Morgunblaðið - 04.05.1983, Síða 30
70 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1983
safjörður er miðstöð ferðamannaþjónustunnar á Vestfjörðum. Hér sést yfir gamla kaupstaðinn.
Náttúrufegurð er víða mikil á Vestfjörðum. Þeari mynd er tekin rið Hornbjarg.
Ferðaskrifstofa Vestfjarða:
Vestfirðir mikið til ónum
ið land fyrir ferðamenn
„FERÐASKRIFSTOFA Vestfjarða var stofnuð fyrir um það bil einu og hálfu
árí. Eigendur eru Flugleiðir hf„ biejarsjóður Isafjarðar, Ferðaskrifstofan
Úrval, Alþýðusamband Vestfjarða og fleiri, allt í allt tíu aðilar,“ sagði Reynir
Adolfsson, framkvæmdastjóri Ferðaskrifstofu Vestfjarða, þegar Morgun-
blaðið forvitnaðist um rekstur fcrðaskrifstofunnar og ferðamöguleika á Vest-
fjörðum.
„Aðaltilgangur ferðaskrifstof-
unnar er að auka fjölbreytni í
ferðamálum Vestfirðinga, þ.e.a.s.
að auka ferðalög útlendinga og ís-
lendinga um Vestfirði. Síðastliðið
sumar var nokkurs konar byrjun
og stóð þá ferðaskrifstofan fyrir
sex ferðum norður á Hornstrand-
ir. Nú þessa dagana er að koma út
ferðabæklingur, þar sem ferðir
þær sem ferðaskrifstofan stendur
fyrir I sumar verða kynntar.
Stefnt er að því að bjóða upp á
einhverjar ferðir á hverjum degi
frá 15. júní fram í byrjun sept-
ember.
Skoðunarferðir um bæinn ísa-
fjörð eru nú teknar upp í fyrsta
skipti og er farið um bæinn og
saga hans rakin. Farið verður til
Bolungarvíkur og alla leið út í
Skálavík, vík sem nú er komin í
eyði. Yfir hásumarið verður boðið
upp á sólarlagsferðir og er þá boð-
ið upp á kaffi og meðlæti úti í
náttúrunni.
Fagranesið mun sigla um ísa-
fjarðardjúp tvo daga vikunnar og í
tengslum við þær ferðir býður
ferðaskrifstofan farþegum upp á
að aka inn Djúpið aðra leiðina að
morgni og að taka síðan bátinn frá
Reykjanesi til baka. Þá er í sam-
vinnu við flugfélagið Erni boðið
upp á útsýnisflug um Vestfirði.
Hornstrandaferðir verða í
sumar eins og í fyrrasumar og
verður boðið upp á helgarferðir í
Aðalvík og Hornvík, en einnig
lengri gönguferðir, 5—10 daga.
Allar ferðir norður á Hornstrand-
ir eru með fararstjórum.
Það sem aðallega er verið að
reyna hérna með rekstri ferða-
skrifstofunnar er að bjóða ferða-
mönnum og þá ekki síður Islend-
ingum en útlendingum upp á hag-
kvæmar ferðir um Vestfirði og að
kynna Vestfirði sem ferðamanna-
stað. Þetta eru fyrstu skrefin sem
verið er að stíga, það voru engar
slíkar skipulagðar ferðir hér áður
en ferðaskrifstofan tók til starfa.
Við reynum að nýta þau sam-
göngutæki sem fyrir hendi eru og
tengja þau saman, eins og til
dæmis Djúpbátinn, Vestfjarðaleið
og flug um Vestfirði.
Hvað rekstur ferðaskrifstofunn-
ar almennt snertir að öðru leyti,
þá erum við með umboð bæði fyrir
Samvinnuferðir og Úrval í sam-
bandi við sólarlandaferðir. Við
höfum því upp á marga möguleika
að bjóða til utanlandsferða fyrir
Vestfirðinga.
Um undirtektir við rekstri
ferðaskrifstofunnar frá þvi að hún
var stofnuð má segja, að þær hafi
verið mjög jákvæðar. A síðast-
liðnu ári gekk reksturinn eins og
til var ætlast og jafnvel betur og
árið í ár hefur byrjað mjög vel.
Við erum með í undirbúningi núna
bækling með upplýsingum um alla
Vestfirði, sem við vonum að komi
á markaðinn i endaðan apríl, þar
sem hver og einn bæjarkjarni er
tekinn fyrir og kynntur. Þar verða
einnig göngukort og bæjarkort frá
hverjum þéttbýliskjarna og upp-
lýsingar um þjónustu á hverjum
stað fyrir sig, auk náttúrulýsinga
frá ýmsum stöðum á Vestfjörðum.
Þá munum við auðvitað setja
saman pakka með ferðum og gist-
ingu eftir óskum hvers einstakl-
ings. Þar getur verið um mikla
fjölbreytni að ræða. Hér á Isafirði
erum við til að mynda með gist-
ingu sem spannar allar þarfir
ferðamanna, allt frá farfugla-
heimili upp mjög fullkomna gisti-
aðstöðu fyrir ferðamenn. Við
munum í sumar hafa manneskju
staðsetta á flugvellinum á ísafirði,
sem taka mun á móti ferðamönn-
um þar og leiðbeina þeim um það
sem þeir kunna að þarfnast og
óska eftir.
Síðar meir eru i undirbúningi
ferðir um aðra hluta Vestfjarða,
til að mynda um Barðaströndina,
þar sem eru mjög margir fallegir
og sérkennilegir staðir eins og til
dæmis Látrabjarg og þar er líka
allur Breiðafjörðurinn aðgengi-
legur.
Með þessum rekstri hér á Vest-
fjörðum erum við að nema ónumið
land og þar bíða ótal verkefni. Til
dæmis grunar mig að margir ís-
lendingar, sem þó kannski telja
sig hafa farið víða um landið, hafi
alls ekki komið til Vestfjarða og
það er verkefni út af fyrir sig að
benda þeim á þá fallegu náttúru,
sem hér er og þeir hafa látið fram-
hjá sér fara. En náttúran hér er
mjög viðkvæm og við verðum að
fara að öllu með gát,“ sagði Reynir
að lokum.
MURFILL
KLÆÐNINGIN
TEYGJANLEGA
bítur sig viö undirlagiö
og vinnur meö því ár
eftir ár.
er vatnsþétt.
er samskeytalaus.
harönar ekki og hrekk-
ur því ekki í sundur.
hindrar aö vatn komist
í gegn.
• hindrar aö vatn leiti inn
í sprungur.
• andar og hleypir út
raka án þess aö leka.
• er ódýrari.
• er í mörgum litum.
Hugsaðu þig vel um
áður en þú velur
nokkuö annað.
S. SIGURÐSSON HF.
Hafnarfirði — Símar 50538 & 54535
r
Frá Afengisvarnarráöi
Skýrslan
sem stung-
iö var
undir stól
Merk skýrsla er nýkomin út í
Stokkhólmi. Hún fjallar um
áfengismál á Bretlandi og ber
nafnið „Alcohol Policies in the
United Kingdom".
Undarlegt má virðast að
skýrsla þessi skuli gefin út í
Stokkhólmi. En það er upphaf
þess máls að sérfræðingar ríkis-
stjórnarinnar bresku í félags-
málum (The Governments
Central Policy Review Staff),
tóku saman skýrslu um ástandið
í áfengismálum og áfengismála-
stefnu Breta. Skýrslan var gerð
fyrir stjórn Verkamannaflokks-
ins og henni lokið f maí 1979.
Niðurstaða sérfræðinganna var
sú, að brýn nauðsyn væri að
koma í veg fyrir að áfengis-
neysla Breta héldi áfram að
aukast og voru tillögur um að-
gerðir þar að lútandi bornar
fram. Þetta þóttu stjórnmála-
mönnum vafasamar tillögur,
kosningar voru á næsta leiti og
útgáfu skýrslunnar frestað fram
yfir þær. Þeim lyktaði með sigri
íhaldsmanna og nýja stjórnin
ákvað að birta ekki skýrslu sér-
fræðinganna. Margrét Tatcher
lýsti því yfir I fyrirspurnartíma í
Neðri-deild breska þingsins í
nóvember 1979.
Niðurstöður vísindamann-
anna, sem skýrsluna sömdu, eru
í samræmi við það álit Alþjóða-
heilbrigðisstofnunarinnar
(WHO), að beint samband sé
milli heildarneyslu áfengis og
tjóns af völdum efnisins; og
neyslan sé ýmsu háð, m.a. við-
horfum manna og ekki síður þvf
hversu auðvelt sé að komast yfir
áfengi.