Morgunblaðið - 26.04.1983, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1983
31
Frá talningu atkvæða í Austurbæjarskólanum í Reykjavfk. Morgunbi*»i«/KÖE
festingu upp úr klukkan 23, en það
má segja að það hafi verið allt um
seinan að eiga við þá síðustu stað-
festingu, því það var komið það mik-
ið í gang í Reykjavík. Ef eitthvað
hefði brugðist hefði ekki verið aftur
snúið í Reykjavík. Og það var ekki
endanlega klárt fyrr en á elleftu
stundu að þetta tækist," sagði ólafur
Walter.
Að sögn Ólafs Walters voru flug-
vélar notaðar til að safna saman
kjörkössum að kosningu lokinni.
Ekki hefði þurft á aðstoð Landhelg-
isgæzlunnar að halda við söfnunina
eða flutning fólks á kjörstað, en
Gæzlan hafði komið við sögu við
flutning kjörgagna fyrir kjördag.
Gerðar hefðu verið þær ráðstafanir
að Vegagerð ríkisins annað hvort
mokaði eða flytti fólk á kjörstað með
snjóbílum.
„Þetta var út af fyrir sig mjög
spennandi. Veðurhorfurnar höfðu
ekki verið góðar, og um það má auð-
vitað deila hvort bráðabirgðalögin
hafi verið nauðsynleg eða ekki. Menn
verða nú samt að virða það þó að
menn telji að fólkið eigi rétt á því að
fá að kjósa, eða eiga möguleikana.
En þau höfðu vissulega truflandi
áhrif. Þau gáfu fólki í skyn að dag-
arnir yrðu tveir, og varð af því viss
truflun. Ýmsir kjósendur töldu þess
ekki þörf að kjósa fyrr en á sunnu-
dag. Það er jú svo að fólk heyrir
meginregluna, það heyrir um heim-
ildina en hlustar ekki eins á það
hvernig henni verður breytt. Og
fyrirfram taldi ég að dagarnir yrðu
einhvers staðar tveir. En síðan
breyttist þetta, veðrið reyndist betra
en gert hafði verið ráð fyrir. Og
Vegagerðinni tókst með glæsibrag
að vinna sitt verk. Það kom alis stað-
ar frá hvatning til að ljúka þessu á
einum degi. Ég held að flokkarnir og
áhugafólk hafi verið samtaka um að
ljúka þessu, og fréttaflutningur út-
varpsins hjálpaði einnig upp á það.
Ég óttaðist það einmitt um morgun-
inn að það mætti ekki mikið út af
bregða í fréttaflutningi, og vonaði að
skýrt yrði fyrir kjósendum að þetta
væri fyrst og fremst heimild, sem
þyrfti ekki endilega að verða notuð.
Vegagerðin undirstrikaði þetta síðan
Flugvél frá Flugfélagi Norðurlands á Raufarhafnarflugvelli að sækja kjör-
kassa úr Raufarhafnarhreppi og Presthólahreppi. Á myndinni eru (f.v.) Jó-
hann Þórarinsson lögregluþjónn á Raufarhöfn, Jónas Finnbogason flugmað-
ur, Gísli Ólafsson fyrrverandi yfirlögregluþjónn á Akureyri, og Þorgeir
Ólafsson héraðslögreglumaður, Raufarhöfn. Morgunbia*tö/Heigi óiafxson
með því að láta vita að hún væri ekki
endilega í stakk búin til að halda
áfram í marga daga,“ sagði Ólafur
Walter.
Mikill viðbúnaður var af hálfu
Vegagerðarinnar og voru öll tæki
hennar og talsvert af leigutækjum
að auki notuð til snjómoksturs á
kosningadaginn. Samkvæmt upplýs-
ingum vegaeftirlitsins var um geysi-
lega vinnu að ræða víða á Vestfjörð-
um, Norðurlandi og Austurlandi, og
Vesturlandi að hluta. Veðráttan
hafði hins vegar átt sinn þátt í því
að víðast hvar var búið að moka um
klukkan 16. Mokstri út á Vatnsnes í
Húnavatnssýslu lauk þó ekki fyrr en
seint um kvöldið, einnig í Flókadal í
Skagafirði, á norðanverðum Skaga,
og á Austurlandi lauk mokstri i
Njarðvíkurskriðum og Jökulsárhlíð
ekki fyrr en um kvöldið.
Að sögn starfsmanna vegaeftir-
litsins er nú greiðfært á flestum veg-
um landsins, þar sem veður var víð-
ast hvar með betra móti í gær og
fyrradag.
Auk þessa var Vegagerðin með
snjóbíla og báta til taks til að flytja
fólk á kjörstað. Bátur var fenginn til
flutninga í Arnarfirði og Reykjafirði
á Ströndum. Snjóbílar önnuðust
flutninga í Gufudalssveit, þar sem
ófærð var mikil, í Skagafirði, Fljót-
um, í Norður-Þingeyjarsýslu og
einnig var fólk á tveimur bæjum á
Mosfellsheiði flutt á kjörstað í
snjóbíl, Fellsenda og Stífnisdal. Þá
var fólk sótt á snjóbílum undir það
síðasta í Jökulsárhlíð, þar sem tekið
var að skafa í traðirnar.
Fermingar í Vest
mannaeyjum
Á sunnudaginn var, 24. apríl fór
fram ferming í Landakirkju í Vest-
mannaeyjum árdegis og síðdegis.
Við fermingu árdegis voru þessi
börn fermd:
Stúlkur:
Aðalheiður Pétursdóttir,
Illugagötu 56.
Ágústa Friðfinnsdóttir,
Bröttugötu 47.
Elísabet Sigurðardóttir,
Höfðavegi 65.
Erna Guðlaugsdóttir,
Brimhólabraut, 32.
Guðrún Steingrímsdóttir,
Faxastíg 39.
Hafdís Kristjánsdóttir,
Illugagötu 32.
Inga Lára Ingadóttir,
Sóleyjargötu 9.
Lára Skæringsdóttir,
Illugagötu 57.
Sigríður Hjaltdal Pálsdóttir,
Smáragötu 15.
Þórey Guðrún Björgvinsdóttir,
Búhamri 86.
Drengir:
Bergur Martin Ásmundsson.
Strembugötu 27.
Finnbogi Friðrik Jóhannsson,
Brekastíg 6.
Friðþjófur Már Sigurðsson,
Ásvegi 29.
Guðjón Egilsson,
Faxastíg 1.
Gunnar Ásgeirsson,
Hrauntúni 39.
Hannes Þorvaldsson,
Hólagötu 43.
Hilmir Arnarson,
Strembugötu 18.
Hjalti Pálmason,
Hrauntúni 59.
Jóhann Ingi Árnason,
Höfðavegi 59.
Leifur Geir Hafsteinsson,
Foldahrauni 38C.
Rúnar Ingi Guðjónsson,
Búhamri 25.
Tómas Ingi Tómasson,
Foldahrauni 41C.
Þórarinn Grétar Ómarsson,
Hilmisgötu 1.
Við fermingu síðdegis í Landa-
kirkju voru þessi börn fermd:
Stúlkur:
Anna Katrín Einarsdóttir,
Vík, Bárustíg.
Ásta Kristjánsdóttir,
Höfðavegi 33.
Helga Georgsdóttir,
Fjólugötu 23.
Ingibjörg Jónsdóttir,
Breiðabliksvegi 4.
Jónína Helga Kristinsdóttir,
Hásteinsvegi 10.
Katrín Harðardóttir,
Kirkjuvegi 80.
Kolbrún Aðalbjörg Hjartardóttir,
Dverghamri 33.
Laufey Óskarsdóttir,
Dverghamri 12.
Sigurlaug Traustadóttir,
Birkihlíð 8.
Drengir:
Elliði Vignisson,
Illugagötu 59.
Guðni Einarsson,
Bröttugötu 1.
Hlynur Sigmarsson,
Illugagötu 27.
Jón Kjartan Bragason,
Vestmannabraut 60.
óðinn Vignir Jónasson,
Foldahrauni 41F.
Óskar Sveinn Friðriksson,
Hátúni 16.
Sebastian Popovic,
Bessastíg 4.
Stefán Orri Guðjónsson,
Hólagötu 48.
Stefán Sigurður Harðarson,
Faxastig 24.
Valdimar Gunnar Kristjánsson,
Kirkjubayarbraut 16.
Þorkell Á. Óttarsson,
Miðstræti 21.
Örn Guðmundsson,
Búhamri 74.
Vegna mistaka urðu þessir
fermingarlistar eftir er birt voru
nöfn fermingarbarna um siðustu
helgi. Er beðist velvirðingar á
þessum mistökum.
MIÐIER
MÖGULUKl
Þrjúhundruð ferðavinningar á 25.000 kr. hver, verða dregnir
út á næsta happdrættisári.
Sala á lausum miðum og endurnýjun ársmiða og flokksmiða stendur yfir.
dc 30
HAPPDRÆTTl 83-84
VÍÐSJA 34.04