Morgunblaðið - 26.04.1983, Blaðsíða 42
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1983
Kóreu-maraþonhlaupið:
Síguróur Pétur 41. af
rúmlega 7.000 hlaupurum
„ÉG ER mjög svekktur yfir að
þurfa að hætta, er í góðri æfingu
og var að sækja í mig veörið þeg-
ar ég fékk slæman hlaupasting,
sem ég losnaði aldrei viö, þó svo
ég ýmist hægöi é mér og labb-
aöi,“ sagöi Sigfús Jónsson lang-
hlaupari úr ÍR í samtali viö Morg-
unblaöið í fyrradag. Sigfús tók í
fyrradag þátt í maraþonhlaupi í
Seoul í Suður-Kóreu ásamt Sig-
urði Pétri Sigmundssyni úr FH.
Sigurður varð í 41. sæti af rúm-
lega sjö þúsund hlaupurum á
2:33,24 stundum, en hann á ís-
landsmetið, sem er 2:27,05 stund-
ir.
Sigfús sagöi í samtalinu frá
Seoul aö hlaupiö heföi gengiö vel
framan af hjá þeim Siguröi Pétri.
Þegar hlaupiö var hálfnaö var milli-
• Sigurður Pátur Sigmundsson,
FH, stóð sig vel I Kóreu.
tími Sigfúsar 1:13 stundir og rúmar
1:12 stundir hjá Siguröi. „Ég var aö
bæta viö mig á þessu augnabliki,”
sagöi Sigfús, „en um 10 mínútum
seinna byrjaöi stingurinn."
Þegar Siguröur haföi hlaupið 30
kílómetra af 42, en þá var millitím-
inn 1:45,11 stundir, leit út fyrir aö
hann mundi bæta sig, en lokakafl-
inn reyndist honum erfiöur, eins og
lokatíminn gefur til kynna.
Sigurvegari í hlaupinu var
sænski hlauparinn Tommy Pear-
son á 2:16,01 stundum, sem er
nokkuö frá hans bezta, og sagöi
Sigfús þaö einkennandi fyrir
hlaupið aö allir útlendu keppend-
urnir heföu veriö talsvert frá sínu
bezta.
— ágás.
Snillingurinn Karl-Heinz Rummenigge, fyrirliði vestur-þýska landsliðsins í knattspyrnu, skoraði tvö af
mörkum liðsins gegn Tyrkjum á laugardag. Á þessari stórskemmtilegu mynd sést hann í baráttu við einn
varnarmanna Dortmund fyrr í vetur.
Rummenigge skoraði tvö mörk:
Góður leikur V-Þjóðverja
Vestur-Þjóöverjar sigruöu
Tyrki örugglega í Evrópukeppn-
inni í knattspyrnu i Izmir á laug-
ardaginn. Þjóðverjar skoruðu
þrjú mörk en Tyrkir ekkert.
Karl-Heinz Rummenigge skor-
aöi tvö marka Þjóöverja og Wolf-
gang Dremmler eitt. Báöir leika
þeir meö Bayern Munchen.
Rummenigge skoraöi fyrsta mark-
iö á 31. min. úr vítaspyrnu eftir aö
Rudi Völler haföi veriö felldur.
Dremmler skoraöi annaö mark-
iö meö þrumuskoti á 35. mín. og
Rummenigge skoraði þriðja mark-
iö á 71. mín. með föstum skalla
eftir sendingu Rudi Völler.
Hansi Muller og Bernd Schuster
léku saman á miöjunni hjá þjóö-
verjum og áttu báöir frábæran leik.
Hansi leikur meö Inter Milanó á
Ítalíu og Schuster meö Barcelona
á Spáni og greinilegt aö þeir eru
góöir saman. Áhorfendur voru um
70.000.
Þýska liðið var þannig skipað:
Schumacher (Köln), Strack (Köln),
Dremmler (Bayern), Karl-Heinz
Förster (Stuttgart), Briegel (Kais-
erslautern), Engels (Köln), Schust-
er (Barcelona), Muller (Inter Milan),
Littbarski (Köln), Völler (Bremen),
Bikarkeppni HSÍ:
Mætast lið KB og
Víkings í úrslitum?
TVEIR LEIKIR fara fram í kvöld í 4-liða úrslitum í bikarkeppni HSÍ. KR
og Valur leika í Laugardalshöllinni kl. 20. Þar má búast við hörkuleik
en þó veröur liö KR aö teljast sigurstranglegra. Sigri KR, þá er liðið
búiö að tryggja sér rétt til þátttöku í Evrópukeppninni í handknattleik
á næsta ári. Þó með þeim fyrirvara að ekki veröi slys í Vestmannaeyj-
um og Þór sigri nýbakaða íslandsmeistara Víkings. __þp
Rummenigge (Bayern). Rolff (Ham-
burger) kom inn á sem varamaöur
í staö Littbarski.
• Hér reynir Guðríður Guðjónsdóttir gegnumbrpt, tvær danskar stúlk-
ur eru til varnar. Guðríöur skoraöi fjögur mörk í fyrri leiknum gegn
dönsku stúlkunum.
íslenska liðið er úr leik:
Stúlkurnar töpuðu
báðum leikjum sínum
ÍSLENSKA kvennalandsliöið í handknattleik lék tvo landsleiki við Dani
um síöustu helgi og fóru leikirnir fram í Danmörku. Fyrri leikurinn var
liður í undankeppni heimsmeistarakeppninnar. Þeim leik tapaði ís-
lenska liöiö með þremur mörkum eftir góða frammistöðu, 22—19. En
síðari leiknum tapaði íslenska liðið meö 18 mörkum gegn 26.
íslensku stúlkurnar stóöu slg vel
í fyrri leiknum. Þær höföu frum-
kvæöiö í fyrri hálfleiknum og léku
þá mjög vel. Þær náöu forystunni
og komust í 5—3, og um miöjan
fyrri hálfleik var staðan 8—5 fyrir
ísland. En er líöa tók á leikinn náöu
dönsku stúlkurnar aö jafna og í
hálfleik stóö 11 — 11.
Sami krafturinn var í leik is-
lenska liösins í síöari hálfleik, og
komst ísland í 14—12 og síðan í
16—14 um miöjan síöari hálfleik.
En þegar tíu minútur voru til leiks-
loka fór róöurinn aö þyngjast og
þá sigu dönsku stúlkurnar framúr
og sigruöu. Ingunn Bernódusdóttir
var langbesti leikmaöurinn í ís-
lenska liöinu. Mörk liðanna skor-
uöu þessar:
Danmörk: Lisde B. Jensen, Viby
6(3), Birte Carlsen 4, Gerda Jen-
sen 4, Helle Pedersen 2, Vibeke
Nielsen 2, Dorthe Pilgaard 1, Jytte
Moller Nielsen 1, Birgitte Volck 1
og Joan Johnsen 1.
ísland: Ingunn Bernódusdóttir
7(3), Guðríður Guðjónsdóttir 4(1),
Magnea Friöriksdóttir 3, Erla
Rafnsdóttir 2, Erna Lúövíksdóttir 1
og Kristjana Aradóttir 2(1).
Vítaköst: Danmörk 5, ísland 7.
Dönsku stúlkurnar unnu síðan
öruggan átta marka sigur í síðari
hálfleiknum, 26—18, en í hálfleik
var staöan 13—10 fyrir Danmörk.
Mörk íslenska liösins skoruöu
þessar: Erla R. 4, Ingunn 3, Erna 3,
Sigrún Blömst. 2, Kristjana 2, Guö-
ríður 2, Ásta 1 og Sigrún Berg 1.
Hverja þjálfar Bogdan?
Stjarnan og KR
sýna mikinn áhuga
EKKI liggur enn fyrir hvaöa lið
hinn snjalli handknattleiksþjálfari
Bogdan Kowalzcyk þjálfar næsta
keppnistímabil. Eftir áreiðanleg-
um heimildum sem Mbl. hefur,
hafa bæði lið Stjörnunnar og KR
sýnt mikinn áhuga á því að fá
Bogdan til starfa. Eins og skýrt
hefur verið frá þá hættir Anders
Dahl hjá KR og fer á ný til Dan-
merkur. Ef KR-ingum tekst ekki
að ráöa Bogdan hafa þeir í hyggju
að leyta sér að þjálfara erlendis.
Bogdan hefur náö frábærum ár-
angri meö handknattleiksliö Vík-
ings þau ár sem hann hefur starfaö
hjá félaginu og skilaö inn níu
meistaratitlum, Bogdan hefur í
hyggju aö dveljast áfram hér á
landi viö þjálfun, en á eftir aö gera
upp viö sig hvaöa liö hann tekur aö
sér.
31 röð með
12 rétta
í 33. leikviku Getrauna kom fram
31 röð með 12 rétta leiki og var
vinningur fyrir hverja röð kr.
7.285,00 en meö 11 rétta reyndust
vera 510 raöir og vinningur fyrir
hverja röð kr. 189,00.