Morgunblaðið - 31.03.1983, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1983
73
Spjallað við Víglund Möller, ritstjóra Veiðimannsins
Róið yfir Breiðuna.
þvældust'þeir Srfiundur og Jón á
bátnum á eftir. Ég fór síðan að
kasta á Höfðabreiðuna og setti
þar í lax. Þegar ég var nýbúinn að
setja í fiskinn, sá ég að þeir félag-
ar fyrir neðan misstu stóra laxinn.
Ég var í þeirri aðstöðu að ég hefði
bókstaflega ekkert getað gert ef
laxinn hefði hlaupið niður ána, —
þeir Sæmundur voru langt niður
með á á bátnum. Ég held að ég
hafi aldrei verið eins hræddur um
að missa fisk og ég var þarna,
enda í slæmri aðstöðu. Þetta var
fyrsti laxinn sem ég fékk í Laxá og
hann reyndist ekki erfiður þrátt
fyrir allt. Hann var 16 pund að
þyngd, en ég hélt fyrst að þetta
væri einhver óskapaskepna! Síðari
hluta dagsins fór ég síðan að veiða
fyrir svokölluðu Tjarnarlandi, en
þar er veiðistaður sem heitir
Tjarnarhólmi. Þar setti ég í 23
punda lax, stærsta laxinn sem ég
hef veitt. Það var ekkert sögulegt
við þá viðureign, hún stóð í um
það bil hálfa klukkustund. Hins
vegar var mikið slý og gróður við
landið og fór laxinn inn í þetta og
gat hann eftir það sig lítið hreyft.
Þurfti ég að vaða langt út í ána til
þess að ná honum. Ég var nú ekki
betur að mér á þeim tíma að áætla
stærð laxa, að ég hélt að þessi lax
væri miklu stærri en hann var! En
þetta er stærsti laxinn sem ég hef
ólafur Þorsteinsson læknir á
Siglufirði, en nú er raunar Hákon
sonur hans að taka við af honum,
og einnig er eftir Kolbeinn Jó-
hannsson.
Víkur nú enn talinu að veiðum
Víglundar og er hann spurður um
skemmtilegar veiðisögur.
Missti þá stærstu
Ég hef lent í átökum við stóra
laxa í Laxá í Aðaldal og misst þá
stærstu og það eru tveir laxar sem
ég man sérstaklega eftir. Annar
laxinn tók á veiðistað sem heitir
Vitaðsgjafi. Við vorum saman í
bát, ég og Steingrímur heitinn í
Nesi, sem oft var með veiðimönn-
um við ána. Síðan setti ég í lax og
brást fiskurinn þannig við að
hann hreyfði sig ekkert iengi vel.
Við Steingrímur fórum þá á bátn-
um yfir ána og reyndum með
ýmsu móti að lempa fiskinn af
stað, en hann hreyfðist ekki. Fór-
um við þá aftur í bátinn og á end-
anum tókst að fá laxinn af stað.
Og það var enginn smá sprettur
sem fiskurinn tók. Hann var alveg
bandvitiaus. Laxinn henti sér í
háaloft hvað eftir annað. Við
Steingrímur létum sakka á eftir
laxinum, þar sem hann fór niður
ána, en þá strikaði laxinn aftur
upp og gekk á þessu um hríð. Enn
tók fiskurinn sprett, nú niður ána
og ég held að viðureignin hafi
staðið með þessum hætti í um þrjú
kortér, en þá datt flugan úr hon-
um og virtist fiskurinn þá ekkert
þreyttur. Steingrímur sagði mér
að þessi fiskur hefði ábyggilega
verið um 30 pund, en hann var
glöggur á stærð fiska í Laxá. Þess-
um fiski sá ég mikið eftir, en ég
held að þetta sé sá stærsti fiskur
sem ég hef sett í.
Hin sagan gerðist á stað sem
heitir Höfðahylur, en hann er
nokkuð fyrir ofan stað sem heitir
Núpabreiða. Þar er yfirleitt veitt
af báti. Vorum við saman, ég og
frændi minn Gunnar Möller. Ég
setti þarna í lax á maðk og rauk sá
niður ána, en slíkt er slæmt á
þessum veiðistað. Við létum damla
á eftir í bátnum og fórum í land á
eyju sem er fyrir neðan veiðistað-
inn. Þá gerði laxinn mér þann
grikk að strika aftur upp í hylinn,
en á leiðinni er stórgrýtt og festist
línan á steini og sargaðist sundur.
Þessi fiskur stökk á meðan á við-
ureign okkar stóð, en hann var
tæplega eins stór og hinn laxinn,
kannski á milli 25 og 30 pund að
þyngd.
Sá stærsti 23 pund
Hvað var „sá stærsti" stór?
Ég hef fengið stærstan lax í
Laxá 23 punda og var hann á flugu
og fékk ég laxinn raunar fyrsta
daginn sem ég var á veiðum í ánni.
Þennan dag var ég með Sæmundi
Stefánssyni og með okkur var
maður sem kallaður var Jón kokk-
ur. Við vorum við veiðistað sem
heitir Höfðahylur. Þeir Sæmund-
ur og Jón kokkur fóru á bát yfir
ána og setti Sæmundur þar í
feiknastóran lax á Höfðabreið-
unni, næsta veiðistað fyrir ofan.
Það fór á sama veg með þann lax
og fiskinn sem ég sagði frá áðan
þarna, hann strikaði niður ána og
veitt, enn hefur mér ekki tekist að
ná á land stærri laxi en 23 punda.
Englendingurinn Leverson
og 30 punda laxinn
Þér eru væntanlega einhverjir
menn og einhver atvik sérstaklega
minnisstæð?
Mér eru margir minnisstæðir og
þeirra á meðal má nefna bræð-
urna Sæmund og Kristin Stef-
ánssyni og einnig má geta Guð-
mundar frá Miðdal. Guðmundur
veiddi vel og eitt sinn fékk kona
hans 30 punda lax í Laxá. Guð-
mundur var mjög duglegur við
veiðarnar og hann og ósvaldur
Knudsen veiddu oft vel í Laxá. Það
var sérstakt við Guðmund, hvað
hann veiddi mikið af stórum löx-
um. Það er eins og þeir stóru leiti
uppi sérstaka menn. Það er sfður
að maður geti talið það tilviljun,
þegar sömu mennirnir fá alltaf
stærri fiska en aðrir. Þegar ég segi
þetta, þá dettur mér í hug saga af
Englendingi, Leverson að nafni,
en hann kom hingað upp í sam-
bandi við Milward’s veiðivörufyr-
irtækið. Hann veiddi í Laxá þessi
Leverson og það hafði verið hans
lífsdraumur í veiðiskap að fá 30
punda lax og miðaði hann þá auð-
vitað við ensku pundin! Svo gerð-
ist það að hann veiddi lax í
Kirkjuhólmakvíslinni, sem er í
Neslandi, en hann var ekki með
pundara og var því ekki hægt að
vikta laxinn fyrr en heima í húsi.
Þar voru skiptar skoðanir um
hvort laxinn næði 30 enskum
pundum og hvísluðust sumir á um
það hvort þeir ættu að setja upp í
íaxinn dálítinn stein, til þess að
koma honum upp í 30 pundin. Það
varð ekki úr því, — en laxinn náði
30 pundum enskum. Þetta var
óskaplega mikill gleðidagur hjá
karlinum og skrifaði hann síðar
hingað til íslands og lét þess getið
að það síðasta sem hann hugsaði
um á kvöldin væri Laxá í Aðaldal
og þessi 30 punda lax!
Ætla aftur í sumar
Það er ekkert lát á þér við veið-
arnar?
Ég veiddi síðast 1 fyrra og ætla
aftur í sumar, ef ekkert óvænt
kemur upp á. Annars fer maður
nú að hægja á sér, en ég fer nú
minna en ég gerði áður fyrr. í ár á
ég veiðileyfi í Laxá í Aðaldal, auk
tveggja hálfra daga í Élliðaánum.
Ég sótti ekki um annað hjá
Stangaveiðifélaginu. Ég hef lengi
veitt í Elliðaánum, en veiðin þar
hefur orðið minna eftirsóknarverð
eftir því sem byggðin hefur færst
neðar á bakkana.
Ég hef veitt lengi í Laxá í Aðal-
dal og er mér farið að þykja mjög
vænt um ána, þetta er orðið að
eins konar átthagatryggð hjá mér.
Náttúra.i við ána er svo falleg, áin
er falleg og undir þessum kring-
umstæðum sætti ég mig vel við
það að veiða ekki alltaf mikið.
Veiðihópurinn okkar við Laxá er
mjög samstilltur og skemmtilegur
og þar hafa myndast sterk vin-
áttubönd, sem gera veiðarnar enn
eftirsóknarverðari.
Þú er semsagt ekkert að hætta?
Ég veit ekki, en ég geri ráð fyrir
að það fari nú að styttast í þessu
senn hvað líður, en ég vil þó ekki
láta mig á meðan heilsan enn er
sæmileg.
hátt. Hann króaði af hrók and-
stæðingsins í miðtafli:
Svart: Oll
Hvítt- Jón L Árnason
24. Rg3! — Hxh2, 25. Dxh2 —
hxg3, 26. Dh3 — f5, 27. Dxf5 —
Hg5, 28. Dh3 - Rc4, 29. Hgl —
Db6, 30. Rb3 — Re3, 31. Hdel —
Rf5, 32. Hgfl — g2, 33. Hgl —
Dd8, 34. Hxg2 - Hxg2, 35. Dxg2
— Dxd7, 36. Dh3 og svartur gafst
upp.
Uppgjör ungu Eistlend-
inganna var lengi í járnum, en í
þessari stöðu hafði svartur rétt
lokið við að leika af sér með 27.
— Bd7-g4? Þetta notfærði hvít-
ur, Ehlvest, sér skemmtilega:
Svart: Oll
Hvítk Ehlvest
28. e5! — dxe5, 29. fxe5 — Dh6
(Eftir þetta ræður hvíta peða-
sóknin úrslitum, en auðvitað
gekk 29. — Hxe5 ekki vegna 30.
Dxg4)
30. Hdel — Bh3, 31. Bxh3 —
Dxh3, 32. Dxa6 - Hb2, 33. H3e2
— Hb3, 34. Da4 — Heb8, 35. e6!
— fxe6, 36. dxe6 — Dh5, 37. e7 —
De8, 38. Dc4+ — Kh8, 39. HÍ2 og
svartur gaf.
TALLINN 1983 TIT- ILL STi& 1 1 3 H 5 (o 7 8 9 10 11 n 13 1H 15 vm RÓB
\ TAL (SovítríVj) SM l<o20 É 'ít '/t 'lt 1 4 •h 1 \ /z \ 'h O 'h 'fz 40 1-1
1 VAG-ANTANCSv.) SM 1550 'h {2/1 'ít L •tt 0 •Á •h 'h 4 /z h 1 \ \ \ 10 1-1
3 ?ÍTROSIAN(Sov.) SM 1(05 'h ‘/t 1 h 'k tz /z ít 'h 'h \ •h 'h \ 'h 1 9 3-5
H EHLVESTCSovtú) AM IHbC /t 0 'h ÉÉ 0 1 1 'h 0 'h 'h •h \ \ i \ 9 3-5
5 S UBA (Rúfmttuu) S M 2535 o /t Vt 1 1 1 'h •h \ O /z 'tz \ Zz h \ 9 3-5
(o TANSA (Tékkósl) S M 1HH0 0 \ 'tz 0 0 0 ,0 'tz \ \ \ •h \ /z i •h S'í é
? OLL (Sovttf'ikjunt/tm) M 15(5 0 'ít /t 0 'ft I 1 •h O 'h /l /z \ h i 9 T
8 AbRAmVIC(Túgí) AH 2V?5 'k 'lt '/t /t '/z 'h 0 i 'h 'h \ i Q o •h \ Vz 8-9
PSA KHISCSovéir.) SM 2580 o 'lt 'tz i 0 0 'h 'h ///. ///' \ 0 Zz O i i 1 7 /z 8-9
10 TÓN L. 'ARNASON AM 1%C 0 0 1t 'h 1 0 \ 'h 0 'h h •h i h /z 7 10-H
1i VEINGOLD (Sovétr) M IH5Ö ’/t 'tl 0 tz •ft 0 'h 0 \ h 1 /z h •h i h 7 10II
11 SlEKEL YCUnqví) AH 2 V35 0 'tt h /z 'h h 'h 0 'h •h •h % h h h •h (o'/z 12-/3
13 schusslerCMN) AM 2H85 'tt 0 'h 0 0 o 'h \ i 'h h 'h /77 // h h •h h'h. 12-/3
1H KÁRNER (Sovi.tr) AM 2H05 0 O 0 /t 'h 0 \ 0 0 •h /z 'h i •h 1 19
15 BÖN5CH (A-t>ýtk) AM 1H50 'ít 0 'lz 0 /z 0 •h 'h 0 •h 0 'h h h W7/ v7/( \ sh 15
16, NEI (Sovét/i kji/oum AM \2HH5 /t a O 0 Ql 'tt 0 0 0 'h •h 'h •h a 0 i 3 /6