Morgunblaðið - 26.04.1983, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 26.04.1983, Qupperneq 42
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1983 Kóreu-maraþonhlaupið: Síguróur Pétur 41. af rúmlega 7.000 hlaupurum „ÉG ER mjög svekktur yfir að þurfa að hætta, er í góðri æfingu og var að sækja í mig veörið þeg- ar ég fékk slæman hlaupasting, sem ég losnaði aldrei viö, þó svo ég ýmist hægöi é mér og labb- aöi,“ sagöi Sigfús Jónsson lang- hlaupari úr ÍR í samtali viö Morg- unblaöið í fyrradag. Sigfús tók í fyrradag þátt í maraþonhlaupi í Seoul í Suður-Kóreu ásamt Sig- urði Pétri Sigmundssyni úr FH. Sigurður varð í 41. sæti af rúm- lega sjö þúsund hlaupurum á 2:33,24 stundum, en hann á ís- landsmetið, sem er 2:27,05 stund- ir. Sigfús sagöi í samtalinu frá Seoul aö hlaupiö heföi gengiö vel framan af hjá þeim Siguröi Pétri. Þegar hlaupiö var hálfnaö var milli- • Sigurður Pátur Sigmundsson, FH, stóð sig vel I Kóreu. tími Sigfúsar 1:13 stundir og rúmar 1:12 stundir hjá Siguröi. „Ég var aö bæta viö mig á þessu augnabliki,” sagöi Sigfús, „en um 10 mínútum seinna byrjaöi stingurinn." Þegar Siguröur haföi hlaupið 30 kílómetra af 42, en þá var millitím- inn 1:45,11 stundir, leit út fyrir aö hann mundi bæta sig, en lokakafl- inn reyndist honum erfiöur, eins og lokatíminn gefur til kynna. Sigurvegari í hlaupinu var sænski hlauparinn Tommy Pear- son á 2:16,01 stundum, sem er nokkuö frá hans bezta, og sagöi Sigfús þaö einkennandi fyrir hlaupið aö allir útlendu keppend- urnir heföu veriö talsvert frá sínu bezta. — ágás. Snillingurinn Karl-Heinz Rummenigge, fyrirliði vestur-þýska landsliðsins í knattspyrnu, skoraði tvö af mörkum liðsins gegn Tyrkjum á laugardag. Á þessari stórskemmtilegu mynd sést hann í baráttu við einn varnarmanna Dortmund fyrr í vetur. Rummenigge skoraði tvö mörk: Góður leikur V-Þjóðverja Vestur-Þjóöverjar sigruöu Tyrki örugglega í Evrópukeppn- inni í knattspyrnu i Izmir á laug- ardaginn. Þjóðverjar skoruðu þrjú mörk en Tyrkir ekkert. Karl-Heinz Rummenigge skor- aöi tvö marka Þjóöverja og Wolf- gang Dremmler eitt. Báöir leika þeir meö Bayern Munchen. Rummenigge skoraöi fyrsta mark- iö á 31. min. úr vítaspyrnu eftir aö Rudi Völler haföi veriö felldur. Dremmler skoraöi annaö mark- iö meö þrumuskoti á 35. mín. og Rummenigge skoraði þriðja mark- iö á 71. mín. með föstum skalla eftir sendingu Rudi Völler. Hansi Muller og Bernd Schuster léku saman á miöjunni hjá þjóö- verjum og áttu báöir frábæran leik. Hansi leikur meö Inter Milanó á Ítalíu og Schuster meö Barcelona á Spáni og greinilegt aö þeir eru góöir saman. Áhorfendur voru um 70.000. Þýska liðið var þannig skipað: Schumacher (Köln), Strack (Köln), Dremmler (Bayern), Karl-Heinz Förster (Stuttgart), Briegel (Kais- erslautern), Engels (Köln), Schust- er (Barcelona), Muller (Inter Milan), Littbarski (Köln), Völler (Bremen), Bikarkeppni HSÍ: Mætast lið KB og Víkings í úrslitum? TVEIR LEIKIR fara fram í kvöld í 4-liða úrslitum í bikarkeppni HSÍ. KR og Valur leika í Laugardalshöllinni kl. 20. Þar má búast við hörkuleik en þó veröur liö KR aö teljast sigurstranglegra. Sigri KR, þá er liðið búiö að tryggja sér rétt til þátttöku í Evrópukeppninni í handknattleik á næsta ári. Þó með þeim fyrirvara að ekki veröi slys í Vestmannaeyj- um og Þór sigri nýbakaða íslandsmeistara Víkings. __þp Rummenigge (Bayern). Rolff (Ham- burger) kom inn á sem varamaöur í staö Littbarski. • Hér reynir Guðríður Guðjónsdóttir gegnumbrpt, tvær danskar stúlk- ur eru til varnar. Guðríöur skoraöi fjögur mörk í fyrri leiknum gegn dönsku stúlkunum. íslenska liðið er úr leik: Stúlkurnar töpuðu báðum leikjum sínum ÍSLENSKA kvennalandsliöið í handknattleik lék tvo landsleiki við Dani um síöustu helgi og fóru leikirnir fram í Danmörku. Fyrri leikurinn var liður í undankeppni heimsmeistarakeppninnar. Þeim leik tapaði ís- lenska liöiö með þremur mörkum eftir góða frammistöðu, 22—19. En síðari leiknum tapaði íslenska liðið meö 18 mörkum gegn 26. íslensku stúlkurnar stóöu slg vel í fyrri leiknum. Þær höföu frum- kvæöiö í fyrri hálfleiknum og léku þá mjög vel. Þær náöu forystunni og komust í 5—3, og um miöjan fyrri hálfleik var staðan 8—5 fyrir ísland. En er líöa tók á leikinn náöu dönsku stúlkurnar aö jafna og í hálfleik stóö 11 — 11. Sami krafturinn var í leik is- lenska liösins í síöari hálfleik, og komst ísland í 14—12 og síðan í 16—14 um miöjan síöari hálfleik. En þegar tíu minútur voru til leiks- loka fór róöurinn aö þyngjast og þá sigu dönsku stúlkurnar framúr og sigruöu. Ingunn Bernódusdóttir var langbesti leikmaöurinn í ís- lenska liöinu. Mörk liðanna skor- uöu þessar: Danmörk: Lisde B. Jensen, Viby 6(3), Birte Carlsen 4, Gerda Jen- sen 4, Helle Pedersen 2, Vibeke Nielsen 2, Dorthe Pilgaard 1, Jytte Moller Nielsen 1, Birgitte Volck 1 og Joan Johnsen 1. ísland: Ingunn Bernódusdóttir 7(3), Guðríður Guðjónsdóttir 4(1), Magnea Friöriksdóttir 3, Erla Rafnsdóttir 2, Erna Lúövíksdóttir 1 og Kristjana Aradóttir 2(1). Vítaköst: Danmörk 5, ísland 7. Dönsku stúlkurnar unnu síðan öruggan átta marka sigur í síðari hálfleiknum, 26—18, en í hálfleik var staöan 13—10 fyrir Danmörk. Mörk íslenska liösins skoruöu þessar: Erla R. 4, Ingunn 3, Erna 3, Sigrún Blömst. 2, Kristjana 2, Guö- ríður 2, Ásta 1 og Sigrún Berg 1. Hverja þjálfar Bogdan? Stjarnan og KR sýna mikinn áhuga EKKI liggur enn fyrir hvaöa lið hinn snjalli handknattleiksþjálfari Bogdan Kowalzcyk þjálfar næsta keppnistímabil. Eftir áreiðanleg- um heimildum sem Mbl. hefur, hafa bæði lið Stjörnunnar og KR sýnt mikinn áhuga á því að fá Bogdan til starfa. Eins og skýrt hefur verið frá þá hættir Anders Dahl hjá KR og fer á ný til Dan- merkur. Ef KR-ingum tekst ekki að ráöa Bogdan hafa þeir í hyggju að leyta sér að þjálfara erlendis. Bogdan hefur náö frábærum ár- angri meö handknattleiksliö Vík- ings þau ár sem hann hefur starfaö hjá félaginu og skilaö inn níu meistaratitlum, Bogdan hefur í hyggju aö dveljast áfram hér á landi viö þjálfun, en á eftir aö gera upp viö sig hvaöa liö hann tekur aö sér. 31 röð með 12 rétta í 33. leikviku Getrauna kom fram 31 röð með 12 rétta leiki og var vinningur fyrir hverja röð kr. 7.285,00 en meö 11 rétta reyndust vera 510 raöir og vinningur fyrir hverja röð kr. 189,00.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.