Morgunblaðið - 04.05.1983, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1983
„Formula-1 Grand Prix“
Prost og Piquet jafnir
— eftir Imola-kappaksturinn um helgina
FRAKKINN Patrick Tambay sigraði um helgina í Grand Prix-kapp-
akstri í Imola á ítalíu, fjórðu Grand Prix-keppni vetrarins. Tambay, sem
ekur Ferrari með turbo-vél, er eftir þaö í öóru sæti í keppninni um
heimsmeistaratitilinn, en efstir og jafnir eru Nelson Piquet, Brasilíu, og
Alain Prost, Frakklandi. Prost, sem einnig ekur turbo-drifnum Ferr-
ari-bíl, varó annar í keppninni í Imola, og komst þar meó upp aó hlið
Piquet meö 15 stig.
Aöeins sjö ökumenn náöu aö
Ijúka keppninni, en tuttugu og sex
hófu keppni. Nelson Piquet varð
fyrir því óhappi aö vélin í bíl hans
drap á sér er kapparnir voru að
rjúka af staö í byrjun, en hann
startaði í fremri rööinni. Hann stóö
sig samt vel, komst úr 24. sæti í
þaö fimmta, en þá gafst vélin í
bílnum upp eftir 43 hringi. „Ég var
mjög óheppinn í dag, fyrst í byrjun
og síöan nú er vélin gaf sig,“ sagöi
hann í samtali viö AP á eftir. Meöal
þeirra sem uröu aö hætta voru
Riccardo Patrese, ítalíu, sem
ógnaöi Tambay hvaö mest, Niki
Lauda, Austurríki, Danny Sullivan
og Eddi Cheever, báöir Bandaríkj-
unum, auk Piquet.
Alain Prost var 48,78 sek. á eftir
Tambay í mark og sagöist ánægö-
ur meö aö vera kominn í fyrsta
sætiö í stigakeppninni, en ekki
ánægöur meö aö ná aöeins ööru
sæti í þessari keppni. „Ég átti viö
minniháttar vandamál aö striöa,
fjóröi gírinn hjá mér virkaöi t.d.
ekki eölilega. Ég verö þó aö segja
aö Tambay var eiginlega ósigrandi
á Ferrari-bílnum í dag,“ sagöi
Prost.
Tambay, sem gekk til liös viö
Ferrari-liðiö í fyrra, sagöi eftir
keppnina, aö þetta heföi veriö
ánægjulegasta stundin í lífi hans.
„Ég var alltaf viss um aö ég myndi
vinna. Jafnvel þegar Patrese
komst fram fyrir mig. Minn bíll var
hraöskeiðari á beinu brautunum
og ég vissi aö ég yröi ekki í neinum
vandræöum.“
Hann bætti því viö aö þaö heföi
verið frábært aö sigra fyrir Ferrari
á heimavelli liösins, og aö hafa
sama númer (27) og Gilles heitinn
Villeneuve. Villeneuve varö annar í
Imola-keppninni í fyrra, aöeins
hálfum mánuöi áöur en hann slas-
aöist til ólífis í æfingaakstri í
Belgíu.
Finnski heimsmeistarinn Keke
Rosberg varö fjóröi í keppninni.
Hann ekur á Williams, sem ekki er
turbo-drifinn, og var hann fyrstur
þeirra sem aka þannig bílum.
Efstu keppendur uróu þessir:
Patrick Tambay, Frakkl. (meðal-
hraói hans var 185.480 km á
klukkustund), Alaín Prost,
Frakkl., 48,78 sek. á eftir, Rene
Arnoux, Frakkl., John Watson
Bretl., Marc Surer, Sviss.
Staöan í keppninni um heims-
meistaratitilinn er nú þessi:
Alain Prost Frakkl. 15
Nelson Piquet, Brasilíu 15
Patrick Tambay, Frakkl. 14
John Watson, Bretl. 11
Niki Lauda, Austurr. 10
Rene Arnoux, Frakkl. 8
Jacques Laffite, Frakkl. 7
Keke Rosberg, Finnl. 5
• 120 þúsund manns fylgdust meó keppninni sem fram fór á Impla sem er I Bologna á Ítalíu. Og að venju
var sjónvarpaö út um allan heim. Næsta keppni fer fram 15. maí í Monte Carlo, Mónakó.
„Grátið ekki mín vegna“
— segir Lene Köppen, sem nú ætlar aö hætta
• Lene Köppen tekur á móti verólaunum þeim er hún hlaut er hún var
kjörin íþróttamaóur Noróurlanda árió 1981.
„í GUÐS bænum grátiö ekki mín
vegna,“ sagöi Lene Köppen,
danska badmintonkonan snjalla,
áóur en heimsmeistarakeppnin
hófst í Kaupmannahöfn á sunnu-
daginn. Hún ætlar — hvort sem
hún stendur uppi sem sigurveg-
ari eóa ekki — aö hætta aö keppa
í badminton eftir þetta mót, en
hún veróur þrítug á morgun.
Á afmælisdaginn veröur hún
meðal þeirra sem leika í sextán
liöa úrslitunum — en komist hún
upp úr þeim fer keppnin örugg-
lega aó þyngjast fyrir hana. Þá
mætir hún væntanlega stúlkum
frá Kína, hinum nýjum stjörnum í
íþróttinni.
„Kannski vinn ég þær —
kannski ekki — en ég mun örugg-
lega leggja mig alla fram,“ sagöi
Köppen. „En þrátt fyrir aö ég tapi
veröur engin ástæöa til þess aö
fella tár. Ég hef unniö alla titla sem
eitthvaö er variö í aö vinna og vona
aöeins aö mér takist aö Ijúka ferli
mínum meðal þeirra bestu.”
Köppen hefur 25 sinnum oröið
Noröurlandameistari í einliöa- og
tvíliöaleik, varö fyrst heimsmeistari
1977, sigraöi á AII-England-mótinu
1979 og 1980 og varö svo aftur
heimsmeistari 1982. Hún segir þaö
nauösynlegt fyrir badmintonspil-
ara aö vera ætiö vel á sig komna
bæöi andlega og líkamlega, og
hún sýndi aö hún var svo sannar-
lega vel á sig komin er hún lauk
tannlæknanámi meö fyrstu eink-
unn aöeins hálfum mánuöi eftir aö
hún varö heimsmeistari 1977.
Síöustu fjögur ár hefur hún sam-
einaö badmintonleikinn, hjóna-
bandiö og skólatannlæknastarfiö.
Hún setti einnig á fót fyrirtæki sem
sér um „rekstur hennar", og eru
hún og eiginmaöur hennar fram-
kvæmdastjórar þess, en sex aörir
eru þar í hálfu starfi. f fyrra var
gróöi fyrirtækisins um 300.000
danskar krónur (um 750.000 ísl.
krónur), sem aö mestu leyti voru
sigurlaun og auglýsingatekjur.
Lene segir ástæðuna fyrir því aö
hún sé aö hætta ekki þá aö hún
hræöist kínversku stúlkurnar. „Ég
varö bara þreytt og leiö á badmin-
ton í fyrra, og tók mér þá langt hló
frá keppni. Líkamlega séö get ég
alveg staöiö þeim kínversku á
sporöi, en þær eru ótrúlega snögg-
ar, og ég hef ekki orðið sneggri í
hreyfingum meö aldrinum."
Hún segist aldrei hafa séö
kvenmenn leika badminton eins
vel og í úrslitaleik All-England-
keppninnar fyrir stuttu, en þar
mættust tvær kínverskar stúlkur. í
undanúrslitunum steiniá Köppen
fyrir annarri þeirra og í fyrsta skipti
á ferlinum náöi hún ekki einu ein-
asta stigi í annarri lotunni.
„En ákvöröun mín um aö hætta
er ekki til komin af ótta viö þaö aö
ég geti ekki lengur veriö sú besta,
og ég reyni aö ýta þeirri hugsun til
hliöar aö ferli mínum sé aö Ijúka.
Ef ég hugsaöi um þaö nú væru
leikirnir á þessu móti tapaöir fyrir-
frarn," segir Lene.
• Pétur Guómundseon gorir *ér miklar vonir um aó komaat á
samning aftur (NBA, bandarfsku atvinnumannadeildinni {körfu-
knattleik.
Pétur Guðmundsson:
„Alveg viss um að
komast í NBA aftur“
— ÉG MUN HALDA utan til Bandaríkjanna í lok maí. Sennilega
20. maí og fara þá til Portland. Ég verö þar í æfingabúöum þar til
23. júií, en þá hefst mót ( Los Angeles, sem ég mun taka þátt (.
Ég hef sett stefnuna á þaó aó komast aftur inn í NBA og er alveg
viss um að þaö mun takast hjá mér, sagói Pétur Guömundsson
körfuboltamaöur í spjalli viö Mbl. (gær.
— Að undanförnu hef ég æft lyftingar af mjög miklum krafti í
Æfingastööinni aö Engihjalla. Ég hef styrkst mjög mikiö, en þaö
var einmitt eitt af því sem mig vantaöi, meiri líkamlegur styrkur.
Þegar ég kem út til Portland mun ég halda æfingunum áfram,
meiri lyftingar, en jafnframt þá taka til viö æfingar með körfubolta.
Um miöjan ágúst munu málin vera farin aö skýrast og þá kemur í
Ijós hvort ég kemst aftur á samning í NBA eða ekki. Ég mun leggja
mig allan fram um aö komast í liö, hvort sem þaö veröur aftur hjá
Portland eða einhverju ööru liöi. Og sannfæring mín segir mér aö
þaö muni takast, sagöi Pétur. — ÞR
Jón Diðriksson
byrjar ágætlega
JÓN Diðriksson langhlaupari úr
UMSB náói ágætum árangri (
fyrstu tveimur brautarhlaupum
sínum í Vestur-Þýzkalandi, en
þar hefur Jón dvalizt viö nám og
íþróttaiökun undanfarin ár.
Á móti í Köln um fyrri hetgi
hljóp Jón 2000 metra á 5:15,11
mínútum, sem er innan vió fjór-
um sekúndum frá íslandsmeti
hans. Jón varð annar ( hlaupinu,
tæpri sekúndu á eftir stórhlaup-
aranum Harald Hudak, sem er (
hópi fimm beztu 1500 metra
hlaupara frá upphafi. í hlaupinu
sigraði Jón m.a. landsliösmann-
inn Henning von Papen.
Á móti í Bonn á laugardag hljóp
Jón svo 3000 metra á 8:14,31 mín-
útu, sem einnig er aöeins nokkrum
sekúndum frá íslandsmetinu, sem
Jón á aö sjálfsögöu einnig.
I þessu hlaupi voru, aö hans
sögn, mættir allir beztu hlauparar
V-Þýzkalands aö Thomas Wess-
inghage undanskildum, og til stóö
aö hlaupa upp á góöan árangur.
Byrjunarhraöinn var hins vegar
ekki mikill og tók Jón sig þá til, fór
í forystu og hélt hraöa upp á 8
mínútur. Fjarlægöist hann keppi-
nauta sína, en erfiöar æfingar aö
undanförnu sögöu til sín og drógu
nokkrir hlauparar hann uppi í síö-
asta hring. Varö Jón fjóröi, en
gamla kempan Hans Ortmann
vann hlaupiö á 8:07 mínútum.
Jón Diöriksson hefur æft betur í
vetur en áöur og ef allt gengur aö
óskum er viö því að búast aö hann
stórbæti flest íslandsmet sín í
sumar. - ágás.