókanir frá AVIS- bílaleigunni og á skömmum tíma hjá fjölmörgum öðrum bílaleigum. Bókanir í fjölda skoðunarferða og hópferða um Amsterdam, Holland og víða um Evrópu. Tölvan er jafnframt upplýsinga- banki og getur veitt margvíslegar upplýsingar, eins og um lestarferðir í Hollandi og til fjölmargra landa í Evrópu, rútuferðir í Hollandi, regl- ur um vegabréf og áritanir, toll- skyldu, gjaldeyri, bólusetningar og margt annað sem ferðamenn varðar í flestum löndum heims. Hún veitir einnig upplýsingar um skemmti- efni, s.s. kvikmyndir og tónlist í flugvélum KLM og nokkurra ann- arra félaga, verkföll og aðra þætti sem geta valdið hindrun á flugferð- um víða um heim og margt fleira. Tölvan dreifir óskum farþega til allra þeirra sem hlut eiga að máli við undirbúning eða framkvæmd flugs, t.d. um sætaval, aðstoð vegna veikinda eða fötlunar, sérstakt mataræði og fleira. Farbókanir eru stærsti þátturinn í rekstri tölvunnar og geymir hún upplýsingar um nær allar áætlun- arflugferðir í heimi og annast bók- anir í þær. Áætlunarflugsmöguleik- ar eru liðlega 42 þúsund. Boð milli tölvunnar og söluskrif- stofu Arnarflugs í Reykjavík og Keflavík berast um gervihnött og líða að jafnaði innan við tvær sek- úndur frá því að spurning er send frá viðtækjum hér á landi þar til svar er komið og hafa tölvuskeytin þó farið á þessum tíma vegalengd sem svarar rúmum fjórum hringj- um umhverfis jörðina, auk þess sem Corda-tölvan hefur unnið úr spurn- ingunni og svarað henni. Söluskrifstofur Arnarflugs í Reykjavík, Keflavík og Amsterdam hafa tengst tölvunni og í undirbún- ingi er að tengja skrifstofur félags- ins í Sviss og Þýzkalandi. Tvær ís- lenzkar ferðaskrifstofur hafa ákveðið að tengjast tölvunni, Samvinnuferðir-Landsýn og Útsýn, og fleiri eru með málið í athugun eða undirbúningi. Yfirmaður farskrárdeildar Arn- arflugs og stjórnandi daglegs rekst- urs tölvunnar í þágu Arnarflugs er Örvar Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.