Morgunblaðið - 26.04.1983, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1983
15
sagt er. Á heildina litið eru 25
þingmenn úr Reykjavík og
Reykjaneskjördæmi á nýkjörnu
þingi en 35 úr dreifbýli og hefur
þetta hlutfall raskast þéttbýlinu í
óhag. Dreifbýlisöfl telja sig ekki
eiga mikla samleið með Alþýðu-
flokknum, af sex þingmönnum
hans eru fjórir úr þéttbýli. 10 af 23
þingmönnum Sjálfstæðisflokksins
eru úr þéttbýli. Bandalag jafnað-
armanna og Kvennalistinn eru
dæmigerðir þéttbýlisflokkar. Full-
trúar dreifbýlismeirihlutans í
þingflokki Alþýðubandalagsins
hafa ekkert látið til sín heyra að
kosningum loknum. Steingrímur
Hermannsson, formaður fram-
sóknar, iítur bæði til hægri og
vinstri.
Vandasöm stjórnarmyndun
yrir þá sem utan standa er lík-
lega ógerlegt að setja sig í
spor þeirra sem eru í forystu fyrir
vinstri flokkunum þegar þeir ræða
saman um stjórnmál. Þegar menn
líta til þess að í öllum þessum
flokkum eru menn í áhrifastöðum
sem setið hafa í svipuðum stöðum
í einhverjum hinna vinstri flokk-
anna, er auðvelt að komast að
þeirri niðurstöðu að þrátt fyrir
hugsjónatalið þá sé það einkum
valdaaðstaðan sem stjórni ákvörð-
unum þessara manna. Ýmsum
þykir því vafalaust eðlilegt að
þessir flokkar taki höndum saman
um stjórnarmyndun en til hennar
hafa þeir meirihluta og geta þrí-
flokkarnir valið á milli Bandalags
jafnaðarmanna og Kvennalistans.
Forseti fslands þarf ekki að fara
eftir neinum skrifuðum reglum
þegar hún ákveður hverjum hún
felur umboð til stjórnarmyndun-
ar. Áður en til ákvarðana um það
efni kemur þarf sú stjórn sem nú
situr að segja af sér. Forseti á
auðvitað að beita áhrifum sínum
til þess að flýta fyrir afsögn
stjórnarinnar eins og málum er
háttað. Verði stjórninni síðan fal-
ið að sitja áfram hefur hún að
sjálfsögðu ekki umboð til neinna
pólitískra ákvarðana svo sem í
efnahagsmálum. Það hlýtur auk
þess að verða tekin ákvörðun um
að kalla þing strax saman og þá
tapar stjórnin möguleikum til út-
gáfu bráðabirgðalaga. Miðað við
úrslit kosninganna mælir allt með
því að forseti feli Sjálfstæðis-
flokknum fyrst umboð til stjórn-
armyndunar. Óeðlilegt er að þann-
ig verði staðið að málum að allir
flokkarnir sex geti vænst þess að
þeir fái stjórnarmyndunarumboð.
Brenglaðar áherslur
Sjónvarp og hljóðvarp höfðu
mikinn viðbúnað vegna kosn-
inganna. Að mínu mati stóð hljóð-
varpið sig betur enda er það mun
lipurri miðill en sjónvarpið í til-
vikum sem þessum. Hins vegar get
ég ekki orða bundist um þau atriði
sem mest áhersla hvíldi á í frá-
sögnum fréttamanna af kosninga-
úrslitunum. í hvers umboði er það
ákveðið að Bandalag jafnaðar-
manna og Kvennalistinn séu sig-
urvegarar kosninganna? Verður
flokkur sigurvegari í kosningum
við að ná nokkrum mönnum á þing
án þess að hafa síðan umtalsverð
áhrif á gang mála? Mörgum
kappleikjum lýkur án þess að unnt
sé að tala um nokkurn sigurveg-
ara, þótt ýmsir nái góðum árangri.
Kvennalistinn og Bandalag jafn-
aðarmanna náðu vissulega góðum
árangri en það gerði Sjálfstæðis-
flokkurinn einnig á sögulega
mælistiku og miðað við umrótið
innan hans. Því fór þó víðs fjarri
að ríkisfjölmiðlamenn teldu
ástæðu til að halda þessu á loft.
Engu er líkara en þeir hafi talið
það sjálfsagt að Sjálfstæðisflokk-
urinn bætti stöðu sína.
Hitt var furðulegt að leggja mál
þannig upp í sjónvarpsumræðum
við efstu menn í Reykjavík, að
spurningin væri um það fyrir
flokkana hvort fylgi þeirra væri í
samræmi við skoðanakannanir
sem gerðar voru um það bil hálf-
um mánuði áður og ráðast síðan á
þessar kannanir eins og kosn-
ingarnar snerust um að vinna sig-
ur á þeim. Allt þetta tal um skoð-
anakannanir er dæmi um brengl-
aðar áherslur. Telji stjórnmála-
menn kannanirnar lýðræðinu
hættulegar geta þeir með ákvörð-
unum á alþingi bægt þeirri hættu
frá en að meta úrslit og lýsa yfir
„sigrum" í kosningum vegna þess
að niðurstaðan er önnur en í skoð-
anakönnunum er út í hött.
Kosningaúrslitin eru án niður-
stöðu. Á öðru var þörf á þeim al-
vörutímum sem nú eru. Ástæðu-
laust er að draga athyglina frá
þessari staðreynd með umræðum
um aukaatriði. í ríki sem skuldar
sem svarar til helmings þjóðar-
framleiðslu í útlöndum og þar sem
verðmætin brenna upp á grimmi-
legu verðbólgubáli skekkist allt
verðmætamat. Guðrún Agnars-
dóttir, þingmaður Kvennalistans í
Reykjavík, á þakkir skildar fyrir
að vekja máls á því í sjónvarpinu á
sunnudagskvöldið að fjölmiðlar
bera verulega ábyrgð á örlagarík-
um tímum eins og nú eru að hefj-
ast. Fjölmiðlaumræður um hin
viðkvæmustu mál i landsstjórn-
inni sem efnt er til á röngum for-
sendum brengla eðlilegar viðmið-
anir við mat á úrslitum kosninga
og brýnustu viðfangsefni. Nú hefst
fjölmiðlakapphlaupið um forsæt-
isráðherrastólinn.
Leigjendasamtökin:
Húsaleiga
hækki ekki
örar en al-
menn laun
AÐ GEFNU tilefnPvill stjórn
Leigjendasamtakanna ítreka, að
hin mikla hækkun vísitölu hús-
næðiskostnaðar 1. apríl sl. hefur
enn aukið á það neyðarástand sem
ríkt hefur hjá mörgum leigjend-
um.
Húsaleiga sem nemur meiru
en 10 þúsund kr. á mánuði fyrir
þriggja herbergja íbúð er augljós-
lega fjarstæðukennd og algerlega
óviðráðanleg leigjendum. Margir
leigjendur hafa svipaða upphæð
og þessu nemur í mánaðarlaun.
Það er grundvallarsjónarmið
Leigjendasamtakanna að húsa-
leiga skuli ekki vera hærri en visst
hlutfall launa og hækki ekki örar
en almenn laun.
Leigjendasamtökin hafa nýlega
látið reikna út þá kostnaðarleigu
sem setja þyrfti upp fyrir nýjar
leiguíbúðir sem byggðar væru með
sömu lánskjörum og verkamanna-
bústaðir njóta nú. Niðurstöður
þessara útreikninga eru þær að
slíkar íbúðir væri hægt að leigja
út gegn mjög sanngjarnri kostn-
aðarleigu, sem er langt undir því
sem nú er almennt tíðkað á mark-
aðnum. Leiga fyrir rúmgóða
þriggja herbergja íbúð í fjölbýl-
ishúsi þyfti t.d. aðeins vera kr.
3.025,00 á mánuði samkvæmt
þessu, segir meðal annars í frétt
frá Leigjendasamtökunum.
LÚXUS
ÞÆGINDI
AMERICfiN
EflGLE 4X4
American Eagle 4 x 4 er fyrsti ameríski fólksbíllirm með
fjórhjóladrifi. Þú skiptir milli drifs á 2 eða 4 hjólum með
einu handtaki, svokallað “select drive“. Innréttingin er
amerískur klassi, með öllum sínum íburði.
American Eagle sameinar kosti jeppa og fóíks-
bíls á mjög sannfærandi hátt. American Eagle
er lipur í innanbæjar akstri og eyðslugrannur
miðað við stærð.
American Eagle er fjölhæfur fjölskyldubíll. Fjórhjóladrifið
gerir fjallaferðina mögulega hvenær ársins sem er. American
Eagle er kraftmikill og traustur þegar mest á reynir. Ameri-
can Eagle 4 x 4 er valkostur þeirra sem vilja bíl fyrir íslenskar
_T, .. ,, _ . aðstæður.
Nu er orfaum Amencan
Eagle árg. 1982 óráðstaf-
að á aldeilis frábæru
verði. Við hvetjum þig til
að bera saman verð og
gæði á öðrum Amerísk-
um fólksbílum, — og þú
munt sjá að jeppinn er í
kaupbæti!!!
Stórlækkad verð frá
verksmiðjunum
aðeins
kr. 520.000z
Miðað við gengi í apnl 1983.
Fl American Motors
EGILL,
VILHJALMSSON HF
Smiðjuvegi 4. Kópavogi, s. 77200 og 77202