Morgunblaðið - 10.04.1983, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 10.04.1983, Blaðsíða 16
60 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. APRÍL 1983 SAFNARAR Hafði snemma gaman af að fara á söfn „Það er nú ekki alitaf gott að segja til um það eftir á, hvenær áhugi manns kviknar á einhverju sérstöku efni,“ sagði Sigmar, „en ég hafði snemma mjög gaman af að fara á söfn og skoða það sem þar var að finna af gömlum mun- um, og það hefur líklega verið upphafið að þessu hjá mér. Eigin- lega söfnun hóf ég hins vegar ekki fyrr en löngu síðar, og það hefur verið fyrir eitthvað sextán eða sautján árum, að ég fer að fá fyrstu hlutina í safnið, sem nú er orðið þetta stórt. Þessa fyrstu hluti fékk ég norður á Langanesi, þar sem tengdafaðir minn bjó. Hann hélt hlutum talsvert til haga, og var auk þess hagur vel og smíðaði mikið sjálfur." — Og safnið hefur þú allt hér á verkstæðinu eða hvað? „Það er mest allt hér já, en þó er einnig talsvert af gripum heima, einkum þeir stærri sem verra er að koma fyrir hérna. Þetta hefur vaxið það mikið að það þarf tals- vert rými, bæði hef ég verið dálítið með augun opin fyrir gömlum hlutum, og svo koma nú í seinni tíð margir með hluti til mín, fólk sem hefur frétt af safninu hjá mér.“ Opinn fyrir öllum hlutum frá fyrri tíö — Hvar setur þú mörkin þegar um er að ræða gamla hluti, hve- nær verður hann nógu gamall til að öðlast gildi eða kveikja áhuga þinn sem forngripur? „Það er nú breytilegt, en í heild hefur verið bannað við álaveiðar, og gamlan selskinnsskó, er átti Björn bóndi á Sóleyjarvöllum á Myndirnar tók Kagnar Axelsson. Hér er Sigmar með gamalt álajárn, sem nú Langanesi. Hlutir eru notaðir í dag, úreltir á morgun og safingripir hinn daginn Söfnunarárátta er flestum mönnum í blóð borin, þótt í mismiklum mæli sé. Frímerkjasafnarar eru til í flestum löndum, myntsafnarar einnig, margir safna eldspýtustokkum, jafnvel servíettum, aðrir vopnum, pípum, gömlum heiðursmerkjum, bókasafnarar og málverka eru þekktir um víða veröld og svo mætti lengi telja. Færri eru þeir, sem skipuleggja leggja stund á söfnun gamalla muna, þótt flestir hafi að einhverju marki áhuga á því sem tilheyrir liðinni tíð. Þeir eru þó til, sem hér á landi eiga allgóð söfn gamalla muna, jafnvel sumir svo að mörg byggðasöfn væru sæmd af. Einn þeirra er Sigmar Ó. Maríusson gullsmiður við Hverfisgötuna í Reykjavík, en hann á í sinni eigu um eða yfir 300 gamala muni, ekki beinlínis fornminjar, en þó í flestum tilvikum hluti sem fyrir löngu er hætt að nota til daglegs brúks, og sem ekki sjást á hvers manns heimiii. Blaðamaður leit við hjá Sigmari fyrir skömmu, og spurði hann hvernig hann hefði upphaflega fengið áhuga á söfnun gamalla hluta. hnífar voru til á hverju heimili fyrir örfáum árum, en þeir eru nú því sem næst horfnir vegna nýrra tveggja blaða eða þriggja blaða rakhnífa, sem eru komnir á mark- að. Ef til vill verður ekki langt þar til gömlu rakhnífarnir þykja merkilegir sem safngripir! Annar hlutur sem mér dettur í hug eru músagildrurnar, sem algengar hafa verið fram á þennan dag. Þær eru nú að hverfa, hygg ég, í sinni gömlu mynd, úr tré og járni, og þess vegna festi ég kaup á tveimur slíkum nýlega, er ég rakst á þær í verslun. Þannig mætti endalaust telja, allt í kringum okkur eru hlutir sem eru að ganga úr sér og hverfa, þeir eru notaðir í dag, orðnir úr- eltir á morgun og fáséðir safngrip- ir hinn daginn!" Fimm mismunandi gerðir tóbaksbauka og horna. Til vinstri eru tveir gripir er Sigmar hefur smíðaó, en þrír eldri gripir til hægri. er ég mjög opinn fyrir öllum göml- um hlutum, en auðveldasta og ef til vill eðililegasta skilgreiningin er líklega sú, að um leið og gripur hverfur úr daglegri notkun, þá er hann farinn að tilheyra liðinni tíð, og þá er stutt í að hann geti talist til gamalla og áhugaverðra gripa, þó orðið „forngripur" sé ef til vill ekki rétta orðið þegar á því stigi!“ — Geturðu nefnt dæmi um hluti sem um þessar mundir eru að hverfa eða eru nýhorfnir? „Já, það er auðvelt. Allt í kring- um okkur eru slíkir hlutir, en venjulega uppgötvar fólk ekki fyrr en of seint, að þeir eru að hverfa. Það má nefna rakhnífa i þessu sambandi. Hinir venjulegu rak- Rætt við 8ig- r mar (). Maríus son gullsmið um söfnun gamalla muna Nokkrir gamlir gripir: Hárkrullujárn eins og töng í laginu, blóðbíldur efst til vinstri, þá nál úr hvalbeini, vasapeli úr áli og hornhögld. Elsti gripurinn frá 1795 — En hver er elsti gripurinn í safninu hjá þér? „Það mun vera hefill frá því árið 1795, en síðan eru margir hlutir litlu yngri, og um aldur margra þeirra er raunar erfitt að fullyrða nokkuð með vissu. Sumt íslenskra smíðisgripa virðist geta varðveist í það óendanlega, svo sem þeir sem unnir eru úr hvalbeini, sem er sér- stakt fyrir Island, en það efni er nánast alveg óforgengilegt. Hval- beinsgripir geta varðveist öldum saman óskemmdir, margfalt leng- ur en hlutir úr tré eða járni." — Áttu aðeins einn hlut af

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.