Morgunblaðið - 04.05.1983, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 1983
71
Eðlisfræöi:
V“-ÖGNIN
FUNDIN
Eftir fjörtíu ára leit, sem kostaö
hefur eðlisfræðinga um allan heim
mikil heilabrot og ómælda fyrir-
höfn, hefur hópur vísindamanna
nú skýrt frá þvf, að þeir hafi alveg
nýlega uppgötvað hina torfundnu
„v“-ögn, en hún virðist gegna lyk-
ilhlutverki í fjölskyldu atómagn-
anna, sem stjórna öllu efni.
Kjarnakljúfurinn
í Cern
„V“-agnarinnar hefur verið
leitað svo lengi, af því að álitið
var, að hún hefði til að bera eitt
af frumöflum náttúrunnar —
hið svokallaða veika afl — sem
álitið er, að eigi meðal annars
einna ríkastan þátt í myndun al-
gengrar geislavirkni.
Það er ennfremur skoðun vís-
indamanna, að uppgötvun þessi
renni hvað styrkustum stoðum
undir samruna tveggja þessara
afla, þ.e.a.s. rafsegulaflsins og
veika aflsins. Uppgötvunin kann
því að vera það skref, sem sker
að fullu úr um gildi hinnar
svonefndu samrunakenningar,
en hún gengur út á það, að öll öfl
náttúrunnar hafi upprunalega
verið eitt einasta afl.
Að sögn vísindamannanna
fannst „v“-ögnin við þá feikna-
legu krafta, sem leystust úr læð-
ingi með tilstyrk 540 milljarða
rafeindavolta í hinum risastóra
kjarnakljúf í kjarnorkurann-
sóknarstöðinni í Cern, skammt
frá Genf í Svisslandi. Þessi til-
raun var gerð þar í síðasta mán-
uði.
Þessi orka myndaðist í kjarna-
kljúfnum þegar rafeindum (sem
ásamt nifteindum mynda at-
ómkjarna) var skotið á gífurleg-
um hraða inn í straum and-
nifteinda. Vitað er, að sérhver
efnisögn á sér tilsvarandi and-
efnisögn, sem er næstum því al-
veg eins, en hefur aðeins mót-
setta hleðslu eða snúnings-
stefnu.
Hvenær sem unnt reynist að
láta efni rekast á and-efni sitt,
breytast þau í meiriháttar
orkublossa.
Fjögur höfuðöfl
í stórum dráttum er kjarna-
kljúfurinn i Cern einna líkastur
risastórum hring, um það bil 6,4
km að ummáli, og er honum
komið fyrir í neðanjarðargöng-
um báðum megin við svissnesk-
frönsku landamærin, djúpt í
jörðu, langt fyrir neðan svissn-
esk kúabú, skóga og akra.
Eftir að árekstri efnisagnanna
hafði verið komið í kring í
straummyndaranum, tók mikil
mergð atómagna að þeytast vítt
og breitt á mismunandi hraða
innan greinis kjarnakljúfsins. í
þeirri drífu efnisagnanna, sem
þarna myndaðist, fundu vísinda-
mennirnir „v“-ögnina. Þessi upp-
götvun leiddi í fyrsta skipti í ljós
tilveru þessarar sérstöku agnar,
sem felur í sér veika aflið, en það
er eitt af fjórum frumöflum
náttúrunnar. Hin eru rafsegul-
aflið, sem bindur saman atóm og
sameindir, sterka aflið, sem
heldur atómkjarnanum saman,
og svo þyngdaraflið.
Kenning Yukawas
Dr. Oarlo Rubbia við Har-
vard-háskóla í Bandaríkjunum,
einn af stjórnendum samstarfs-
hóps vísindamanna, sem unnið
hefur að þessum tilraunum í
Cern, sagði frá því á fundi í Fé-
lagi bandarískra eðlisfræðinga.
sem haldinn var í New York í
síðustu viku, að í um það bil ein-
um milljarða slíkra árekstra
efnisagnanna, hefðu fundist
fimm óvéfengjanlega „hrein" til-
felli með „v“-ögnum.
Svo virðist sem bæði hafi
myndast „v“-agnir með jákvæðri
og neikvæðri hleðslu. En vís-
indamönnunum tókst hins vegar
ekki að hafa upp á þriðju efnis-
ögninni, sem álitið er að feli
einnig í sér veika aflið, og kölluð
er „z“-ögn; hún hefur enga
hleðslu og er mun erfiðari að
sýna fram á, af því að hún hefur
miklu meiri massa en hinar.
Allt frá því að hið einstæða
vísindarit Japanans Hideki Yuk-
awa var birt árið 1935, hefur það
verið álit vísindamanna um all-
an heim, að sérhvert af öflum
náttúrunnar sé borið uppi af ein-
hvers konar efnisögnum, sem
losna. Rafsegulbylgjur eins og
ljósbylgjur og radíóbylgjur bera
tilveru rafsegulaflsins vitni.
Yukawa sagði réttilega fyrir
um tilvist þeirra agna, sem svo
síðar hlutu heitið mesónur og
bera með sér það afl, sem bindur
eindirnar í atómkjarnanum
saman. En hann sagði einnig, að
það hlyti að vera til ögn, afar
skammæ og með stóran massa,
sem fæli í sér veika aflið.
Veika aflið frá
þrenns konar ögnum
Síðar kom fram sú kenning, að
um þrenns konar agnir sé að
ræða, sem byggðu upp veika afl-
ið — þ.e.a.s. jákvætt hlaðin ögn
og önnur neikvætt hlaðin og svo
óhlaðna „z“-ögnin; saman stæðu
þær að veika aflinu. Enda þótt
veika aflið grípi ekki inn í
hversdagstilveru okkar á neinn
hátt eins og er með þyngdaraflið
eða rafsegulaflið (sem snýr
rafmótorum), skiptir það þó höf-
uðmáli í aðgerðum atómeind-
anna. Það orsakar til dæmis þá
tegund geislavirkni, sem þekkt
er sem beta-klofning, þegar raf-
eindir losna.
Við leitina að „v“-ögnum eru
hinar neikvætt hlöðnu rafeindir
og jákvætt hlaðnar eindir (and-
efnis-ögn rafeindar), sem látnar
eru rekast á, fremur en að notast
við róteindir til þess.
Nú þegar hefur verið hafist
handa við að byggja ennþá
stærri hring í þessu skyni í
kjarnorkurannsóknarstöðinni í
Cern, og við Stanford-háskóla í
Bandaríkjunum er einnig verið
að byggja álika stóran kjarna-
kljúf, en hönnun hans er þó all-
frábrugðin kjarnakljúfunum í
Svisslandi.
Með svo fullkomnum rann-
sóknarbúnaði verður bráðlega
unnt að gera mun nánari kann-
anir í smáatriðum á sviði
„v“-agna og „z“-agna og varpa
skýrara ljósi á fleiri einstök at-
riði viðvíkjandi þeim. Á þann
hátt er hægt að ná fram miklu
nákvæmari niðurstöðum en
gjörlegt er með árekstrum rót-
einda og andróteinda í þeim
kjarnakljúfum, sem nú eru not-
aðir í þessum vísindatilraunum.
Táknar miklar fram-
farir í eðlisfræöi
Á fundi með bandarískum eðl-
isfræðingum, sem haldinn var á
Hilton-hótelinu í New York, 26.
janúar síðastliðinn, skýrði
svissneski kjarneðlisfræðingur-
inn dr. Alan Rothenberg frá
Cern svo frá, að annar starfs-
hópur kjarnorkuvísindamanna,
sem samtímis vann að annarri
tilraun til að finna „v“-agnir
með því að beita róteindum gegn
and-róteindum, hafi í fjórum til-
vikum fundið „algjörlega áreið-
anleg“ dæmi um „v“-agnir. Hann
bætti samt við, að enn yrði að
vinna að frekari vísindalegum
tilraunum, áður en endanlegri
tilvist „v“-agna væri slegið föstu.
Hann lét jafnvel í það skína, að
þessar vísindalegu athuganir
starfshóps hans kynnu ef til vill
að hafa verið „eitthvað annað
fyrirbrigði, sem vísindahugsuðir
hefðu enn ekki látið sér detta í
hug.“
En kjarnorkuvísindastöðin í
Cern lét þó sjálf frá sér fara yf-
irlýsingu um, að hinar vísinda-
legu athuganir dr. Carlo Rubbias
og samstarfsmanna hans „stað-
festi, að uppgötvast hafi veik
samtengjandi vektor-ögn, sem
boðuð hafi verið í hinni saman-
teknu vísindakenningu um sam-
spil veikra og rafsegulmagnaðra
afla“. í yfirlýsingunni segir
ennfremur, að „þetta verður að
teljast meiriháttar framfara-
spor í þróun eðlisfræðinnar á
vorum dögum".
Þeir visindamenn, sem þátt
tóku í þessum veigamiklu til-
raunum á sviði kjarnorkueðlis-
fræði í Cern, voru þangað komn-
ir frá 11 vísindastofnunum í
Austurríki, Bretlandi, Frakk-
landi, Italíu, Svisslandi og frá
Bandaríkjunum.
Walter Sullivan
í stað þess að birta skýrslu
þessa, var gefið út rit þar sem
bornar eru brigður á að nokkurt
samband sé milli heildarneyslu
og ofdrykkju og því haldið fram
að engin nauðsyn sé að draga úr
drykkjuskap. Hvatt er til atferl-
is sem höfundur nefnir „skyn-
samlega drykkju". Heiti bókar
þessarar er „Alcoholism and
Social Policy: are we on the lin-
es?“ og höfundurinn er M. Tuck.
I breska sérfræðiritinu, Brit-
ish Journal of Addiction (nr. 1,
77. árg. 1982), er skýrt frá því að
áfengisframleiðendur, þ.e. þeir
sem hagnast á framleiðslu og
sölu sterkra drykkja, hafi ráðið
því að skýrslu sérfræðinganna
var haldið leyndri enda séu póli-
tísk áhrif þeirra mikil. Tímaritið
telur að almenningur eigi heimt-
ingu á að fá vitneskju um hve
margir breskir þingmenn séu á
einhvern hátt tengdir áfeng-
isframleiðslu og/eða áfengissölu
og hve mikið fé áfengisiðn-
aðurinn leggi í sjóði stjórnmála-
flokkanna. Ritstjórn tímaritsins
hafði komist yfir eintak af
skýrslu sérfræðinganna en þorði
ekki að birta hana af ótta við
ákæru. En nú hefur Finninn
Kettil Bruun, prófessor í áfeng-
isfræðum við Stokkhólmshá-
skóla, tekið af þeim ómakið og
gefið skýrsluna út á vegum Fé-
lagsvísindastofnunar háskólans.
Þessi skýrsla, sem Bretastjórn
taldi svo hættulega að hún
mætti ekki koma fyrir almenn-
ings sjónir, hefst á greinargerð
um áfengisvandamál á Bret-
landi. Neyslan hefur aukist und-
anfarin 20 ár eins og víða annars
staðar. Hér á íslandi hefur hún
einnig aukist en þó ekki nærri
því jafnmikið og þar. Og það sem
sjálfsagt er athyglisverðast fyrir
okkur er það, að neysla sterkra
drykkja hefur aukist fimm
sinnum meira á Bretlandi en
hér. Drekka þó Bretar mikið af
sterku öli og þar eru ölkrár á
öðru hverju horni; en ýmsir ís-
lendingar virðast telja sölu
áfengs öls og bjórkrár líklegar
til að draga úr brennivíns-
drykkju hérlendis.
Eftirfarandi skrá sýnir aukn-
ingu áfengisneyslu á mann í
þessum tveim löndum milli ár-
anna 1968 og 1978 (miðað er við
hreinan vínanda).
Bretl. ísland
Sterkir drykkir +117% + 23,7%
Veik vín +265% +104 %
Á þessum tíma dró úr ölneyslu
á Bretlandi um 27% en hérlendis
mun hún hafa aukist á sama
tíma vegna sölu hraðölgerðar-
efna og heimilda flugliða til að
flytja sterkt öl inn í landið.
Samkvæmt skýrslunni gera
áfengisframleiðendur og inn-
flytjendur ráð fyrir að neyslan
muni halda áfram að aukast
verulega og hafa þeir hagað fjár-
festingum sínum eftir því.
Á síðastliðnum 20 árum hefur
dauðsföllum af völdum skorpu-
lifrar fjölgað um 50%, og 84%
fleiri karlmenn eru nú lagðir á
geðsjúkrahús vegna drykkju en
var fyrir 20 árum. Þó er hlutur
kvenna þar verri. Innlagnir
drykkjukvenna eru nú 145%
fleiri en fyrir tveim áratugum.
í öðrum kafla bókarinnar er
fullyrt að ákveðið samband sé
milli áfengisneyslu þjóðar og
þess tjóns sem hún veldur.
Því er mælt með því að ríkis-
stjórnin taki upp áfengismála-
stefnu sem komi í veg fyrir að
drykkjan aukist enn. Þetta er
raunar í samræmi við álit og
stefnu Alþjóðaheilbrigðisstofn-
unarinnar (WHO).
I þriðja kafla er lagt til að
þess verði gætt að raunverð
áfengis lækki ekki; jafnvel er
talið að rétt sé að það verði
hækkað til að vinna gegn að
drykkja aukist. Þetta hafði geð-
læknafélagið breska (Royal Col-
lege of Psychiatrists) lagt til I
merkri álitsgerð. Áfengisgerð-
armenn stungu aftur á móti upp
á að skattar á vöru þeirra yrðu
óbreyttir eða lækkaðir.
Fjórði kaflinn fjallar um
hömlur á sölu og (annarri) dreif-
ingu áfengis. Dreifingarstöðum
hefur verið fjölgað mjög síðustu
tvo áratugina. Meira að segja
kjörbúðir hafa fengið rétt til að
selja áfengi, að ógleymdum
kránum frægu og fjölda vínsölu-
húsa. Lagt er til að ríkisstjórnin
stemmi stigu við frekari fjölgun
áfengissölustaða.
í kafla, þar sem fjallað er um
áfengi og vinnu, er bent á að inn-
an vissra starfsstétta virðist
meiri hætta á að menn leggist i
drykkju en innan annarra. Þá er
bent á það fjárhagstjón sem
fyrirtæki, sveitarfélög og ríki
verða fyrir vegna slysa og fjar-
vista sem af drykkju stafa.
Athyglisverð skrá er birt um
dauða af völdum skorpulifrar en
sá kvilli er talinn alltraustur
mælir á áfengisneyslu þjóða. Ef
meðaldánarlíkur manna af völd-
um skorpulifrar eru 100 þá eru
dánarlíkur eftirtalinna starf-
stétta sem hér segir:
læknar 311
blaðamenn 314
sjómenn 628
víngarðaþjónar (bar) 633
kráareigendur (pub) 1.576
Sérfræðingarnir hvetja
stjórnvöld, fyrirtæki og stéttar-
félög til að einbeita sér að því að
koma í veg fyrir drykkju á
vinnustöðum.
Einn kaflinn fjallar um áfengi
og umferð. Árið 1967 voru sett í
Bretlandi ákvæði um leyfilegt
áfengismagn í blóði ökumanna.
Þau leiddu til þess að mjög dró
úr umferðarslysum. Sérfræð-
ingarnir leggja til að heimild
verði veitt til að ganga úr skugga
um hvort ökumaður sé ölvaður
með blástursprófunum á vegum
úti.
Þá er minnst á áróðurinn fyrir
áfengisneyslu og fræðsluna sem
á að stuðla að því að úr henni
dragi. Áfengisframleiðendur
leggja stórfé í auglýsingar, eink-
um í sjónvarpi. Og flestir þekkja
að ýmsir þættir í þeim fjölmiðli
eru þannig gerðir að í þeim er
um hvatningu til áfengisneyslu
að ræða. í skýrslunni er lagt til
að áfengisauglýsingar verði háð-
ar ströngu eftirliti, einkum með
tilliti til þess að komið verði í
veg fyrir að áfengisneysla sé
gerð eftirsóknarverð. Sérfræð-
ingarnir vilja láta rannsaka
framlög áfengisframleiðenda til
íþróttahreyfingarinnar.
I kafla um milliríkjaviðskipti
er sagt að viskíútflutningur sé
fjárhag Breta mikilvægur. Bent
er á að ef til vill geti hann orðið
bitbein þjóða í milli í náinni
framtíð þar eð Alþjóðaheilbrigð-
isstofnunin hafi lýst því yfir að
aukið tjón af völdum áfengis í
þróunarlöndunum sé uggvænleg.
Sérfræðingar hafa áhyggjur af
innflutningi tollfrjáls víns frá
öðrum löndum Efnahagsbanda-
lagsins, en hann eykst sífellt.
Stungið er upp á að hafnar verði
viðræður innan Bandalagsins
um að draga úr vínframleiðslu.
Að lokum er drepið á stjórn á
áfengismálum. Hún er nú á
mörgum höndum í Bretlandi.
Stungið er upp á að stofnað verði
Áfengisvarnaráð til að sam-
ræma störf og stefnu.
Segja má að tillögur sérfræð-
inganna gangi ekki langt, ef mið-
að er við áfengismálastefnu á
Norðurlöndum og jafnvel í
Frakklandi. Ekki er rætt um að
draga úr áfengisneyslunni, held-
ur einungis að koma í veg fyrir
að hún aukist. En það var ekki
aðeins of stór biti að kyngja
fyrir áfengisframleiðendur held-
ur jafnvel einnig fyrir breska
stjórnmálamenn.
Tímaritið British Journal of
Addiction, sem fyrr var nefnt,
gagnrýnir enn í 2. hefti þessa árs
bresku stjórnina fyrir að birta
ekki skýrsluna. Jafnframt er
hæðst í ritinu að „skynsamlegri
drykkju" og meðal annars sagt
að skorpulifur gefi tilefni til
aukinna fjárfestinga í breskum
áfengisiðnaði. í forystugrein
sama heftis er hvatt til átaks
gegn áfengisvandanum þótt
„ríkisstjórn, sem sé fús til að
selja heilbrigði þjóðarinnar fyrir
ágóðahlut og eigin hag, spyrni
við fótum."