Morgunblaðið - 23.04.1983, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1983
Höggmyndasýning í Listasafni íslands
Lokaprófs-
tónleikar
í DAG, laugardag 23. apríl, þreyt-
ir Kristinn H. Árnason gítarleik-
ari lokapróf sitt frá Tónskóla Sig-
ursveins D. Kristinssonar. Krist-
inn er Reykvíkingur, fæddur árið
1963. 10 ára gamall hóf hann gít-
arnám hjá Gunnari H. Jónssyni
við Tónskólann, en kennari hans
síðar varð Joseph Ka Cheung
Fung. Á efnisskrá tónleikanna eru
verk eftir Mundarra, Bach, Sor og
Martin.
Tónleikarnir hefjast kl. 18.
í LISTASAFNI íslands stendur nú
yfir höggmyndasýning á verkum eft-
ir Ásmund Sveinsson, Einar Jónsson
og Sigurjón Ólafsson. Auk þess eru
i sýningunni ljósmyndir eftir einn
þekktasta Ijósmyndara Bandaríkj-
anna, David Finn, af höggmyndum
listamannanna.
Sýningin stendur til 15. maí og er
opin um helgar frá 13.30 til 22.00 og
virka daga frá 13.30 til 18.00. Eftir 1.
maí veröur opid um helgar eins og
áður, en síðan aðeins á þriðjudögum
og fimmtudögum.
51
MIR-salurinn:
Sovésk-finnsk
kvikmynd
NK. SUNNUDAG, 24. aprfl kl. 16,
verður kvikmyndin „Trúnaður“ frá
árinu 1977 sýnd í MÍR-salnum,
Lindargötu 48. Mynd þessi er gerð í
samvinnu fínnskra og sovéskra
kvikmyndagerðarmanna. Leikstjóri
er Viktor Tregúbovits, en með aðal-
hlutverkin fara Kirill Lavrov sem
leikur Lenin, Margarita Térekhova,
Irina Miroshnitsenko og Viljo Sliv- -
ola.
Myndin greinir frá atburðum,
sem gerðust í lok ársins 1917. í
kjölfar Októberbyltingarinnar og
með valdatöku bolsévika í Rúss-
landi, Lenins og samstarfsmanna
hans, fengu Finnar fyrirheit um
fullt sjálfstæði, en Finnland hafði
verið undir rússnesku keisara-
krúnunni frá árinu 1803.
Áður en sýningin á kvikmynd-
inni hefst flytur Mikhaíl Dedjúrín
sendifulltrúi stutt ávarp á ensku í
tilefni afmælisdags Lenins, 22.
apríl. Aðgangur að MÍR-salnum er
ókeypis og öllum heimill.
Gódandagmn!
í dag kjósum við ©°listann
Á S-listanum eru allar gerðir af SK0D/I ásamt hinum glæsilega nýja Skoda^APiD
Verð
frá kr.
111.600
Utankjörstaðapöntunum veitt móttaka í síma 42600
og að sjálfsögðu er kosningakaffi
á könnunni.
JOFUR
HF
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Sími 42600