Morgunblaðið - 26.04.1983, Side 40
V^terkurog
L/ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1983
^^^skriftar-
síminn er 830 33
Norður-Atlantshafsflug Flugleiða:
Stefnir í yfir
30% aukningu
á þessu ári
Aukning á síðasta ári var liðlega 32%
„ÁÆTLANIR okkar það sem
af er árinu hafa staðizt fylli-
lega og það eru engin teikn á
lofti um annað en sú áætlun
okkar að fjölga farþegum á
Steingrím-
ur yngstur,
Ólafur ald-
ursforseti
Steingrímur Sigfússon, nýkjörinn
þingmaður Alþýðubandalagsins, er
nú yngstur alþingismanna, en hann
er 27 ára, fæddur 4. ágúst 1955.
Elzti þingmaðurinn er hinsvegar
utanríkisráðherra, Ólafur Jóhann-
esson, en hann er 70 ára, fæddur 1.
marz 1913.
Sigríður Dúna Kristmunds-
dóttir, nýkjörinn þingmaður
Samtaka um kvennalista, er
næstyngsti þingmaðurinn, 30 ára,
fædd 13. ágúst 1952. Næstelzti
þingmaðurinn er Stefán Valgeirs-
son, þingmaður Framsóknar-
flokksins, 64 ára, fæddur 20. nóv-
ember 1918. Meðalaldur þing-
manna er nú 47,6 ár. Sé miðað við
meðalaldur þingflokkanna kemur
í ljós, að hann er lægstur hjá
Bandalagi jafnaðarmanna eða
34,5 ár; hjá samtökum um
kvennalista er hann 34,6; meðal-
aldur Alþýðuflokks er 43,2 ár;
Alþýðubandalags 46,6 ár; Sjálf-
stæðisflokks 50,9 og Framsóknar-
flokks 51,5 ár.
Norður-Atlantshafinu um lið-
lega 30% á þessu ári muni
standast," sagði Sigfús Erl-
ingsson, framkvæmdastjóri
Austursvæðis Flugleiða í
New York, í samtali við Mbl.
Á síðasta ári var farþegaaukn-
ing Flugleiða á Norður-Atlants-
hafinu liðlega 32%, þannig að ef
áætianir standast í ár hefur far-
þegum Flugleiða á þessari flugleið
fjölgað um 70—75%. Að mati
Flugleiðamanna eru fargjöld þó
enn of lág og þyrftu að hækka um
a.m.k. 10% til að verða viðunandi.
Það kom fram í samtalinu við
Sigfús Erlingsson, að bókanir
væru mjög góðar bæði til New
York og Chicago, en væru heldur
minni tii Baltimore. „Ástæðan
fyrir því, að bókanir hafa verið
minni en við reiknuðum með til
Baltimore, eru mikil undirboð
flugfélagsins World Airways, sem
flýgur milli Baltimore og Frank-
furt.“
Sigfús Erlingsson sagði að
Flugleiðir hefðu nýlega náð sam-
komulagi við nýlega stofnað
bandarískt flugfélag, Jet America,
um mjög hagstæð fargjöld á flug-
leiðinni Long Beach í Kaliforníu
og Chicago, sem gerði félaginu
kleift að bjóða mjög samkeppnis-
hæft verð á flugleiðinni frá Kali-
forníu til Luxemborgar og reyndar
ennfremur milli Kaliforníu og ís-
lands. „Samningur félaganna er í
gildi fram á haust, en ég tel mjög
góðar líkur á að hann verði fram-
lengdur næsta vetur, sem er mjög
gott, þar sem Kalifornía er heils-
ársferðamannastaður," sagði Sig-
fús ennfremur.
Leiðangur á Hofsjökli
Leiðangur hefur verið uppi á Hofsjökli undanfarnar vikur við rannsóknir á jöklinum. Þessi mynd, sem
Freysteinn G. Jónsson tók úr lofti á sunnudaginn, er af höfuðstöðvum rannsóknarmanna inni á jöklinum
norðvestanverðum, en áætlað er að leiðangurinn verði á jöklinum í sex vikur.
íslenzkur fataiðnaður
í miklum erfiðleikum
GÍFURLEG vandræði steðja
nú að íslenzkum fataiðnað-
arfyrirtækjum og eru horfur
á að starfsmönnum verði
fækkaö nokkuð á næstu vik-
um og mánuðum, samkvæmt
þeim upplýsingum sem
Morgunblaðið hefur aflað
sér.
Vandræði fataiðnaðarins hófust
í raun fyrir liðlega tveimur árum,
þegar samkeppnisstaða hans
Tveggja manna í lít-
Stefnir í fækkun
starfsfólks á næstu
vikum og mánuðum
gagnvart innflutningi fór að
skekkjast verulega vegna gengis-
skráningarinnar. Stöðugt harðn-
aði á dalnum fram á mitt síðasta
ár, þegar gengi íslenzku krónunn-
ar fór að síga með sífellt meiri
hraða og samkeppnisstaðan batn-
aði.
Sú þróun hefur síðan haldið
áfram það sem af er þessu ári.
Fyrirtæki í fataiðnaði höfðu hins
vegar þurft að ganga í gegnum svo
miklar þrengingar og safnað það
miklum skuldum, að hin bætta
samkeppnisstaða gagnvart inn-
flutningnum dugði ekki til að
rétta hag þeirra við. Þessu til
viðbótar hefur aðgangur að lánsfé
ekki verið verri um langt árabil
vegna slæmrar stöðu banka og
sparisjóða.
Þessu til viðbótar hefur það síð-
an gerzt, að með síversnandi efna-
hagsástandi hér á landi, hefur eft-
irspurn eftir fatnaði almennt
minnkað umtalsvert í verzlunum.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins hafa nokkur fyrirtæki
í fataiðnaði látið gera úttekt á
ástandinu nú og hvað sé til ráða út
úr þeim ógöngum, sem þau eru
komin í. Niðurstöður þar að lút-
andi liggja enn ekki fyrir, en þó er
talið óhjákvæmilegt að fækka
starfsmönnum eitthvað á næst-
unni.
illi flugvél saknað
TVEGGJA manna í lítilli
tveggja sæta einkaflugvél af
gerðinni Cessna 150 var
saknað í gærkvöldi. Leitað
var árangurslaust aö flugvél-
inni úr lofti í gærkvöldi og
leit á landi átti að hefjast í
birtingu í morgun.
Flugvélin, sem ber ein-
kennisstafina TF-FLD, fór
frá Reykjavík upp úr klukk-
an 17 og áætlað var að hún
kæmi til baka um klukkan
19.
Ferðinni var heitið í Borgar-
fjörð, þar sem flugmennirnir
hugðust fljúga útsýnisflug.
Flugþol flugvélarinnar var fjór-
ar stundir.
Þegar liðin var um klukku-
stund fram yfir áætlaðan komu-
tíma vélarinnar til Reykjavíkur
hófst leit, er stóð fram undir
klukkan 23. Flugvél flugmála-
stjórnar, þyrla Landhelgis-
gæzlunnar og einkaflugvélar
leituðu víða á Borgarfjarðar-
svæðinu og allt yfir í Hvamms-
fjörð.
Fólk á mörgum bæjum víða í
Borgarfirði og á Snæfellsnesi
hringdi í flugstjórnarmiðstöð-
ina á Reykjavíkurflugvelli seint
í gærkvöldi og taldi sig hafa séð
til smáflugvéla á þeim tíma sem
flugvélin átti að vera á lofti.
Flugvélin sem saknaó er. Hún er af gerðinni Cessna 150 og ber einkennis-
stafina TF-FLD. Ljósm. Baldur Sveinsson
ELVAR Guðmundsson og Hilmar
Karlsson tefldu úrslitaskákina um
íslandsmcistaratitilinn í skák 1983
í gærkvöldi, en þeir ásamt Ágústi
S. Karlssyni þurftu að heyja ein-
vígi um titilinn, eftir að hafa verið
jafnir í 2.-4. sæti á Skákþingi ís-
lands sem fram fór um páskana,
en þar bar Svíinn Dan Hanson sig-
ur úr býtum.
Elfar og Hilmar höfðu báðir
2'k vinning fyrir skákina, sem er
síðasta skák einvígisins. Verði
jafntefli kemur titillinn í hlut
Hilmars, þar sem hann er stiga-
hærri.
Teflt um Islandsmeistaratitilinn