Morgunblaðið - 31.03.1983, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1983
79
Björgunarsveit Ingólfs:
Sveitin sinnti
tugum útkalla
á síðasta ári
— sum stóðu sólarhringum saman
AÐALFUNDUR slysavarnadcildarinnar Ingólfur í Reykjavík var haldinn 24.
febrúar sl. Á fundinum kom fram að starfsárið 1982—1983 var mjög anna-
samt hjá deildinni og þó einkum hjá björgunarsveit hennar, sem alls var
kölluð út 28 sinnum á árinu, til leitar- og björgunarstarfa, og stóðu sum
útköllin sólarhringum saman.
Félagar í Ingólfi eru nú á öðru
þúsundi, en í björgunarsveitinni
eru 80 fullgildir félagar auk vara-
manna. Lögð hefur verið áhersla á
þjálfun björgunarsveitarmanna
og að þeir hefðu yfir sem bestum
búnaði að ráða. Má m.a. geta þess
að sveitin hefur sent nokkra
björgunarmenn til æfinga erlendis
hjá hliðstæðum samtökum.
Á síðasta ári bættist björgun-
arsveitinni sérstakur hópur
manna sem ræður yfir sérþjálfuð-
um leitarhundum. í flokknum er
14 manns og binda Ingólfsmenn
miklar vonir við þátttöku þessa
flokks í leitar- og björgunarstörf-
um, en flokkurinn æfir reglulega
tvisvar til þrisvar í viku.
Margvísleg tæki bættust björg-
unarsveitinni á starfsárinu, þar á
meðal beltabíll, og á hún nú tvo
slíka, en tækjabúnaður sveitarinn-
ar sannaði gildi sitt í veðurofsan-
um sem gekk yfir landið í desem-
ber og janúar sl. Einnig eignaðist
björgunarsveitin 22 manna fólks-
bíl á síðasta ári og er hann notað-
ur til flutninga á björgunarsveit-
armönnum til æfinga-, leitar- og
björgunarstarfa.
Sjóflokkur björgunarsveitarinn-
ar annast rekstur björgunar-
bátsins Gísli J. Johnsen og hefur
jafnframt yfir að ráða nokkrum
slöngubátum, fluglínutækjum,
fjarskiptabúnaði og köfunarbún-
aði, en innan flokksins eru starf-
andi margir froskkafarar.
Langflestum útköllum var sinnt
af landflokki sveitarinnar og þótt
flest þeirra væru á höfuðborgar-
svæðinu, þá voru sum þeirra utan
af landi, frá Öræfasveit og allt
vestur til Patreksfjarðar. Sjó-
björgunarsveit sinnti einnig fjölda
útkalla á árinu og er löngu búin að
sanna höfuðborgarbúum mikil-
vægan tilverurétt sinn.
Allt starf í Ingólfi er sjálfboða-
starf og hefur deildin fjármagnað
starf sitt, rekstur og viðhald
björgunartækja, með sölu merkja,
happdrættismiða og jólatrjáa.
Borgarbúar hafa alla tíð sýnt
starfinu skilning og áhuga og
styrkt það stórlega. Slysavarna-
deildin Ingólfur þakkar heilshug-
ar öllum velunnurum veittan
stuðning á liðnum árum.
Næsta merkjasala Ingólfs fer
fram dagana 6. og 7. maí. Þess má
geta að á undanförnum árum hef-
ur söluhæstu börnunum verið boð-
ið í hálfsdags ferð til Viðeyjar, þar
sem þeim hefur verið kynnt saga
og sérkenni eyjarinnar og þeim
veittur nokkur viðurgjörningur. Á
síðasta ári voru það Sláturfélag
Suðurlands, Brauðgerð Mjólkur-
samsölunnar og Verksmiðjan Víf-
ilfell sem lögðu fram efni til veit-
inganna í Viðey.
Þá má geta þess að allra sölu-
hæstu börnunum var gefin bókin
Landið þitt, ísland, 2. bindi, og
þau sem verða söluhæst í maí nk.
fá þriðja bindi þessa bókaflokks.
Björgunarsveit Ingólfs hefur nú
aðsetur á tveimur stöðum. Sjó-
flokkurinn er á fyrstu hæð í húsi
Slysavarnafélagsins á Granda-
garði, en landflokkurinn í Gróu-
búð sem einnig er á Grandagarði.
Starfsemin hefur aukist svo mikið
á síðustu árum að húsnæðis-
þrengsli eru farin að segja alvar-
lega til sín. Á síðasta ári sótti Ing-
ólfur því um lóð hjá borginni og
fékk mjög jákvæðar undirtektir
borgaryfirvalda. Málin eru á
frumstigi og fara nú fram viðræð-
ur milli Ingólfsmanna og borgar-
yfirvalda um frekari útfærslu
þeirra. f því tilefni bauð Ingólfur
borgarstjóra og borgarráði að
kynnast starfseminni nánar og
naut heimsóknar þeirra þriðju-
daginn 22. mars. Skoðaði borgar-
ráð aðstöðuna bæði í Gróubúð og í
Slysavarnafélagshúsinu, svo og
tæki sveitarinnar og allan útbún-
að. Við það tækifæri gerðu þeir
Örlygur Hálfdanarson, formaður
Ingólfs, og Engelhardt Björnsson,
formaður björgunarsveitarinnar,
nána grein fyrir uppbyggingu og
daglegum störfum en Davíð Odds-
son, borgarstjóri, lýsti áhuga
borgaryfirvalda fyrir vexti og við-
gangi Ingólfs og þakkaði björgun-
arsveitinni óeigingjarnt starf í
þágu samborgaranna. Haraldur
Henrýsson, forseti SVFÍ, ávarpaði
einnig gestina, minntist hann sér-
staklega starfa Gróu Pétursdótt-
íscross á Húsavík:
Norðanmenn í
verðlaunasætunum
NORÐANMENN sönnuðu það í ís-
cross-keppni á Húsavík á sunnudag-
inn, að þeir eiga fjöldan allan af
efnilegum rallökumönnum. Sigur-
vegari varð Húsvíkingurinn Stein-
grímur Ingason á Datsun 1800, eftir
mikla keppni við Akureyringinn
Auðun Þorsteinsson, sem ók Escort.
Þriðji var Akureyringurinn Eric
Carlsen á Fiat.
Aksturshæfni norðanmannanna
tveggja, Steingríms Ingasonar og
Auðun Þorsteinssonar var undra-
verð og slógu þeir sunnanmennina
Þórð Valdimarsson og Kristin
Svansson alveg útaf laginu. Áttu
tveir þeir síðarnefndu í erfiðleik-
um vegna bilana. Þrjár umferðir
voru eknar fyrir úrslit og í undan-
úrslit komust fjórir bílar. Datsun
Kristins Svanssonar var sneggst-
ur þeirra og vann hann sér rétt til
keppni í úrslitum. Auðunn Þor-
steinsson náði forystu á Escort
sínum, en Datsun Steingríms
Ingasonar fylgdi fast í kjölfar
hans. Um síðir komst Steingrímur
framúr Auðni, en þá var vélin í
Escort Auðuns farin að gefa sig.
En akstursmáti Steingríms og
Auðuns var það sem kom blm.
mest á óvart. Hyggja þeir á þátt-
töku i röllum sumarsins og verða
örugglega í baráttunni um verð-
launasætin, en búnaður bílanna
verður góður. Eric Carlsen kom
þriðji í mark eftir öruggan akstur,
en Kristinn Svansson varð í fjórða
sæti og heldur forystunni í ís-
landsmeistarakeppninni í íscrossi.
Staðan í Islandsmeistarakeppn-
inni er hér að neðan.
1. Kristinn Svansson, Datsun, 37
stig, 2. Þórður Valdimarsson, VW,
28 stig, 3. Birgir Bragason, Skoda
RS, Magnús Baldvinsson, BMW,
og Steingrímur Ingason, Datsun,
allir 20 stig, 6. Jón Ragnarsson,
Volvo, og Auðunn Þorsteinn, Es-
cort 15 stig. G.R.
ur, fyrrum borgarfulltrúa, að mál-
um Slysavarnafélagsins en hún
var í forystusveit þess um árabil.
Björgunarstöð Ingólfs á Granda-
garði, Gróubúð, ber nafn hennar.
Kristján Hall sem verið hefur
formaður Slysavarnadeildarinnar
Ingólfur sl. tvö ár lét af störfum á
síðasta aðalfundi að eigin ósk. Þá
gengu einnig úr stjórninni þeir
Sigurður Sveinsson, Þórður Henr-
iksson, Logi Runólfsson og Reynir
Gíslason. Voru þeim öllum færðar
miklar þakkir fyrir óeigingjörn
störf í þágu deildarinnar af for-
seta Slysavarnafélags íslands,
Haraldi Henrýssyni, sem var
fundarstjóri á aðalfundi.
f stjórn deildarinnar voru
kjörnir fyrir starfsárið
1983-1984:
Örlygur Hálfdanarson, formað-
ur, Brynjólfur Þór Brynjólfsson,
varaformaður, Björn Vernharðs-
son, gjaldkeri, Jens Ágúst Jóns-
son, ritari, Páll Fransson, með-
stjórnandi, Þorvaldur Þorvalds-
son, meðstjórnandi, Gunnar Karl
Guðjónsson, meðstjórnandi, Skúli
ólafsson, meðstjórnandi, og Sig-
Borgarstjóri, borgarráð og nokkrir
starfsmenn borgarinnar ásamt
Slysavarnafélagsmönnum fyrir
framan Gróubúð, björgunarstöð
björgunarsveitar Ingólfs í Reykja-
vík.
urður Guðmarsson, meðstjórn-
andi.
Endurskoðendur voru kjörnir:
Pálmi Arason, og Böðvar Ás-
geirsson. í stjórn sjóðs Tómasar
Hjaltasonar var kjörinn Logi
Runólfsson.
hefur hafiö sölu á
TITAN
vinnufatnaöi
frá Belgjageröinni
VELJUM
ÍSLENSKT
- VELJUM
TITAN
Byggingavöruverzlun
Kópavogs
Nýbýlavegi 6, sími 41000.