Morgunblaðið - 24.03.1983, Page 28
nn
r r r\ + nnr l •
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. MARZ 1983
atvinna - - atvinna — atvinna — atvinna — atvinna - - atvinna
Tölvuskráning
Fyrirtæki í Hafnarfirði óskar að ráða vanan
starfskraft til skráningar á tölvu hálfan dag-
inn. Kunnátta í meðferð tölvu nauðsynleg.
Þarf aö geta hafið störf fljótlega.
Umsóknir sendist augl. Mbl. fyrir mánudag
28. marz merktar: „Tölvuskráning — 020“.
Suðurnes
Kjötiðnaðarmaður eða matreiðslumaður
óskast til starfa sem fyrst.
Uppl. í síma 92-1598.
Kjötsel.
Hárskerasveinn
Hárskerasveinn óskast sem fyrst.
Tilboð sendist Mbl. fyrir 30. marz nk. merkt:
„H — 347“.
Keflavík
Keflavíkurbær óskar að ráða starfskraft til
aðstoðar á skrifstofu félagsmálafulltrúa.
Uppl. um starfið veitir félagsmálafulltrúi í
síma 1555. Umsóknarfrestur er til 6. apríl nk.
Félagsmálaráð Keflavíkur.
BÓKHALDSTÆKNI
RÁÐNINGARÞJÓNUSTA
óskar eftir að ráða:
AFGREIÐSLUSTÚLKU fyrir fataverslun við
Laugaveg. Við leitum að stúlku sem getur
hafiö störf strax og unnið frá 13—18. Æski-
legt að viðkomandi sé vön afgreiðslu.
Umsóknareyöublöð á skriístoíu okkar.
Umsóknir trúnaðarmál ei þess er óskað
káðningarþjónustan
BÓKHALDSTÆKNI HE
Laugavegi 18 ÍOI Reykjavík
Deildarstjóri: Úlíar Steindórsson
sími 25255.
BókhaJd Uppgjör FJárhaJd Eignaumsýsla Rádnmgarþjónusta
Garðabær
Blaöberi óskast á Flatir. Uppl. í síma 44146.
Skólastjóra
vantar að Tónlistarskóla A-Hún. næsta
skólaár. í skólanum eru nú 117 nemendur og
fer kennsla fram á Blönduósi, Skagaströnd
og í Húnavallaskóla. Umsóknarfrestur er til
20. apríl.
Nánari upplýsingar gefa Sveinn Kjartansson,
sími 95-4437 og Jónas Tryggvason 95-4180.
Textainnritarar
óskast nú þegar. Vinnsla á Compugraphic-
setningartölvu allan daginn eða hluta úr degi.
Skákprent Dugguvogi 23.
Símar 31335 og 31975.
Tryggingafélag óskar að ráða
einkaritara
Starfiö felst í almennum störfum einkaritara.
Góð vélritunar- og enskukunnátta áskilin,
ásamt fágaðri framkomu og nokkurri starfs-
reynslu.
Umsóknir sendist Morgunblaöinu fyrir 29.
marz nk. merkt: „H — 342“. Öllum umsókn-
um verður svarað.
Bakarar óskast
Upplýsingar í síma 78125.
Starfsfólk óskast
til framreiðslustarfa nú þegar. Uppl. í síma
46999 milli 1 og 3 í dag.
Júmbó-samlokur,
Kársnesbraut 124, Kópavogi.
Fjósameistari
óskast
Bændaskólinn á Hólum í Hjaltadal óskar að
ráða fjósameistara viö skólabúið frá og með
1. júní nk. Laun samkv. kjarasamningi opin-
berra starfsmanna.
Skriflegum umsóknum sé skilað fyrir 20. apríl
nk.
Nánari uppl. um starfið gefur ráðsmaður eða
skólastjóri í síma 95-5961.
Sjúkrahús
Skagfirðinga
Sauðárkróki, óskar aö ráða eftirtaliö starfs-
fólk:
Hjúkrunarforstjóra til starfa frá 1. júní nk.
Umsóknarfrestur framlengdur til 15. apríl.
Húsnæði til staöar.
Umsóknir er greini frá menntun og fyrri störf-
um, sendist formanni sjúkrahússtjórnar.
Meinatæknir til starfa frá 1. júní og einnig til
sumarafleysinga. Húsnæði til staöar.
Upplýsingar veitir forstöðumaður Sjúkra-
hússins í síma 95-5270.
Þörungavinnslan hf.
Þeir aðilar sem áhuga hafa á þangskurði á
komandi þangvertíð eru vinsamlegast beðnir
að hafa samband við verksmiðjuna sem
fyrst.
Þörungavinnslan hf.,
Reykhólum, sími 93-4740.
Arnarflug:
Ný þjónustu-
tölva í notkun
ARNARFLUG hefur tekið í notkun
þjónustutöivu, sem annast farbókanir
um alian heim og tiargvíslega aðra
þjónustu og upplýsingamiðlum fyrir
viðskiptavini félagsins. Tölvan nefnist
(Jorda og er í eigu hollenzka flugfé-
lagsins KLM í Amsterdam. Þessar
upplýsingar komu fram á blaða-
mannafundi, sem Arnarflug boðaði til
vegna tímamótanna.
Arnarflugsmenn sögðu tölvuna
vera eina þá fullkomnustu á þessu
sviði í heiminum, enda hafi 11
flugfélög gert samning við KLM um
að nota hana sem móðurtölvu.
Þjónustan sem tölvan veitir er
mjög víðtæk og var nefnt: Farbók-
anir á svipstundu um allan heim
með nær öllum flugfélögum heims.
Hótelbókanir á rúmlega 300 hótel-
um um allan heim, auk þess sem
unnt er að bóka á skömmum tíma
gistingu í þúsundum annarra hót-
ela. Bílaleigubókanir frá AVIS-
bílaleigunni og á skömmum tíma
hjá fjölmörgum öðrum bílaleigum.
Bókanir í fjölda skoðunarferða og
hópferða um Amsterdam, Holland
og víða um Evrópu.
Tölvan er jafnframt upplýsinga-
banki og getur veitt margvíslegar
upplýsingar, eins og um lestarferðir
í Hollandi og til fjölmargra landa í
Evrópu, rútuferðir í Hollandi, regl-
ur um vegabréf og áritanir, toll-
skyldu, gjaldeyri, bólusetningar og
margt annað sem ferðamenn varðar
í flestum löndum heims. Hún veitir
einnig upplýsingar um skemmti-
efni, s.s. kvikmyndir og tónlist í
flugvélum KLM og nokkurra ann-
arra félaga, verkföll og aðra þætti
sem geta valdið hindrun á flugferð-
um víða um heim og margt fleira.
Tölvan dreifir óskum farþega til
allra þeirra sem hlut eiga að máli
við undirbúning eða framkvæmd
flugs, t.d. um sætaval, aðstoð vegna
veikinda eða fötlunar, sérstakt
mataræði og fleira.
Farbókanir eru stærsti þátturinn
í rekstri tölvunnar og geymir hún
upplýsingar um nær allar áætlun-
arflugferðir í heimi og annast bók-
anir í þær. Áætlunarflugsmöguleik-
ar eru liðlega 42 þúsund.
Boð milli tölvunnar og söluskrif-
stofu Arnarflugs í Reykjavík og
Keflavík berast um gervihnött og
líða að jafnaði innan við tvær sek-
úndur frá því að spurning er send
frá viðtækjum hér á landi þar til
svar er komið og hafa tölvuskeytin
þó farið á þessum tíma vegalengd
sem svarar rúmum fjórum hringj-
um umhverfis jörðina, auk þess sem
Corda-tölvan hefur unnið úr spurn-
ingunni og svarað henni.
Söluskrifstofur Arnarflugs í
Reykjavík, Keflavík og Amsterdam
hafa tengst tölvunni og í undirbún-
ingi er að tengja skrifstofur félags-
ins í Sviss og Þýzkalandi. Tvær ís-
lenzkar ferðaskrifstofur hafa
ákveðið að tengjast tölvunni,
Samvinnuferðir-Landsýn og Útsýn,
og fleiri eru með málið í athugun
eða undirbúningi.
Yfirmaður farskrárdeildar Arn-
arflugs og stjórnandi daglegs rekst-
urs tölvunnar í þágu Arnarflugs er
Örvar Sigurðsson.