Morgunblaðið - 31.03.1983, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1983
61
Trésmiðja Þorvalds Ólafssonar í Keflavík:
Verður ein stærsta
trésmiðja landsins
EITT slsersta trcsmíðaverkstæði á
landinu er nú að komast í gagnið í
Keflavík, Trésmiðja Þorvalds ðlafs-
sonar hf. Þorvaldur hefur nýlega
byggt við 10 ira gamalt verkstæði
sitt 1200 fm og hefur nú til umráða
um 2000 fm gólfflöt. Þá hefur hann
keypt fjöldann allan af stórvirkum
tækjum sem eiga að bæta sam-
keppnisaðstöðu fyrirtækisins.
„Við hófum byggingarfram-
kvæmdir í ágúst og lukum verkinu
nú í febrúar. Síðan höfum við ver-
ið í því að koma nýju vélunum
fyrir," sagði Þorvaldur í samtali
við Morgunblaðið. „Þetta eru um
100 tonn af tækjum sem við þurf-
um að koma fyrir og við reiknum
með því að allt verði klappað og
klárt eftir mánuð. Eins og áður
munum við fyrst og fremst fram-
leiða innihurðir, loftplötur og þilj-
ur, en í talsvert stærri stíl. Við
komum til með að geta afgreitt
stærri pantanir á miklu skemmri
tíma, en það bætir samkeppnis-
aðstöðu okkar til muna. En við
höfum líka hugsað okkur að fara í
auknum mæli út í nýja fram-
leiðslu, til dæmis á massífum
fulningahurðum og spónlögðum
plötum. Síðan stendur til að reyna
að framleiða parket, fyrstir á ís-
landi. En það verður þó ekki kom-
ið á markað fyrr en í fyrsta lagið
haustið 1984.“
Hjá Trésmiðju Þorvalds Ólafs-
sonar starfa 14 manns, en þessa
dagana eru um 6—7 manns að
vinna við uppsetningu á nýju vél-
unum.
Þorvaldur Ólafsson trésmíðameistari ( nýja vélasalnum.
Unnið að uppsetningu nýju vélanna.
Trésmiðja Þorvalds Ólafssonar framleiðir mikið af innihurðum. Á
myndinni er bróðir Þorvalds, Karl Emil Ólafsson.
Stykkishólmur:
Mikill einhugur á fundi
sjálfstæðismanna
Slykkishólmi, 28. marz.
KOSNINGABARÁTTA sjálfstæð-
ismanna í Vesturlandskjördæmi er
hafin. Hún hófst með fundi í Stykk-
Borgarnes:
Nýju veggjaldi
mótmælt
Borgarnesi, 28. marz.
Á AÐALFUNDI fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í Mýrasýslu
sem nýlega var haldinn í Borgar-
nesi var samhljóða samþykkt að
mótmæla álagningu nýs vega-
skatts á bifreiðaeigendur sem nú
mun fyrirhugað að gera með
bráðabirgðalögum.
ishólmi sl. róstudagskvöld. Þar
mættu þrír efstu menn á lista flokks-
ins, Friðjón Þórðarson, Valdimar
Indriðason og Sturla Böðvarsson.
Héldu þeir framsöguræður og
ræddu hin almennu viðhorf í
kosningunum sem eru framundan.
Margar fyrirspurnir voru gerðar
sem þeir svöruðu greiðlega. Fund-
urinn sem var mjög fjölmennur,
og með fjölmennustu fundum sem
verið hafa í Stykkishólmi um
lengri tíma, sýndi mikið traust
sem Friðjón Þórðarson og þessir
fulltrúar eiga í Hólminum. Virtist
mikill einhugur ríkja á fundinum
og er óhætt að segja að kosninga-
baráttan í Vesturlandskjördæmi
hafi farið vel af stað.
Fundir voru svo um helgina í
Grundarfirði og út um nes, í Búð-
ardal og á Akranesi.
NÚ ER KOMIÐ AÐ
AÐALVINNINGI
ÁRSINS
DREGINN ÚT 6. APRIL
Húseign að eigin vali fyrir Happdrætti
eina milljón
Langstærsti vinningur
á einn miða hérlendis.
Nú má enginn gleyma að endurnýja!
Söluverð lausra miða 480r krónur.
HBj.
— Árni