Morgunblaðið - 26.04.1983, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1983
27
Iþróttamaður Norðurlanda:
Volvo-bikarinn til Noregs
• Norska stúlkan Berit Aunli sem er margfaldur heimsmeistari í
skíðagöngu var kjörin íþróttamaður Norðurlanda fyrir áriö 1982. Það
voru formenn samtaka íþróttafréttamanna á Norðurlöndum sem velja
íþróttamanninn hverju sinni og hlýtur sá að taunum veglegan bikar og
peningaupphæö. Kjörið fór að þessu sinni fram í Helsinki í Finnlandi.
Þetta er annað árið í röð sem kona er kjörin íþróttamaður Noröur-
landa.
• Formenn samtaka íþróttafréttamanna á Norðurlöndum með Volvo-
bikarinn, sem að þessu sinni fer til Berit Aunli í Noregi.
• Hjónin Berit og Ove Aunli hafa um langt skeið verið í röð fremstu
skíðagöngumanna heimsins. Nú var Berit kjörin íþróttamaður Norður-
landa og var hún vel aö titlinum komin. í fyrra var danska badminton-
konan Lene Köppen kjörin svo aö Berit er önnur konan í röð á Norður-
löndunum sem titilinn hlýtur.
Norræna skíöalandskeppnin:
Tekst Dönum að
sigra íslendinga?
Nú liggur fyrir fimmta skýrslan
um þátttökuna í Norrœnu fjöl-
skyldulandskeppninni á skíðum
1983. Keppninni lýkur 30. apríl og
vantar töluvert að þátttaka sé
nægilega góð hér á landi. Svo
getur fariö að Danir vinni okkur í
keppninni ef svo fer sem horfir
og þætti mörgum það skarö fyrir
skildi ef svo færi, segir í frétt frá
Skíðasambandi íslands.
Fólk er hvatt til aö senda inn
þátttökutilkynningarnar, en þaö er
nægilegt ef hver og einn hefur far-
iö fimm sinnum á skiöi í vetur í eina
klukkustund í senn og er alveg ör-
uggt, aö fjöldi fólks hefur þegar
lokiö þessu marki. Nú veröa allir
aö leggjast á eitt og sameinast um
sigur aö minnsta kosti yfir Dönum
í þessari keppni.
Staöan í í keppninni er Fjöldi nú þessi:
kepp. stig
Noregur 37.000 2.067.0
Finnland 31.680 1.508.6
Svíþjóð 32.957 903
ísland 480 480
Danmörk 2.860 254.2
• Þetta eru þrír vaskir hlauparar. Frá vinstri: Sighvatur Dýri, Hafsteinn
Óskarsson og Garðar Sigurðsson. Þeir voru í 3ja manna sigursveit ÍR á
sumardaginn fyrsta er 68. víðavangshlaup félagsins fór fram. Þeir
félagar eru aö því er virðist allir í góðri æfingu og því líklegir til þess aö
ná góöum árangri í sumar.
Þeir þjálfa á
Austurlandi
MIKIL gróska er jafnan í knatt-
spyrnuíþróttinni á Austurlandi á
sumrin. Nú hafa flest félögin þar
gengið frá ráðningu þjálfara og
eru þeir þessir:
Austri: Hjörtur Jóhannsson.
Valur: Jens Einarsson.
Leiknir: Ólafur Gíslason.
Súlan: Þorvaldur Hreinsson.
Hrafnkell: Birgir Finnbogason.
Sindri: Einar Stefán Björnsson.
Einherji: Gústaf Baldvinsson.
UMFB: Emil Björnsson.
Huginn: Ólafur Sigurvinsson.
Höttur: Helgi Indriöason.
Þróttur: Jóhannes Bárðarson.
Egill rauði: Óráöið í stöðuna.
Veggtennis
Þrekmiöstööin í Hafnarfirði
hefur nýlega opnað tvo nýja velli
fyrir veggtennis, en það er ný
íþróttagrein hér á landi.
Leikurinn er fyrir 2, 3 eöa 4 og
er fólginn í því aö sleginn er bolti í
vegg meö tennisspaöa og má hann
aöeins snerta gólfiö einu sinni, áö-
ur en andstæðingurinn slær hann.
Nota má alla 4 veggina og er leikiö
í S upp á 9, 13 eöa 15 og í R upp á
21.
Veggtennis er meöal vinsælustu
almenningsíþrótta í heiminum í
dag, t.d. í Englandi, Bandaríkjun-
um, Kanada og Þýzkalandi.
Hægt er aö panta tíma í síma
54845 alla daga frá kl.
8.00—22.00. Þrekmiðstööin leigir
fólki spaöa og bolta og einnig
veröa þessi áhöld til sölu fljótlega.
KARLALANDSLIÐIÐ í borötenn-
is mun taka þátt í Heimsmeist-
aramótinu í borðtennis
28.4—9.5 nk. Mótið verður hald-
ið í Tokyo í Japan. Leikmenn í
liðinu eru: Hilmar Konráðsson,
Víkingi, 23 landsleikir. Gunnar
Finnbjörnsson, Örninn, 30
landsleikir. Kristján Jónasson,
Víkingi, 1 lartdsleikur. Tómas
Sölvason, KR, 1 landsleikur.
Á mótinu veröa leiknir 9
landsleikir, 6 í riölakeppni og 3 í
lokariðli. Þær þjóðir sem eru í
H-riðli 3ju deildar með okkur
eru: Nýja Sjáland, Luxemborg,
Marokkó, Saudi-Arabía, Líban-
on og Filippseyjar. Á mótinu
verður einnig keppt í einliða- og
tvíliðaleika.
Fararstjórar veröa Gunnar Jó-
hannsson og Guðrún Ásgeirs-
dóttir og munu þau sitja þing
Aiþjóðaborðtennissambandsins
svo og aukaþing Borðtennis-
sambands Evrópu.
Þeir keppa í Japan
Knatt-
spyrnu-
úrslit
Holland
ÚRSLIT i Hollandi:
Helmond — Síltard 1—1
Feysnoord — G.A. Eagles 1—1
FC Utrecht — Ajax 0—2
Willem 2 — Haarlem 4—3
AZ 67 — Nac Breda 3—3
Roda JC — Excelaior 1—2
Pec ZwoNe — Sparta 0—3
FC Twente — PSV Eindhoven 3—1
Nec Nijmegen — FC Groningen 2—2
StaOan:
Ajax 31 24 5 2 93—32 53
Feyenoord 31 20 9 2 63—33 49
PSV 31 19 9 3 77—32 47
FC Groningen 31 9 14 7 57—52 33
Sparta 31 10 12 9 58—50 32
Excelaior 31 13 6 12 42—38 32
Roda JC 31 12 8 11 50—46 32
Haartem 31 12 8 11 42—46 32
Fort. Sittard 31 11 10 10 34—38 32
FC Utrecht 31 10 8 12 45—50 29
AZ 67 31 10 8 13 45—37 28
Helm. Sport 31 8 9 14 41—61 25
GA Eagles 31 7 10 14 37—57 24
Pec Zwoile 31 8 7 16 38—56 23
Willem 2 31 8 7 18 44—56 23
FC Twente 31 6 10 15 33—54 22
Nec 31 4 13 14 32—57 21
Nac 31 5 19 15 32—63 21
Ítalía
ÚRSLIT « Ítalíu:
Avellino — PÍM 1—0
Cagliari —• Cesena 0—0
Catanzaro — Juventua 1—2
Fiorentina — AscoH 1—0
Genoa — Napoli 0-0
Inter Milano — Roma 0—0
Torino — Verona 1—1
Udinese — Sampdoria 0—4
Staöan:
Roma 27 14 10 3 41 22 38
Juventus 27 12 8 5 43 21 35
Inter 27 10 13 4 35 21 33
Fiorentina 27 11 9 7 33 23 31
Verona 27 10 11 6 33 28 31
Torlno 27 9 12 6 29 21 30
Sampdoria 27 8 13 6 27 24 29
Udinese 27 5 18 4 21 26 28
Genoa 27 6 13 8 31 33 25
Avellino 27 7 11 9 24 31 25
Cagliari 27 6 13 8 21 28 25
Pisa 27 7 9 11 25 27 23
Napoli 27 5 13 9 20 29 23
Aacoli 27 7 8 12 27 36 22
Cesena 27 4 13 10 20 31 21
Catanzaro 27 2 9 16 19 48 13
Noregur
Úrslit i 1. umterO i Noregi, sem leikin
var á aunnudag:
Brann—Start 0—2
Bryne—Mjoendaien 5—1
Eik—Hamkam 0—0
Kongsvingar—Lillestroem 2—2
Moss—Viking 2—0
Leikur Vaaierengen og Rosenberg
verOur leikinn 5. maí.
• Þau Björg Finnbogadóttir og
Jóhann Vilbergsson voru bæði
sigursæl á skíöamóti öldunga
sem fram fór fyrir skömmu. Hér
sjást þau meö bikara þá er þau
hlutu í verölaun.