Morgunblaðið - 31.03.1983, Síða 30
78
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1983
Islenskir
sagnaþættir
Bókmenntír
Jóhann Hjálmarsson
ÍSLENSKIR SAGNAÞÆTTIR.
1. bindi.
Safnað hefur
Gunnar S. Þorleifsson.
Kápa og teikningar:
Gunnar S. Þorleifsson.
Bókaútgáfan Hildur 1982.
Eitthvað hefur fækkað þeim
bókum sem innihalda þjóðlegan
fróðleik og er það til marks um
áhuga sem blossar upp, en getur
ekki verið jafn brennandi enda-
laust. Þó er enginn hörgull á slík-
um bókum á jólamarkaði, enda
vinsælar. Meðal þeirra sem sinnt
hafa þjóðlegum fróðleik er Gunn-
ar S. Þorleifsson bókaútgefandi. í
hitteðfyrra sendi hann frá sér
eina slíka bók og nú er komið frá
hans hendi fyrsta bindi íslenskra
sagnaþátta. Þetta er efni af ýmsu
tagi eins og kaflafyrirsagnir eru
til vitnis um: Náttúruhamfarir,
Einkennilegir menn, Sagnir af
Tyrkjaráninu, Sagnir af- útilegu-
mönnum og Þjóðsagnaþættir.
Um þessa bók er fátt annað en
gott að segja, en þó þykir mér
brýnt að prófarkalestur verði
nákvæmari í næstu bindum.
f Sögnum af útilegumönnum er
dregin upp raunsönn mynd, sfst af
öllu rómantísk eins og hjá Jóhanni
Sigurjónssyni í Fjalla-Eyvindi.
Lýsing frá 1765 á Eyvindi er þol-
anleg nema hvað hann er „bólu-
grafinn, toginleitur, efri vör nokk-
uð þykkari“, en Halla virðist ekki
hafa verið nein fegurðargyðja eft-
ir sömu lýsingu að dæma:
„Lág og fattvaxin, mjög dimm-
lituð í andliti og á höndum, skoi-
eygð og brúnaþung, opinmynnt,
langleit og mjög svipill og ógeðs-
leg, dökk á hár og smáhent og
grannhent, ólesandi, brúkar ekki
tóbak.“
Eitthvað jákvætt kom þó í lokin.
Gunnar S. Þorleifsson
Halla fékk ekki að liggja í vígðri
mold og dysjaði Eyvindur hana í
mýrlendi. Hann lést skömmu síðar
og var einnig dysjaður hjá Höllu.
Grunnavíkurprestar töldu að þau
væru best geymd utangarðs. Ar-
nes var aftur á móti notaður við
smíðar þegar dómkirkja var byggð
í Reykjavík, en heimili hans var
tugthúsið.
I fslenskum sagnaþáttum rek-
ast menn á fátt nýtt úr sögu þjóð-
arinnar. Gunnar S. Þorleifsson
Fyrirliqqjandi í birgðastöð
GALVANISERAD
ÞAKJÁRN
Lengdir: 1.8 - 4.0 metrar
Bjóðum einnig lengdir að ósk kaupenda,
alltað 12metrum.
KJÖLJÁRN
lengd 2 metrar - tvær breiddir
SINDRAi ÍÉJ .STÁLHF
Borgartúni 31, sími: 27222
kýs að halda sér að mestu við stað-
reyndir og ritar heimildir. Langt
mál er til dæmis um mannfelli og
harðindi fyrir hundrað árum og
rifjaðar eru upp ýmsar heimildir
um Tyrkjaránið fyrir þrjú hundr-
uð og fimmtíu árum. Drjúg reyn-
ist Reisubók Ólafs Egilssonar.
Kaflinn um einkennilega menn
er skemmtilegur aflestrar, en höf-
undar eru Oddur Oddsson, Jón
Björnsson, Sveinn frá Elivogum,
Björn Guðmundsson, Jón Jóhann-
esson og Páll Þorkelsson.
Athyglisverðir eru einnig
Sagnaþættir um Jóhannes
Sveinsson eftir Magnús F. Jónsson
og Sagnaþættir um Þórð bónda í
Neðra-Sumarliðabæ eftir Kristínu
Ólafsdóttur. Jóhannes var maður
svaðilfara, lét ekki verstu veður
buga sig eða tefja. Þórður var
ferjumaður, kraftamaður mikill
og sérkennilegur í háttum.
Eins og svo oft áður þegar um er
að ræða þjóðlegan fróðleik eru lýs-
ingar á einstaka mönnum líklegri
til að miðla lesandanum vitneskju
um liðna tíð en ýmsar sagnfræði-
legar heimildir þótt góðar séu.
Myndskreytingar Gunnars S.
Þorleifssonar sýna að honum er
fleira til lista lagt en safna þjóð-
legum fróðleik og gefa út bækur.
Best þykir mér Tyrkjamyndin á
bls. 147; það er í henni sú ótamda
villimennska sem við ímyndum
okkur að hafi einkennt þessa
serknesku víkinga.
eigendur
Pústkerfín eru
ódfrust hjá okkur
Hjá okkur fáið þið orginal pústkerfi í allar
gerðir Mazda-bíla.
Isetningarþjónusta á staðnum.
BÍLABORG HF
Smíðshöföa 23
Símar: Verkstæði 81225 —Varahlutir 81265
Áskriftarsíminn er 83033
Amerískur
- ogum þad þarf ekki fleiri orö.
Fullt verð kr. 432.132.-
Sérstakur afsláttur af árg. 1982 77783.-
gengi 01.03. '83
354.349.-
JÖFUR
HF
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600
Framdrif - Vél 2200cc - Sjálfskipting - Aflstýri
Aflhemlar - Hituð afturrúða - Electronisk kveikja
Deluxe innrétting - Litað gler - Hallogen framljós