Morgunblaðið - 23.04.1983, Page 11

Morgunblaðið - 23.04.1983, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1983 Höggmyndasýning í Listasafni íslands Lokaprófs- tónleikar í DAG, laugardag 23. apríl, þreyt- ir Kristinn H. Árnason gítarleik- ari lokapróf sitt frá Tónskóla Sig- ursveins D. Kristinssonar. Krist- inn er Reykvíkingur, fæddur árið 1963. 10 ára gamall hóf hann gít- arnám hjá Gunnari H. Jónssyni við Tónskólann, en kennari hans síðar varð Joseph Ka Cheung Fung. Á efnisskrá tónleikanna eru verk eftir Mundarra, Bach, Sor og Martin. Tónleikarnir hefjast kl. 18. í LISTASAFNI íslands stendur nú yfir höggmyndasýning á verkum eft- ir Ásmund Sveinsson, Einar Jónsson og Sigurjón Ólafsson. Auk þess eru i sýningunni ljósmyndir eftir einn þekktasta Ijósmyndara Bandaríkj- anna, David Finn, af höggmyndum listamannanna. Sýningin stendur til 15. maí og er opin um helgar frá 13.30 til 22.00 og virka daga frá 13.30 til 18.00. Eftir 1. maí veröur opid um helgar eins og áður, en síðan aðeins á þriðjudögum og fimmtudögum. 51 MIR-salurinn: Sovésk-finnsk kvikmynd NK. SUNNUDAG, 24. aprfl kl. 16, verður kvikmyndin „Trúnaður“ frá árinu 1977 sýnd í MÍR-salnum, Lindargötu 48. Mynd þessi er gerð í samvinnu fínnskra og sovéskra kvikmyndagerðarmanna. Leikstjóri er Viktor Tregúbovits, en með aðal- hlutverkin fara Kirill Lavrov sem leikur Lenin, Margarita Térekhova, Irina Miroshnitsenko og Viljo Sliv- - ola. Myndin greinir frá atburðum, sem gerðust í lok ársins 1917. í kjölfar Októberbyltingarinnar og með valdatöku bolsévika í Rúss- landi, Lenins og samstarfsmanna hans, fengu Finnar fyrirheit um fullt sjálfstæði, en Finnland hafði verið undir rússnesku keisara- krúnunni frá árinu 1803. Áður en sýningin á kvikmynd- inni hefst flytur Mikhaíl Dedjúrín sendifulltrúi stutt ávarp á ensku í tilefni afmælisdags Lenins, 22. apríl. Aðgangur að MÍR-salnum er ókeypis og öllum heimill. Gódandagmn! í dag kjósum við ©°listann Á S-listanum eru allar gerðir af SK0D/I ásamt hinum glæsilega nýja Skoda^APiD Verð frá kr. 111.600 Utankjörstaðapöntunum veitt móttaka í síma 42600 og að sjálfsögðu er kosningakaffi á könnunni. JOFUR HF Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Sími 42600

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.