Morgunblaðið - 26.04.1983, Page 28
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1983
Nfræður:
Guðgeir Jónsson,
fy. forseti Alþýðu-
sambands íslands
Ginn hinn mesti öðlingsmaður,
sem ég hef kynnst á langri ævi,
Guðgeir Jónsson, varð níræður í
gær, þann 25. apríl. Öll mín kynni
af honum eru slík, að ég finn mig
knúinn til að minnast hans nokkr-
um orðum og árna honum heilla á
níræðisafmæli hans.
Guðgeir er fæddur að Digranesi
í þáverandi Seltjarnarneshreppi
25. apríl 1893.
Foreldrar hans voru Jón bóndi
að Digranesi og kona hans Ás-
björg Þorláksdóttir bónda og al-
þingismanns í Fífuhvammi Guð-
mundssonar. Ólst Guðgeir að
mestu upp hjá Þorláki afa sínum.
Strax á barnsaldri gerðist Guð-
geir fíkinn í bækur og las allt, sem
til náðist. Mun þessi ákafa lestr-
arfýsn m.a. hafa stutt að því, að
hann, aðeins 16 ára gamall, hóf
nám í bókbandsiðn í félagsbók-
bandinu, og hafði hann lokið því,
er hann stóð á tvítugu, árið 1913.
Varð bókbandsiðnin hans ævistarf
upp frá því.
Guðgeir Jónsson er tvímæla-
laust þeirrar manngerðar, sem við
nefnum félagshyggjumenn. Enda
hefur hann víða komið við sögu í
félagsmálum og allstaðar aflað sér
trausts og vináttu samstarfs-
manna. Það er því engin tilviljun,
að Guðgeir barst fram í fylkingar-
brjósti tveggja þeirra félagshreyf-
inga, sem áhrifaríkastar voru í
samtíð hans, nefnilega Góðtempl-
arareglunnar og verkalýðshreyf-
ingarinnar, eins og að verður vikið
hér á eftir.
Ég ætla mér ekki þá dul, að ég
kunni skil á öllum hinum marg-
þættu félagsmálaafskiptum Guð-
geirs Jónssonar, en á nokkur at-
riði skal nú drepið,
í stjórn Sjúkrasamlags Reykja-
víkur var Guðgeir á árunum
1920-1937 og aftur 1938-1939,
eða alls um 20 ára skeið.
Formaður Umdæmastúkunnar
Nr. 1 varð Guðgeir langa hríð og í
framkvæmdanefnd Stórstúku Is-
lands um skeið.
Að sjálfsögðu naut Guðgeir
mikils trúnaðar í stéttarfélagi
sínu, Bókbindarafélaginu, enda
var það svo, að í stjórn þess átti
hann sæti um aldarfjórðungs-
skeið, þar af var hann formaður
þess í rösk 20 ár.
Ungur hreifst Guðgeir af hug-
sjónum jafnaðarstefnunnar og
gekk í Alþýðuflokkinn. Var hann
um skeið í miðstjórn hans. Seinna
kom hann til liðs við Alþýðu-
bandalagið og fór í framboð fyrir
það í alþingiskosningunum 1956 á
Isafirði. Þótti hann koma fram af
mikilli prúðmennsku og dreng-
skap, svo að athygli vakti, enda
hefur Guðgeir aldrei verið að öðru
þekktur.
Svo gjörðist það 1942, að Guð-
geir Jónsson er kjörinn forseti Al-
þýðusambands íslands. Á þessum
árum var kreppa í landi, atvinnu-
leysi herjaði og mögnuð sundrung
geysaði í röðum verkamanna.
Þetta var tími harðra átaka.
Árið 1930 var Kommúnista-
flokkur Islands stofnaður og 1938
varð nýr klofningur í röðum
verkamanna við stofnun Sósíal-
istaflokksins. Harðnaði því enn
hin flokkspólitíska barátta innan
verkalýðsfélaganna, og leiddi hún
meðal annars til þess, að 12 félög
KRISTJÁfl
SIGGEIRSSOn HF.
LAUGAVEG113, REYKJAVÍK, SÍMI 25870
Finnsk
sýning
26.04—08.05
í verslun okkar Laugavegi 13
AALTO
design Alvar Aalto
Húsgögn — Gjafavara
Glæsileg hönnun. Finnsk gæöi.
5% sýningarafsláttur af öllum finnskum vörum.
FINNSKma FlflNSK
VIKA W VÓRUKYNNINC
sögðu sig úr Alþýðubandalaginu á
árunum 1938—1940.
Upp úr þessum átökum kom
það, að gerð var gagnger breyting
á Alþýðusambandinu, þ.e. að skilið
var milli Alþýðuflokksins og Al-
þýðusambandsins, sem frá upp-
hafi og fram til þessa höfðu verið
ein skipulagsleg heild.
Árið 1940, þegar skipulags-
breytingin var formlega gerð, var
tala sambandsmeðlima 15509, en á
næstu árum óx hún hraðar og var
1944 komin upp í 200 þúsund.
Byggðist þessi mikla félagaaukn-
ing einnig á því, að félög þau, sem
sagt höfðu sig úr sambandinu,
komu nú í það á ný.
Verður því ekki annað sagt, en
að Alþýðusambandið hafi vel
dafnað þau árin, sem Guðgeir
Jónsson var forseti þess. — Menn
með ólíkar skoðanir höfðu getað
sameinast um Guðgeir Jónsson, og
hann reyndist líka farsæll manna-
sættir í starfi sínu.
Eftir að Guðgeir hætti sem for-
seti sambandsins hafa honum að
sjálfsögðu verið falin ýmis trúnað-
arstörf í verkalýðshreyfingunni.
Ég nefni aðeins, að hann var kos-
inn í fyrstu stjórn Atvinnuleysis-
tryggingasjóðs, og þegar Alþýðu-
samband Svíþjóðar fagnaði 60 ára
afmæli sínu, var Guðgeir Jónsson
kjörinn fulltrúi ASÍ við það tæki-
færi, sem hann leysti af hendi með
miklum sóma.
Mér finnst það lýsa manninum
Guðgeiri Jónssyni vel, þegar hann,
eins og margir forustumenn Al-
þýðusambandsins minntust 50 ára
afmælis þess með grein í Vinn-
unni, þá gaf Guðgeir ritgerð sinni
heitið „Fremjið eigi rangindi — þol-
ið eigi rangindi".
Hann er vissulega maður hófs-
emdar og jafnframt sanngirni og
réttlætis.
Eins og Guðgeir Jónsson hefur
verið farsæll í öllu félagsmála-
starfi sínu, hefur hann einnig ver-
ið gæfumaður í fjölskyldu og
einkalífi. Kona hans, Guðrún Sig-
urðardóttir, fædd 25. september
1893 og þannig jafnaldra hans, er
hin mesta ágætiskona í hvívetna.
Hefur þeim hjónum orðið 7 barna
auðið. Þau eru þessi í réttri ald-
ursröð: Guðrún, Einar, Þorlákur,
Sigrún, Ásbjörg, Sigurður og Jón.
Þá er þeirra ættbogi nú þegar orð-
inn bæði fríður og mannvænlegur.
Þó að þetta greinarkorn sé lítið
annað en upptalning staðreynda í
lífi merks samferðarmanns —
enda mér nú, eins og skáldið frá
Bólu sagði, „orðið stirt um stef og
stílvopn laust í höndum" — þá átti
það þó einnig að vera þakkarvott-
ur fyrir ágæt kynni og eftirminni-
legt samstarf á því sviði, sem
okkar leiðir mættust.
Guðgeir! Hafðu heila þökk fyrir
vináttu og tryggð. Við þig á svo
sannarlega það, sem skáldið sagði:
Klli, þu ert ekki þung
anda gudi kærum.
(iöfug sál er ávallt ung
undir silfurhærum.“
Gæfa og guðsblessun fylgi þér
og þínu húsi öllu.
Beztu afmæliskveðjur!
Hannibal Valdimarsson
Noregur:
Gull- og silfur-
sjóður til sýnis
Osió, 20. apríl. Frá fréttaritara Mbl., Laure.
GULL- og silfursjóðurinn frá vík-
ingaöld, sem fannst í bænum Gríms-
stað í Noregi árið 1981 og vakið hef-
ur heimsathygli, hefur nú verið sett-
ur upp til sýningar á safni í Osló.
Sjóðurinn fannst þegar maður
nokkur var að taka grunn fyrir
nýju húsi og vógu silfurmunirnir
2,2 kíló og gullmunirnir 300
grömm. Til samans eru þeir metn-
ir á um sex milljónir ísl. kr.
Skartgripirnir verða til sýnis á
fornleifasafninu í Ósló, í gullher-
berginu svokallaða, sem er búið
mjög fullkomnum öryggisbúnaði.
Munirnir eru frá því um 925 og
þykja afar vel gerðir. Á þeim er
rúnaletur, nöfn konu og manns,
sem áttu gripina á sinni tíð. Sjóð-
urinn er einhver sá merkilegasti,
sem fundist hefur í Noregi frá vík-
ingaöld, en í honum voru einnig
arabískir peningar.
Dimmission í Fjölbraut í Breiðholti
STUDENTSEFNI í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti dimmitteruðu þriðjudaginn
19. apríl og geystust þá um bæinn með söng og spili. Þessa mynd tók Ijósmynd-
ari Morgunblaðsins, Kristján Örn Elíasson í Austurstræti, er krakkar glöddust
yfir að próflestur væri að hefjast. Framundan eru svo prófin, sem þau vonandi
standa sig vel í.